Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 47
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
Síðustu ár hefur Valur ver-
ið í allra fremstu röð í karla- og
kvennaflokki í handbolta og fót-
bolta og barist um þá titla sem
eru í boði. Með komu Helenu
Sverrisdóttur í kvennaliðið í
körfubolta var liðið fljótt að
tryggja sér Íslands- og bikar-
meistaratitla.
Það gekk hins vegar verr
að búa til lið í allra fremstu röð
í karlaflokki í körfubolta. Vals-
menn voru stórhuga fyrir síð-
asta tímabil og sömdu við leik-
menn eins og landsliðsmennina
Pavel Ermolinskij og Frank Aron
Booker. Þrátt fyrir það gekk
Valsmönnum ekki sem skyldi og
voru ekki á leið í úrslitakeppn-
ina þegar keppni var aflýst í
mars.
Valsmenn lögðu ekki árar
í bát heldur gáfu í sem aldrei
fyrr. Hinn siguræli Finnur Freyr
Stefánsson var ráðinn þjálfari
og Pavel og Frank Booker verða
áfram. Stærstu fréttirnar eru
hins vegar þær að Jón Arnór
Stefánsson, einn besti körfu-
knattleiksmaður Íslandssög-
unnar, er kominn til félagsins
frá KR.
Eru eflaust einhverjir KR-
ingar með óbragð í munni vegna
félagsskiptanna, en hjá Val er
Jón Arnór kominn í traust um-
hverfi og í lið sem ætlar sér
ekkert annað en toppbaráttu.
Valur ætlar sér í fremstu röð í
karlaflokki í körfubolta og það
verður afar áhugavert að fylgj-
ast með liðinu í vetur.
Valur er sem stendur eina
félagið sem er með karla- og
kvennalið í efstu deildum í
körfubolta, handbolta og fót-
bolta og er metnaður fyrir að
vera í fremstu röð á öllum svið-
um. Valur á hrós skilið fyrir að
sjá vel um sína leikmenn, glæsi-
lega umgjörð og mikinn metnað.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Nýr kafli verður ritaður í langa
sögu Íslandsmótsins í golfi þegar
mótið verður í fyrsta skipti haldið í
Mosfellsbæ. Íslandsmótið hefst í
dag og verða spilaðar 72 holur venju
samkvæmt eða 18 holur á dag.
Heimsfaraldurinn setur svip sinn á
mótshaldið en kylfingarnir geta
ekki verið með kylfubera sér til
halds og trausts svo dæmi sé tekið.
Áhorfendur eru ekki hvattir til að
koma vegna tilmæla sóttvarnalækn-
is en þeim er þó ekki meinaður að-
gangur að mótinu.
Mótið er vel mannað og meðalfor-
gjöf keppenda er 0,4 sem gefur
vissa mynd af getu kylfinganna.
Vegna vinsælda íþróttarinnar á
þessari öld er orðinn viss áfangi hjá
meistaraflokkskylfingum að komast
inn í Íslandsmótið.
Íslandsmeistarinn Guðmundur
Ágúst Kristjánsson er að keppa er-
lendis og mun því ekki verja titil
sinn í karlaflokki. Einn besti kylf-
ingurinn í kvennaflokki, Valdís Þóra
Jónsdóttir, er ekki með vegna
meiðsla. Að öðru leyti er mótið að
mestu leyti skipað bestu kylfingum
landsins. Sá sigursælasti frá upp-
hafi í karlaflokki, Birgir Leifur Haf-
þórsson, er ekki með frekar en í
fyrra en það teljast ekki forföll þar
sem hann hefur tekið sér frí frá
keppnisgolfi.
Æðislegt að sjá mótið í Mosó
Morgunblaðið ræddi við þrefald-
an Íslandsmeistara frá Akureyri,
Sigurpál Geir Sveinsson, í gær.
Sigurpáll er nú íþróttastjóri hjá GS
og er ekki á meðal keppenda. Hann
var í mörg ár hjá Keili í Mosfellsbæ
sem síðar rann inn í Golfklúbb Mos-
fellsbæjar. Bæði sem leikmaður og
síðar sem þjálfari.
„Mér finnst æðislegt að sjá Ís-
landsmótið fara í Mosfellsbæinn
enda er þetta orðinn flottur golf-
völlur. Nýrri hluti vallarins er orð-
inn vel gróinn og er algerlega tilbú-
inn í mótshaldið. Auk þess er
íþróttamiðstöðin glæsileg og þarna
er því allt til alls. Ég tók fyrstu
skóflustunguna að nýja húsinu
ásamt krökkunum í klúbbnum sem
ég var að þjálfa.“
Karginn verður erfiður
Segja má að Hlíðarvöllur sér tví-
skiptur í ljósi þess að fyrri níu hol-
urnar eru mun eldri og tveir hönn-
uðir teiknuðu hvor sinn helminginn.
Hannes Þorsteinsson eldri hlutann
og Edwin Roald nýrri hlutann.
„Ef maður horfir á eldri hluta
vallarins þá græða menn á því að
hitta brautirnar. Ef fólk þarf að slá
úr karganum þá er ansi erfitt að
hitta flatirnar. Auk þess þarf að fara
rétta leið inn á flatirnar á þeim
hluta vallarins til að eiga möguleika
að skora. Ef fólk fer út af flötinni
þeim megin sem holan er þá getur
verið snúið að bjarga parinu. Ég
myndi segja að fleiri tækifæri séu til
að sækja á nýrri hluta vallarins,“
sagði Sigurpáll um völlinn.
Mörg atriði þurfa
að vera í lagi
Þegar íslensk veðrátta er annars
vegar getur verið erfitt að spá fyrir
um hvort skor sé gott eða slæmt á
Íslandsmóti. „Eins og alltaf þá hef-
ur veðrið töluvert um það að segja
hvernig skorið gæti orðið. Ef það
blæs að norðan frá Esjunni þá sér
maður ekki marga spila undir pari.
En ef það væri til dæmis hæg sunn-
anátt með smá vætu þá er mun auð-
veldara að eiga við völlinn. Ef veðrið
verður heppilegt þá gætu 10 – 20
kylfingar leikið undir pari en ef
veðrið verður óheppilegt þá verða
varla margir undir pari,“ útskýrði
Sigurpáll sem veit hvað þarf til að
verða Íslandsmeistari í golfi.
„Þeir sem hafa sveiflað kylfunni
vel síðustu vikurnar geta farið vel
stemmdir í Íslandsmót. Ég tala nú
ekki um fólk sem leikið hefur vel í
allt sumar. Þú vinnur heldur ekki
Íslandsmótið ef eitthvað plagar þig
utan vallar. Fólk þarf að geta ein-
beitt sér alfarið að mótinu með
stuðningi þeirra sem að þeim
standa. Ef ekki getur fólk gleymt
væntingum um að verða Íslands-
meistari. Svona almennt séð. Þetta
eru 72 holur og það þarf þolinmæði
og jafnaðargeð. Ef mistök hér og
þar fara í taugarnar á fólki þá getur
hringur í Íslandsmótinu farið auð-
veldlega yfir 80 höggin. Ef kveiki-
þráðurinn er stuttur er útilokað að
standa sig nógu vel í fjóra daga til
að eiga möguleika,“ sagði Sigurpáll
Geir Sveinsson enn fremur við
Morgunblaðið.
Þolinmæði og jafnaðargeð
Íslandsmótið í golfi haldið á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ í fyrsta skipti
Meðalforgjöfin á mótinu er 0,4 Þrefaldur Íslandsmeistari þekkir völlinn vel
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kempur Ólafía og Guðrún eru líklegar til að berjast um sigurinn. Fyrir aftan er Guðm. Ágúst sem verður ekki með.
Morgunblaðið/Arnaldur
Pútt Sigurpáll Geir á Íslandsmótinu
á Hellu þar sem hann sigraði.
Skagamaðurinn
ungi Ísak Berg-
mann Jóhann-
esson hefur
framlengt samn-
ing sinn við
sænska knatt-
spyrnufélagið
Norrköping.
Heimasíða fé-
lagsins greindi
frá tíðindunum í
gær, en ekki er tekið fram hvenær
samningurinn rennur út.
Ísak, sem er 17 ára, kom til
Norrköping frá ÍA árið 2018. Hef-
ur hann fengið alvörutækifæri með
félaginu á tímabilinu, spilað afar
vel í ellefu leikjum í sænsku úr-
valsdeildinni og verið lykilmaður.
Það virðist sem hlutverk hans inn-
an liðsins verði alltaf stærra og
stærra.
„Það er æðislegt að Ísak vilji
vera áfram hjá okkur. Eins og allir
hafa séð þá er hann einstaklega
góður leikmaður sem er tilbúinn í
að leggja mikið á sig,“ er haft eftir
þjálfaranum Jens Gustafsson á
heimasíðu félagsins.
Ísak er sjálfur hæstánægður
með að skrifa undir nýjan samning
og spenntur fyrir framtíðinni.. „Ég
er ánægður með að geta verið
áfram hjá Norrköping og bætt mig
sem leikmaður og manneskja. Mér
líður mjög vel hérna og mér finnst
ég verða betri með hverjum leikn-
um,“ sagði Ísak.
Framlengdi
í Noregi
Ísak
Bergmann
Ragnar Sigurðsson og félagar í FC
København mæta Manchester Unit-
ed í fjórðungsúrslitum Evrópudeild-
arinnar í knattspyrnu í Þýskalandi
10. ágúst.
København vann 3:0-sigur á Ba-
saksehir frá Tyrklandi á Parken í
gærkvöldi og einvígið samanlagt 3:1
í síðari leik liðanna í 16-liða úrslit-
unum. Þá er Manchester United
komið áfram eftir samanlagt 7:2-
sigur á LASK frá Austurríki en liðin
mættust á Old Trafford í síðari
leiknum í gær, United vann 2:1.
AFP
Parken Leikmenn København fagna einu marka sinna í gærkvöldi.
Ragnar mætir
Manchester United
hefur oft tekið þátt í Evrópukeppni
og komst m.a. í riðlakeppni Evr-
ópudeildarinnar á síðasta tímabili.
Liðið leikur heimaleiki sína á Anton
Malatinský-vellinum sem rúmar
tæplega 20.000 áhorfendur.
Rennir blint í sjóinn
„Þetta lið var í þriðja sæti í deild-
inni í fyrra, vann deildina fyrir
tveimur árum og hefur verið að spila
í Evrópukeppni. Völlurinn tekur
20.000 manns og áhorfendurnir eru
mjög ástríðufullir. Yfirlýst markmið
í ár er topp þrír, sem gefur þátt-
tökurétt í Evrópukeppni, eftir tap í
umspili á síðustu leiktíð,“ sagði Birk-
ir um nýja félagið. „Ég er svolítið að
renna blint í sjóinn hérna. Við spil-
uðum æfingaleik við lið úr tékk-
nesku úrvalsdeildinni síðasta laug-
ardag og þar endaði 1:1. Við litum
ágætlega út þar, en annars hef ég
lítið séð úr liðum deildarinnar.
Tempóið á æfingunum er klárlega
meira en það var heima.“
Slóvakíska deildin hefst um
helgina og mæta Birkir og félagar
Zemplín Michalovce á útivelli í
fyrstu umferð á laugardag. „Ég er
spenntur og vonandi fæ ég að spila.
Ég veit ekki enn hvort ég verði í lið-
inu, en ég er spenntur að koma og
sýna að maður eigi erindi í þetta,“
sagði Birkir, sem var nýbúinn í tíma
hjá sjúkraþjálfara þegar hann ræddi
við Morgunblaðið. „Það voru tvær
erfiðar æfingar í dag og það er verið
að gera mann kláran fyrir morg-
undaginn,“ sagði Birkir Valur.
Slóvakinn Mariam Sarmir er
knattspyrnustjóri Spartak Trnava.
Er hann 43 ára og stýrði varaliði fé-
lagins frá desember 2015 til júní
2017. Hann sneri svo aftur til félags-
ins á síðasta ári sem yfirnjósnari.
Var hann ráðinn tímabundinn knatt-
spyrnustjóri í júní eftir að Portúgal-
inn Ricardo Chéu fékk reisupassann
og eftir fínan árangur var hann ráð-
inn eftirmaður Portúgalans. Birkir
viðurkennir að Sarmir sé grjót-
harður og af gamla skólanum ef svo
má segja. „Hann virkar þannig á
mig. Hann talar ekki ensku og tjáir
sig því á Slóvakíu og aðstoðarþjálf-
arinn þýðir fyrir hann.“
Eins og áður hefur komið fram
hefur Birkir alla tíð spilað með HK
og því viðbrigði að fara alla leið til
Slóvakíu með stuttum fyrirvara.
„Þetta verður í það minnsta ævintýri
fram í janúar. Ég þurfti að ákveða
mig mjög fljótt en fannst þetta
spennandi. Auðvitað var erfitt að
fara frá HK á þessum tímapunkti en
ég hef fulla trú á að strákarnir haldi
sér í deildinni og gott betur en það,“
sagði Birkir Valur Jónsson, en HK
er sem stendur í 10. sæti Pepsi Max-
deildarinnar, þremur stigum á und-
an Gróttu sem er í fallsæti.