Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 52

Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 Ya no estoy aquí er önnurfrásagnarmynd mexí-kóska leikstjórans Fern-andos Frías de la Parra. Myndin var sýnd á nokkrum kvik- myndahátíðum árið 2019 en var svo frumsýnd á Netflix í vor. Myndin segir frá hinum 17 ára gamla Ulises, sem býr í fátækra- hverfi í borginni Monterrey í Mexíkó. Monterrey er gegnsýrð af glæpum og í mörgum hverfum ráða glæpagengin nánast öllu, þau sjá um „löggæslu“, eru aðalatvinnurek- endurnir og annast líka stundum hálfgildings velferðarþjónustu. Ulises tilheyrir gengi sem kallar sig „Los Terkos“. Þau eru þó ekki glæpagengi heldur meira eins og lít- ið samfélag sem aðhyllist „kolomb- ia“-hliðarmenninguna. Kolombia- kúltúrinn hverfist í kringum tónlistarstefnuna „cumbia rebaj- ada“, þ.e. hægar útgáfur af kólumb- ískum cumbia-lögum. Þetta minnir á „chopped and screwd“-hliðar- stefnuna í hipphoppi, sem gengur út á að endurhljóðblanda lög og hægja verulega á taktinum. Kolombia-krakkarnir klæða sig líka á sérstakan hátt og piltarnir eru með brjálaða hárgreiðslu. Þau hlusta á cumbia rebajada allan lið- langan daginn og dansa við tónlist- ina. Ulises er besti dansarinn í hópnum og vinnur iðulega í dans- keppnum sem krakkarnir taka þátt í. Ulises og vinir hans eiga ekki snjallsíma eða tónhlöður og verða því að hlusta á tónlistina í útvarp- inu. Dag einn finna krakkarnir mp3-spilara á götumarkaði sem er sneisafullur af cumbia-tónlist sem þau hreinlega verða að eignast. Þau fara að betla peninga en lenda upp á kant við nokkra glæpona úr Los F-glæpagenginu. Fyrir hálfgerðan misskilning fær Ulises Los F upp á móti sér og það endar ekki betur en svo að hann þarf að flýja land. Honum er smygl- að ólöglega til Bandaríkjanna, alla leið til New York, þar sem hann fær vinnu og húsaskjól í gegnum sam- bönd. En Ulises er bara unglingur og honum reynist erfitt að ná áttum í borgarfrumskóginum. Sagan er ekki línuleg í tíma, við skiptumst á að fylgjast með Ulises reyna að fóta sig í New York og í gegnum regluleg endurlit sjáum hvernig allt fór í háaloft í Monter- rey. Þessi aðferð gefst vel og þess- um ólíku tímaplönum er fléttað saman á nokkuð skýran og smekk- legan hátt, þótt þetta sé kannski ofurlítið ruglingslegt fyrst um sinn. Með þessu móti tekst líka að halda nokkuð jafnri spennu í gegnum alla myndina. Leikararnir í Ya no estoy aquí eru flestir ófaglærðir og sumir hafa aldrei leikið í neinu áður. Það er vitaskuld áhætta að fá leikara með enga reynslu í verkefni en hér er það hiklaust rétt ákvörðun. Allir leikararnir eru frábærir, leikurinn er mjög blátt áfram og vel valið í hlutverkin. Myndin er þá ekki mjög textarík, það skiptir meira máli að leikararnir hafi rétta útlitið og lima- burðinn en að þeir geti farið með miklar ræður. Myndin inniheldur mikið af frá- bærum tónlistar- og dansatriðum. Kólumbísk cumbia-músík er að sjálfsögðu einhver sú besta í heim- inum, uppfull af gleði og trega og takturinn er þannig að jafnvel myndastyttur geta ekki stillt sig um að hreyfa mjaðmirnar í takt. Þessar hægari útgáfur af lögunum sem Ul- ises hlustar á eru ofurlítið öðruvísi, meira draumkenndar og sveimandi. Dansstíllinn er líka ótrúlega ein- kennilegur en hann er undurfagur og ákaflega dáleiðandi að fylgjast með þessum magnaða dansi. Hér er dregin upp mjög innileg og sannfærandi mynd af ungum manni sem þarf að halda í mikið ferðalag til þess að komast aftur heim. Að því leyti minna raunir hans á þær sem nafni hans Ódys- seifur lenti í forðum. Spurningin er svo hvort hann geti nokkurn tímann átt heimili aftur, því hann er á milli heima. Hann gæti átt betra líf í Bandaríkjunum en hann vill ekki vera þar, hann vill vera heima með vinum sínum en þar er allt breytt líka. Þetta er ekki bara sama sagan um fátækling sem ferðast norður á bóginn í von um betra líf heldur karakterstúdía sem tekst á við hina margbrotnu heimþrá þess sem á hvergi heima. Ya no estoy aquí er virkilega fersk kvikmynd, hún er vel gerð, sviðsmynd og myndataka frábær og tónlistin æðisleg. Hún er líka ótrú- lega kúl, enda eru Ulises og vinir hans aðeins of kúl fyrir lífið. Heimþrá hins heimilislausa Flottur Juan Daniel García Treviño í hlutverki Ulises, Ódysseifs, í mexíkósku kvikmyndinni Ya no estoy aquí eða Ég er ekki lengur hér. Netflix Ya no estoy aquí/Ég er ekki lengur hér bbbbm Leikstjórn og handrit: Fernando Frías de la Parra. Kvikmyndataka: Damián García. Klipping: Yibran Asuad, Fern- ando Frías de la Parra. Aðalhlutverk: Juan Daniel García (Derek), Jonathan Espinoza, Coral Puente, Leo Zapata, Yahir Alday, Fanny Tovar, Leonardo Garza, Tania Alvarado, Yocelin Coron- ado, Angelina Chen. 113 mín. Mexíkó, 2019. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Bandaríski rithöfundurinn Steph- enie Meyer, höfundur vampíru- bókasyrpunnar Twilight, hefur loksins gefið út bókina Midnight Sun sem hefur að geyma frásögn vampírunnar Edward Cullen. Meyer vildi upphaflega ekki gefa bókina út því uppkasti að henni var lekið á netið árið 2008. Sagði hún að gróflega hefði verið brotið á rétti hennar sem rithöfundar og manneskju með lekanum. Um milljón eintök hafa verið prentuð af bókinni í Bandaríkj- unum og 300 þúsund í Bretlandi. Hefur bókin selst afar vel í báðum löndum og náð efst á bóksölulista, skv. frétt dagblaðsins Guardian. Rómantískar vampíubækur Meyers í Twilight-syrpunni hafa selst í yfir hundrað milljónum ein- taka um heim allan og verið þýddar á 37 tungumál. Metsöluhöfundur Stephenie Meyer. Bók Meyer gefin út 12 árum eftir leka Kanadíski tónlistarmaðurinn Neil Young hefur höfðað mál vegna notkunar á tónlist hans á fjölda- fundi Donalds Trump Bandaríkja- forseta. Tvö laga Young, „Rockin’ in the Free World“ og „Devil’s Side- walk“ voru leikin í leyfisleysi á fundinum sem fram fór í Tulsa og hafa sömu lög verið notuð áður í kosningaherferð Trumps. Byggist lögsókn Young á því að þetta sé brot á höfundarrétti. Young greindi frá lögsókninni á vefsíðu sinni og segir þar að hann hafi ítrekað mótmælt því að Trump notaði lögin hans, allt frá árinu 2015, en þrátt fyrir það hafi þau verið notuð áfram í leyfisleysi. Lög- menn Young fara fram á hæstu skaðabætur sem lög kveða á um í Bandaríkjunum. Lögsækir Neil Young er ósáttur við Trump. Young í mál við starfsmenn Trump

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.