Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 30
Ekki vera fáviti Krossneslaug á Ströndum er dásamleg og þú getur notið afslöppunar ef það er ekki einhver miðaldra karl sem hoppar út í laugina þannig að þú fáir sundlaugarvatnið í hárið á þér. Marta María mm@mbl.is Vandamálið við mína kynslóð er að hún hefur ekki upplifað neinar heims- hörmungar. Hún hefur vissulega upplifað persónuleg áföll, en það er öðruvísi þegar allir sitja í súpunni saman. Auðvitað hafði hrunið áhrif á fólk en það var öðruvísi. Það er búið að stimpla inn í hausinn á þessari kynslóð að hún eigi að vera besta út- gáfan af sjálfri sér, sýna leiðtogahæfi- leika og slaka aldrei á. Bara keyra áfram, græða peninga og vera ham- ingjusöm. Það getur verið svolítið flókið þegar ytri aðstæður bjóða ekki upp á mikið flipp og fyrir suma er það alversta af öllu að þurfa að vera heima hjá sér. Ég tengi þó ekki við það. Einhverjir bundu vonir við að sum- arfríið yrði gott. Fólk myndi kynnast landinu sínu upp á nýtt og uppgötva heillandi staði. Það voru þó ekki allir sem upplifðu ferðalögin innanlands sem einhverja sælu. Það eru nefni- lega allt of margir Íslendingar sem kunna sig ekki. Ég gæti til dæmis skrifað heila bók um taktleysi landa minna á ferðalögum eftir að hafa ferðast um Ísland í sumarfríinu. En ætli það sé ekki best fyrir mig að setja fókusinn á hið jákvæða í staðinn fyrir að pirra mig á miðaldra karlin- um sem ákvað að hoppa ofan í Kross- neslaug þannig að vatnið skvettist yf- ir hárið á mér og öllum konunum í lauginni. Ástæða þess að ég vildi ekki þvo á mér hárið var að það eru bara tvær sturtur þarna og ég nennti ekki að láta tíu konur í biðröð bíða eftir að ég setti í mig sjampó og hárnæringu. Nú eða pirra mig á konunni sem er svo stjórnsöm að hún æpti á kynsyst- ur sína á veitingastað og bað hana að hlæja ekki svona hátt. Svo tók ég upp á því að leigja húsbíl sem reyndist al- gert þrotabú enda keyrður 170.000 km. Þegar húsbíllinn var farinn að líta út eins og hamstrabúr að innan, eftir að múslí datt úr hillu sem átti að vera lokuð, og dreifðist yfir allt gólfið komumst við að þeirri niðurstöðu að þetta væri orðið ágætt. Svo var líka farið að loga ljós í mælaborðinu sem boðar aldrei gott. Niðurstaðan var á þessum tímapunkti að við værum lík- lega komin með algert húsbílaógeð. Það var því bara frekar ljúft og gott að komast aftur heim til sín þar sem enginn öskrar á neinn af því hann hlær of hátt og enginn skvettir vatni á hárið á þér. Þú getur notið þess að bera á þig andlitsmaska, sett á þig mörg lög af húðdropum, lesið bækur í friði, eldað besta mat í heimi og látið þig dreyma um geggjuð föt á erlendum tískusíðum. Svo getur þú tekið til í fataskápnum þínum og straujað allt sem hægt er að strauja og hlustað á hljóðbók á meðan, hringt í vini, fært til húsgögn, málað einn vegg eða tvo og skipulagt næsta al- þjóðlega frí þar sem miðaldra menn með gestalæti, illa upp alin börn og vesen verður ekki með í för! Illa upp alin börn og miðaldra karlar með gestalæti Í miðjum heimsfaraldri er farið að reyna á þolrif landsmanna. Allra já- kvæðasta fólk, sem sér alltaf björtu hliðarnar frekar en þær dökku, hef- ur þurft að gefa allt sem það á til þess að fara í gegnum töku tvö í veiruskrattanum án þess að missa lífviljann. Hvað getum við gert til þess að hressa okkur við á þessum skrýtnu tímum? AFP Kauptu þér eitthvað Hausttíska Chanel kallar á nettan næntís fíling. Hér má sjá doppóttar sokkabuxur sem setja mikinn svip á dressið. Hresstu þig við með því að kaupa þér doppóttar sokkabuxur. Þær fást í Kringlunni. Nýja ég Þegar legið er yfir Vogue, Net- a-porter og öllum þessum síðum má láta sig dreyma um endurbætta útgáfu af sjálfum sér. Hver væri ekki til í að endurfæðast eins og þessi drottning sem er í Emilio Pucci frá toppi til táar? Með allt á hreinu Manneskja sem hefur kjark og þor til að klæð- ast svona þarf ekki að óttast neitt í lífinu. Fötin eru úr haustlínu Emilio Pucci. Lestu bækur Höfundur Berlínaraspanna er komin með splunkunýja bók sem heitir Dóttirin. Lestu hana og þú gleymir því um stund að hér geisi heimsfaraldur. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Unaður Húvörurnar frá Skin Regimen kalla fram mikinn ljóma. Hér er til dæmis andlitshreinsir sem gott er að nota bæði kvölds og morgna. Á meðan þú berð hann á þig og lyktar af honum gleymir þú stund og stað og þú gleymir því líka hvað veirulífið er leiðinlegt. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 VERTU NÁTTÚRULEGUR. VERTU ÞÚ SJÁLFUR. LÁTTU KRAFTA CADE VERNDA HÚÐ ÞÍNA Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.