Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 21

Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 Áttu rétt – en ert ekki búinn að sækja um? Hægt er að sækja um stuðning vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti til og með 20. ágúst 2020 vegna launagreiðslna í maí, júní og júlí. Eftir það verður ekki tekið við umsóknum vegna þeirra mánaða. Umsóknarfrestur um lokunarstyrki til handa þeim sem var gert að stöðva starfsemi sína vegna sóttvarnaraðgerða rennur út 1. september 2020. Allar nánari upplýsingar eru á skatturinn.is Sótt er um á þjónustuvef skatturinn@skatturinn.is 442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 slóðum demókrata. Hún vill líka koma á heilbrigðisþjónustu í anda evrópskra velferðarríkja. Verður af- staða hennar til heilbrigðismála án efa eitt af því sem Trump og repú- blikanar munu reyna að notfæra sér til að koma höggi á hana, enda telja þeir ókeypis læknisþjónustu fyrir al- menning vera sósíalisma af verstu sort og hefur sú skoðun átt mikinn hljómgrunn vestanhafs. Kamala Harris hefur verið óhrædd við að segja skoðun sína um- búðalaust. Hefur hún verið harður gagnrýnandi Trump forseta og emb- ættisverka hans og ekki skafið utan af því þegar hún hefur gefið honum og verkum hans einkunnir. Þá vakti mikla athygli hve vasklega hún gekk fram í yfirheyrslum þingsins þegar Brett Kavanaugh var tilnefndur í embætti hæstaréttardómara og William Barr í embætti dóms- málaráðherra. Þrátt fyrir að vera meira til vinstri en margir í Demókrataflokknum hefur Harris sætt gagnrýni úr þeirri átt fyrir að hafa verið hörkutól í sak- sóknaraembættunum sem hún gegndi, sökuð um að fylgja of ósveigjanlegri refsistefnu og ekki beita sér nægilega fyrir umbótum innan lögreglunnar og réttarkerf- isins. Ekki er þó líklegt að sú gagn- rýni verði henni að fótakefli eins og staðan er núna. Byrinn virðist með henni. Töffari með harðan skráp varaforsetaefni  Ánægja ríkir með valið meðal bandarískra demókrata AFP Varaforsetaefni Kamala Harris nýtur mikils fylgis innan flokks demókrata í Bandaríkjunum. Val hennar er talið styrkja framboð Joe Biden. Kamala Harris » Fædd 20. október 1964. » Gift lögfræðingnum Douglas Emhoff og stjúpmóðir tveggja barna hans frá fyrra hjóna- bandi. » Lagapróf frá Howard Uni- versity og Kaliforníuháskóla » Ríkissaksóknari í Kaliforníu frá 2010 til 2014. » Öldungadeildarþingmaður frá 2014. FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Mikil samstaða virðist ríkja um það meðal demókrata í Bandaríkjunum að forsetaefni þeirra, Joe Biden, hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann til- kynnti á þriðjudaginn að Kamala Harris, öldungadeildarþingmaður fyrir Kaliforníu, yrði varaforsetaefni hans í kosningunum í nóvember. Meðal þeirra sem fagnað hafa vali hennar er Barack Obama, fyrrum forseti. Harris hefur verið lýst sem töffara með harðan skráp sem brotnar ekki undan hörðum og ill- gjörnum árásum pólitískra andstæð- inga. Það kveður að henni, glæsileg og aðlaðandi, aðsópsmikil og sköru- leg í framgöngu, og á auðvelt með að fá fólk til liðs við sig. Harris, sem er 55 ára gömul, er dóttir innflytjenda; faðirinn frá Ja- maíka og móðirin indversk. Þau skildu og ólst Harris upp hjá móð- urinni með systur sinni. Hún bjó í