Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
Grillbúðin
Opið virka daga 11-18
Laugardaga 11-16
69.900
Verð áður 89.900 • 3 brennarar
• Brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Rafkveikja fyrir alla takka
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Grillflötur 65 x 44 cm
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
Niðurfellanleg
hliðarborð
22%
afsláttur
•Afl 10,5 KW
ÚTSA
LA
Alexander Kristjánsson
Jóhann Ólafsson
Heimilt verður að hafa einn metra á
milli einstaklinga án þess að grímur
séu notaðar í framhalds- og háskól-
um. Þá verða snertingar heimilar
milli íþróttafólks á æfingum og í
keppnum. Meginreglan um tveggja
metra fjarlægðarmörk verður þó
enn í gildi en börn á grunn- og leik-
skólaaldri verða sem fyrr undanskil-
in.
Þetta kemur fram í nýrri reglu-
gerð um samkomutakmarkanir sem
heilbrigðisráðherra hefur staðfest og
byggist á minnisblaði Þórólfs Guðna-
sonar sóttvarnalæknis. Reglugerðin
tekur gildi á morgun. Fjöldatakmörk
samkoma miðast áfram við hundrað
manns, en reglugerðin er að mestu
sambærileg þeirri sem nú er í gildi.
Í minnisblaðinu eru enn fremur tí-
undaðar níu ólíkar útfærslur á að-
gerðum sem hægt er að grípa til á
landamærum Íslands.
Útfærslurnar eru æði misjafnar,
allt frá því að aðgangur ferðamanna
til landsins verði óheftur í það að ýtr-
ustu hömlum verði beitt á komur
fólks til landsins, en Þórólfur mælir
þó með hvorugri þeirra.
Ýmsir aðrir kostir eru nefndir,
sem allir fela í sér að einhverjir hóp-
ar verði skimaðir eða sendir í sóttkví
við komuna til landsins, nema hvort
tveggja sé. Raktir eru kostir og
ókostir hverrar útfærslu fyrir sig út
frá sóttvarnasjónarmiðum með tilliti
til tilkostnaðar, skimunargetu og
mannafla.
Leiðrétting
Þórólfur hefur sjálfur sagt að
hann telji áhrifaríkasta kostinn út frá
sóttvarnasjónarmiðum að allir ferða-
menn verði skimaðir við komuna til
landsins, fari síðan í 4-6 daga sóttkví
og í kjölfarið skimun á ný. Á blaða-
mannafundi almannavarna í gær
áréttaði Þórólfur þó að þar með væri
ekki sagt að hann vildi að sú leið væri
farin, eins og það var orðað í fjöl-
miðlum í gær. Þórólfur hefur áður
sagt að hann telji það aðeins sitt hlut-
verk að leggja fram tillögur út frá
sóttvarnasjónarmiðum, en í verka-
hring stjórnvalda að meta hagsmuni
tiltekinna atvinnugreina og sam-
félagsstofnana umfram annarra.
Línur skýrast eftir helgi
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra segir í samtali við Morgun-
blaðið að stjórnvöld ætli að gefa sér
vikuna í að fara yfir útfærslurnar
níu. Sóttvarnalæknir hafi eftirlátið
stjórnvöldum að leggja það sem
hann kalli samfélagslegt og hagrænt
mat á tillögurnar og sú vinna standi
nú yfir. „Við gefum okkur vikuna í
þetta og línur munu skýrast eftir
helgi.“
Fram kom í máli Víðis Reynisson-
ar yfirlögregluþjóns á blaðamanna-
fundinum í gær að allar breytingar á
landamæraskimun væru flóknar í
framkvæmd og því viðbúið að þær
verði kynntar með góðum fyrirvara
áður en þær koma til framkvæmda.
Fjögur smit og enginn í sóttkví
Fjögur smit greindust innanlands í
fyrradag. Öll hin smituðu eru búsett
á höfuðborgarsvæðinu og var ekkert
þeirra í sóttkví við greiningu. Aftur á
móti greindist enginn smitaður við
landamæraskimun og er það í fyrsta
sinn frá því landamæraskimun hófst
15. júní.
Alls voru 667 sýni tekin á sýkla- og
veirufræðideild Landspítala, 523 hjá
Íslenskri erfðagreiningu og 2.115 við
landamærin. Nýgengi smita, fjöldi
nýrra smita síðustu 14 daga á hverja
100.000 íbúa, lækkar eilítið milli daga
og mælist nú 29,4 (24,8 innanlands og
4,6 á landamærum).
