Morgunblaðið - 13.08.2020, Page 6

Morgunblaðið - 13.08.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 grillað sumar Þea verður OPIÐ mán.–lau. kl. 11–18 Úrval nýrra og notaðra bóka fyrir alla fjölskylduna! BÓKAMARKAÐUR ÁRMÚLA 42 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta eru að jafnaði um tvö þúsund manns sem nýta ferðagjöfina á hverjum degi og það er góð skipting á milli geira,“ segir Þórhildur Gunn- arsdóttir, ráðgjafi hjá Parallel. Fyrirtækið vinnur með Stafrænu Ís- landi að útfærslu ferðagjafar stjórn- valda. Fjölmargir hafa nýtt sér ferðagjöf stjórnvalda í sumar en allir einstak- lingar 18 ára og eldri með lögheimili á Íslandi eiga rétt á 5.000 krónum sem nýta má við kaup á gistingu, mat og fleiru. Ferðagjöfinni var hleypt af stokkunum um miðjan júní og á þriðjudaginn höfðu alls 137 þúsund manns sótt sér ferðagjöfina og 54% þeirra, eða um 74 þúsund manns, höfðu nýtt sér gjöfina. Þórhildur segir að mesta nýtingin hafi verið í júlí þegar allt að 2.500- 3.000 manns hafi nýtt sér gjöfina dag hvern. Þegar kórónuveiran blossaði upp að nýju í síðustu viku hrundi nýtingin niður í um eitt þúsund manns á dag. Alls hafa 372 milljónir króna skil- að sér til ferðaþjónustufyrirtækja það sem af er sumri í gegnum ferða- gjöfina. Fjórðungur þeirrar upp- hæðar hefur farið til veitingastaða og um 33% í gistingu. Um 31% hefur farið í ýmiss konar afþreyingu en af- gangur í fólksflutninga. Hægt er að kynna sér ferðagjöfina á vefsíðunni ferdalag.is. Tíu fyrirtæki hafa fengið mest í sinn hlut, alls um 106 milljónir af 372. Tvær hótelkeðjur eru efst á listan- um, Icelandair hotels og Íslandshót- el, en athygli vekur að sýningin Flyover Iceland úti á Granda hefur notið mikilla vinsælda meðal lands- manna í sumar. Þó nokkru hefur ver- ið varið í ferðir í Bláa lónið og Vök Baths við Egilsstaði en margir hafa líka kosið að verja gjöfinni í þjónustu hjá bensínstöðvum Olís og N1. Þá er athyglisvert að fimm milljónir króna af ferðagjöf stjórnvalda hafa verið notaðar til að kaupa Dominos-pítsur. Um 74 þúsund hafa nýtt ferðagjöf  Hátt í 400 milljónir í vasa ferðaþjónustufyrirtækja í sumar  Að jafnaði 2.000 manns nýta ferðagjöf- ina dag hvern  Nýting hrundi þegar kórónuveiran spratt upp aftur  Fimm milljónir í Dominos-pítsur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sumar Margir hafa nýtt ferðagjöf stjórnvalda á veitingastöðum. Alls hafa um hundrað milljónir króna runnið til veitingastaða með þessum hætti. Svona hafa landsmenn nýtt ferðagjöfina Stærstu móttakendur ferðagjafarinnar, milljónir kr. Notkun ferðagjafarinnar eftir landshlutum, milljónir kr. Skipting eftir tegund þjónustu Heimild: Ferðamálastofa Icelandair Hotels 17 Flyover Iceland 16 Íslandshótel 16 Bláa lónið 14 Air Iceland 10 Olíuverslun Íslands 9 Vök Baths 7 N1 7 Jökulsárlón 6 Pizza Pizza 5 Höfuðborgarsvæðið Á landsvísu Suðurland Norðurland eystra Austurland Vesturland Suðurnes Norðurland vestra Vestfirðir 90 milljónir króna 69 56 48 35 29 18 16 10 Gisting, 122 Afþreying, 110 Veitingastaðir, 101 Samgöngur, 26 Bílaleigur, 8 Ferðaskrifstofur, 2 Annað, 3 Milljónir kr. Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Strangar reglur gilda um lend- ingar loftfara í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum hér á landi. Ýmist eru þær bannaðar eða háð- ar sérstöku leyfi hverju sinni. Þyrluþjónustur telja sig hornreka í kerfinu og hafa mætt erfiðleikum við að kynna sín sjónarmið. Reynir Pétursson hjá þyrlu- þjónustunni Helo og Friðgeir Guðjónsson hjá Reykjavík Heli- copters segja, að vegna flækju- stigs við að afla leyfa, forðist þeir að mestu að bjóða upp á ferðir til ákveðinna svæða og þurfi jafnvel að hafna fyrirspurnum. Oft komi upp flug með stuttum fyrirvara sem getur reynst erfitt að sinna þegar umsóknarferli tekur 1-3 daga. Stór svæði óaðgengileg Á landinu eru gríðarstór svæði sem ekki má lenda á og Vatnajök- ulsþjóðgarður einn spannar 14% af flatarmáli landsins. Þar innan er að finna auglýstar opinberar flugbrautir og önnur þekkt lend- ingarsvæði. Friðgeir og Reynir eru sammála um að of langt sé gengið í þeim bönnum. Sjálfsögð krafa sé að nýta megi þá aðstöðu sem fyrir er, en að auki vilja þeir að stéttinni sé sýnt traust til að lenda á svæðum sem standast kröfur og hafi sem minnst um- hverfisáhrif. Þeir nefna að rekstr- araðilar hafi tekið höndum saman að eigin frumkvæði og breytt starfsháttum í flugi, t.d. við Þing- velli, Gullfoss og Geysi, og lítið sem ekkert hafi verið um árekstra. Einnig kalla þeir á aukið samráð og telja sig og aðra flug- hagsmunaaðila hafa verið að mestu sniðgengna við flestar ákvarðanir. Sem dæmi um óheppi- leg samskipti nefnir Friðgeir að einn af þeirra flugmönnum hafi nýlega verið kærður fyrir að lenda í Fljótavík á Ströndum, þó að þar sé fyrir umferð einkaflugvéla á merktu lendingarsvæði. Misskilinn samgöngumáti Þeir benda á að talsverðs mis- skilnings og jafnvel fordóma gæti um umferð þyrlna. Þyrlur geti lent nánast hvar sem er án þess að skilja eftir sig ummerki og lík- urnar á því að þær valdi truflun séu nær engar á víðernum lands- ins. Oftast sé það markmið í sjálfu sér að upplifa algera ein- angrun á sem afskekktustum stöðum. Þeir nefna til dæmis að við Holuhraun sé auðvelt að lenda á söndunum þar sem enginn er á ferli. Þeir segja að þyrluflug sé ekki eingöngu fyrir þá efnameiri. Það þjónar einnig þeim sem hafa skerta hreyfigetu og hafa ekki annan kost á að heimsækja ákveðna staði og talsvert sé um slíkt. Friðgeir bendir á að vissu- lega séu margir viðskiptavinir auðugir og geri kröfu um að ferðast á slíkan hátt. Ekki beri að líta það hornauga heldur frekar sem eitt af svörunum við því sí- gilda ákalli að fá hingað til lands verðmætari tegund ferðaþjón- ustu. Hann segir að einn slíkur ferðamaður eða fjölskylda geti skilið eftir sig „tugi milljóna“ á fáeinum dögum. Skilningur þjóðgarðs Magnús Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Vatnajökuls- þjóðgarðs, segist vera meðvit- aður um þetta álitamál. Þar komi til þær sérstöku kröfur sem gerðar eru til þjóðgarða og sú mikla umhverfisvernd sem þar er ástunduð ásamt þeirri stýringu sem nauðsynleg er til að ná þeim markmiðum. Þær geti skarast við aðra hagsmuni, s.s. þeirra sem vilja hafa starfsemi innan þjóð- garðsins. Hann bendir á að með tilkomu Vatnajökulsþjóðgarðs hafi verk- efnið margfaldast og margt sé enn ógert í því stóra verkefni sem reksturinn er. Aðspurður hvort of langt hafi verið gengið í takmörkun á lendingu loftfara, þ.m.t. þyrlna, segir hann að „það sé skilningur fyrir þessum sjón- armiðum sem þarf að ræða nán- ar“. Friðun Stór hluti landsins eru þjóðgarðar og friðlönd. Lendingar loftfara eru víða bannaðar eða leyfum háðar sem getur hamlað ferðaþjónustu. ! !! Þjóðgarðar og friðlönd Þjóðgarður Friðland Kortagrunnur: Lendingar loftfara víða bannaðar á hálendinu  Ferðaþjónustu með þyrlum takmörk sett  Ákall um aukið samráð og meiri skilning  Misskilinn ferðamáti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.