Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið GLOBL VIKTOR Hvíldarstóll KRAGELUND OTTO KRAGELUND K371 Kragelund stólar K 406 Stólar Sófasett Borðstofuborð Skenkar/skápar Kommóður/hillur Hvíldarstólar o.m.fl. Borstofuhúsgön frá Casö Mikið úrval af hvíldarstólum með og án rafmagns. CHICAGO hornsófi Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Mér fannst þetta ofboðslega óréttlátt en um leið get ég ekki annað en hlegið að þessu. Það er hálffyndið að rík- isstjórnin skuli ætla að styrkja Íslendinga til að ferðast um landið en taki það svo svona til baka,“ segir Anna Lára Ármannsdóttir, eldri borgari á Blönduósi. Anna keyrði hringinn um landið í júlí eins og svo margir. Þegar heim var komið beið hennar innheimtu- bréf vegna þjónustu sem hún vissi ekki að greiða þyrfti fyrir. „Ég fór upp að Skaftafelli til að fara á klósett. Við lögðum langt frá og þar sem systir mín er í hjólastól ákváðum við að fara ekki inn í þjóðgarðinn. Það var eng- inn að rukka mig á klósettinu og enginn kom að bílnum og rukkaði. Þegar ég kom heim beið mín hins vegar inn- heimtubréf vegna þess að ökutæki mitt hafi ekið inn á gjaldskylt svæði. Ég sá hvergi skilti eða hlið sem sagði að ég þyrfti að borga. Að sjálfsögðu hefði ekki verið neitt mál að borga fyrir að fara á klósettið,“ segir Anna Lára. Hún var rukkuð um 750 krónur en þar sem gjalddagi var liðinn þegar Anna lauk hringferðinni hafði bæst við innheimtuviðvörun upp á 1.178 krónur og 100 krónur í tilkynningargjald auk fjögurra króna í vexti. Alls nam innheimtan því 2.032 krónum svo klósettferðin reyndist Önnu dýr. „Ég hafði ekkert verið heima og er ekki með tölvu þannig að ég sá þetta bara þegar ég kom heim. Þetta var bréf frá Cato lögmönnum en kröfuhafi er Vatnajökuls- þjóðgarður, sem reyndar er skráður til heimilis í Garða- bæ. Ég borgaði þetta nú bara en mér finnst þetta satt að segja fyrir neðan allar hellur. Ætli ég hefði þurft að borga ef ég hefði lagt bílnum mínum niðri á þjóðvegi?“ Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri Vatnajök- ulsþjóðgarðs, segir að svokölluð svæðisgjöld hafi verið innheimt í Skaftafelli í um þrjú ár. Notast er við sama kerfi og á Þingvöllum þar sem myndavélar nema númer á bílum. Ef fólk er lengur en 15-20 mínútur á svæðinu þarf það að greiða 750 krónur sem veitir aðgang í sólar- hring. Ef fólk greiðir ekki í greiðsluvélum á svæðinu fær það rukkun í heimabanka. „Það eru alltaf einhverjir sem eru óánægðir með gjaldið en við höfum verið mjög liðleg við fólk sem hefur haft samband. Vissulega skilur maður það að ekki eru allir búnir að venjast þessu fyrirkomulagi en þarna er verið að borga fyrir þjónustu sem fólk fær á svæðinu; aðgang að klósettum, fræðslugöngur og landverði sem alltaf eru til reiðu,“ segir Magnús. Hann bætir við að 800 þúsund gestir hafi komið í Skaftafell í fyrra og kvartanir hafi verið tiltölulega fáar. „Innheimta svæðisgjalda er aðferð sem er að ryðja sér til rúms og gerir okkur kleift að halda þessum stöðum í þokkalegu standi.“ Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Ósátt Anna Ármannsdóttir með innheimtubréf vegna klósettferðar í Skaftafelli. Ferðin kostaði 2.032 krónur. Klósettferðin kostnaðarsöm  Anna Lára Ármannsdóttir fékk rukkun fyrir klósettferð í Skaftafelli  Sent í innheimtu meðan hún keyrði hringinn Í áratugi hafa Íslendingar með mis- glöðu geði greitt í stöðumæla. Með snjallsímavæðingu var ökuþórum gert lífið auðveldara með því að nýta sér smáforritið „Leggja“ í stað þess að dæla smámynt í mæli. Nú hefur sú göf- uga list að leggja vikið fyrir vöru- merkinu „easy- park“ sem tekur við af hinu eldra og ylhýrara. Breyting þessi er hin nýjasta í þeirri þróun að fyrirtæki taki upp ensk heiti og kasti fyrir róða þeim gömlu og góðu íslensku. Frægasta dæmi síðustu missera var þegar hið áratuga gamla heiti Flug- félags Íslands var látið víkja fyrir Air Iceland Connect og þótti þá mörgum nóg um. Blaðamaður ræddi við Eirík Rögnvaldsson, prófessor emerítus í íslenskri málfræði, um þessa þróun. Hann segir að í mörgum tilvikum geti verið góð og gild rök fyrir er- lendum heitum, sérstaklega þegar um er að ræða tilvísun í hluti eða starfsemi sem sérstaklega er beint til útlendinga. Fjöldamörg dæmi séu um að slíkt geti verið eðlilegt og jafnvel nauðsynlegt. Ekki megi þó ganga út frá því að útlendingar vilji forðast íslensku, ekki frekar en að við forðumst erlent mál á ferða- lögum okkar ytra. Hann nefnir nokkur dæmi um óþarfa ensku- notkun t.d. í auglýsingum frá fata- risanum H&M, hins umtalaða flug- félags og segir eftirsjá að hinu þjála og lýsandi „Leggja“. Eiríkur segir það hvorki mark- mið né skyldu að þröngva íslensku upp á hópa sem hún þjóni illa eða alls ekki. Fremur verði að vanda vel á hvaða sviðum sú barátta er háð. Eiríkur bendir á að sum orð hafi eingöngu tákngildi sem blandast ekki saman við íslenskt mál. „Ensk heiti verða ekki til að breyta ís- lenskunni, þ.e. hættan felst ekki í heitum, heldur að mönnum finnist heitin eðlileg,“ segir Eiríkur. Þann- ig verði til samlögun tungumálsins, þar sem mörkin milli þess hvað sé rétt og eðlilegt skarist og geti til langframa reynst íslenskri tungu skeinuhætt. Hvort auðveldara verði að leggja í stæði skal ósagt látið. sighvaturb@mbl.is Íslensk heiti víkja fyrir erlendum  Hætta á raskaðri málvitund Morgunblaðið/RAX Málfar Íslenska á víða erindi. Eiríkur Rögnvaldsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.