Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 38

Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 ✝ Eva Magn-úsdóttir fædd- ist í Hnífsdal 19. desember 1926. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Boðaþingi í Kópa- vogi 20. júlí 2020. Hún var dóttir Petrínu Sigrúnar Skarphéðinsdóttur, f. 28.11. 1892, d. 24.4. 1933, og Magnúsar Guðna Péturssonar, f. 1.1. 1888, d. 24.4. 1964. Systkini Evu, sammæðra, voru Sigríður Aðalheiður Pétursdóttir, f. 15.9. 1915, d. 11.3. 1999, Hallgrímur Pétursson, f. 16.12. 1916, d. 12.3. 1941, og Magnús Björn Pét- ursson, f. 21.6. 1920, d. 15.12. 1988. Alsystkini Evu eru Pétur Jóhann, f. 23.7. 1925, d. 12.8. 2015; Páll Sigmundur, f. 18.1. 1928, d. 8.8. 1932; Skúli, f. 1930, hann lést sex daga gamall; Ósk- 24.1. 1948. Börn þeirra eru: Hjörvar, f. 8.10. 1978, Sandra, f. 13.12. 1981, Hilmir Snævar, f. 20.6. 1987, og Brynjar, f. 2.11. 1988. 4) Guðrún, f. 30.3. 1959, eiginmaður hennar er Þorsteinn Pálmarsson, f. 30.9. 1957. Börn þeirra eru: Eva, f. 14.2. 1980, Pálmar, f. 30.3. 1983, og Tinna, f. 6.5. 1988. Barnabarnabörn Evu og Steinþórs eru 19 talsins, þau heita: Noa, Leo, Karl August, Ingrid Tsione, Oscar Adama, Theo, Quinn, Ari Dagur, Daði Gabríel, Júlía Lind, Andri Ísak, Bergdís María, Sigurjón Bjarki, Lilja Katrín, Þorsteinn Kári, Gunnar Marinó, Eyjólfur Sverr- ir, Emil Örn og Sara Líf. Eva ólst upp á Flateyri en flutti 16 ára til Reykjavíkur. Hún starfaði meðal annars á Sauma- stofunni Feldi, síðar við versl- unarstörf hjá Gunnari Ásgeirs- syni, versluninni Draktinni en síðast vann hún í Þjóðleikhúsinu. Útför Evu fer fram frá Linda- kirkju í Kópavogi í dag, 6. ágúst 2020, klukkan 15. ar, f. 19.3. 1931; Guðný María, f. 25.2. 1933; Guð- mundur Ingvar, f. 25.2. 1933, d. 4.2. 2012. Eftirlifandi eig- inmaður Evu er Steinþór Marinó Gunnarsson, f. 18.7. 1925, og gengu þau í hjónaband hinn 15.11. 1947. Dætur þeirra eru: 1) Sigrún, f. 1.7. 1947, hún á tvo syni með fyrr- verandi eiginmanni sínum, Bernt Eggen, f. 10.2. 1944. Þeir heita Bjarki, f. 10.1. 1968, og Böðvar, f. 28.11. 1969. 2) Erna, f. 25.6. 1952, eiginmaður hennar er Eyjólfur Hjaltason, f. 24.9. 1951. Börn þeirra eru: Elvar Marinó, f. 2.2. 1979, og Rut, f. 15.11. 1982. 3) Hildur, f. 09.1. 1955, eiginmaður hennar er Jó- hannes Kristján Guðlaugsson, f. Elsku mamma. Ég á erfitt með að setja þessar línur á blað. Minningar hrannast upp, hvar á að byrja? Mig langar að segja svo margt, mig langar að telja upp stundir í æsku, stundir í mínum uppvexti, stundir sem gerðu mig svo hamingjusama með þér við mína hlið, brosið þitt, hlátur og hnyttni. Hjálpina sem þú veittir mér í gegnum brotin bein, sársauka og jafnvel góða aðstoð við börnin mín á erf- iðum tímum. Þú varst alltaf hjá mér. Það er kannski helst á þess- um tíma sem við hugsum til baka og gerum okkur grein fyrir