Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 35

Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 ✝ SvanhildurJónsdóttir fæddist í Sand- gerði 8. nóvember 1942. Hún lést í Brákarhlíð 4. ágúst 2020. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Magnúsdóttir, f. 25.4. 1908, d. 3.2.2000, og Jón Valdimar Jóhanns- son, f. 5.3. 1906, d. 26.5. 1979. Svanhildur var næstyngst fimm systra sem eru: Anna Magnea, f. 18.11. 1929, gift Hauki Guðmundssyni, Ásdís, f. 15.2. 1932, gift Jóni Benedikt Sigurðssyni sem er látinn, Sig- rún Jóhanna, f. 21.1. 1940, d. 4.10. 2019, eftirlifandi eig- inmaður hennnar er Hafsteinn Ársælsson og Ragnheiður El- sig til starfa á skrifstofu hjá Loftorku í Reykjavík. Ann- aðist hún bókhald og var gjaldkeri frá 1964 til 2012 eða þar til hún var sjötug. Svan- hildur var nákvæm í lífi og starfi og mjög skipulögð. Hún var félagslynd og stundaði gömlu dansana meðan hún gat. Einnig ferðaðist hún mik- ið með Ferðafélagi Íslands innanlands.Hún var barngóð og fengu systrabörn hennar og afkomendur þeirra að njóta þess og hændust þau að henni. Hún var styrktarfélagi í mörg- um líknarfélögum. Árið 2018 greindist hún með alzheimer. Í mars 2020 fékk hún inni í Brákarhlíð, hjúkrunar- og dvalarheimili, í Borgarnesi þar sem hún lést. Hún verður jarðsungin frá Lindakirkju í Kópavogi í dag, 13. ágúst, klukkan 15. Vegna aðstæðna í samfélaginu er athöfnin að- eins fyrir nánustu vini og að- standendur, en streymt verður frá athöfninni á slóðinni http:facebook.com/groups/ svanhildur. ín, f. 13.8. 1947, gift Ingimundi Ingimundarsyni. Svanhildur ólst upp í Sandgerði og stundaði nám í grunnskólanum þar og í Héraðs- skólanum á Núpi við Dýrafjörð í tvo vetur og lauk það- an gagnfræða- prófi. Einnig var hún einn vetur í Húsmæðra- skólanum í Reykjavík. Hún fór snemma að vinna hjá fisk- vinnslufyrirtækjum í Sand- gerði. Fyrst í fiskvinnslu en síðan á skrifstofu. Veturinn 1963-1964 vann hún í sendi- ráði Íslands í London ásamt vinkonu sinni Guðrúnu Finns- dóttur frá Húsavík. Fljótlega eftir að hún kom heim réð hún Elsku Svana frænka. Það er skrítið að ég eigi ekki eftir að hitta þig aftur. Þú ert búin að vera svo mikilvæg í lífi mínu. Þú passaðir mig oft þegar ég var lítill. Við fórum oft í bíó eða að gefa öndunum og í Húsdýragarðinn. Þú komst til mín í leikskólann þegar þar voru ömmu- og afa- dagar. Við fórum stundum í keilu og þú bauðst stóru bræðrum mínum einu sinni með okkur. Ég veit að Teddu og pabba þótti mjög vænt um það. Þú gerðir heimsins besta grjónagraut. Þú keyptir alltaf handa mér snúð þegar þú komst heim til okkar og við gátum borðað endalausan ís saman. Við fórum mjög oft í ís- búðina í Laugalæk og fengum okkur ís með súkkulaðisósu og smá nammi. Þú sagðir að þetta væri besta ísbúðin. Ég vona að þér líði vel núna. Ég sakna þín. Þinn Ragnar Ingi. Fyrsta minning mín um Svanhildi Jónsdóttur, sem allt- af var kölluð Svana, er frá árinu 1967 þegar hún hóf vinnu á skrifstofu verktakafyr- irtækisins Loftorku. Ég var sautján ára og hún átta árum eldri. Ég vann í snatti fyrir reksturinn en hún var með bókhaldið og reikningagerð. Hvoruga okkar gat grunað að hún myndi sinna þessu starfi ásamt skrifstofustjórastöðu síðar í rúm fjörutíu ár. Það er með því lengsta sem starfs- maður hefur unnið hjá fyrir- tækinu en góður hópur hefur unnið þar í marga áratugi. Svana var brosmild og glaðleg. Hún hafði mjög gaman af ferðalögum og ferðaðist mikið innanlands, stundum gangandi þvers og kruss um landið, oft með Ferðafélaginu. Síðar fór hún gjarnan líka til útlanda. Svana var nákvæm og passa- söm í störfum sínum og menn komust ekki upp með neitt slugs með pappíra. Hún vildi ógjarnan breyta til eða skipta um aðferðir í vinnu. Hún var mjög treg til að fara að vinna í tölvu og notaði tölvuna síðan á mjög takmarkaðan máta. Í þeim skilningi var hún ákaf- lega íhaldssöm. Svönu var meinilla við skuldir og lántök- ur. Ég minnist þess að pabbi, Sigurður Sigurðsson, sem var forstjóri og eigandi fyrirtækis- ins, talaði stundum um það þegar til stóð að kaupa nýjan vörubíl eða stórar vinnuvélar að nefna það ekki strax við Svönu því að hún kæmist í uppnám. Hann sagði að það þyrfti að undirbúa hana vel undir fréttina. Foreldrar mínir voru eigendur fyrirtækisins eins og áður sagði og höfum við öll fimm systkinin unnið um skemmri og lengri tíma hjá Loftorku (lengst Ari og Andr- és sem nú hafa tekið við fyrir- tækinu). Ólafur eiginmaður minn vann þar einnig í 25 ár á síðustu öld. Flest barnabörnin hafa einnig unnið hjá fyrir- tækinu (einnig barnabarna- börn). Við höfum því öll átt góð samskipti við Svönu. Sam- starf hennar og pabba var alla tíð mjög gott. Svana hélt góðu sambandi við fyrri samstarfs- félaga eftir starfslok og mætti á flesta viðburði á vegum fyrirtækisins og samstarfs- fólks. Ása samstarfskona Svönu til áratuga hélt traustri vináttu við hana og veitti henni ómetanlegan stuðning. Við fjölskyldan höfum fylgst með hrakandi heilsufari Svönu síðustu ár. Það er sorglegt hversu fárra ára hún fékk að njóta við fulla heilsu eftir að hún lét af störfum. Síðast hitti ég Svönu við jarðarför Óla míns í fyrrasumar. Hún leit vel út eins og jafnan en átti í nokkrum vandræðum með að átta sig á fólkinu. Ég hugsa til Svönu með hlýju og þakklæti og votta ættingjum hennar og vinum samúð mína. Kristín Sæunnar og Sigurðardóttir. Hvað er það sem kemur upp í hugann þegar einn af horn- steinum fyrirtækis Loftorku- fjölskyldunnar, Svanhildur Jónsdóttir, kveður okkur allt of snemma? Þegar hún kom til starfa hjá Loftorku var fyrirtækið ungt og hafði engan veginn slitið barnsskónum. Svana kom því til starfa á mjög mikilvægu augnabliki í tilvist fyrirtækis- ins og setti svip sinn á upp- byggingu þess. Hún vann hjá Loftorku mestalla starfsævi sína og ekki síður er rétt að benda á að starfsævi hennar spannar drjúgan hluta starfs- tíma fyrirtækisins, uppbygg- ingartíma og þann tíma þegar það skaut rótum í íslensku at- vinnulífi. Ekki síst er þess að minnast að hún var samstarfs- manneskja okkar í marga ára- tugi og traustur hluti í tilveru okkar þessi 48 ár sem hún vann hjá Loftorku. Það var góður og viðburðaríkur tími í lífi okkar allra og skipti okkur miklu máli. Við sem eldri erum í hett- unni hjá fyrirtækinu nú höfum oft gaman af því að segja frá atburðum fyrstu áranna okkar og rifja upp minningar um fyrirtækið sem Svana átti svo sannarlega sinn þátt í að móta. Það sem við minnumst helst af mörgu góðu í hennar fari er elskulegt viðmót í garð allra sem áttu leið um skrifstofu Loftorku eða hringdu en þar gat oft verið erilsamt og verk- efnin margbreytileg. Hennar starf hefur ekki alltaf verið auðvelt og allir vita að skiptast á skin og skúrir í lífi fyrir- tækja. Hún leysti öll mál með okkur á sinn einstaka hátt. Hennar verður sárt saknað. Orð höfundar ljóðsins hér að neðan eiga sérlega vel við Svönu og því við hæfi að kveðja hana með þessum fallegu orð- um eftir Katrínu Ruth, sem lýsa eiginleikum hennar svo vel. Sérstök, dugleg, traust og trú Vitur hjálpsöm … það ert þú Hlý og bjartsýn, til í spjall Þú getur stoppað hið mesta fall. Ari Sigurðsson og Anna Björnsson. Í dag kveð ég góðan vin og samstarfsfélaga, hana Svönu sem hefur verið í mínu lífi frá því ég var 3ja ára, fyrst er Svana hóf störf hjá Loftorku árið 1964, fyrirtæki í eigu fjöl- skyldu minnar en hún vann þar í 48 ár. Þegar ég var barn var ég oft í vinnunni með pabba og hafði Svana gott lag á mér sem var nú örugglega ekki alltaf róleg- asta barnið og seinna mínum börnum sem fengu að fara með mér í vinnuna. Hún treysti manni meira að segja fyrir sendiferðum um bæinn með peninga í tösku til að borga reikninga. Það