Morgunblaðið - 13.08.2020, Side 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
✝ Einar Frið-riksson fædd-
ist í Reykjavík 4.
nóvember 1937.
Hann lést á Land-
spítalanum 21. júlí
2020 eftir skamma
legu.
Foreldrar voru
þau Friðrik Ólafur
Pálsson bifreiða-
stjóri í Reykjavík,
f. 19.7. 1903, d.
14.2. 1990, og Petrína Regína
Rist Einarsdóttir Möller, hús-
móðir, f. 28.11. 1901, d. 19.9.
1954.
Systkini Einars voru Páll, f.
16.5. 1930, Kristján, f. 29.7.
1935, d. 11.9. 2010, Ólafur Þór,
f. 11.9. 1940.
Samfeðra voru þau Bjarndís,
f. 18.12. 1927, d.
4.5. 2009, og Jón,
f. 13.11. 1948.
Fyrstu árin bjó
fjölskyldan á
Grettisgötunni en
flutti svo í Höfða-
borgina. Þar ólst
Einar upp frá fjög-
urra ára aldri og
bjó þar fram yfir
tvítugt.
Einar var ógift-
ur og barnlaus og bjó alltaf í
Reykjavík. Hann starfaði sem
húsasmiður alla sína tíð, lengst
af hjá Páli bróður sínum. Síð-
ustu ár bjó hann í Krummahól-
um 6 þar sem hann hélt heimili
fyrir sig og Óla bróður sinn.
Útför hans fór fram þann 7.
ágúst 2020.
Liðin er hátt í hálf öld frá
fyrstu kynnum okkar Einars.
Hann var eftirlætisfrændi
kærustunnar minnar. Næstu
ár varð ég vinnufélagi hans í
sumarvinnu minni. Kynnin
urðu þó ekki mikil fyrr en
hann hóf störf í Vestmanna-
eyjum eftir gos. Þá varð það
venja okkar að hann kom til
okkar í mat á fimmtudags-
kvöldi aðra hverja viku þegar
hann átti fríhelgi og svo tóku
við spil fram eftir kvöldi.
Einsi var eftirtektarverður
maður. Aldrei skipti hann
skapi utan einu sinni í minni
viðveru. Þá var upp á hann
borið að hafa ekki kosið sinn
flokk. En mér er sagt að hann
hafi á stundum sagt hug sinn
án hiks þegar við átti og ekk-
ert dregið undan. Ekkert fór á
milli mála þegar rætt var við
Einsa um málefni líðandi
stundar að hann fylgdist gjörla
með. Þjóðmál voru líklegast
aðalhugðarefni hans. Afstaða
hans til þjóðmála endurspegl-
aðist í gjörðum hans. Hann
gerði alls engar kröfur til
þjóðfélagsins. Réttlætiskennd
hans var ekki þeirrar gerðar
að gera kröfur til annarra.
Hann var öfundarlaus maður
og gladdist yfir velgengni ann-
arra.
Efnisleg velmegun átti ekki
fyrir honum að liggja. Þar kom
ekki síst til að hann var bón-
góður langt úr hófi fram sem
varð efni tilheyrandi útgjalda.
Þegar slík greiðasemi lenti á
Einsa af fullum þunga herti
okkar maður beltið og vann
skuldirnar af sér. Aldrei, aldr-
ei nokkurn tíma hefði hann
gert kröfu til þjóðfélagsins um
að ríkið axlaði ábyrgð gerða
hans. Að kvarta átti Einsi
ólært. Og satt best að segja
hef ég ekki fyrirhitt neyslu-
grennri mann nema ef vera
skyldi við afmæli og skírnir.
Slíkar samkomur voru fögn-
uðir Einsa.
Það kemur kannski ekki á
óvart að hugsjónir Sjálfstæð-
isflokksins áttum við sameig-
inlegar þannig að aldrei bar á
milli. Að stétt skyldi með stétt
standa, að standa svikalausan
vörð um auðlindir Íslands
gegn ásælni Evrópusambands-
ins, rétt vinnandi fólks og að
enginn fullfrískur maður hefði
framfærslurétt af meðborgur-
um sínum. Einsi þurfti undir
það síðasta að upplifa verri
tíma að þessu leyti.
