Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS
HJÓLALÁSAR
FRÁ TRELOCK
Sjáðu úrvalið og veldu lásinn
sem hentar þér á www.lykillausnir.is
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@gmail.com
Mývetningar og aðrir sem leið eiga
um svæðið geta gert sér glaðan dag
á morgun, föstudaginn 7. ágúst, því
kl. 20 verða tónleikar haldnir í fé-
lagsheimilinu Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit undir yfirskriftinni Músík
í Mývatnssveit.
Hátíðin Músík í Mývatnssveit er
haldin í dymbilvikunni ár hvert en
að þessu sinni fer hún fram að sumri
til og með breyttu sniði. Hún er ein-
faldari í sniðum en venjan er, einir
tónleikar verða í stað tvennra og
flytjendur verða þrír. Laufey
Sigurðardóttir spilar á fiðlu, Oddur
Arnþór Jónsson baritón syngur og
Elísabet Waage leikur á hörpu.
Fiðluleikarinn Laufey segir efnis-
skrána sumarlega og að létt sé yfir
dagskránni. Þær Elísabet munu
spila verk eftir Schubert sem samið
er fyrir fiðlu og píanó. Elísabet mun
hins vegar leika á hörpu þann hluta
verksins sem ætlaður er píanói. Þær
telja að verkið hafi aldrei verið spil-
að á hörpu áður en þykir harpan
falla vel að verkinu engu að síður.
Þær munu einnig spila útsetningar
eftir Tryggva Baldvinsson á ýmsum
íslenskum alþýðulögum, bæði þjóð-
lögum og sönglögum. Elísabet og
Laufey hafa unnið saman um árabil
og komið fram víða. Oddur Arnþór
mun einnig syngja verk eftir Schu-
bert með undirleik Elísabetar. Auk
þess sem hann syngur Wagner og
íslensk sönglög.
Kjöraðstæður fyrir tónleika
Þrátt fyrir að flestum viðburðum
hafi verið aflýst sem halda átti í
sveitinni vegna samkomutakmark-
ana láta Laufey og félagar engan
bilbug á sér finna. Tónleikastað-
urinn, félagsheimilið Skjólbrekka, er
nægilega stór til þess að auðveldlega
sé hægt að halda fjarlægð við næsta
mann og halda uppi sóttvörnum.
Laufey telur fullvíst að hægt verði
að koma fyrir öllum sem vilja.
Hátíðin hefur verið haldin yfir
tuttugu sinnum í Mývatnssveit enda
segir Laufey aðstæður í sveitinni
vera kjöraðstæður til að halda tón-
leika. Húsið, Skjólbrekka, sé mjög
skemmtilegt og þar myndist góð
stemning. Náttúran í kring sé líka
einstök.
Laufey hefur orð á því hvað tón-
listarfólkinu sé tekið vel. Mývetn-
ingar séu afar skemmtilegir og
áhugasamir áheyrendur. „Það er
mikill menningaráhugi til staðar í
sveitinni sem er auðfundinn og þess
vegna hefur alltaf verið mjög auð-
velt að fá alls konar listamenn til
þess að koma hér fram. Þeir vita að
það er vel tekið á móti þeim,“ segir
hún.
Ljósmynd/Egill Freysteinsson
Flytjendur Laufey, Oddur og Elísabet í sveitasælunni við Mývatn í fyrradag. Annað kvöld kl. 20 halda þau tónleik-
ana Músík í Mývatnssveit í félagsheimilinu Skjólbrekku. Laufey segir að tekið sé vel á móti listamönnum í sveitinni.
Auðfundinn áhugi
Músík í Mývatnssveit annað kvöld Schubert, Wagner
og ýmis íslensk sönglög á sumarlegri efnisskránni
Nýjasta plata Beyoncé, Black is
King, kom út í byrjun vikunnar og
hefur hlotið lofsamlega dóma á
heildina litið eins og sjá má af með-
altalseinkunninni 84 af 100 á vefn-
um Metacritic. Sótti tónlistarkonan
innblástur í eigin tónlist úr endur-
gerð teiknimyndarinnar Konungur
ljónanna en platan með þeirri tón-
list kom út í fyrra.