Áfram 100 manna takmörk
Íþróttaiðkun með snertingu heimiluð 1 metra regla í framhalds- og háskólum
Stjórnvöld gefa sér vikuna til að fara yfir útfærslur á aðgerðum á landamærum
Morgunblaðið/Eggert
Íbyggnir Þórólfur Guðnason og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.
21
2
1
2
1
2
11 1
1
1
1
1
1
1 1 100
1
1
1
12
2
4
3
2 2 2 3
6
6
2 1
5
2
5
1
6 9
2
10
1
3
1
2
2
2
1
3 3 32 2
5
4
2 1
2
1
1
3
1
36
1
8
1
7
1
11
2
1
4
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna
frá 15. júní til 11. ágúst
766 einstaklingar eru í sóttkví
1.972 staðfest smit
115 er með virkt smit
Heimild: covid.is
Innanlands
Landamæraskimun:
Virk smit Með mótefni
Nýgengi smita innanlands:
24,8 ný smit sl. 14 daga
á 100.000 íbúa
1 einstaklingur er á sjúkrahúsi í gjörgæslu
júní júlí ágúst
9
11
2
2
3
2
1
16
168.233 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
88.171 sýni
13
2
2
3
1
3
2
2 5
1
4
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Már Kristjánsson, yfirlæknir á
smitsjúkdómadeild Landspítalans,
segir í samtali við Morgunblaðið
að aðeins tíminn
geti leitt í ljós
hvenær öruggt
bóluefni gegn
COVID-19 eigi
eftir að koma
fram á sjónar-
sviðið. „Þegar ég
var ungur læknir
í Bandaríkjunum
og HIV-veiran
var nýkomin
fram sagði fólk að við yrðum búin
að búa til bóluefni gegn veirunni
eftir 5 til 10 ár. Nú eru liðin hvað
40 eða 50 ár og það er ekki enn til
neitt gagnlegt bóluefni, þó að það
hafi náttúrlega síðar komið til sög-
unnar lyf sem hafa gagnast vel,“
segir Már. „Það hefur enn ekki
komið neitt gott bóluefni við kór-
ónuveirum og við höfum enga
reynslu af því í stórum dráttum.
Það eru margir að reyna og það er
verið að nálgast þetta viðfangsefni
á ýmsan hátt. Ég hef mikla trú á
mannsandanum, en aðeins tíminn
mun leiða í ljós hvenær við gætum
fengið öruggt bóluefni, hvort það
verði eftir 6 mánuði eða ár eða
hvað það verður,“ segir Már.
Góðar fréttir ef rétt reynist
Mikið hefur verið rætt um þró-
un bóluefnis við kórónuveirunni
sem veldur öndunarfæra-
sjúkdómnum COVID-19. Rússar
hafa orðið fyrstir til þess að fá
skrásett bóluefni og hyggjast bólu-
setja ákveðna hópa samfélagsins í
október fyrir veirunni, á meðan
Bandaríkjastjórn hefur boðað
bóluefni í desember. Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir hefur
sagst búast við því að þróun
öruggs bóluefnis eigi eftir að taka
einhverja mánuði og jafnvel ár, á
meðan Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreingar, hefur
sagt að hann telji það ekki óhóf-
lega bjartsýni að búast við bólu-
efni um mitt næsta ár.
Hvað varðar það bóluefni sem
Rússar hafa nú fengið skráð segist
Már taka því með ákveðnum fyr-
irvara. „En ef rétt reynist og það
er gagnlegt þá eru það auðvitað
mjög góðar fréttir fyrir heims-
byggðina alla,“ segir Már.
Margir
reyna við
bóluefni
Tekur bóluefni
Rússa með fyrirvara
Már Kristjánsson
Guðlaugur Þór Þórðarson segir að
Ísland fari af rauðum lista Noregs
yfir lönd þar sem hlutfall smitaðra
er hátt, ef fram heldur sem horfir í
baráttu Íslendinga við kórónuveir-
una. Norðmenn séu með ákveðin
viðmið sem Ísland reynir að upp-
fylla og öfugt. Samráð er milli ráð-
herra landanna.
Ísland mun frá og með miðnætti
á föstudagskvöld hljóta rauða stöðu
á korti Norðmanna yfir þau lönd í
Evrópu, sem stjórnvöld þar í landi
mæla ekki með að ferðast sé til.