Það varð hlutskipti Einsa
síðustu tíu æviárin að sjá um
sjúkan bróður sinn. Víkja
aldrei frá honum meir en dag.
Hlutskipti aldraðra Íslendinga
sem á skömmum tíma rifu
landið upp úr fátækt er ekki
vinsælt viðfangsefni þótt verð-
ugt væri.
Einsi var grannvaxinn og
hraustur alla ævi. Hann fór
enda ferða sinna mest fót-
gangandi um allan bæ. Fyrir
stuttu fékk hann heilablóðfall
og lá skamma legu á spítala
eftir það. Það voru hans fyrstu
og síðustu kynni af heilbrigð-
iskerfinu. Þar hlaut hann góða
umönnun til enda. Guð blessi
minningu Einars Friðriksson-
ar.
Einar S.
Hálfdánarson.
Einar frændi minn var ein-
stakt ljúfmenni. Hann var lít-
illátur, hæglátur, traustur,
ljúfur, nægjusamur, fórnfús,
skarpur, hraustur, þrjóskur,
göngugarpur, pólitískur og
síðast en ekki síst sjálfstæð-
ismaður.
Einar var uppáhaldsfrændi
minn. Það var alltaf tilhlökkun
þegar von var á Einsa frænda
til þess að passa okkur systk-
inin. Hann var einstaklega
barngóður. Hann snerist í
kringum okkur eins og skopp-
arakringla og lét allt eftir okk-
ur.
Ég held að ég hafi líka verið
uppáhaldsfrænka hans. Dekr-
inu við mig voru a.m.k. engin
takmörk sett. Honum fannst
ekkert of gott fyrir mig. Ég
minnist atviks þegar ég var 7
ára gömul. Þá bjó Einsi í kjall-
aranum hjá móðurömmu minni
og afa í Samtúninu ásamt Óla
bróður sínum. Ég var stödd í
Paradís, í heimsókn hjá ömmu
og afa og um leið hjá Einsa
frænda. Þá er bankað upp á í
kjallaranum. Úti standa tveir
vinir Einsa frænda. Þeir höfðu
ákveðið að fara á völlinn sam-
an og voru komnir til að sækja
Einsa. Ég faldi mig á bak við
hurð. Ég gleymi aldrei svari
Einsa: „Ég kemst bara ekki á
leikinn núna, frænka mín er í
heimsókn.“ Mér fannst þetta
auðvitað eðlilegt svar, þá.
Ég gleymi heldur aldrei af-
mælisgjöfinni frá Einsa þegar
ég varð 8 ára. Pierpont-gullúr!
Er nokkuð viss um að ég var
eina 8 ára manneskjan á jarð-
ríki sem átti gullúr.
Mér fannst nauðsynlegt að
vinkonur mínar fengju að
kynnast frænda mínum svo
þær fóru oft og tíðum með mér
í heimsókn. Þá tókum við
gjarnan í spil eftir að kíkt
hafði verið í skúffuna góðu
undir ofninum, en hún var æv-
inlega full af sælgæti sem við
máttum ganga í að vild.
Fljótlega eftir að ég kynnt-
ist manninum mínum var hann
kynntur fyrir uppáhaldsfrænd-
anum. Eftir að við giftum okk-
ur varð hann tíður gestur á
heimili okkar og oftar en ekki
var spilað á spil.
Ég er þakklát fyrir að
ömmubörnin mín fengu aðeins
að kynnast uppáhaldsfrænda
mínum. Ég og örugglega dóttir
mín líka munum segja þeim
frá öðlingnum honum Einsa
frænda okkar. Hann var ein
allra fallegasta sál sem ég hef
kynnst. Blessuð sé minning
þessa allra ljúfasta drengs.
Regína Gréta Pálsdóttir
Einar Friðriksson er látinn
83 ára gamall. Það vekur ef til
vill ekki athygli margra enda
var Einar ekki þeirrar gerðar
sem tekur sér stórt pláss í til-
verunni. Hógværari mann er
tæpast hægt að finna. Óhætt
er þó að ætla að eftir honum
hafi verið tekið í gegnum tíð-
ina þar sem hann gekk langar
vegalengdir um götur borgar-
innar í heilsubótarskyni nán-
ast hvern dag. Þetta gerði
hann í áratugi og setti með því
að sínu leyti svip á bæjarlífið
án þess að hafa hugmynd um
það sjálfur.
Einar var einn fjögurra
bræðra sem ólust upp saman
og voru honum nánir. Hann
var þó bundinn yngsta bróður
sínum Ólafi Þór sterkustum
böndum, enda næstur honum í
aldri, en þeir héldu lengst af
heimili saman. Honum er því
fráfall bróður síns þungt. Ein-
ar var okkur börnum Páls,
elsta bróðurins, bæði vinur og
frændi. Hann fylgdist með og
tók þátt í uppeldi okkar. Sér-
staklega er minnisstæð
„nammiskúffan“ undir eldavél-
inni sem var fyrir okkur
krakkana þegar við komum í
heimsókn en einnig eigum við
dýrmætar minningar um
ferðalög út á land þar sem
Einar var gjarnan með í för.
Þá lét hann sig sjaldan vanta á
tímamótum í lífi okkar eða á
samkomur fjölskyldunnar á
hátíðum. Seinna varð Einar
svo jafnframt vinnufélagi
minn í fyrirtæki okkar feðga
allt þar til starfsævi hans
lauk. Þannig hefur hann verið
óslitinn þráður í lífi okkar frá
því við systkinin munum eftir
okkur.
En nú hefur hann kvatt.
Ekki verða fleiri samræður við
Einar um samfélagsmálin við
borðstofuborðið í Bjargar-
tanganum. Fjölskylduboðin
verða öðruvísi. Þar verður um-
ræðan um pólitík og fótbolta
önnur því þetta voru málefnin
sem gátu komið Einari í þó
nokkurt uppnám og þá lá hann
ekki á skoðunum sínum.
Skrefin verða ekki fleiri um
götur bæjarins, honum bregð-
ur þar ekki lengur fyrir og ef
til vill verða fáir þess varir.
En það er fjarri lagi að þessi
góði maður og vinur gleymist
þeim sem þekktu hann. Hans
verður sannarlega saknað hér
í Bjargó.
Stefán Pálsson,
Kristín Lilliendahl.
Einar Friðriksson
Fallin er frá
yndisleg vinkona
og samstarfs-
félagi, Helga
Valdimarsdóttir flugfreyja.
Helga var gullfalleg og stór-
glæsileg. Hún hafði einstak-
lega ljúfa nærveru og fallegt
bros. Vinnudagar með henni
voru ávallt tilhlökkunarefni.
Af mörgu er að taka þegar
litið er yfir 35 ára samstarf.
Ein ferð er þó sérstaklega
minnisstæð. Í febrúar 2008
flugum við saman til Kaup-
mannahafnar. Rétt fyrir brott-
för frá Kaupmannahöfn kom í
ljós að veðurspáin fyrir Ísland
hafði snarversnað. Tekin var
ákvörðun um að hætta við
brottför, sem mæltist misvel
fyrir meðal farþega, þá kom
það sér vel að hafa reynda yf-
irflugfreyju. Við komumst síð-
an heim hálfum sólarhring
seinna en rétt fyrir lendingu í
Keflavík fengum við tvisvar
eldingu í flugvélina. Það var
þreytt áhöfn sem lagðist til
hvílu þennan morgun en sátt
við dagsverkið. Ég hefði ekki
getað haft betri áhöfn og þá
sérstaklega yfirflugfreyju í
þessari ferð. Helga hrósaði síð-
an áhöfninni í bréfi til yfir-
manna sem var henni líkt.
Helga vann sem flugfreyja
hjá Icelandair í rúm 47 ár og
sýndi ávallt mikla fagmennsku
í starfi. Fyrir ári fór Helga í
sína síðustu ferð sem flug-
freyja. Flugferðin var til
Montreal þar sem dóttir Helgu
bjó ásamt fjölskyldu. Mér var
það heiður að vera boðið að
Helga
Valdimarsdóttir
✝ Helga Valdi-marsdóttir
fæddist 4. mars
1952. Hún lést 7.
mars 2020. Minn-
ingarathöfn henn-
ar fór fram 29.
júní 2020.
vera flugstjóri í
þessari ferð.
Áhöfnin lagði sig
fram við að dekra
við Helgu á allan
hátt og sýna
henni þannig
þakklæti fyrir
yndislegt sam-
starf í gegnum ár-
in. Ýmislegt var
brallað og sam-
verunnar notið í
botn þessa sumardaga í Mont-
real.
Í byrjun árs fór Helga að
kenna sér meins í baki. Stuttu
síðar kom í ljós krabbamein.
Þrátt fyrir alvarleg veikindi
var ávallt stutt í hlýja brosið
hennar Helgu.
Nú er Helga farin í sína
hinstu ferð, að þessu sinni inn í
sólarlagið eilífa. Eftir standa
minningar um einstaklega ljúfa
og brosmilda konu með ynd-
islega nærveru.
Fjölskyldu Helgu votta ég
innilega samúð. Blessuð sé
minning Helgu.
Sigríður Einarsdóttir.
✝ SvanfríðurGísladóttir
fæddist á Arn-
arnesi í Dýrafirði
4. júlí 1923. Hún
lést á hjartadeild
Landspítalans
sunnudaginn 5.
júlí 2020. For-
eldrar hennar
voru Gísli Þór-
laugur Gilsson, út-
vegsbóndi á Arn-
arnesi, f. 13. febrúar 1884, d.
29. mars 1962, og kona hans
Sigrún Guðlaugsdóttir, húsfrú
á Arnarnesi, f. á Þröm í Eyja-
firði 4. febrúar 1881, d. 27.
mars 1960.
Systkini Svanfríðar eru El-
ínborg, f. 15. ágúst 1914, d.
2006, gift Einari Þóri Stein-
dórssyni, f. 9. október 1916, d.
19. apríl 1991; Guðrún, f. 6.
febrúar 1916, d. 1. nóvember
2003; Friðdóra, f. 24. sept-
maki Ingjaldur Eiðsson, f.
13.2. 1951. Börn a) Svanfríður,
f. 16.6. 1975, maki Jakob
Tryggvason, f. 20.6. 1972.
Börn: Tryggvi Páll og Sigrún
Inga. b) Páll Ingi, f. 14.8.
1984, maki Berglind Birg-
isdóttir, f. 11.10. 1984. Börn:
Sandra Björk, Birgir Ingi og
Sigrún. 2) Gísli, f. 19.5. 1952,
d. 24.10. 2011 maki Kolbrún
Gísladóttir, f. 9.6. 1952. Börn
a) Arnþrúður Anna, f. 3.3.
1980, maki: Jónas Reynir
Gunnarsson, f. 20.2. 1980.
Börn: Aldís Anna, Gísli Galdur
og Maríanna Hlíf. b) Hafþór, f.
24.12. 1974. 3) Eiríkur Örn, f.
28.10. 1959, maki Arnheiður
Ingimundardóttir, f. 9.3. 1961.
Börn a) Ingi Páll, f. 1.10.
1988. b) Arnheiður, f. 9.8.
1990, maki Lukás Barák, f.
12.2. 1992. c) Haukur Örn, f.
13.4. 1994.
Svanfríður nam píanóleik
við Tónlistarskóla Reykjavík-
ur. Hún hafði mikla unun af
tónlist alla tíð. Svanfríður
vann lengst af við versl-
unarstörf. Útför Svanfríðar
hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
ember 1917, d. 6.
mars 2009; Hösk-
uldur, f. 26. nóv-
ember 1918, d.
1931; Þórlaug, f.
6. nóvember 1924,
d. 5. maí 1925.
Svanfríður gift-
ist 17. júní 1948
Páli Eiríkssyni,
fyrrverandi yfir-
lögregluþjóni í
Reykjavík, frá
Löngumýri á Skeiðum í Árnes-
sýslu, f. 16. júlí 1921, d. 29.
júlí 2011.
Foreldrar hans voru Eirík-
ur Þorsteinsson, bóndi og org-
anisti, f. 6. október 1886 á
Reykjum á Skeiðum, d. 25. júlí
1979, og Ragnheiður Ágústs-
dóttir húsfreyja, f. 9. mars
1889 á Gelti í Grímsneshreppi,
d. 26. febrúar 1967.
