Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Enn heldur áfram að fækka í þjóð-
kirkjunni. Nú um mánaðamótin
voru þar skráð tæplega 231 þús-
und manns, 62 prósent þjóð-
arinnar. Hefur þjóðkirkjufólki
fækkað um 462 frá 1. desember í
fyrra og um meira en tuttugu þús-
und ef miðað er við áratuginn sem
nú er að líða. Þessar upplýsingar
koma fram á vef Þjóðskrár þar
sem er að finna yfirlit um skrán-
ingar í trú- og lífsskoðunarfélög á
undanförnum árum.
Þjónar óháð trúfélögum
„Biskupi er fyrst og fremst um-
hugað um einlægt andlegt trúarlíf
almennings, velferð og sálgæslu,
sem hverjum og einum ein-
staklingi er mikilvæg. Standi þjóð-
kirkjan mynduglega á bak við þá
þjónustu verður framtíð kirkj-
unnar björt. Kirkjan þjónar þeim
sem til hennar leita óháð trú-
félagsaðild. Hún leitast við að
sinna þjónustunni á faglegan hátt,
byggðum á reynslu og kærleika,“
sagði Pétur Markan, samskipta-
stjóri þjóðkirkjunnar, þegar leitað
var viðbragða yfirstjórnar kirkj-
unnar við þessari fækkun.
„Þessi staðreynd er ekki síður
mikilvæg, og verður að taka mið af
henni um leið og rætt er um
skráningar í kirkjuna,“ segir Pét-
ur. Hann bendir á að skráning í
þjóðkirkjuna endurspegli ekki
minnkandi þjónustu eða minnk-
andi spurn eftir þjónustu kirkj-
unnar. Þeim fari ekki fækkandi
sem til hennar leita.
Mikið starf unnið
„Innan kirkjunnar fer fram gíf-
urlega umfangsmikið starf um allt
land í formi umhverfisverndar,
velferðarþjónustu, sálgæslu, hjálp-
arstarfs, samfélags trúar, rækt-
unar andlegs lífs, menningarlífs og
þá ekki síst barnamenningar.
Þjóðkirkjan er sú íslenska stofnun
sem rækir landsbyggðastefnu
einna best á borði, sem og í orði.
Þannig ræður þjóðkirkjan háskóla-
menntað starfsfólk út um allt land
– hvort sem það eru jaðarsvæði í
byggðarvörn eða stærri byggð-
arkjarnar í sókn. Það er stefna,
markmið og erindi þjóðkirkjunnar
að þjónusta allt landið. Græna
kirkjan er mjög gott dæmi um
hvernig kirkjan vinnur af sam-
félagslegri ábyrgð og ætlar sér að
vinna enn kröftugar að brýnum
framtíðarmálum eins og umhverf-
ismálum,“ segir Pétur og vísar til
starfs og stefnu þjóðkirkjunnar í
umhverfismálum.
„Í þessu samhengi er vert að
minna á að þrátt fyrir úrsagnir er
íslenska þjóðkirkjan fjölmennustu
umhverfissamtök á Íslandi með
stefnumörkun og aðgerðaáætlun
Grænu kirkjunnar. Það er metn-
aður og vilji íslensku þjóðkirkj-
unnar að leiða umræðu og aðgerð-
ir í umhverfismálum framtíð-
arinnar,“ segir Pétur.
Fjölgun í Siðmennt
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
skrár er Kaþólska kirkjan næst-
fjölmennasta trúfélag landsins
með 14.686 félaga. Fríkirkjan í
Reykjavík er í þriðja sæti með
10.035.
Frá 1. desember sl. hefur fjölg-
unin verið mest í lífsskoð-
unarfélaginu Siðmennt eða um 344
félaga. Þar eru nú rúmlega 3.800
félagar. Félagið var stofnað fyrir
þrjátíu árum í kringum borg-
aralega fermingu en hefur síðan
þróast í að verða „fullgilt húm-
anískt félag með aðild að alþjóða-
samtökum húmanista (IHEU)“ að
því er segir á vefsíðu félagsins.
Í Ásatrúarfélaginu, sem stofnað
var 1972, hefur fjölgað um 244 fé-
laga frá því í desember í fyrra.
Þar eru félagar nú tæplega fimm
þúsund.
Samtals eru um 50 trú- og lífs-
skoðunarfélög á skrá. Aðeins 10
þeirra eru með fleiri en eitt þús-
und félaga. 20 félög hafa færri en
100 félaga. Fámennasta félagið,
Nýja Avalon, hefur aðeins 5 fé-
lagsmenn. En ekki eru allir lands-
menn í trú- eða lífsskoðunarfélagi.
Alls standa rúmlega 7 prósent ut-
an þeirra eða tæplega 27 þúsund
manns. Þá vekur athygli að 54.342
landsmanna, 14,8 prósent, eru með
ótilgreinda skráningu. Þar eru er-
lendir ríkisborgarar vafalaust fjöl-
mennasti flokkurinn.
Framlög byggð á skráningu
Fram kemur á vef Þjóðskrár að
tilgangur skráningar í trú- eða
lífsskoðunarfélög í þjóðskrá er að
fá tölfræðilegar upplýsingar um
fjölda einstaklinga í tilteknu trú-
eða lífsskoðunarfélagi miðað við 1.
desember ár hvert. Þannig er unnt
að reikna út framlög ríkisins (svo-
kölluð sóknargjöld) til félaganna.
