Morgunblaðið - 13.08.2020, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
KAT I E HOLMES JOSH LUCAS
Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe í aðalhlutverki.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
EIN ALBESTA GRÍN-TEIKNIMYND
SEM KOMIÐ HEFUR!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Harry Potter and the Philosopher’s Stone
Harry Potter and the Chamber’s of Secrets
Harry Potter and the Prisoner of Azkabahn
UPPÁHALDS GALDRASTRÁKUR OKKAR ALLRA
KEMUR AFTUR Í BÍÓ Á FÖSTUDAG!
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Áfram (ísl. tal)
* Tröll 2 (ísl. tal)
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* My Spy
* The Postcard Killings
* The Outpost
* The Matrix
* Mad Max : Fury Road
AF GAGNRÝNI
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hvernig í ósköpunum getaþessir þættir þótt 100%ferskir?! Eða þessi kvik-
mynd?!
Stundum er eins og
gagnrýnendur séu með allt öðruvísi
heila en við hin (að vísu er ég stund-
um gagnrýnandi og hef gagnrýnt
fjölda kvikmynda og hlýt því að
vera í þeim hópi) og rakki niður
kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem
langflestir hrífast af. Nú eða öfugt,
hefji upp til skýjanna eitthvað sem
flestum þykir slakt og jafnvel drep-
leiðinlegt.
Magalending
Ég furða mig stundum á þessu
misræmi, ef svo mætti kalla, nú síð-
ast eftir að hafa horft á japansk-
enska þætti á Netflix, Giri/Haji. Eft-
ir að hafa horft á fjóra þætti af átta
var ég býsna hrifinn. Næstu fjórir
voru hins vegar þannig að líkja
mætti við dýfingameistara sem
lendir á maganum eftir að hafa gert
glæsilegar slaufur á leiðinni niður.
Segir í þáttunum af japönskum
lögreglumanni, Kenzo, sem heldur
til London að leita að yakuza-böðl-
inum bróður sínum, Yuto, sem er
eftirlýstur fyrir morð. Kenzo á að
finna bróður sinn og flytja heim til
Japans þar sem hann á að svara fyr-
ir sakir sínar. Á meðan logar allt í
Tókýó og yakuza-menn kljúfa hver
annan í herðar niður.
Framan af eru þættirnir
forvitnilegir og spennandi en enda
með hreinustu ósköpum, verður að
segjast. Í lokaþættinum er eins og
handritshöfundur hafi misst vitið,
nú eða leikstjórinn, þar sem hann
lætur glæpa- og lögreglumenn og
aðrar persónur þáttanna stíga til-
gerðarlegan dans í miðju lokaatriði.
Í svarthvítu, þar að auki. Aðra eins
stæla hef ég ekki séð í seinni tíð.
Ónákvæmt mat?
Hafi ég mælt með þáttunum
Giri/Haji við einhvern þegar ég var
kominn í miðja seríu tek ég þau
meðmæli aftur. En gagnrýnendur
eru yfir sig hrifnir og þættirnir
Gagnrýnendur frá annarri plánetu?
Tilgerð Úr svarthvítu dansatriði í lokaþætti Giri/Haji sem er með því allra tilgerðarlegasta og kjánalegasta sem
pistilritari hefur séð í leikinni sjónvarpsþáttaröð. Bræðurnir Yoto og Kenzo eru hér við það að stíga dans.
þykja 100% ferskir á Rotten Tom-
atoes, merkilegt nokk. Að vísu hef-
ur reiknilíkan síðunnar verið gagn-
rýnt fyrir ónákvæmni og
grunsamlegt þykir mér að sam-
bærileg dómasíða, Metacritic, gefi
sömu þáttum einkunnina 76 af 100.
