Morgunblaðið - 21.08.2020, Side 4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjöldi þeirra sem greinast með kór-
ónuveirusmit á landamærunum hefur
farið vaxandi að undanförnu. Aug-
ljósasta skýringin á þessu er sú að far-
aldurinn er í vexti erlendis, að því er
fram kom í máli Þórólfs Guðnasonar
sóttvarnalæknis á upplýsingafundi al-
mannavarnadeildar ríkislögreglu-
stjóra og embættis landlæknis, sem
haldinn var í gær.
Sagði Þórólfur ánægjulegt að nýjum
innanlandssmitum færi fækkandi og
að flestir sem greindust væru í sóttkví.
Hugsanlega gæfi það tilefni til að huga
að tilslökun sóttvarnaaðgerða innan-
lands.
Þórólfur sagðist að gefnu tilefni ekki
vilja meina að aðgerðir á landamærum
þyrftu að vera nákvæmlega eins og
þær eru núna næstu mánuði eða ár,
heldur sé ljóst að einhvers konar að-
gerðir þurfi að vera á landamærunum
áfram næstu mánuði.
Þórólfur bað þá sem hyggjast senda
almannavörnum eða landlækni fyrir-
spurnir og beiðnir að gera það að vel
ígrunduðu máli. Mikið álag hafi fylgt
því að svara slíkum erindum hjá emb-
ættunum.
Til Íslands í gegnum Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld munu hafa milli-
göngu um sölu á bóluefni til Íslands
gegnum samstarfsverkefni Evrópu-
sambandsins. Lena Hallengren, heil-
brigðisráðherra Svíþjóðar, greindi frá
þessu á blaðamannafundi sænsku rík-
isstjórnarinnar í gær.
Tilkynnti hún að Svíar tækju þátt í
samstarfsverkefninu, sem snýr að
kaupum á 300 milljónum skammta af
bóluefni gegn kórónuveirunni frá
sænsk-breska fyrirtækinu Astra Ze-
neca, að því gefnu að bóluefnið standist
prófanir.
Auk Evrópusambandsríkjanna
munu Ísland, Noregur og Sviss fá
hluta skammtanna og munu Svíar hafa
milligöngu um söluna til Íslands og
Noregs. Skömmtunum verður dreift á
milli ríkjanna, sem í búa tæpar 500
milljónir manna, en á fundinum kom
fram að Svíar, sem eru um 10 milljónir,
geti vænst þess að fá um 6 milljónir
skammta. Það jafngildir um 210.000
skömmtum fyrir Ísland.
Niðurstöður klínískra rannsókna
munu, að sögn Hallengren, leiða í ljós
hvort fólk þarf einn eða tvo skammta af
bóluefninu. Auk þessa verkefnis taka
íslensk stjórnvöld einnig þátt í verkefni
á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar, sem ber heitið COVAX.
Landamærasmitum fer fjölgandi
Faraldurinn í vexti erlendis Sænsk stjórnvöld munu hafa milligöngu um sölu bóluefnis til Íslands
Ekki víst hvort fólk þurfi einn eða tvo skammta af bóluefninu, að því gefnu að það standist prófanir
Fundur Þórólfur sagði þróunina geta gefið tilefni til að huga að tilslökunum.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Reykjavíkurborg og verktakann
Jarðval sf. greinir á um hver ber
ábyrgð á galla í framkvæmd við
hlaupabraut ÍR í Mjódd. Ber aðilun-
um ekki saman um hvar kostnaður
vegna gallans á að lenda. Þetta kem-
ur fram í svari Reykjavíkurborgar
við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Eins og greint var frá í gær þarf að
leggja nýtt undirlag fyrir hlaupa-
braut við nýjan frjálsíþróttavöll ÍR.
Rangt efni var notað við fyrstu mal-
bikun og því þarf að hefja fram-
kvæmdir að nýju. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að heildarkostnaður
vegna þessa hlaupi á yfir hundrað
milljónum króna. Rætt var við verk-
takann Jarðval sf. sem vísaði á borg-
ina og sagði málið vera í farvegi.
Í svari Reykjavíkurborgar kemur
fram að ekki hafi verið farið eftir
ákvæði í verklýsingu. Þar segir að
„verktaki skuli leggja fram upp-
skriftir af malbiksgerðum til sam-
þykktar áður en útlagnir hefjast á
malbiki“. Að því er fram kemur í
svari frá Bjarna Brynjólfssyni, upp-
lýsingastjóra borgarinnar, var ekki
farið eftir framangreindu ákvæði áð-
ur en malbik var lagt. Snýr ágrein-
ingurinn að því hver eigi að bera
kostnað við kaup á nýju malbiki.
Áætlaður kostnaður við nýtt malbik
er talinn nema um 40 milljónum
króna. Þá hefur borgin nú þegar
samþykkt að bera hluta kostnaðar
vegna nýs yfirborðsefnis. Ekki liggur
fyrir hver kostnaður við nýtt yfir-
borðsefni er, en framleiðsla á efninu
stöðvaðist vegna faraldurs kórónu-
veiru.
Aðspurður segir Bjarni málið vera
í farvegi. „Málið er í farvegi hjá skrif-
stofu framkvæmda og viðhalds og
verktaka. Verktaki hefur að ósk
borgarinnar þegar hafið vinnu við
nauðsynlegar lagfæringar þó að mál-
ið sé enn óútkljáð. Stefnt er að því að
leggja nýtt malbik í sumar og fram-
kvæmdum við völlinn lýkur á næsta
ári.“
Bera ekki ábyrgð á gallanum
Malbikunarstöðin Höfði hf. sá um
framleiðslu malbiksins við fram-
kvæmdina. Fyrirtækið er í eigu
Borgarsjóðs Reykjavíkur. Ásberg
Konráð Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri malbikunarstöðvarinnar, segir
fyrirtækið ekki bera ábyrgð á galla í
malbikinu. „Við framleiddum það
sem var pantað. Við erum ekki búin
að fá aðra pöntun, en slíkt færi í
gegnum aðalverktakann,“ segir Ás-
berg sem vísar að öðru leyti á
Reykjavíkurborg.
Borgin bendir á verktaka
vegna galla í framkvæmd
Segja verktaka
hafa farið á svig við
verklýsingu
Morgunblaðið/Arnþór
Hlaupabraut Borgin segir verktaka bera ábyrgð á galla í framkvæmd við
hlaupabraut ÍR í mjódd. Malbik sem notast var við er talið gallað.
Veðrið lék við íbúa höfuðborgarsvæðisins í gær. Þegar
vel viðrar er fátt betra en að gæða sér á ís eins og þess-
ar stúlkur gerðu við Ingólfstorg. Búast má við blíðviðri
í Reykjavík í dag, allt að 15 stiga hita.
Fengu sér ís í blíðviðrinu í borginni
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Vel gekk að koma Jökli SF-16 á flot
eftir hádegið í gær. Skipið hafði legið
á botninum í Hafnarfjarðarhöfn frá
því að það sökk skyndilega sl. mánu-
dagskvöld. Köfunarþjónustan annað-
ist verkið og að sögn Helga Hinriks-
sonar framkvæmdastjóra hefur
undirbúningur staðið alla vikuna.
Hann segir að tímanum hafi verið
varið í að koma fyrir dælum í lest
bátsins og koma stroffum undir kjöl
hans. Á háflóði í gær hafi svo dæling
hafist á sama tíma og krani lyfti undir
með bátnum. Helgi segir að allt hafi
gengið snurðulaust fyrir sig og Jökull
hafi flotið innan við klukkustund eftir
að aðgerðir hófust. Spurður um or-
sakir þess að báturinn sökk segir
hann að það hafi enn ekki komið í ljós.
Engin ummerki hafi fundist um aug-
ljósan leka, s.s. í gegnum botnloka eða
þil bátsins og því ekki hægt að segja
til um að svo stöddu. Hann segir bát-
inn hafa verið afhentan eiganda sín-
um en dælur séu enn tengdar við
hann til að fyrirbyggja að sjór safnist
fyrir í bátnum. sighvaturb@mbl.is
Engin merki um
augljósan leka
Jökull náðist á flot í Hafnarfirði í gær
Háflóð Jökull náðist á flot í gær.