Börn Svanfríðar og Páls
eru: 1) Sigrún, f. 21.9. 1948,
Amma Fríða náði þeim
áfanga að teljast elst kvenna í
sinni ætt 97 ára að aldri. Hún
fæddist á menningarheimilinu
Arnarnesi við Dýrafjörð 4. júlí
1923. Hún var næstyngst 6
barna þeirra hjóna Gísla Gils-
sonar og Sigrúnar Guðlaugsdótt-
ur. Amma ólst upp við mikla
tónlist en faðir hennar var org-
anisti og móðir hennar greip oft
í hörpu sem til var á heimilinu.
Amma og systur hennar komust
fjórar til manns en bróðir þeirra
lést á unglingsaldri og yngsta
systirin nokkurra mánaða. Þær
þóttu fagrar Arnarnessysturnar
og buðu af sér mikinn þokka.
Þær voru alltaf fallega klæddar,
vel snyrtar og með eindæmum
skoðanafastar. Amma sagði sjálf
í seinni tíð að hún hafi nú örugg-
lega verið erfitt barn með kenj-
ar og svolítið frek á pabba sinn.
Amma fór suður til Reykjavíkur
í tónlistarnám en mikið var lagt
upp úr menntun á Arnarnes-
heimilinu. Hún nam píanóleik
við Tónlistarskóla Reykjavíkur.
Með skólanum vann hún á gisti-
og matsölustað við Amtmanns-
stíg 2 og þar kynntist hún
mannsefni sínu Páli Eiríkssyni,
fyrrum yfirlögregluþjóni.
Amma var með það sem við
köllum í okkar fjölskyldu vest-
firska þrjósku. Hún sagði hlut-
ina umbúðalaust og án allrar rit-
skoðunar, hún var ákaflega
nýtin og gat gert mikið úr litlu.
Við nöfnurnar vorum sjaldnast
sammála sem er í fínu lagi og ég
lærði snemma að velja umræðu-
efnið hverju sinni svo vel færi.
Amma hafði góðan frásagnar-
hæfileika þegar rifja átti upp
gamla tíma og þá gat hún oft
hlegið dátt. Hins vegar fannst
henni stundum erfitt að tala um
það liðna og oft mátti greina í
orðum hennar að hún vildi að
hún hefði gert sumt öðruvísi. Við
tvær áttum okkar bestu stundir
þegar við töluðum um skáld-
skap, ævisögur og gamla tíma
enda voru þær ófáar bækurnar
sem ég lánaði henni og svo
ræddum við innihald þeirra að
lestri loknum. Pólitík ræddi ég
ekki við ömmu því þar vorum
við ekki sammála. Hún hafði alla
tíð miklar mætur á Ólafi Ragn-
ari sem forseta Íslands enda
vestfirskur eins og hún og allt
sem þaðan kom var gott. Amma
kvaddi södd lífdaga á hjartadeild
Landspítalans á fallegum sunnu-
dagsmorgni þar sem sólin skein
og fuglarnir tístu fyrir utan
gluggann. Aðhlynning starfs-
fólks hjartadeildarinnar var með
eindæmum góð og þökkum við
þá hlýju og nærgætni sem henni
var sýnd. Elsku mamma og Ei-
ríkur Örn, ég votta ykkur samúð
mína.
Bless amma mín og takk fyrir
allt og allt.
Þín
Svanfríður
Ingjaldsdóttir (Fríða).
Svanfríður
Gísladóttir
✝ Jón HalldórBorgarsson
fæddist 9. júlí
1933. Hann lést
22. mars 2020.
Jón Halldór
var jarðsunginn
9. júlí 2020.
Meira: mbl.is/andlat
Minningar á mbl.is
Jón Halldór
Borgarsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar elskaða
GUÐMUNDAR PÁLMARS
ÖGMUNDSSONAR
rafeindavirkja,
Brekkugötu 7, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknarþjónustunnar Heru
og líknardeildarinnar í Kópavogi fyrir nærgætna umönnun,
umhyggju og hlýju.
Þórunn Blöndal
Bryndís Pálmarsdóttir Hannu von Hertzen
Hjördís Pálmarsdóttir Guðlaugur Hjaltason
Halldóra Pálmarsdóttir Jón Júlíus Tómasson
afabörn og langafabörn
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar