Morgunblaðið - 13.08.2020, Page 8

Morgunblaðið - 13.08.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 Einelti þykir vont. Allt nemaeinelti gegn miðaldra körl- um. Þótt slíkir væru í útrýming- arhættu þætti rétt að halda einelt- inu áfram. Ekki er vitað hvort miðaldur eldist af karlfyglunum og þeir komist úr skætings- og skot- færi.    Og enginn veithvort konur verði miðaldra og ættu að sæta að- kasti þess vegna. Enda væri ras- ismi, fasismi eða weinsteinvonska að klína útskúfun miðaldurs á kon- ur.    Í gær varð millinn Soros níræð-ur. Hann náði aldrei að verða miðaldra. Enda studdi hann göf- ugan málstað opinna landamæra fyrir ofsafé. Og þótt Soros eigi tíu milljarða dollara slapp hann líka við að verða „stöndugur stútungs- karl með óboðlegar skoðanir“.    Sumir hinna miðöldruðu trúa þvíað hluti vandræða veraldar stafi frá Soros og sjóðum hans. Og miðað við það sem sá karl er sak- aður um er hann ótrúlega ern.    Hann græddi fúlgur fjár meðstöðutöku gegn Bretum og Svíum sem asnast höfðu inn í ERM, myntráðið sem var að- göngumiði að upptöku evru. Kohl kanslari lofaði Major forsætisráð- herra Breta því, að yrði gerð árás á pundið á bindingartíma ERM myndi Þýskaland tryggja að það stæði árásina af sér. Árásin var gerð, Kohl vildi standa við sitt en þýski seðlabankinn setti fótinn fyrir.    Soros græddi ógurlega entryggði óvart að Bretar og Svíar yrðu utan evru. George Soros Með eða móti Soros? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Rigning á hálendinu undanfarna daga hefur gagnast Landsvirkjun. Þá hefur jökulbráð tekið við sér í hlýindunum og því hefur ört safnast í miðlunarlón. Samkvæmt upplýsingum Ragn- hildar Sverrisdóttur hjá Lands- virkjun er staðan sú á Þjórsársvæð- inu að Hágöngulón hefur verið á yfirfalli síðan í byrjun júlí og Þóris- vatn er að fyllast. Í ágúst hefur Þór- isvatn hækkað um einn metra sem samsvarar tæpum 90 Gl af miðl- unarforða og nú vantar um hálfan metra til að það fari á yfirfall. Blöndulón fór á yfirfall í vikunni og það hefur venjulega þau áhrif að hækkar í Blöndu, hún litast og verð- ur illveiðanleg. Í byrjun júlí leit út fyrir að lónið væri að fara á yfirfall, veiðimönnum til hrellingar. En þá kólnaði og hægðist á vatnssöfnun. Í Hálslóni hefur vatnssöfnun einn- ig gengið vel. Lónið hækkaði um 13 metra í júlí og það sem af er ágúst hefur það hækkað um 6,5 metra. Nú vantar tæpa sex metra á að lónið fari á yfirfall. Innrennsli í Hálslón er nú yfir 500 m3/s og veðurspá hagfelld næstu daga. Lónið gæti því fyllst á næstu 7-10 dögum. „Horfur í vatnsbúskap Lands- virkjunar eru því góðar,“ segir Ragnhildur. sisi@mbl.is Rigning gagnast Landsvirkjun  Öflugt vatnsrennsli í miðlunarlón  Blöndulón fór á yfirfall í vikunni Ljósmynd/Landsvirkjun Sigöldustöð Virkjanir á Þjórs- ársvæðinu fá orku úr Þórisvatni. Fjölmiðlafyrirtækið Frjáls fjölmiðlun (FF) tapaði tæpum 318 milljónum króna í fyrra. Jókst tapið frá árinu 2018 þegar það nam tæpum 240 millj- ónum króna. Undir lok árs í fyrra keypti Torg, útgáfufélag Fréttablaðs- ins, helstu eignir Frjálsrar fjölmiðl- unar, þar á meðal útgáfuréttinn að DV og vefmiðilinn dv.is. Eini eigandi FF er skráður félagið Dalsdalur ehf. sem aftur er í 100% eigu Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns. Eigið fé FF var neikvætt sem nam tæpri 261 milljón í lok síðasta árs og hafði staðan versnað um tæpar 200 milljónir á rekstrarárinu. Heildar- skuldir félagsins voru í árslok 657,4 milljónir en eignir voru metnar á 396,5 milljónir. Rekstrartekjur félagsins námu 359 milljónum í fyrra og höfðu dregist saman um ríflega 20 milljónir frá fyrra ári. Prentun, dreifing og vöru- kaup kostaði félagið 87,6 milljónir, samanborið við 112,2 milljónir árið 2018. Laun og annar starfsmanna- kostnaður höfðu einnig lækkað veru- lega og námu 336 milljónum, sam- anborið við 418,4 milljónir árið áður. Annar rekstrarkostnaður jókst um ríflega 6,7 milljónir og nam 54,9 millj- ónum. Skrifstofu- og stjórnunar- kostnaður fór úr 15 milljónum í 9,1 milljón. Það var hins vegar bókfærð virðis- rýrnun óefnislegra eigna félagsins sem hafði mest áhrif á neikvæða af- komu og nam hún 152,5 milljónum. Mesta niðurfærslan tengdist útgáfu- réttindum sem voru metin á 444,3 milljónir ársbyrjun en voru komin niður í 28,9 milljónir í árslok. Þrátt fyrir neikvæða afkomu síð- asta árs og neikvæða eiginfjárstöðu segir í skýrslu stjórnar sem fylgir ársreikningi ársins 2019 að ekki leiki vafi á rekstrarhæfi félagsins. Frjáls fjölmiðlun tapar 318 milljónum  Eigið fé var nei- kvætt um 260 millj- ónir í árslok 2019 Morgunblaðið/Sverrir DV FF seldi DV til Torgs í fyrra. Eldhúsinnréttingar Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Sumaropnun: Mán. – Föst. 10–17 Laugardaga LOKAÐ 2 0 0 0 — 2 0 2 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.