Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 41
Við leitum að leiðtoga með skipulags- og stjórnunarhæfni
í starf stöðvarstjóra. Starfið felur í sér stjórnun og rekstur
jarðgufuvirkjana á Mývatnssvæðinu; Kröfluvirkjun,
Þeistareykjavirkjun og Gufustöðinni. Viðkomandi ber
einnig ábyrgð á samskiptum við hagsmunaaðila. Við leitum
að aðila sem býr yfir hæfni til að miðla upplýsingum, sýnir
frumkvæði og er leiðtogi.
Við leitum að leiðtoga í starf forstöðumanns. Um er að
ræða fjölbreytt og spennandi stjórnunarstarf á sviði
endurnýjanlegrar orkuvinnslu. Forstöðumaður ber m.a.
ábyrgð á rekstrar- og viðhaldsmálum, sem og ábyrgð
á öryggis- og umhverfismálum sem tengjast vatnsafli.
Þá ber viðkomandi einnig ábyrgð á samstarfi við
hagsmunaaðila. Starfsfólk deildarinnar annast vatnsafls-
orkuvirki Landsvirkjunar.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Stjórnunarþekking
• Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni
• Reynsla af rekstri og viðhaldsstjórnun
• Reynsla af öryggis-, gæða- og umhverfisstjórnun
• Jarðhitaþekking æskileg
• Frumkvæði, skipulag og sjálfstæð vinnubrögð
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Stjórnunarþekking
• Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni
• Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg
• Frumkvæði, samviskusemi, metnaður og jákvæðni
• Sjálfstæð vinnubrögð
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir
(geirlaug@hagvangur.is) hjá Hagvangi.
Sótt er um störfin á heimasíðu Hagvangs.
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst 2020.
Stöðvarstjóri
á Mývatnssvæði
Forstöðumaður
í rekstri vatnsafls
2019