Hver einstaklingur getur lögum
samkvæmt einungis verið skráður
í eitt trú- eða lífsskoðunarfélag í
þjóðskrá á sama tíma.
Fjöldi einstaklinga í trú- og lífsskoðunarfélögum skv. þjóðskrá
Hlutfall íbúa sem eru í þjóðkirkjunni og öðrum trú- og lífsskoðunarfélögum 2018-2020
Fjöldi skráðra í stærstu trú- og lífsskoðunarfélögin 1. ágúst 2020
1. des. 2018 1. des. 2019 1. ágúst 2020
H
e
im
ild
: Þ
jó
ð
sk
rá
Ís
la
n
d
s
Þjóðkirkjan 230.692
Kaþólska kirkjan 14.686
Fríkirkjan í Reykjavík 10.035
Fríkirkjan í Hafnarf. 7.293
Ásatrúarfélagið 4.967
Siðmennt 3.814
Óháði söfnuðurinn 3.229
Hvítasunnukirkjan 2.086
Búddistafélag Íslands 1.123
Zuism 1.061
Rússneska rétt-
trúnaðarkirkjan
743
Kirkja sjöunda dags
aðventista á Íslandi
623
Félag múslima á Ísl. 614
Vottar Jehóva 610
62,0%
15,1% 14,8%
7,3%
63,5%
15,0% 14,3%
7,2%
65,2%
14,8% 13,0%
6,9%
Þjóðkirkjan Önnur trú- og lífsskoðunarfélög Ótilgreint Utan trúfélaga
344 fl eiri eru nú skráðir í lífsskoðunarfélagið
Siðmennt en 1. desember í fyrra
230.692
einstaklingar voru skráðir í
þjóðkirkjuna þann 1. ágúst 54.342 landsmanna eru með
ótilgreinda skráningu eða 14,8%
7,3% landsmanna eru skráðir utan trú-
og lífsskoðunarfélaga eða alls
26.946 einstaklingar
Morgunblaðið/Ómar
Þjóðkirkjan Biskupi er fyrst og fremst umhugað um einlægt andlegt trúar-
líf almennings, velferð og sálgæslu, segja forsvarsmenn kirkjunnar.
Margir utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Þótt fækki í þjóðkirkjunni ber hún sem fyrr höfuð og herðar yfir önnur trú- og lífsskoðunarfélög
Áfram fjölgar hjá Siðmennt og Ásatrúarfélaginu Kaþólska kirkjan næststærsta trúfélagið
Vöxtur lífsskoðunarfélagsins Sið-
menntar tengist því að íslenskt
samfélag verður sífellt veraldlegra.
Þetta segir Inga Straumland, for-
maður félagsins. Hún segir að at-
hafnir félagsins, svo sem borgara-
legar fermingar og húmanískar
hjónavígslur, hafi mælst vel fyrir, og
vaxandi eftirspurn sé eftir þeim.
„Við erum mjög glöð með að fleira
og fleira fólk finni samleið með
húmanískum gildum og starfsemi
Siðmenntar. Við nýtum meðbyrinn
með því að efla starfsemina, styðja
góð málefni og veita yfirvöldum að-
hald í baráttunni fyrir samfélagi
jöfnuðar og mannréttinda,“ segir
hún.
„Yngri kynslóðir vilja veraldlegt
samfélag, þar sem yfirvöld og sam-
félagsleg kerfi byggja á trúarlega
hlutlausum grunni, en þar sem
hverjum einstaklingi er frjálst að
fylgja sinni lífsskoðun,“ segir Inga.
„Það er nokkuð í land ennþá að
skapa lagalega og félagslega ver-
aldlegt samfélag, enda hefur þjóð-
kirkjan ennþá þónokkra forgjöf,
bæði fjárhagslega og félagslega.
Hún fær aukinn stuðning frá ríkinu
og aðgengi inn í rými sem önnur fé-
lög fá ekki, eins og grunnskóla
landsins. Sem dæmi má nefna að
fermingarferðir eru ennþá farnar á
skólatíma og missa nemendur allt
að heila viku af lögbundnu skóla-
starfi, en það getur verið mjög fé-
lagslega erfitt að hafna tilboðum
um skemmtileg ferðalög með
bekkjarfélögunum. Þá hefur þjóð-
kirkjan nánast einokun á sálgæslu á
heilbrigðisstofnunum og í fang-
elsum, sem er mjög bagalegt, enda
nýtist slík þjónusta ekki öllum og
erfitt að fá aðra þjónustu í stað-
inn.“
Inga segir að þjóðkirkjan hafi í
raun haft óeðlilega stóra fé-
lagsskrá, miðað við kannanir sem
mæla traust til hennar eða samleið
með henni, en það skýrist af því að
börn voru skráð í trúfélag móður
árum saman. „Við hjá Siðmennt er-
um mótfallin slíkri trúfélagsskrán-
ingu án samþykkis einstaklingsins
sem um ræðir,“ segir Inga.
gudmundur@mbl.is
Siðmennt eflist eftir því sem
samfélagið verður veraldlegra
LÍFSSKOÐUNARFÉLÖG
Siðmennt Inga Straumland er formað-
ur félagsins með um 3.800 meðlimi.