Morgunblaðið - 13.08.2020, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
✝ SvanhildurJónsdóttir
fæddist í Sand-
gerði 8. nóvember
1942. Hún lést í
Brákarhlíð 4.
ágúst 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Guðrún
Magnúsdóttir, f.
25.4. 1908, d.
3.2.2000, og Jón
Valdimar Jóhanns-
son, f. 5.3. 1906, d. 26.5. 1979.
Svanhildur var næstyngst
fimm systra sem eru: Anna
Magnea, f. 18.11. 1929, gift
Hauki Guðmundssyni, Ásdís, f.
15.2. 1932, gift Jóni Benedikt
Sigurðssyni sem er látinn, Sig-
rún Jóhanna, f. 21.1. 1940, d.
4.10. 2019, eftirlifandi eig-
inmaður hennnar er Hafsteinn
Ársælsson og Ragnheiður El-
sig til starfa á skrifstofu hjá
Loftorku í Reykjavík. Ann-
aðist hún bókhald og var
gjaldkeri frá 1964 til 2012 eða
þar til hún var sjötug. Svan-
hildur var nákvæm í lífi og
starfi og mjög skipulögð. Hún
var félagslynd og stundaði
gömlu dansana meðan hún
gat. Einnig ferðaðist hún mik-
ið með Ferðafélagi Íslands
innanlands.Hún var barngóð
og fengu systrabörn hennar
og afkomendur þeirra að njóta
þess og hændust þau að henni.
Hún var styrktarfélagi í mörg-
um líknarfélögum. Árið 2018
greindist hún með alzheimer.
Í mars 2020 fékk hún inni í
Brákarhlíð, hjúkrunar- og
dvalarheimili, í Borgarnesi
þar sem hún lést. Hún verður
jarðsungin frá Lindakirkju í
Kópavogi í dag, 13. ágúst,
klukkan 15. Vegna aðstæðna í
samfélaginu er athöfnin að-
eins fyrir nánustu vini og að-
standendur, en streymt verður
frá athöfninni á slóðinni
http:facebook.com/groups/
svanhildur.
ín, f. 13.8. 1947,
gift Ingimundi
Ingimundarsyni.
Svanhildur ólst
upp í Sandgerði
og stundaði nám í
grunnskólanum
þar og í Héraðs-
skólanum á Núpi
við Dýrafjörð í tvo
vetur og lauk það-
an gagnfræða-
prófi. Einnig var
hún einn vetur í Húsmæðra-
skólanum í Reykjavík. Hún fór
snemma að vinna hjá fisk-
vinnslufyrirtækjum í Sand-
gerði. Fyrst í fiskvinnslu en
síðan á skrifstofu. Veturinn
1963-1964 vann hún í sendi-
ráði Íslands í London ásamt
vinkonu sinni Guðrúnu Finns-
dóttur frá Húsavík. Fljótlega
eftir að hún kom heim réð hún
Elsku Svana frænka.
Það er skrítið að ég eigi
ekki eftir að hitta þig aftur. Þú
ert búin að vera svo mikilvæg í
lífi mínu. Þú passaðir mig oft
þegar ég var lítill. Við fórum
oft í bíó eða að gefa öndunum
og í Húsdýragarðinn. Þú
komst til mín í leikskólann
þegar þar voru ömmu- og afa-
dagar. Við fórum stundum í
keilu og þú bauðst stóru
bræðrum mínum einu sinni
með okkur. Ég veit að Teddu
og pabba þótti mjög vænt um
það. Þú gerðir heimsins besta
grjónagraut. Þú keyptir alltaf
handa mér snúð þegar þú
komst heim til okkar og við
gátum borðað endalausan ís
saman. Við fórum mjög oft í ís-
búðina í Laugalæk og fengum
okkur ís með súkkulaðisósu og
smá nammi. Þú sagðir að þetta
væri besta ísbúðin.
Ég vona að þér líði vel núna.
Ég sakna þín.
Þinn
Ragnar Ingi.
Fyrsta minning mín um
Svanhildi Jónsdóttur, sem allt-
af var kölluð Svana, er frá
árinu 1967 þegar hún hóf
vinnu á skrifstofu verktakafyr-
irtækisins Loftorku. Ég var
sautján ára og hún átta árum
eldri. Ég vann í snatti fyrir
reksturinn en hún var með
bókhaldið og reikningagerð.
Hvoruga okkar gat grunað að
hún myndi sinna þessu starfi
ásamt skrifstofustjórastöðu
síðar í rúm fjörutíu ár. Það er
með því lengsta sem starfs-
maður hefur unnið hjá fyrir-
tækinu en góður hópur hefur
unnið þar í marga áratugi.
Svana var brosmild og glaðleg.
Hún hafði mjög gaman af
ferðalögum og ferðaðist mikið
innanlands, stundum gangandi
þvers og kruss um landið, oft
með Ferðafélaginu. Síðar fór
hún gjarnan líka til útlanda.