Platan er ekki „bara“ plata því
heilmikið myndefni fylgir henni líkt
og plötunni Lemonade en kvik-
mynd kom út samhliða henni með
tónlistinni sem hlaut mikið lof. Í
gagnrýni Vulture um Black is King
segir að Beyoncé geri óljós mörkin
milli kvikmyndalistarinnar, tónlist-
armyndbanda, ljósmyndunar, ljóð-
listar og náttúrulífsmynda í könnun
sinni á þemum plötunnar The Gift
sem hafði að geyma tónlistina úr
Konungi ljónanna. Þetta marg-
þætta listaverk Beyoncé sé mikill
óður til afrískrar menningar og
lista.
AFP
Einstök Tónlistardrottningin Beyoncé.
Óljós mörk list-
greina hjá Beyoncé
Dagskrá kvikmyndahátíðarinnar í
Feneyjum er óðum að taka á sig
mynd og nýjustu fréttir eru þær að
30 mínútna löng stuttmynd eftir
spænska leikstjórann Pedro Almo-
dóvar, La voz humana eða Manns-
röddin, verði frumsýnd á hátíðinni.
Tilda Swinton fer með aðalhlut-
verkið í henni og mun handritið
byggjast á leikriti eftir Jean Coct-
eau sem segir af konu sem bíður
símtals frá ástmanni sínum. Swin-
ton verður einnig heiðruð á hátíð-
inni, hlýtur Gyllta ljónið fyrir ævi-
framlag sitt til kvikmynda. Hátíðin
á að hefjast 2. september.
Mannsröddin Swinton í stuttmyndinni.
Stuttmynd Almo-
dóvars í Feneyjum
Eyþór Ingi Jónsson, organisti við
Akureyrarkirkju, leikur á sjöundu
tónleikum Orgelsumars 2020 í
Hallgrímskirkju í dag, fimmtudag,
kl. 12.30 en Listvinafélag Hall-
grímskirkju stendur fyrir hádegis-
tónleikum með íslenskum organ-
istum alla fimmtudaga nú í sumar,
til og með 20. ágúst.
Eyþór mun leika fjögur verk:
Passacaglia BuxWV 161 eftir Die-
terich Buxtehude, Ionizations eftir
Magnús Blöndal, Adagio úr Orgel-
sónötu eftir Gísla Jóhann Grét-
arsson og Passacaglia BWV 582
eftir Johann Sebastian Bach.
Eyþór lauk kantorsprófi frá
Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 1998
og á árunum 1999-2007 nam hann
við Tónlistarháskólann í Piteå í
Svíþjóð, fyrst við kirkjutónlistar-
deild og síðar við konsertorgan-
istadeild. Hann hefur sótt meist-
arakúrsa og einkatíma hjá mörg-
um af þekktustu orgelleikurum og
kórstjórum samtímans og kennir
nú orgelspuna, orgelleik, kórstjórn
og orgelfræði við Tónskóla þjóð-
kirkjunnar og Listaháskóla Ís-
lands.
Eyþór heldur líka reglulega
námskeið og fyrirlestra og hefur
haldið hátt í 100 einleikstónleika
bæði hér á landi og erlendis. Hann
hefur leikið með fjölda innlendra
og erlendra tónlistarmanna, bæði á
tónleikum og í upptökum og hefur
bæði leikið einleik með Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands og Verk-
efnahljómsveit Michaels Jóns Clar-
kes sem og stjórnað báðum
hljómsveitunum, að því er fram
kemur í tilkynningu. Hann stjórn-
aði líka Barokksveit Hólastiftis á
meðan hún starfaði.
Eyþór er organisti við Akur-
eyrarkirkju og stjórnandi kammer-
kórsins Hymnodiu og hefur ein-
beitt sér annars vegar að flutningi
tónlistar frá 17. öld og hins vegar
nútímatónlistar og spuna, bæði
fyrir orgel og kór. Undanfarið hef-
ur hann einbeitt sér að flutningi
þjóðlagatónlistar með ýmsum flytj-
endum, mest með eiginkonu sinni,
Elvý G. Hreinsdóttur.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur
fyrir fullorðna en aðgangur er
ókeypis fyrir félaga í Listvina-
félaginu og börn yngri en 16 ára.
Miðasala fer fram við innganginn
og vakin er athygli á því að vegna
hertra sóttvarnarreglna verða ein-
ungis 100 miðar í boði og biðlað til
gesta að virða tveggja metra regl-
una.
Organisti Eyþór Ingi Jónsson leikur á orgel Hallgrímskirkju í hádeginu.
Eyþór leikur fjögur
verk á Orgelsumri
Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju