Morgunblaðið - 06.08.2020, Page 45

Morgunblaðið - 06.08.2020, Page 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 „VIRÐIST NOKKUÐ SAKLEYSISLEG – EN HVAÐ EF ÞETTA ER FLUGUMAÐUR?” „HANN HEFUR EKKI ALLTAF VERIÐ SKÖLLÓTTUR. ÞETTA ER AFLEIÐING HNATTRÆNNAR HLÝNUNAR.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... söngur hjartans. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann EINS OG HONUM VERÐI NOKKURN TÍMANN BOÐIÐ Á DANSLEIK HRÓLFUR, ÞÚ MUNT ALDREI SIGRA MIG! ALLT Í LAGI! EF ÉG GET EKKI SIGRAÐ ÞIG ÞÁ GENG ÉG BARA TIL LIÐS VIÐ ÞIG! KLUKKAN HVAÐ ER KVÖLDMATURINN? Fjölskylda Eiginmaður Hönnu Maríu er Erlendur Ping Hwa Sen Jónsson, f. 26.4. 1948, prófessor emeritus í heim- speki við Háskóla Íslands. Foreldrar Erlends: Hjónin Jón Júlíusson, f. 11.12. 1926, d. 3.6. 1998, starfs- mannastjóri hjá Flugleiðum og Signý Una Sen Júlíusson, f. 23.7. 1928 í Kína, lögfræðingur og býr í Reykjavík. Börn Hönnu Maríu og Erlends eru 1) Jón Helgi Sen Erlendsson, 28.2. 1982, maki: Martina Vigdís Nardini, f. 11.8. 1985, læknir. Þau búa á Seltjarn- arnesi. Barnabörn: Emma Nardini Jónsdóttir, f. 13.10. 2010, og Elía Nar- dini Jónsdóttir, f. 21.10. 2014; 2) Guð- bergur Geir Erlendsson, f. 23.02.1986, verkfræðistjóri, maki: Sigríður Marta Harðardóttir, f. 15.10. 1986, lögfræð- ingur. Þau búa í Los Angeles. Barna- börn: Hanna María, f. 18.6. 2013, Ragnheiður Sara, f. 27.6. 1915, Sigríð- ur Linda, f. 29.6. 2017. Systkini Hönnu Maríu eru Vil- hjálmur Geir, f. 8.9. 1951, viðskipta- fræðingur, maki: Kristín Guðmunds- dóttir; Jóna, f. 10.6. 1953, hjúkrunar- fræðingur, maki: Þórólfur Þórlinds- son; og Siggeir, f. 30.9. 1959, rafeinda- virki, maki: Auður Þórhallsdóttir, öll búsett í Reykjavík. Foreldrar Hönnu Maríu voru hjón- in Sigríður Hansdóttir, f. 6.7. 1916, d. 17.3. 2003, húsmóðir, og Siggeir Vil- hjálmsson, f. 15.6. 1912, d. 29.9. 1998, heildsali í Reykjavík. Hanna María Siggeirsdóttir Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja á Gelti Guðmundur Ásgrímsson útvegsbóndi á Gelti við Súgandafjörð María Helga Guðmundsdóttir húsfreyja á Suðureyri og Reykjavík, sinnti ljósmóðurstörfum á Suðureyri Hans Kristjánsson framkvæmdastjóri á Suðureyri og í Rvík, stofnandi Sjóklæðagerðarinnar og 66° norður Sigríður Hansdóttir húsmóðir í Reykjavík Guðrún Þórðardóttir ljósmóðir á Suðureyri Kristján Albertsson bóndi og kaupmaður á Suðureyri Guðbergur Bergsson rithöfundur Agnes Jónsdóttir húsfreyja í Miðhúsum í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík Jóhanna Vilhjálmsdóttir húsfreyja í Grindavík Jón Steinar Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði í Þrándheimi Guðmundur Hansson verslunarmaður í Reykjavík Valgerður Gamalíelsddóttir húsfreyja á Þórkötlustöðum Jón Þórðarson útvegsbóndi á Þórkötlustöðum í Grindavík Jónína Jónsdóttir verkakona og húsfreyja í Hafnarfirði Vilhjálmur Geir Gestsson sjómaður og verkamaður í Hafnarfirði Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Gafli og Skúfslæk Gestur Gamalíelsson bóndi á Gafli og Skúfslæk í Flóa Úr frændgarði Hönnu Maríu Siggeirsdóttur Siggeir Vilhjálmsson heildsali í Reykjavík Helgi R. Einarsson segir, að KáriStefánsson eigi skilið hrós fyr- ir að láta skoðanir sínar í ljós, án vafninga. Ekki veiti okkur af, þessa síðustu daga. Kári í beinni sig byrsti og höfuðið gáfulegt hristi. Rúnum var ristur, réttsýnn sem Kristur og Óðinn, sem augað sitt missti. Helgi fór með frúnni í strætó á þriðjudag og að gefnu tilefni varð þessi til: Forvitna fuglarnir skíta á. Fiskarnir önglana bíta á. Okkar á tímum eru takkar á símum til þess gerðir að ýta á. Davíð Hjálmar Haraldsson segir „enginn þrýstingur frá Bandaríkja- mönnum“ og yrkir: „Þeir setja mig síst undir pressu en sjáun hvað verður úr þessu“ hann sagði og blés með sældarlegt fés – og svo var hann orðinn að klessu. Ólafur Stefánsson bætti við: Þótt hálir séu hjá Huawei Hreppamönnum þeir snúa ei. Í G-5 má svíkja gróflega kíkja – Það gengur ekki, – ég púa: Nei. Hér getur Ólafur ekki orða bund- ist og þykir of langt gengið: Hún Sóley var siðprúðust kvenna, Sæmundur fékk þar á kenna. Hann reyndi hvað gat að reyta af fat, svo heilt yfir hætti að nenna. Helgi Zimsen yrkir og kallar „Ormanótt“: Regni er ausið ofanfrá enn á fullu stími. Veiðimönnum mætir þá mikill ormatími. Læðst er því með ljósið hljótt, létt um garð má spranga. Veitt er fyrir veiði í nótt, vel skal afla fanga. Fangahjörð í fötu ber, falleg kösin baksar. Síðar hún til fiskjar fer, þá fastnast henni laxar. – Ekki amaleg örlög það! Sigfús Jónsson í Skrúð orti vísu um aspir sem Flosi Ólafsson fór oft með: Rætur trjánna rjúfa frið ryðjast inn í skólprörið koma upp um klósettið og kitla mann í rassgatið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af fiskum, önglum og ánamöðkum www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is Einnota andlitsgrímur 3ja laga 10 stk. pakkningar 50 stk. pakkningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.