Svana var nákvæm og passa-
söm í störfum sínum og menn
komust ekki upp með neitt
slugs með pappíra. Hún vildi
ógjarnan breyta til eða skipta
um aðferðir í vinnu. Hún var
mjög treg til að fara að vinna í
tölvu og notaði tölvuna síðan á
mjög takmarkaðan máta. Í
þeim skilningi var hún ákaf-
lega íhaldssöm. Svönu var
meinilla við skuldir og lántök-
ur. Ég minnist þess að pabbi,
Sigurður Sigurðsson, sem var
forstjóri og eigandi fyrirtækis-
ins, talaði stundum um það
þegar til stóð að kaupa nýjan
vörubíl eða stórar vinnuvélar
að nefna það ekki strax við
Svönu því að hún kæmist í
uppnám. Hann sagði að það
þyrfti að undirbúa hana vel
undir fréttina. Foreldrar mínir
voru eigendur fyrirtækisins
eins og áður sagði og höfum
við öll fimm systkinin unnið
um skemmri og lengri tíma hjá
Loftorku (lengst Ari og Andr-
és sem nú hafa tekið við fyrir-
tækinu). Ólafur eiginmaður
minn vann þar einnig í 25 ár á
síðustu öld. Flest barnabörnin
hafa einnig unnið hjá fyrir-
tækinu (einnig barnabarna-
börn). Við höfum því öll átt
góð samskipti við Svönu. Sam-
starf hennar og pabba var alla
tíð mjög gott. Svana hélt góðu
sambandi við fyrri samstarfs-
félaga eftir starfslok og mætti
á flesta viðburði á vegum
fyrirtækisins og samstarfs-
fólks. Ása samstarfskona
Svönu til áratuga hélt traustri
vináttu við hana og veitti henni
ómetanlegan stuðning.
Við fjölskyldan höfum fylgst
með hrakandi heilsufari Svönu
síðustu ár. Það er sorglegt
hversu fárra ára hún fékk að
njóta við fulla heilsu eftir að
hún lét af störfum. Síðast hitti
ég Svönu við jarðarför Óla
míns í fyrrasumar. Hún leit vel
út eins og jafnan en átti í
nokkrum vandræðum með að
átta sig á fólkinu. Ég hugsa til
Svönu með hlýju og þakklæti
og votta ættingjum hennar og
vinum samúð mína.
Kristín Sæunnar og
Sigurðardóttir.
Hvað er það sem kemur upp
í hugann þegar einn af horn-
steinum fyrirtækis Loftorku-
fjölskyldunnar, Svanhildur
Jónsdóttir, kveður okkur allt
of snemma?
Þegar hún kom til starfa hjá
Loftorku var fyrirtækið ungt
og hafði engan veginn slitið
barnsskónum. Svana kom því
til starfa á mjög mikilvægu
augnabliki í tilvist fyrirtækis-
ins og setti svip sinn á upp-
byggingu þess. Hún vann hjá
Loftorku mestalla starfsævi
sína og ekki síður er rétt að
benda á að starfsævi hennar
spannar drjúgan hluta starfs-
tíma fyrirtækisins, uppbygg-
ingartíma og þann tíma þegar
það skaut rótum í íslensku at-
vinnulífi. Ekki síst er þess að
minnast að hún var samstarfs-
manneskja okkar í marga ára-
tugi og traustur hluti í tilveru
okkar þessi 48 ár sem hún vann
hjá Loftorku. Það var góður og
viðburðaríkur tími í lífi okkar
allra og skipti okkur miklu
máli. Við sem eldri erum í hett-
unni hjá fyrirtækinu nú höfum
oft gaman af því að segja frá
atburðum fyrstu áranna okkar
og rifja upp minningar um
fyrirtækið sem Svana átti svo
sannarlega sinn þátt í að móta.
Það sem við minnumst helst af
mörgu góðu í hennar fari er
elskulegt viðmót í garð allra
sem áttu leið um skrifstofu
Loftorku eða hringdu en þar
gat oft verið erilsamt og verk-
efnin margbreytileg. Hennar
starf hefur ekki alltaf verið
auðvelt og allir vita að skiptast
á skin og skúrir í lífi fyrir-
tækja. Hún leysti öll mál með
okkur á sinn einstaka hátt.
Hennar verður sárt saknað.
Orð höfundar ljóðsins hér að
neðan eiga sérlega vel við
Svönu og því við hæfi að kveðja
hana með þessum fallegu orð-
um eftir Katrínu Ruth, sem
lýsa eiginleikum hennar svo
vel.
Sérstök, dugleg, traust og trú
Vitur hjálpsöm … það ert þú
Hlý og bjartsýn, til í spjall
Þú getur stoppað hið mesta fall.
Ari Sigurðsson og
Anna Björnsson.
Í dag kveð ég góðan vin og
samstarfsfélaga, hana Svönu
sem hefur verið í mínu lífi frá
því ég var 3ja ára, fyrst er
Svana hóf störf hjá Loftorku
árið 1964, fyrirtæki í eigu fjöl-
skyldu minnar en hún vann
þar í 48 ár.
