Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 49

Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 49
Gilbert: „Þeir munu standa and- spænis sýn Gilberts & George, þar sem við tökumst á við heiminn…“ George: „… dauðann, von, líf, kyn- líf, kynþætti, peninga, trú …“ Gilbert: „…Shitty Naked Human World,“ segir hann og vitnar í heiti verks eftir þá félaga. George: „Sumir halda að við séum að sýna lífið í raun en þetta er tilbúinn heimur okkar. Hvergi í heiminum sérðu neitt sem lítur út eins og þessar myndir, þær eru „tilbúningur“.“ Gilbert: „Þær birta hugmyndir og tilfinningar sem eru innra með okkur. Við erum ekki að takast á við list- heiminn heldur líf allra manna.“ George: „Já, það er dapurlegt að geta ekki verið við opnun sýning- arinnar.“ Gilbert: „Fólk nær ekki oft að sjá sýningu á borð við þessa, það er sjald- gæft.“ Talið berst að viðbrögðum fólks við verkum þeirra félaga, sem eru afar þakklátir fyrir bréf sem þeir segjast berast þeim flesta daga með við- brögðum og þökkum og svo komi fólk daglega að þeim á götum úti og þakki fyrir verkin, sem það hafi jafnvel ekki séð á sýningum heldur bara í eft- irprentunum eða til dæmis í sjón- varpi. En sumir hneykslast. George: „Einu sinni var spurst fyr- ir í svissneska þinginu um ákveðin verk, þegar þau voru sýnd í Basel. Þau þóttu vera „of sexí“.“ Hann bros- ir. Gilbert: „Þetta er eitt verkanna sem var rætt um þar,“ og hann flettir upp á „Shit Faith“ frá 1982, einfalda teikningu sem sýnir kross myndaðan úr kúk. „Annað verk sem spurt var um er frá sama tíma, „Sperm Ea- ters“.“ Bæði þessi verk eru á sýning- unni í Hafnarhúsinu. George: „Þú sérð hvað getur hvílt á þingmönnum.“ Hann glottir. „Það minnir á konuna sem um 1600 stopp- aði úti á götu manninn sem setti sam- an fyrstu orðabókina og óskaði hon- um til hamingju, með að hafa engin dónaorð í þessu dáamlega orðasafni. Hann svaraði: Ég þakka þér kær- lega fyrir að athuga það.“ Menn eins og allir hinir Gilbert og George segjast hafa mjög gaman af því að hanna sýning- arnar á verkum sínum, sem þeir vilji hengja mjög þétt með flennistórum verkunum. Gilbert: „Okkur finnst áhugavert að ná að taka yfir heila áhorfenda. Það er mikilvægt fyrir okkur. Flestir sýningarhönnuðir eru hrifnir af míni- mal innsetningum en slíkt kunnum við ekki að meta.“ George: „Safnstjórar eru vanir að setja upp sýningar sem eiga að gæla við þeirra eigin smekk, sem okkur finnst rangt. Þeir eiga að setja sýn- ingar upp með áhorfendur í huga.“ Gilbert: „Við erum menn eins og allir hinir og um það fjalla verkin, eru um sýn okkar á heiminn og það hvernig við göngum gegnum lífið og bregðumst við því.“ George: „Í raun spyr fólk sig bara tveggja spurninga: Getur heimurinn verið betri? Og getur líf okkar orðið betra? Það er ekkert annað.“ – Og þið haldið áfram að takast á við þessar spurningar? George: „Þangað til við finnum svörin!“ Þeir hlæja. „Við höldum áfram að spyrja.“ Gilbert: „Við erum það sem má kalla trúleysingja. Fyrir okkur var upplýsingarstefnan mikilvægasta framfaraskrefið. Augnablikið þegar hægt var að segja að það væri enginn guð. Að við séum ein hér og þyrftum að finna leið til að lifa saman sem mannlegar verur; það væri enginn guð sem gæti tekið mál í sínar hend- ur. Darwin kenndi okkur á sannleik- ann“ – Trúarbrögð eru einn þeirra þátta sem þið takist oft á við. George: „Auðvitað! það er mikil- vægt.“ Gilbert: Það þarf að berja þau nið- ur,“ bætir hann við og hlær. George: „Við höldum því áfram þar til þau biðjast einu sinni afsök- unar, biðjist fyrirgefningar. En það gerist aldrei… Við kunnum vel við margt trúað fólk en ekki við skort trúarbragða á umburðarlyndi.“ Bestu myndirnar þær erfiðu Undanfarna hálfa öld hafa Gilbert & George nýtt sér umhverfið á East End í margbreytileg verkin, hverfi sem þeir segja endurspegla alla heimsbyggðina. Þeir þurfi því ekki að leita lengra. En allt byrjaði það með lifandi skúlptúrunum sem þeir mótuðu úr og gerðu að lífi sínu. George: „Það varð okkar leið því við vorum úr lágstétt, tilheyrðum ekki miðstéttarnemendum sem höfðu möguleika á stuðningi fjöl- skyldu, aðang að kennslustöðum í hlutastarfi, gátu komist til dvalar í listamannaíbúðum í Róm. Þeir höfðu alls kyns tækifæri en við ekkert, vor- um bara listin og það var allt sem við höfðum! Við vorum í raun heppnir að búa ekki við nein forréttindi.“ Gilbert: „Við vildum vera lista- menn og urðum að finna leið til að leggja stund á listina án þess að hafa stúdíó. Við gerðum okkur sjálfa því að hlutum, eins konar skúlptúr með fætur sem gengu um. Við gáum sent boð á viðburði okkar, þar sem við gengum um Hyde Park eða sátum og drukkum te. Við urðum að verk- unum og erum þau enn.“ – Og hafið haldið áfram að lifa líf- inu þannig í meira en hálfa öld. Gilbert: „Já, og nú erum við orðnir gamlir á myndunum!“ Þeir hlæja. Hann bætir við: „Ætli það sé ekki sí- fellt erfiðara að selja verkin okkar þar sem við erum ekki lengur ungir og fallegir?“ En þeim félögum hefur óneitan- lega gengið vel og þeir sýna mér teikningar af húsum sem stofnun í þeirra nafni hefur keypt skammt frá heimilinu og er verið að breyta í safn um þá. Þeir eiga sjálfir fjölmörg verkanna sem þeir hafa skapað gegnum árin og þar verða þau sýnd. George: „Við eigum mjög gott safn af minnst þægilegu verkunum okkar.“ Hann glottir og bætir við að safnarar vilji síður kaupa verk með umdeilanlegum viðfangsefnum, eins og þau sem taka á samkynhneigð, kynlífi eða sýni til að mynda saur eða þvag. „Allar bestu myndirnar eru þær erfiðu!“ Mótlæti vegna íhaldsskoðana Þeir félagar hafa löngum gert það að umtalsefni að þeir séu íhalds- menn. Segja þeir marga í listheim- inum, sem sé einsleitur í stjórnmála- skoðunum, hafa verið svo ósátta við það að á áttunda áratugnum hafi þeir nánast yfirgefið listheiminn. George: „En fyrir okkur er allt það besta í lífinu skipulagt eða mót- að af íhaldssömu viðmóti.“ Gilbert: „Frelsi! Frjálsri hugsun!“ George: „Yfir höfuð þá styðja íhaldsmenn við hugmyndir um ein- staklinginn og einstaklingsfrelsi en í einfaldaðri mynd þá eru vinstrimenn með áhuga á einsleitni. Þar snýst allt um hópa, hvort sem það eru kenn- arar eða námuverkamenn, og það er ógnvekjandi.“ Gilbert: „Ein hugmynd í sósíal- isma er að listin sé hluti af hinu opinbera. Jafnvel hér myndi vinstrið vilja skipulegga sósíaliska list sem yrði að vera góð fyrir fólkið, hvað sem það gæti þýtt. Þá væri lista- maðurinn ekki lengur frjáls hugs- uður. En í byrjun ferils okkar mættum við mikilli andúð og jafnvel fjand- skap þegar við sögðumst vera íhaldsmenn. Við áttum ekki að fá að vera öðruvísi en aðrir.“ George: „Það er merkilkegt að á sviði þar sem frumleiki er lykilatriði, eigi allir að hafa sömu pólitísku skoðanir.“ Hann hristir höfuðið, bætir svo glottandi við: „Gegnum árin höfum við fengið mikla hjálp frá óvinum okkar.“ Verkin stór eins og strætisvagn Frelsið og sjálfstæðið er Gilbert & George mikilvægt. Þeir leita inn- blásturs í sínu umherfi, aldrei í verkum annarra listamanna, segja þeir. Segjast ekki hafa farið á sýn- ingar annarra eða söfn áratugum saman. Og segjast vera að „springa úr hugmyndum að fleiri verkum“ en þeir muni nokkurn tímann ná að skapa. George: „Við erum sífellt að rann- saka: horfa, hugsa, safna og skrifa lista. Þegar kemur að því að búa til nýja röð verka þá er efniviðurinn þegar til og við byrjum að taka ljós- myndir út frá því.“ Gilbert: „Og við tökum allar myndirnar sjálfir, höfum alltaf gert það. Það er mikilvægt að við ýtum á takkann á myndavélinni. En við er- um ekki ljósmyndarar, við söfnum myndefni með þessum hætti, sköp- um úr þeim kompósisjónir eins og listamenn hafa alltaf gert.“ – Og vilduð strax hafa verkin stór. George: „Við vildum keppa við listamennina sem höfðu skapað stóru verkin í National Gallery.“ Gilbert: „Við viljum ekki að fólk tali niður til verkanna heldur að þau tali niður til okkar.“ George: „Þau eru stór - stór eins og stætisvagnar eða nætur- klúbbar!“ Gilbert: „Stór eins og verk voru í kirkjum. Nema okkar verk eru ekki trúarleg og það er mikilvægt. Við fundum snemma okkar persónulega tungumál og það mun tala til fólks- ins sem kemur á sýninguna.“ MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is ©2019 Disney/Pixar SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI S P LÚNKUNÝ OG STÓRSKEMMT I L EG RÓMANT Í SK GAMANMYND. KAT I E HOLMES JOSH LUCAS Sýnd með íslensku tali HEIMSFRUMSÝNING! Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe in aðalhlutverki. One World Verk eftir Gilbert & George frá 1988, 254 cm breitt. Tongue Fuck Tveggja metra breitt verk í 16 hlutum frá árinu 1982.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.