Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 30
Ekki vera fáviti Krossneslaug á Ströndum er
dásamleg og þú getur notið afslöppunar ef það er
ekki einhver miðaldra karl sem hoppar út í laugina
þannig að þú fáir sundlaugarvatnið í hárið á þér.
Marta María
mm@mbl.is
Vandamálið við mína kynslóð er að
hún hefur ekki upplifað neinar heims-
hörmungar. Hún hefur vissulega
upplifað persónuleg áföll, en það er
öðruvísi þegar allir sitja í súpunni
saman. Auðvitað hafði hrunið áhrif á
fólk en það var öðruvísi. Það er búið
að stimpla inn í hausinn á þessari
kynslóð að hún eigi að vera besta út-
gáfan af sjálfri sér, sýna leiðtogahæfi-
leika og slaka aldrei á. Bara keyra
áfram, græða peninga og vera ham-
ingjusöm. Það getur verið svolítið
flókið þegar ytri aðstæður bjóða ekki
upp á mikið flipp og fyrir suma er það
alversta af öllu að þurfa að vera
heima hjá sér. Ég tengi þó ekki við
það.
Einhverjir bundu vonir við að sum-
arfríið yrði gott. Fólk myndi kynnast
landinu sínu upp á nýtt og uppgötva
heillandi staði. Það voru þó ekki allir
sem upplifðu ferðalögin innanlands
sem einhverja sælu. Það eru nefni-
lega allt of margir Íslendingar sem
kunna sig ekki. Ég gæti til dæmis
skrifað heila bók um taktleysi landa
minna á ferðalögum eftir að hafa
ferðast um Ísland í sumarfríinu. En
ætli það sé ekki best fyrir mig að
setja fókusinn á hið jákvæða í staðinn
fyrir að pirra mig á miðaldra karlin-
um sem ákvað að hoppa ofan í Kross-
neslaug þannig að vatnið skvettist yf-
ir hárið á mér og öllum konunum í
lauginni. Ástæða þess að ég vildi ekki
þvo á mér hárið var að það eru bara
tvær sturtur þarna og ég nennti ekki
að láta tíu konur í biðröð bíða eftir að
ég setti í mig sjampó og hárnæringu.
Nú eða pirra mig á konunni sem er
svo stjórnsöm að hún æpti á kynsyst-
ur sína á veitingastað og bað hana að
hlæja ekki svona hátt. Svo tók ég upp
á því að leigja húsbíl sem reyndist al-
gert þrotabú enda keyrður 170.000
km. Þegar húsbíllinn var farinn að
líta út eins og hamstrabúr að innan,
eftir að múslí datt úr hillu sem átti að
vera lokuð, og dreifðist yfir allt gólfið
komumst við að þeirri niðurstöðu að
þetta væri orðið ágætt. Svo var líka
farið að loga ljós í mælaborðinu sem
boðar aldrei gott. Niðurstaðan var á
þessum tímapunkti að við værum lík-
lega komin með algert húsbílaógeð.
Það var því bara frekar ljúft og
gott að komast aftur heim til sín þar
sem enginn öskrar á neinn af því
hann hlær of hátt og enginn skvettir
vatni á hárið á þér. Þú getur notið
þess að bera á þig andlitsmaska, sett
á þig mörg lög af húðdropum, lesið
bækur í friði, eldað besta mat í heimi
og látið þig dreyma um geggjuð föt á
erlendum tískusíðum. Svo getur þú
tekið til í fataskápnum þínum og
straujað allt sem hægt er að strauja
og hlustað á hljóðbók á meðan, hringt
í vini, fært til húsgögn, málað einn
vegg eða tvo og skipulagt næsta al-
þjóðlega frí þar sem miðaldra menn
með gestalæti, illa upp alin börn og
vesen verður ekki með í för!
Illa upp alin
börn og miðaldra
karlar með gestalæti
Í miðjum heimsfaraldri er farið að reyna á þolrif landsmanna. Allra já-
kvæðasta fólk, sem sér alltaf björtu hliðarnar frekar en þær dökku, hef-
ur þurft að gefa allt sem það á til þess að fara í gegnum töku tvö í
veiruskrattanum án þess að missa lífviljann. Hvað getum við gert til
þess að hressa okkur við á þessum skrýtnu tímum?
AFP
Kauptu þér eitthvað Hausttíska
Chanel kallar á nettan næntís fíling.
Hér má sjá doppóttar sokkabuxur
sem setja mikinn svip á dressið.
Hresstu þig við með því að kaupa
þér doppóttar sokkabuxur. Þær fást
í Kringlunni.
Nýja ég Þegar legið
er yfir Vogue, Net-
a-porter og öllum
þessum síðum má
láta sig dreyma um
endurbætta útgáfu
af sjálfum sér. Hver
væri ekki til í að
endurfæðast eins og
þessi drottning sem
er í Emilio Pucci frá
toppi til táar?
Með allt á hreinu
Manneskja sem hefur
kjark og þor til að klæð-
ast svona þarf ekki að
óttast neitt í lífinu. Fötin eru
úr haustlínu Emilio Pucci.
Lestu
bækur
Höfundur
Berlínaraspanna er komin með
splunkunýja bók sem heitir Dóttirin.
Lestu hana og þú gleymir því um
stund að hér geisi heimsfaraldur.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Unaður Húvörurnar frá Skin
Regimen kalla fram mikinn ljóma.
Hér er til dæmis andlitshreinsir
sem gott er að nota bæði kvölds og
morgna. Á meðan þú berð hann á
þig og lyktar af honum gleymir þú
stund og stað og þú gleymir því
líka hvað veirulífið er leiðinlegt.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
VERTU NÁTTÚRULEGUR. VERTU ÞÚ SJÁLFUR.
LÁTTU KRAFTA CADE VERNDA HÚÐ ÞÍNA
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is