Þegar ég var barn var ég oft
í vinnunni með pabba og hafði
Svana gott lag á mér sem var
nú örugglega ekki alltaf róleg-
asta barnið og seinna mínum
börnum sem fengu að fara með
mér í vinnuna. Hún treysti
manni meira að segja fyrir
sendiferðum um bæinn með
peninga í tösku til að borga
reikninga.
Það var mikil gæfa fyrir
Loftorku að fá Svönu til starfa
sem skrifstofustjóra og gjald-
kera.
Hún var trygg, útsjónarsöm,
nákvæm og var í góðu sam-
bandi við viðskiptavini. Í þess-
um rekstri skiptast á skin og
skúrir og var hún einstök þeg-
ar á móti blés og þá nutu
mannkostir hennar sín vel. Það
var einstakt teymi sem vann
saman á skrifstofunni, Svana,
pabbi, Sævar og Ása ásamt
Stefáni endurskoðanda og var
þar oft glatt á hjalla. Svana
var glæsileg kona sem tekið
var eftir og var dugleg að
rækta líkama og sál og var á
undan sinni samtíð með lík-
amsrækt, skíða- og fjallgöng-
um.
Svana studdi vel við þá sem
minna máttu sín og lét alltaf til
sín taka hvort sem var í orðum
eða athöfnum og lét alltaf
skerf af sínum launum renna
til líknarfélaga.
Hún var alltaf glaðleg og
fljót til svara og mjög orð-
heppin, hún var þó alls ekki
skaplaus og ef henni mislíkaði
eitthvað þá lét hún vita af því
og gátu þá tekið við dagar sem
ekki var margt sagt.
Fljótlega eftir að hún lét af
störfum áttaði hún sig á að
Alzheimer væri farinn að gera
vart við sig hjá henni og var
það eftirbreytnivert hvernig
hún ræddi það opinskátt.
Hún var alltaf ræktarsöm
við okkur vinnufélagana og
kom hér oft eftir að hún lét af
störfum.
Með þakklæti og virðingu
kveðjum við góðan vin og sam-
starfsfélaga.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
F.h. samstarfsfélaga hjá
Loftorku Reykjavík,
Andrés
Sigurðsson.
Svanhildur
Jónsdóttir
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.isSálm. 16.11
biblian.is
Kunnan gerðir þú
mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir
augliti þínu, yndi í
hægri hendi þinni
að eilífu.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
SIGÞRÚÐUR MARGRÉT
ÞÓRÐARDÓTTIR,
fyrrum bóndi
í Hvammi, Norðurárdal,
er látin.
Í ljósi aðstæðna verður tímasetning og fyrirkomulag útfarar
auglýst síðar.
Sverrir Guðmundsson
Hrafnhildur Sverrisdóttir Axel Friðgeirsson
Þórður Smári Sverrisson Hanna Kristín Bjarnadóttir
Sverrir Már Sverrisson
Dagur Sverrir, Margrét María og Freyja Magnea
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR HJARTARSON
bóndi,
Staðarbakka, Helgafellssveit,
lést á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi
laugardaginn 1. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Margrét Rósa Kjartansdóttir
Ólafur Sigurðsson
Ásta Sigurðardóttir Guðjón Vilhjálmsson Hjaltalín
Hjörtur Sigurðsson Eygló Kristjánsdóttir
Guðlaug Sigurðardóttir Jóhannes Eyberg Ragnarsson
Sveinbjörg H. Sigurðardóttir
Klemens G. Sigurðsson Halldóra Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar
og dóttir,
GUÐBJÖRG KRISTÍN LUDVIGSDÓTTIR,
Langholtsvegi 44,
Reykjavík,
lést á líknardeildinni í Kópavogi 7. ágúst.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu fer útförin
fram með nánustu ættingjum.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Göngum saman.
Stefán S. Sigurðsson
Skarphéðinn Davíð Stefánsson
Sigurbjörg Rannveig Stefánsdóttir
Dagur Stefánsson
Katla Borg Stefánsdóttir
Jóna Borg Jónsdóttir Ludvig Guðmundsson
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
SVANHVÍT KJARTANSDÓTTIR,
Lambhaga 20,
Selfossi,
lést á heimili sínu miðvikudaginn
12. ágúst.
Þráinn Guðmundsson
Sigrún Eggertsdóttir Ólafur Gunnarsson
Hildur Eggertsdóttir Huldís Franksdóttir
Hjalti Eggertsson Sigríður M. Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GERÐUR STEFANÍA ELIMARSDÓTTIR
frá Hólmum í Austur-Landeyjum,
Stóragerði 7, Hvolsvelli,
lést laugardaginn 8. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn
15. ágúst og hefst klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana
geta aðeins allra nánustu aðstandendur verið í kirkjunni, en
athöfninni verður útvarpað fyrir þá sem verða í bílum á staðnum.
Kristján Ágústsson
Ágúst Kristjánsson Gunnhildur Edda Kristjánsd.
Hrafnhildur Rósa Kristjánsd. Fannar Jónasson
Haukur Guðni Kristjánsson Guðmunda Þorsteinsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur