Morgunblaðið - 06.08.2020, Síða 46
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Körfuknattleiksmaðurinn Jón Arnór
Stefánsson skrifaði í gær undir
samning við Val og mun því hafa fé-
lagaskipti úr KR yfir í Val líkt og
vinur hans Pavel Ermolinskij gerði
fyrir ári. Við honum tekur Finnur
Freyr Stefánsson, fyrrverandi þjálf-
ari KR, sem réð sig til Vals eftir að
síðasta Íslandsmóti lauk.
Vistaskipti Jóns Arnórs eru mikil
tíðindi eins og nærri má geta. Körfu-
knattleiksdeild Vals, sem fremur lít-
ið fór fyrir árum saman, er nú með
innan sinna raða bæði Jón Arnór og
Helenu Sverrisdóttur. Helena er þó í
barnsburðarleyfi sem stendur. Jón
og Helena eru það íslenska körfu-
boltafólk sem lengst hefur náð í Evr-
ópu (þótt Martin Hermannsson sé
nú farinn að blanda sér í slíka sögu-
skýringu). Hlutirnir geta verið fljót-
ir að breytast hér á sögueyjunni.
Starfið í Val virðist nú vera í miklum
blóma og félagið teflir fram sex lið-
um í boltagreinum sem öll eru mjög
vel mönnuð.
„Í þessu felst viss yfirlýsing um að
fólk hérna vilji gera vel í körfubolt-
anum eins og verið hefur í fótbolt-
anum og handboltanum. Kvennalið
Vals hefur verið frábært undanfarin
ár og síðasta skrefið er þá að karla-
liðið í körfunni fari einnig á flug.
Þetta eru frábær tíðindi fyrir körfu-
knattleiksdeildina í Val og ekki síður
fyrir félagið,“ sagði Finnur Freyr
þegar Morgunblaðið spjallaði við
hann í Fjósinu, eins konar félags-
heimili Valsara, sem hýsti blaða-
mannafundinn í gær.
Leikstíllinn hefur breyst
Varla er hægt að lýsa komu Jóns
Arnórs sem öðru en hvalreka inni í
miðju landi. Þekkingin og hæfnin
sem hann kemur með inn í lið sem
lítið hefur afrekað í þrjá áratugi er
geysilega mikil. Þótt 38 ára sé þá er
Jón enn þá afar góður leikmaður fyr-
ir íslensku deildina. Er til að mynda
frábær varnarmaður og vörn skilar
jú sigrum í boltagreinunum. Jón
Arnór er hins vegar öðruvísi leik-
maður en áður. Hann býr ekki yfir
sömu snerpu og hraðabreytingum
og þegar hann var á hátindi ferilsins.
Sem skiljanlegt er. Hann beitir sér
því á annan hátt á vellinum.
Vitaskuld mun miklu máli skipta
hvort Jón og Pavel muni sleppa við
meiðsli næsta vetur en þeir hafa nú
haft óvenjulangan tíma til að jafna
sig á milli tímabila. En komist Vals-
liðið áleiðis í annarri hvorri keppn-
inni þá er ekki gott að glíma við
þessa refi í leikjum þar sem spennu-
stigið er hátt og þeir geta fundið
lyktina af kampavíninu.
Förum sparlega með hann
„Enn þá eru rosaleg gæði í Jóni og
það sáu allir sem sáu hann spila á
síðasta tímabili. Þeir sem þekkja Jón
og hans leikstíl vita að þegar hann er
á gólfinu þá er hann bara með einn
gír og það er fimmti gír. Hann getur
ekki viðhaldið því í þrjátíu mínútur
leik eftir leik og við þurfum því að
fara sparlega með hann. Við erum
með annan frábæran skotbakvörð í
Aroni Booker og hann getur komið
inn. Einnig erum við með Pavel og
Sinisa Bilic og erum því með góðan
kjarna í framherja- og vængstöð-
urnar. Fyrir utan fleiri stráka sem
voru hér í Val á síðasta tímabili. Jón
Arnór mun klárlega gefa okkur góða
frammistöðu á þeim mínútum sem
hann spilar,“ sagði Finnur.
Annað hugarfar
Jón Arnór sagði eftir síðasta tíma-
bil að meiri líkur væru á því að hann
myndi leggja skóna á hilluna en
minni. Hann hefur hins vegar gætt
þess á sínum ferli að lýsa því aldrei
yfir að hann væri hættur.
„Ég hef oftast endað tímabilið hér
heima á því að hampa titlinum. Ég
var nær því að hætta núna í kór-
ónuveirunni heldur en þegar ég
hafði unnið titil. Maður er alltaf að
eltast við bikarana. Mér leið vel á
síðasta tímabili og missti ekki af
neinum leik vegna meiðsla. Ég spil-
aði einnig meira í leikjunum en ég
ætlaði mér. Hér geng ég hins vegar
inn í annað hlutverk og mun ekki
spila jafn margar mínútur og ég
gerði. Ég ætla bara að njóta þess að
spila körfubolta. Ég verð að viður-
kenna að ég hef verið að hugsa of
mikið um þetta utan vallar síðustu
árin og tekið gengi liðsins inn á mig.
Ég hef aðeins gleymt mér í því.
Pressan er væntanlega meiri í KR
og ég fer inn í þetta í góðu jafnvægi
og með það að markmiði að njóta
þess að spila. Finnur sér um að
hugsa um liðið. Ég verð alltaf
keppnismaður og vil vinna en ég
ætla ekki alveg að missa mig í því.
Ég held ég sé að koma inn í annað
umhverfi. Hér er ekki lið hlaðið tólf
landsliðsmönnum. Við munum
byggja upp gott lið og bæta okkur en
ég mun ekki láta kappið bera feg-
urðina ofurliði,“ sagði Jón Arnór.
Viðtöl við Jón Arnór og Finn
Frey er einnig að finna á mbl.is/
sport/korfubolti.
Hvalreki inni í landi
Valsmenn hafa hrist hressilega upp í körfuboltaheiminum á Íslandi í sumar
Jón Arnór skrifaði undir í gær Jón og Helena í sama félaginu
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Í Valstreyjunni Þeirri sýn þurfa KR-ingar nú að venjast. Einn af þeirra mest sigldu sonum klæðist nú rauðu.
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
Svíþjóð
Malmö – Helsingborg.............................. 4:1
Arnór Ingvi Traustason var á vara-
mannabekk Malmö.
Hammarby – Falkenberg ....................... 1:1
Aron Jóhannsson kom inn sem varamað-
ur hjá Hammarby á 54. mínútu.
Staðan:
Malmö 13 8 4 1 28:12 28
Norrköping 12 7 4 1 28:15 25
Djurgården 13 7 2 4 19:12 23
Elfsborg 12 5 6 1 20:17 21
Häcken 12 4 6 2 22:12 18
Sirius 12 4 5 3 20:20 17
Hammarby 13 4 5 4 14:16 17
Varberg 13 4 4 5 18:17 16
Mjällby 12 4 3 5 13:19 15
Örebro 12 3 4 5 10:15 13
AIK 12 3 4 5 11:17 13
Falkenberg 13 2 6 5 15:20 12
Gautaborg 12 2 6 4 13:18 12
Östersund 12 2 5 5 9:15 11
Helsingborg 13 1 7 5 10:20 10
Kalmar 12 2 3 7 14:19 9
Noregur
Molde Start............................................... 5:0
Guðmundur Andri Tryggvason var ekki í
leikmannahópi Start. Jóhannes Harðarson
þjálfar liðið.
Staðan:
Bodø/Glimt 12 11 1 0 43:15 34
Molde 13 10 1 2 39:13 31
Odd 12 7 1 4 20:14 22
Vålerenga 12 6 4 2 16:15 22
Kristiansund 12 4 6 2 23:16 18
Rosenborg 12 5 3 4 17:10 18
Stabæk 12 4 5 3 16:17 17
Brann 12 4 3 5 16:19 15
Strømsgodset 12 4 3 5 16:23 15
Haugesund 12 4 3 5 10:17 15
Sarpsborg 12 4 2 6 14:12 14
Sandefjord 12 4 1 7 11:20 13
Viking 12 3 2 7 14:23 11
Start 13 1 6 6 13:24 9
Mjøndalen 12 2 2 8 10:18 8
Aalesund 12 1 3 8 16:38 6
Evrópudeild UEFA
16-liða úrslit, síðari leikir:
København – Istanbul Basaksehir ........ 3:0
Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmanna-
hópi København.
København áfram samtals 3:1
Shaktar Donetsk – Wolfsburg ................ 3:0
Shahktar Donetsk áfram samtals 5:1
Manchester United – LASK Linz........... 2:1
Manchester United áfram samtals 7:2
Inter Mílanó – Getafe............................... 2:0
Inter Mílanó áfram samtals 2:0
NBA-deildin
Milwaukee – Brooklyn .....................116:119
Sacramento – Dallas ........................110:114
LA Clippers – Phoenix .....................115:117
Indiana – Orlando .............................120:109
Miami – Boston .................................112:106
Portland – Houston ......................... 110:102
PGA-meist-
aramótið í golfi
hefst í Kaliforníu
í Bandaríkjunum
í dag. Mótið er
fyrsta risamótið
á þessu ári hjá
körlunum. Vana-
lega er það síð-
asta risamót árs-
ins af fjórum en
mótshald fór
verulega úr skorðum á árinu vegna
heimsfaraldursins.
Brooks Koepka hefur unnið mót-
ið síðustu tvö ár og því verða augu
margra á honum. Tiger Woods er
skráður til leiks þótt hann hafi lítið
látið fyrir sér fara eftir að PGA-
mótaröðin hófst á ný í sumar.
Sviptingar hafa verið á toppi
heimslistans síðustu vikurnar og
því erfitt fyrir áhugasama að spá í
spilin fyrir fram. Í efsta sætinu sit-
ur nú Bandaríkjamaðurinn Justin
Thomas og Spánverjinn Jon Rahm
kemur næstur. sport@mbl.is
Hið síðasta
er fyrst
Tiger
Woods
GOLF
Íslandsmótið í golfi hefst í dag á Hlíðavelli í
Mosfellsbæ. Fyrsti keppnisdagur af fjórum
og lýkur mótinu því á sunnudag. Kylfingar
leika 72 holur eða 18 holur á dag. Fyrstu
keppendur eru ræstir út kl. 7:30 og verður
ræst út til kl. 15:50.
Í DAG!
FÓTBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Við vorum mættir á æfingasvæðið
7:45 og klukkan er 18:30 hjá mér
núna og ég nýkominn heim. Þetta
voru tvær æfingar og svo mynd-
bandsfundir. Þetta er alvörubyrj-
un,“ sagði HK-ingurinn Birkir Valur
Jónsson í samtali við Morgunblaðið
um dag í lífi atvinnumanns í knatt-
spyrnu. Birkir gerði á dögunum
hálfs árs lánssamning við Spartak
Trnava í Slóvakíu. Hefur slóvakíska
félagið forkaupsrétt á bakverðinum,
sem hafði allan ferilinn leikið með
HK í tveimur efstu deildum Íslands
áður en hann fór til Slóvakíu. Hefur
hann leikið 98 deildarleiki með HK
og skorað í þeim sex mörk, þar af
þrjú í 30 leikjum í efstu deild. Þá á
hann að baki 27 leiki með yngri
landsliðum Íslands.
„Aðdragandinn var stuttur, um-
boðsmaðurinn hringdi í mig tveimur
vikum áður en þetta fer í gegn og
spurði mig hvort við ættum að skoða
þetta betur og hvort ég hefði áhuga
á að fara til Slóvakíu. Ég gaf honum
auðvitað grænt ljós og svo var þetta
staðfest daginn áður en ég flaug út.
Ég fékk flugmiða og var kominn út
17 tímum seinna,“ sagði Birkir.
Hann hefur áður fundið fyrir ein-
hverjum áhuga félaga erlendis, en
þó ekki fengið samningstilboð.
Alvarlegasta sem hefur boðist
„Það hafa einhverjar þreifingar
orðið, en þetta hefur aldrei farið
svona langt áður. Þetta er það alvar-
legasta sem hefur boðist erlendis og
mér fannst spennandi að stökkva á
þetta tækifæri,“ sagði Birkir. Standi
Birkir sig í Slóvakíu eru miklar líkur
á að félagið kaupi hann endanlega af
HK. „Þetta er lánssamningur sem
gildir fram í janúar og þeir verða að
vera búnir að ákveða sig fyrir 1. jan-
úar. Þetta er flott félag og það kom
mér á óvart hversu flott og fag-
mannlegt allt er hérna. Þetta er
mjög spennandi.“ Birkir er ekki eini
Íslendingurinn sem leikur í slóvak-
ísku deildinni á komandi leiktíð því
Nói Snæhólm Ólafsson gerði samn-
ing við Senica skömmu eftir að Birk-
ir samdi við Trnava.
Spartak Trnava varð fimm sinn-
um tékkóslóvakískur meistari á ár-
unum 1967 til 1973. Liðið varð síðan
slóvakískur meistari í fyrsta skipti
fyrir tveimur tímabilum. Félagið
Tel mig eiga
erindi í þetta
Birkir reynir fyrir sér í atvinnumennskunni
Tveir Íslendingar spila í Slóvakíu í vetur
Morgunblaðið/Sigurður
Atvinnumaður Birkir Valur Jónsson reynir fyrir sér í Slóvakíu í vetur.