því hve mikilvægt hlutverk mömmu var í okkar lífi, hennar hlutverk var svo stórt, hún baðaði, greiddi, dekraði, þurrkaði tárin og var alltaf í grenndinni til að taka mig í faðm sinn og veita mér huggun. Elsku mamma, árin hafa liðið, aldurinn færst yfir. Þú fjarlægð- ist mig, okkur öll, en samt vissi ég alltaf að þú fylgdir mér, þú brostir, í augu þín komu gleðitár er þú sást mig og ég vafði þig teppi og strauk kinnar þínar og enni, þú varst ennþá mamma mín, ennþá mamma sem hugg- aðir mig og nú var það mitt hlut- verk að fylgja þér síðustu sporin. Elsku mamma mín, ég þakka forsjóninni fyrir að hafa átt þig sem elskaðir okkur svo undur- heitt. Nú bíður Sumarlandið þín, ég sakna þín óendanlega mikið en veit þó í hjarta mínu að þar bíður þín fjöldi ættingja og vina sem tekur þér opnum örmum. Megi algóður Guð varðveita þig og blessa elsku mamma mín. Þú ert gull og gersemi góða besta mamma mín. Dyggðir þínar dásami eilíflega dóttir þín. Vandvirkni og vinnusemi væntumþykja úr augum skín. Hugrekki og hugulsemi og huggun þegar hún er brýn. Þrautseigja og þolinmæði kostir sem að prýða þig. Bjölluhlátur, birtuljómi, barlóm lætur eiga sig. Trygglynd, trú, já algjört æði. Takk fyrir að eiga mig. (Anna Þóra) Þín dóttir, Guðrún Steinþórsdóttir. Okkar elskulega móðir, amma og langamma, Eva Magnúsdótt- ir, andaðist í faðmi fjölskyldunn- ar að nóttu til 20. júlí, 93 ára gömul. Eva lætur eftir sig stóra fjöl- skyldu, bæði á Íslandi og erlend- is. Okkar grein fjölskyldunnar hefur verið búsett í Noregi í hálfa öld, en við vorum alltaf vel- komin til Evu og Steinþórs á Ís- landi. Það var alltaf pláss fyrir okkur. Veggirnir á heimili Evu voru prýddir fallegum málverkum Steinþórs og innrömmuðum myndum af dætrunum fjórum, ásamt myndum af öllum barna- börnum og barnabarnabörnum. Í myndaalbúmum voru svarthvítar myndir frá liðinni tíð sem segja sögu bernskunnar og nægjusemi í uppvextinum á Vestfjörðum, langt frá allsnægtum og amstri nútímans. Eva var Vestfirðingur í hjarta sínu, hún elskaði að heimsækja átthagana og litla fallega þorpið Flateyri við Önundarfjörð þar sem hún ólst upp. Fjölskyldan hefur oft farið með Evu og Stein- þóri til Vestfjarða og heyrði þau segja sögur af forfeðrum, fjörð- unum, fjöllunum og þorpunum og bernskunni þar. Síðast fórum við til Flateyrar og Suðureyrar sumarið 2010. Eva og Steinþór hafa alltaf verið miðpunktur fjölskyldunnar þegar stórfjölskyldan hefur kom- ið saman. Það hefur gefið okkur styrk, hjartahlýju, nóg pláss fyr- ir alla og góðar samverustundir öll árin. Eva var sjálfstæð, stolt og sterk kona. Hún var falleg og alltaf glæsileg, háreist og tign- arleg. Hún var alltaf tilbúin til að hjálpa öðrum og var önnum kafin kona. Eva elskaði að ferðast um landið, þá var hringvegurinn, Vestfirðirnir, Suðurlandið, Snæ- fellsnes og Reykjanes. En Eva hafði líka áhuga á ferðalögum erlendis þar sem hún fékk tækifæri til að sjá stóran hluta af veröldinni og má þar nefna Alpana og Adríahafið, Pýreneafjöllin og Biskayflóa. Hún sá Effelturninn í París og síkin í Feneyjum, Prada-safnið í Madrid, miðaldarbæinn Rothen- burg í Þýskalandi, dómkirkjuna í Köln, Niðarósdómkirkjuna í Þrándheimi, Kyrrahafið frá Bandaríkjunum, Yellowstone, Rocky Mountains og svo lengi mætti telja. Hún hefur einnig ferðast til Vancouver í Kanada og heimsótt systur sína Maríu í Seattle í Bandaríkjunum. Eva og Steinþór ferðuðust líka oft til Noregs, heimsóttu okkur í Stavern, sumarhúsið í Kragerø og heimsóttu Einar og Dagny í Rjukan. En mikilvægasti staðurinn af öllum var heimili hennar í Heið- argerði 48, Reykjavík. Minningarnar um Evu eru margar og góðar. Hún mun skilja eftir sáran söknuð hjá okkur öll- um. Við geymum þig djúpt í hjarta okkar, þar sem þú færð heimili meðal okkar kærustu minninga. Kærar þakkir fyrir einlægt bros og margar gleðistundir. Takk fyrir góðar stundir sem við áttum saman. Enginn fylgir okkur til eilífð- ar, en minningarnar geymum við, þær hjálpa okkur þegar söknuðurinn er mikill. Minning- arnar um elskulegu Evu mun dvelja hjá okkur þar til við hitt- umst á ný. Sigrún Steinþórsdóttir, Bernt Eivind Eggen Bjarki Eggen, Ina Branten- berg, Noa Brantenberg Eggen, Leo Eggen Branten- berg Bodvar Eggen, Anne Marit Sollie, Karl-August Thorsby Eggen, Ingrid Tsione Solum, Oscar Adama Solum. Að skrifa minningar um ein- hvern sem hefur verið manni svo kær er afar erfitt. Öll flóra góð- mennsku og gleði gerir manni orða vant. Það verður aldrei hægt að telja upp þær stundir sem manni hefur verið sýnd sú væntumþykja og ást sem hún Eva, mín elskulega tengda- mamma, hefur sýnt mér frá því að ég kynntist dóttur hennar. Ég var ungur þegar ég hóf sambúð með dóttur Evu og Steinþórs og kom frekar óhefl- aður í þeirra fastmótaða, ástúð- lega samfélag en fann samt fljótt að hennar ótrúlegu mannkostir gerðu alla betri. Mjög snemma fann ég að ég eignaðist vin sem gerði mig að jafningja sínum, vin sem leiðbeindi mér án gagnrýni og sýndi mér margar hliðar mannlegrar hegðunar án for- dóma. Hún hafði þann einstaka hæfileika að beina athygli manns að kostum fólks frekar en löst- um, hún var einstök. Með eftirsjá kveð ég góðan vin en veit samt að hún er á góðum stað, veit einnig að hún mun vaka yfir fjölskyldu sinni sem henni þótti svo ofur vænt um. Að lokum vil ég þakka þér, elsku Eva mín, fyrir allar okkar góðu stundir og gef þér góða ferð. Þinn tengdasonur, Þorsteinn Pálmarsson. Í huga mínum hljómar kunn- uglegt lag. Minningin er ekki skýr. Það eru ekki atburðir sem koma upp í hugann, heldur til- finningar. Allt er svo kyrrt, svo hljótt og svo notalegt. Ég heyri hljóðið í saumavélinni, finn áferð- ina á tvinnakeflunum, upplifi skapraunir við að sleikja síðustu