Farþegar sem koma frá Íslandi til
Noregs munu þurfa að fara í sótt-
kví. Ísland fer þá á lista með Hol-
landi, Póllandi, Kýpur, Möltu og
Færeyjum.
„Hlutirnir eru
á góðri leið hjá
okkur og ef fram
heldur sem horf-
ir, þá munum við
færast af þessum
lista,“ segir Guð-
laugur Þór.
Hann var í
sambandi við
kollega sinn í
ríkisstjórn Nor-
egs í gær og sagði hann Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra hafa
rætt við Ernu Solberg, forsætisráð-
herra Noregs, í gær. Samræðurnar
hefðu verið jákvæðar og mikið sam-
ráð er milli landanna.
Guðlaugur segir samvinnu Nor-
egs og Íslands góða. „Þeir fylgjast
grannt með stöðunni hjá okkur og
við sömuleiðis hjá þeim. Vonandi
höldum við bara áfram á réttri
braut í baráttunni við þessa veiru
hér innanlands og þá endurskoða
norsk stjórnvöld þessa ákvörðun
sína.“
Grænlenskir og íslenskir fjöl-
miðlar greindu frá því í gær að Ís-
land væri komið á rauðan lista
Grænlendinga og því þyrftu Íslend-
ingar að fara í sóttkví við komuna
til landsins. Hið rétta er þó að í gær
var Ísland tekið af undanþágulista
Grænlendinga hvað skimun á landa-
mærum varðar. Ef Íslendingar
mælast ekki smitaðir við landamær-
in þurfa þeir ekki að sæta sóttkví.
Gæti farið af rauðum lista
Ef þróunin verður áfram sú sama fer Ísland af rauðum
lista Norðmanna Íslendingar í skimun á Grænlandi
Guðlaugur Þór
Þórðarson
1 Aðgangur ferðamannaóheftur.
Með þessu mælir Þórólfur alls
ekki.
2 Beitt verði ýtrustu hömlumá komur til landsins.
Þetta telur Þórólfur óraunhæft í
framkvæmd og að aðgerðin muni
ekki koma að fullu í veg fyrir dreif-
ingu innanlands.
3 Allir í 14 daga sóttkví ánskimunar.
Myndi líklega fækka ferðamönnum
verulega. Erfitt yrði að hafa eftirlit
með hvort fólk haldi sóttkví. Líkur
á að veiran dreifist innanlands
myndu minnka en hættan yrði enn
til staðar.
4 Allir skimaðir við komuna.
5 Allir skimaðir, færu í sótt-kví í 4-6 daga og síðan í
aðra sýnatöku.
Áhrifaríkast út frá sóttvarnasjón-
armiði. Hún krefst hins vegar mik-
illar rannsóknargetu, skipulags og
mannafla og er auk þess kostn-
aðarsöm. Erfitt gæti reynst að
hafa eftirlit með að fólk haldi
sóttkví.
6 Fólk frá áhættusvæðumskimað, aðrir ekki.
Þessi aðferð var notuð í upphafi
landamæraskimunar og hefur
komið í veg fyrir smit. Hins vegar
hafa komið upp hópsmit þrátt fyrir
skimunina. Útfærslan er vel fram-
kvæmanleg m.t.t. afkastagetu.
7 Allir skimaðir á landamær-um. 5-7 daga sóttkví og
önnur sýnataka fyrir fólk af
áhættusvæðum.
Afleidd aðferð af fimmtu tillögu.
Meiri líkur eru þó á að veiran kom-
ist inn í landið, en útfærslan hefði
minni áhrif á ferðamannastraum.
8 Sóttkví allra í 7 daga, semlýkur með sýnatöku.
Þessi aðferð myndi greina nær
alla þá sem eru smitaðir, en ókost-
urinn er sá að fólk gæti smitað frá
sér í millitíðinni. Erfitt gæti reynst
að hafa eftirlit með fjöldanum auk
þess sem áhrif á ferðamanna-
straum yrðu mikil.
9 Skimun frá lágáhættu-svæðum en 14 daga sóttkví
frá áhættusvæðum.
Vel framkvæmanleg en mun
væntanlega fækka farþegum frá
hááhættusvæðum. Ekki eins
áhrifarík og aðrar aðferðir.
NÍU ÚTFÆRSLUR ÞÓRÓLFS