fimm ár í Kanada, en gekk í laga- skóla í Washington og Kaliforníu þar sem hún átti glæsilegan feril sem saksóknari áður en hún var kjörin á þing fyrir sex árum. Ef skoðanakannanir ganga eftir vinnur Joe Biden sigur á Donald Trump í forsetakosningunum. Harr- is yrði þá fyrsta konan til að gegna embætti varaforseta Bandaríkjanna. Margir telja að Biden muni ekki sitja í embætti nema eitt kjörtímabil, nái hann kjöri, enda er hann kominn fast undir áttrætt. Harris yrði þá í mjög sterkri stöðu sem forsetaefni demókrata í kosningunum 2024. Joe Biden er demókrati af gamla skólanum en Harris aðhyllist rót- tækari skoðanir á ýmsum sviðum, er vinstrisinnaðri, ekki síst í afstöðu til félagsmála og mannréttinda. Hún er t.d. hlynnt hjónaböndum samkyn- hneigðra og andvíg dauðarefsingum, og á þar samhljóm með yngri kyn- Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, ákallaði þjóð sína er hún kynnti ásamt Bent Høie heilbrigð- isráðherra nýjar ráðstafanir í rimm- unni við kórónuveiruna á blaða- mannafundi í Ósló í gær. Lagði hún að landsmönnum sínum að fara stíft eftir ráðstöfunum sem ætlað er að stemma stigu við útbreiðslu veirunn- ar. Norsk stjórnvöld telja stöðuna ískyggilega og ákváðu að flýta frek- ari takmörkunum til ferðalaga. Meðal ákvarðana Norðmanna er að frá og með miðnætti á föstudags- kvöld fær Ísland rauða stöðu á kór- ónuveirukorti norskra stjórnvalda ásamt Hollandi, Póllandi, Möltu, Kýpur og Færeyjum. Frá þessum löndum þurfa ferðemenn að fara í 10 daga sóttkví við komuna til Noregs. Svæði og bæir í Svíþjóð og Dan- mörku falla einnig í rauða flokkinn, svo sem Värmland, Östergötland, Örebro, Blekinge, Uppsala og Dal- arna í Svíþjóð, Sjáland utan Kaup- mannahafnar og Mið-Jótland. Fyrr á árinu nutu Danir þess að verða fyrsta landið sem Norðmenn afléttu ferðabanni til. Solberg sagðist fyrir alla muni vilja komast hjá því að loka fyrir- tækjum og stöðva framleiðslugrein- ar eins og fyrr á árinu. Hún sagði ástandinu hafa hrakað í Noregi og öðrum Evrópulöndum undanfarið og hefði vaxandi veirusmit knúið á um nýju ráðstafanirnar. Sagði hún það og eindregna ósk stjórnar sinnar að fólk legðist ekki í ónauðsynleg ferða- lög. Gilda þau tilmæli til 1. október nk. Áhugaverð reynsla á Íslandi Bent Høie, heilbrigðisráðherra Noregs, hvatti Norðmenn í samtali við norska Dagblaðið í gær til að fresta sumarleyfum til haustsins og njóta þeirra í heimalandinu. „Það öruggasta er að verja fríinu innanlands. Augljóslega verðum við að forðast óþarfa ferðalög til út- landa. Smitstaðan breytist hratt, í gulu löndunum gæti hún breyst bæði áður en farið er í frí og meðan á haustfríi stendur,“ segir Høie. Hann undirstrikar að ríkisstjórnin vilji ekki þvinga fólk sem kemur frá löndunum í gula flokknum til að fara í veirupróf eftir heimkomuna og seg- ir reynsluna frá Íslandi í því sam- bandi áhugaverða. „Það er áhugavert nú að skoða reynsluna frá Íslandi, sem skyldaði ferðamenn í próf og er nú í rauðum flokki. Við munum skoða vel reynsl- una þaðan áður en við gerum eitt- hvað álíka í Noregi,“ sagði ráð- herrann. agas@mbl.is AFP Ósló Norðmenn njóta veðurblíðu í höfuðborginni Ósló fyrr í sumar. Norðmenn herða sóttvarnir  Íslendingar þurfa í 10 daga sóttkví

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.