deigagnirnar úr skálinni. Ég finn lyktina í garðinum, bragðið af graslauknum, rabarbaranum og berjunum. Svalinn af votu hör- undi eftir að þú þværð mér um höfuðið með þvottapokanum fyr- ir svefninn, róin sem yfir mig færist þegar þú biður með mér bænir. Í litlu húsi, út við lygnan straum. Þar líð ég inn í ljúfan draum. Eins og þú amma mín, sem smám saman fjarlægðist okkur hve nærri sem þú ávallt varst. Þetta var á þeim tímum þar sem samveran snerist ekki um að skapa minningar á skipulegan hátt heldur voru samveran og gæðastundirnar fólgnar í að fylgja þeim fullorðnu eftir í þeirra daglegu verkum. Þegar ég horfi um farinn veg sé ég hve mikið gildi er í því fólgið og hve mikið af því sem gerir mig að þeim manni sem ég er í dag er frá þér komið. Viðhorf mín til lífs og hluta, hvernig ég annast mína eigin drengi og það sem ég tem þeim. Takk fyrir að hafa annast mig. Takk fyrir vera amma mín. Guð geymi þig. Pálmar Þorsteinsson. Systir mín, Eva Magnúsdóttir, er látin 94 ára að aldri, fædd 1926 í Hnífsdal, fimmta í röð systkina. Fárra mánaða gömul fluttist hún að Kleifum í Seyð- isfirði við Djúp ásamt systkinum og foreldrum okkar, Petrínu Sig- rúnu Skarphéðinsdóttur og Magnúsi Guðna Péturssyni. Petrína hafði áður verið gift Pétri Sigurði Péturssyni, bróður Magnúsar, og átti með honum þrjú börn, Sigríði Aðalheiði, Hallgrím og Magnús Björn. Pét- ur drukknaði árið 1921 og tók þá Magnús ábyrgð á fjölskyldunni svo hún tvístraðist ekki, eins og oft gerðist á þeim tíma, jafnvel að kröfu sveitarfélagsins. Síðar giftust þau Petrína og Magnús og áttu sitt fyrsta barn, Pétur Jó- hann, 1925. Á Kleifum eignaðist Eva þrjá bræður til viðbótar, Pál fæddan 1927, Skúla 1930 og Ósk- ar 1931. Skúli dó fárra vikna gamall. Vorið 1931 fluttist fjöl- skyldan til Flateyrar og settist að í Gunnlaugshúsi sem Magnús og bræður hans áttu. Fjölskyld- an varð fyrir miklu áfalli er Páll dó aðeins tæpra fimm ára gamall í ágúst 1932. Ári síðar, 25. febr- úar, fæddust tvíburarnir María og Ingvar, og stuttu síðar lést móðir okkar úr lungnabólgu og litlu tvíburarnir fóru í fóstur hvort á sitt heimilið. Magnúsi tókst þó að halda saman fjöl- skyldunni með aðstoð elstu dótt- urinnar, Sigríðar, sem tók að sér húsmóðurhlutverkið. Þessi miklu áföll hljóta að hafa haft mikil áhrif á Evu, sem sex ára gömul missir á stuttum tíma góðan bróður og leikbróður og síðan móður sína. Um slíka hluti var ekki rætt í þá daga en enginn veit hvað í annars huga býr. Ef eitthvað bjátaði á hjá Evu átti hún hauk í horni því að á efri hæðinni bjó gömul kona, Guðrún Guðmundsdóttir, sem huggaði hana. Löngu síðar kom í ljós að Guðrún var hálfsystir langafa okkar. Ung var Eva farin að passa börn, eins og stelpur gerðu gjarnan, en svo var henni ellefu ára gamalli trúað fyrir því að sjá um heyþurrkun með minni að- stoð. Pabbi sló á frívaktinni sinni hæfilega mikið fyrir okkur að vinna úr. Eva stóð sig eins og hetja, en hræddur er ég um að ég hafi verið dálítið latur. Stundum þurfti hún að hasta svolítið á litla bróður, en allt gekk þetta upp og þannig tókst að ná inn heyjum fyrir þessar 20 ær sem við áttum. Svo var barnæskan allt í einu búin og Eva fór að vinna í frysti- húsinu, sem ég held að henni hafi ekki þótt skemmtilegt, svo úr varð að hún fór að leita gæfunnar Eva Magnúsdóttir ✝ Olgeir Möllerfæddist 15. júlí 1928 í Kaupmanna- höfn. Hann lést á Landspítala Vífils- stöðum 26. júlí 2020. Foreldrar Olgeirs voru Andreas Fynn- ing, f. 18.4. 1904, d. 14.9. 1994, hagfræð- ingur og orðabóka- höfundur, og Sigríð- ur Möller, f. 4.1. 1906, d. 7.3. 1975, garð- yrkjukona. Þau skildu. Bróðir Olgeirs var Páll Eiríkur. f. 8.3. 1930, d. 27.9. 1998. Olgeir kvæntist 1956 eftirlif- andi eiginkonu sinni, Sigríði Valgerði Ingimarsdóttur hjúkr- unarritara, f. 2.1. 1935. For- eldrar hennar voru Ingimar Ingimundarson, f. 21.9. 1908, d. 11.5. 1993, og Hólmfríður Berg- þórsdóttir, f. 26.5. 1914, d. 5.4. 2000. þeirra Hugrún Vaka, f. 2016, og Hinrik Lár, f. 2018. Stefán Már, f. 22.7. 1988, maki Hanna María Guðbjartsdóttir, f. 1988. Hildur Björk, f. 29.2. 1992, maki Ár- mann Hannesson, f. 1991. 5) Olga Hanna, viðskiptafræðing- ur, f. 26.10. 1962, maki Helgi Rúnar Jónsson, f. 19.3. 1958. Börn þeirra Sigríður Vala, f. 28.2. 1993, maki Gunnar Torfi Steinarsson, f. 1995, barn þeirra Viktoría Rán, f. 2020. Fanney Andrea, f. 19.8. 1996, maki Guð- jón Geir Geirsson, f. 1994. Jón Baldvin, f. 3.2. 1998, maki Arína Vala Þórðardóttir, f. 1998. Fyrir á Helgi Rúnar Magnús, f. 28.9. 1980, maki Sigurbjörg Ýr Guð- mundsdóttir, f. 1980, börn þeirra Þórhildur Tinna, f. 2005, Magnús Máni, f. 2010, og Bryn- hildur Arna, f. 2013. Barbara, f. 30.4. 1986, maki Valdimar Heið- ar Valsson, f. 1982, börn þeirra Birta Mjöll, f. 2006, Ísabella Mist, f. 2014, og Lilja Björt, f. 2018. Olgeir fluttist frá Kaupmannahöfn 1931 til Ak- ureyrar þar sem hann ólst upp hjá móðurforeldrum sínum, Eð- valdi Eilert Möller, f. 28.10. 1875, d. 24.2. 1960, og Pálínu Margréti Jóhannesd. Möller, f. 26.12. 1871, d. 22.6. 1946. Olgeir lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands 1949. Á árunum 1950-1953 stundaði hann nám í heimspeki og guð- fræði við Háskóla Íslands. Frá 1953 til 1956 vann Olgeir hjá Metcalfe-Hamilton á Kefla- víkurflugvelli. Á árunum 1956- 1986 starfaði hann hjá Sjóvár- tryggingarfélagi Íslands og síð- an hjá Húsnæðisstofnun ríkisins til 1998. Árið 1977 gekk Olgeir í Frí- múrararegluna á Íslandi. Hann var stofnaðili að Býflugnarækt- endafélagi Íslands. Olgeir var virkur félagi í Ættfræðifélaginu og sat í stjórn þess auk setu í stjórnum ýmissa félagasamtaka. Útför Olgeirs fer fram frá Neskirkju í dag, 6. ágúst 2020, kl. 11. Einnig verður streymt frá útförinni. www.utforom.is. Börn Olgeirs og Sigríðar: 1) Andr- eas, f. 12. 6. 1955, d. 21.4. 1978. 2) Árni, verkfræðingur, f. 11.6. 1956, maki Guðmunda Dagmar Sigurðardóttir, f. 23.7. 1969. Börn hennar Alexander, f. 1995, og Eva Katrín, f. 1997, Sig- urjónsbörn. 3) Eð- vald, verkfræðingur, f. 20.5. 1957, maki Þórdís Björnsdóttir, f. 1.7. 1954. Börn þeirra Harpa Björk, f. 21.12. 1987, maki Axel Haraldsson, f. 1987, barn þeirra Viktor Ari, f. 2019. Brynjar Örn, f. 15.5. 1992, maki Andrea Dögg Sigurðardóttir, f. 1992. 4) Páll Helgi, læknir, f. 4.8. 1960, maki Lilja Guðrún Björnsdóttir, f. 27.8. 1959. Börn þeirra Berg- lind, f. 4.9. 1984, maki Jóhann Örn Guðmundsson, f. 1984, börn Ég vil minnast föður míns Olgeirs Möller, er kvaddi þenn- an heim 92 ára að aldri. Pabbi var hæglátur og ljúfur maður og bar gæfu til að vera hraust- ur nánast alla sína ævi. Hann var félagslyndur og hafði gaman af öðru fólki og að vera í samneyti við aðra. Hann var virkur í starfi Frímúrara- reglunnar á Íslandi og ýmsu öðru félagsstarfi. Pabbi var virðulegur maður, myndarlegur, með sitt hrokkna þykka hár, var ávallt í skyrtu, bar silkislaufu og axlabönd. Sama hvenær mann bar að garði heima hjá mömmu og pabba, snemma að morgni eða seint að kvöldi, pabbi var alltaf svo vel til fara sem lýsti per- sónu hans svo vel. Áhugamál hans voru ýmis, svo sem býflugnaræktun og var hann einn af frumkvöðlum í þeirri ræktun hér á landi. Áhugi hans á ættfræði var mik- ill. Hann undi sér við að rýna í ættfræðiskjöl, skoða niðjatöl á Þjóðskjalasafninu og taka sam- an gögn varðandi forfeður okk- ar seinustu ár ævi sinnar. Pabbi var mjög andlega þenkj- andi og höfum við átt ófáar stundir gegnum tíðina þar sem við ræddum heimspekileg mál- efni. Þetta voru bæði lærdóms- rík og nærandi samtöl. Þegar ég hugsa til baka var samband okkar pabba alltaf gott og þegar ég leitaði ráða hjá honum voru svör hans upp- byggileg. Sem dæmi þegar ég sagði honum frá því að ég væri að hugsa um að fara í nám til Danmerkur með fjölskyldunni spurði hann mig: „Heldurðu að námið verði skemmtilegt?“ Þetta var allt sem hann sagði. Góður og þýðingarmikill punkt- ur sem ég hugsaði mikið um. Pabbi reyndist mér vel alla tíð. Mér er minnisstætt við- bragð hans þegar ég skemmdi bíl fjölskyldunnar stuttu eftir að hafa fengið bílpróf. Pabbi sagði að það skipti engu máli að bíllinn hefði skemmst en hins vegar spurði hann hvort ég hefði nokkuð slasað mig. Var ég honum ævinlega þakklát fyrir hans skilning. Það var gaman í æsku að fá að fara í sund með honum á sunnudögum. Pabbi synti sína 200 metra, við fórum í pottinn og þegar við komum upp úr lauginni fékk ég kók í flösku og lakkrísrör sem var stórkostlegt. Síðan var farið að skoða skip og báta við Reykjavíkurhöfn. Olgeir Möller Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.