var mikil gæfa fyrir Loftorku að fá Svönu til starfa sem skrifstofustjóra og gjald- kera. Hún var trygg, útsjónarsöm, nákvæm og var í góðu sam- bandi við viðskiptavini. Í þess- um rekstri skiptast á skin og skúrir og var hún einstök þeg- ar á móti blés og þá nutu mannkostir hennar sín vel. Það var einstakt teymi sem vann saman á skrifstofunni, Svana, pabbi, Sævar og Ása ásamt Stefáni endurskoðanda og var þar oft glatt á hjalla. Svana var glæsileg kona sem tekið var eftir og var dugleg að rækta líkama og sál og var á undan sinni samtíð með lík- amsrækt, skíða- og fjallgöng- um. Svana studdi vel við þá sem minna máttu sín og lét alltaf til sín taka hvort sem var í orðum eða athöfnum og lét alltaf skerf af sínum launum renna til líknarfélaga. Hún var alltaf glaðleg og fljót til svara og mjög orð- heppin, hún var þó alls ekki skaplaus og ef henni mislíkaði eitthvað þá lét hún vita af því og gátu þá tekið við dagar sem ekki var margt sagt. Fljótlega eftir að hún lét af störfum áttaði hún sig á að Alzheimer væri farinn að gera vart við sig hjá henni og var það eftirbreytnivert hvernig hún ræddi það opinskátt. Hún var alltaf ræktarsöm við okkur vinnufélagana og kom hér oft eftir að hún lét af störfum. Með þakklæti og virðingu kveðjum við góðan vin og sam- starfsfélaga. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) F.h. samstarfsfélaga hjá Loftorku Reykjavík, Andrés Sigurðsson. Svanhildur Jónsdóttir Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.isSálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SIGÞRÚÐUR MARGRÉT ÞÓRÐARDÓTTIR, fyrrum bóndi í Hvammi, Norðurárdal, er látin. Í ljósi aðstæðna verður tímasetning og fyrirkomulag útfarar auglýst síðar. Sverrir Guðmundsson Hrafnhildur Sverrisdóttir Axel Friðgeirsson Þórður Smári Sverrisson Hanna Kristín Bjarnadóttir Sverrir Már Sverrisson Dagur Sverrir, Margrét María og Freyja Magnea Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR HJARTARSON bóndi, Staðarbakka, Helgafellssveit, lést á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi laugardaginn 1. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Margrét Rósa Kjartansdóttir Ólafur Sigurðsson Ásta Sigurðardóttir Guðjón Vilhjálmsson Hjaltalín Hjörtur Sigurðsson Eygló Kristjánsdóttir Guðlaug Sigurðardóttir Jóhannes Eyberg Ragnarsson Sveinbjörg H. Sigurðardóttir Klemens G. Sigurðsson Halldóra Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og dóttir, GUÐBJÖRG KRISTÍN LUDVIGSDÓTTIR, Langholtsvegi 44, Reykjavík, lést á líknardeildinni í Kópavogi 7. ágúst. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu fer útförin fram með nánustu ættingjum. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Göngum saman. Stefán S. Sigurðsson Skarphéðinn Davíð Stefánsson Sigurbjörg Rannveig Stefánsdóttir Dagur Stefánsson Katla Borg Stefánsdóttir Jóna Borg Jónsdóttir Ludvig Guðmundsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SVANHVÍT KJARTANSDÓTTIR, Lambhaga 20, Selfossi, lést á heimili sínu miðvikudaginn 12. ágúst. Þráinn Guðmundsson Sigrún Eggertsdóttir Ólafur Gunnarsson Hildur Eggertsdóttir Huldís Franksdóttir Hjalti Eggertsson Sigríður M. Helgadóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GERÐUR STEFANÍA ELIMARSDÓTTIR frá Hólmum í Austur-Landeyjum, Stóragerði 7, Hvolsvelli, lést laugardaginn 8. ágúst. Útför hennar fer fram frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn 15. ágúst og hefst klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana geta aðeins allra nánustu aðstandendur verið í kirkjunni, en athöfninni verður útvarpað fyrir þá sem verða í bílum á staðnum. Kristján Ágústsson Ágúst Kristjánsson Gunnhildur Edda Kristjánsd. Hrafnhildur Rósa Kristjánsd. Fannar Jónasson Haukur Guðni Kristjánsson Guðmunda Þorsteinsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.