Lucy Mangan hjá Guardian er eini
gagnrýnandinn sem telst þar ögn
neikvæður en gefur þáttunum engu
að síður þrjár stjörnur af fimm
mögulegum. Spyr Mangan hvernig
BBC og Netflix, framleiðendum
þáttanna, hafi tekist að gera jafn-
leiðinlega þætti úr svo krassandi
efni, þ.e. mafíumorðum og glæpum í
stórborgunum Tókýó og London.
Jú, með því að fara út og suður með
söguna og bæta við alls konar útúr-
dúrum sem engu máli skipta og
stælum sem enginn hefur áhuga á,
stælum á borð við fyrrnefnt dans-
atriði í svarthvítu sem minnir á
hæfileikalitla amatöra í hæfi-
leikakeppni.
Í ökkla eða eyra
Misræmi á borð við þetta sætir
oft furðu og ég er ekki fyrstur til að
stinga niður penna um það. Eitt af
meistaraverkum Coen-bræða, The
Big Lebowski, er með 71 af 100 á
Metacritic. Að vísu eru flestir mjög
hrifnir en átta gagnrýnendur alls
ekki. Einhverjum þótti myndin til-
gangslaus (!) og dæmin eru mörg
um kvikmyndir sem gagnrýnendur
voru lítt hrifnir af en hafa með ár-
unum öðlast sess sem sígild verk og
sívinsæl. Má þar nefna Psycho, The
Shining, Citizen Kane, 2001: A
Space Oddyssey, Rocky Horror
Picture Show, Blade Runner og
þannig mætti áfram telja. Dæmin
eru mörg.
Eins furðulegt og mér þykir
þetta misræmi nú oft vera þá skil ég
það líka, upp að vissu marki. Sjálfur
hef ég lent í því að lofsyngja kvik-
mynd og séð hana svo nokkrum ár-
um síðar og þótt hún öllu síðri. Ég
hef líka fengið orð í eyra frá vinum,
kunningjum og kollegum sem hafa
engan veginn botnað í því hvernig
mér þótti þessi eða hin kvikmyndin
frábær. Má þar sem dæmi nefna
Black Swan og La La Land. Báðar
voru, að mínu mati, hið besta bíó en
margir voru greinilega á öðru máli.
Svo var það Birdman sem einn vin-
ur minn taldi ómögulega en ég hlóð
stjörnum. Var sá heldur ósáttur við
þá stjörnugjöf og horfði á mig eins
og ég væri frá annarri plánetu. Sem
ég mögulega er.
Hvetur til umræðu
En þegar öllu er á botninn
hvolft er þetta bara jákvætt. Það er
hollt að takast á um listina, meta
kosti hennar og galla. Óumdeild list
er heldur lítið spennandi og varla
hvetjandi til umræðna. Nema þá til
að keppast um hver geti lofsamað
verkið mest eða rakkað það mest
niður. Mozart var snillingur og Bat-
man & Robin er ömurleg bíómynd.
Þarf eitthvað að ræða það frekar?
Vill einhver mótmæla því?
Gagnrýnendur eru bara fólk
með ólíkar skoðanir og ekki má
gleyma því að gagnrýni er alltaf
mat einnar manneskju. Og stundum
gerist hið ótrúlega, að allir gagn-
rýnendur hrífist af því sem manni
þykir sjálfum óttalegt drasl. Eða öf-
ugt. Það krefst líka hugrekkis að
synda á móti straumnum. Hvaða
gagnrýnandi þorir t.d. að skrifa eða
segja að 2001: A Space Oddyssey sé
drepleiðinleg? Eða eins og vinur
minn einn sagði eitt sinn við mig:
Frábær mynd ... en samt eitthvað
svo leiðinleg!
»Mozart var snill-ingur og Batman &
Robin er ömurleg kvik-
mynd. Þarf eitthvað að
ræða það frekar ? Vill
einhver mótmæla því?
Frábær Úr hinni sígildu gamanmynd The Big Lebowski. Leiðindi? Úr meistaraverkinu 2001: A Space Oddyssey.