Morgunblaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Vefverslun
komin í loftið!
mostc.is
Gerið verðsamanburð
FULL BÚÐ
AF NÝJUM OG
FALLEGUM
VÖRUM
5.990 kr.
Túnikur
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Í skyndilegu flóði úr Langjökli að-
faranótt þriðjudags þrefaldaðist
vatnsrennsli í Hvítá miðað við árs-
tíma. Flóðið kom úr lóni við norð-
vestanverðan Langjökul og flæddi
mikið vatnsmagn niður farveg
Svartár, sem alla jafna er vatnslítill
á þessum árstíma, og í Hvítá.
„Við brúna yfir Hvítá ofan við
Húsafell má sjá ummerki um að
vatnsborðið hafi náð upp undir brú-
arbitana. Farvegur Hvítár niður
við Húsafellsskóg var barmafullur
að sögn sjónarvotta. Mikill fram-
burður barst með flóðinu og neðar í
sveitinni eru bændur að finna
dauða laxa á engjum og ummerki
flóðsins sjást allt niður að
Borgarfjarðarbrú,“ segir í frétt
Veðurstofunnar um flóðið.
Þrefalt meðalrennsli
Veðurstofan rekur vatnshæðar-
mæli við Kljáfoss í Hvítá, sem er
um 30 kílómetra frá Húsafelli, og
er það eini rennslismælirinn í
Hvítá. Sá mælir sýnir flóðatopp
upp á 255 rúmmetra á sekúndu
skömmu eftir miðnætti sem er ná-
lægt því að vera þrefalt meðal-
rennsli árinnar á þessum árstíma.
Bráðabirgðaniðurstöður benda til
þess að rúmmál flóðsins hafi verið
u.þ.b. 3,4 milljónir rúmmetra. Eftir
er að leggja mat á það hversu mik-
ið flóðið var ofar í ánni. Á þessum
tíma hafði hækkað um hálfan ann-
an metra í ánni við Kljáfoss, en
rennslið rénaði hratt eftir því sem
sjatnaði í ánni.
Tómas Jóhannesson, fagstjóri á
sviði jöklarannsókna á Veðurstofu
Íslands, segir að jökullinn hafi
þynnst mikið á þessu svæði á und-
anförnum árum. Lón við jaðar
Langjökuls suður af Eiríksjökli
hefur stækkað samfara hörfun
jökuljaðarsins. Það hefur til þessa
haft afrennsli til norðurs og runnið
úr því í Flosavatn. Rennslisleið hafi
síðan opnast undir jökulsporðinn
og lónið skyndilega nánast tæmst.
Hann segir að þekkt séu mjög
stór flóð í ám neðarlega í Borgar-
firði og flóðið í vikunni hafi ekki
verið stærra heldur en stærstu
leysingaflóð sem þar eru þekkt á
láglendi. Sé hins vegar litið til efri
hluta Hvítár teljist þetta flóð mjög
stórt.
Meta hættu af hlaupum
„Þetta skyndilega flóð úr Lang-
jökli niður farveg Svartár er
óvenjulegt. Við munum kanna nán-
ar aðstæður við lónið við Lang-
jökul, til þess að sjá hvort um var-
anlega breytingu á farvegum þar
er að ræða og meta hversu mikil
hætta getur stafað af hlaupum
þarna í framtíðinni. Þetta á reynd-
ar við um lón við aðra jökla lands-
ins líka sem við á Veðurstofunni
höfum beint sjónum okkar að,“ seg-
ir Tómas á heimasíðu Veðurstof-
unnar.
Í samtali við Morgunblaðið nefn-
ir Tómas þá breytingu sem varð á
vatnsföllum á Skeiðarársandi þegar
Skeiðará flutti sig yfir í farveg
Gígjukvíslar árið 2009 og eitt af
stærstu vatnsföllum landsins hvarf
úr sínum farvegi.
Geta valdið vandamálum
„Þessi þróun er að verða víðar,
reyndar um allan heim, að lón
myndast eða hverfa og jökulhlaup
verða á óvæntum stöðum samfara
hörfun jökla. Slíkar breytingar
geta valdið ákveðnum vandamálum
því ýmiss konar mannvirki og
starfsemi miðaðst við farvegi vatns-
falla eins og þeir hafa verið. Þegar
breytingar verða gætu menn þurft
að endurskoða vegi, brýr og ýmsa
starfsemi við jöklana og vatnsföll
frá þeim,“ segir Tómas.
Mikill framburður og
dauður lax á engjum
Vatnsrennsli í Hvítá þrefaldaðist á skömmum tíma
Eiríksjökull
Langjökull
Húsafell
Hraunfossar
Reykholt
Kljáfoss
Borgarnes
Aurflóð í Hvítá í Borgarfi rði
Hvítá
Hvítá
1
Rennsli í Hvítá við Kljáfoss 17. til 19. ágúst, m3/s
250
200
150
100
50
mánud. 17. ágúst þriðjud. 18. ágúst miðvikud. 19. ágúst
Kortagrunnur: Loftmyndir
Heimild: Veðurstofan
Hvítá í Borgarfirði Áin er um 117 kílómetra löng jökulá og eru upptök
hennar við Eiríksjökul og Langjökul. Á leiðinni til sjávar í Borgarfirði
renna meðal annars í hana úr norðri Þverá og Norðurá og úr suðri Reykja-
dalsá, Flókadalsá og Grímsá. Góð laxveiði er í ám Borgarfjarðar.
Freyr Bjarnason
freyr@mbl.is
Starfsmaður á Hótel Rangá þar
sem ríkisstjórnin snæddi kvöldverð
á þriðjudagskvöld hefur greinst
með kórónuveiruna.
Í tilkynningu frá hótelinu kemur
fram að því hafi verið lokað tíma-
bundið vegna kórónuveirusmits.
Róbert Marshall, upplýsinga-
fulltrúi ríkisstjórnarinnar, segir að
starfsmaðurinn hafi aldrei komið
inn í herbergið þar sem ríkisstjórn-
in snæddi kvöldverðinn.
„Að höfðu samráði við sóttvarna-
lækni þykir ekki ástæða til að grípa
til sérstakra ráðstafana hvað ráð-
herra ríkisstjórnarinnar varðar,“
sagði Róbert við mbl.is í gærkvöld,
en RÚV greindi fyrst frá málinu.
Smitrakningar og sýnatökur eru
í gangi á Hótel Rangá. Vegna
þessa verður hótelið lokað næstu
daga á meðan umfang er upplýst
og sótthreinsun fer fram. Friðrik
Pálsson, eigandi Hótels Rangár,
kvaðst í samtali við mbl.is ekkert
vilja tjá sig um smitið fyrir utan
það sem kom fram í tilkynning-
unni.
Að sögn Róberts Marshall stend-
ur ekki til að fylgjast sérstaklega
með heilsu ráðherra á næstunni
vegna smitsins. Hann bætir við að
frekar strangar ráðstafanir séu í
gildi, til dæmis í forsætisráðuneyt-
inu þar sem mjög takmarkað sé
hverjir koma inn í bygginguna þar
sem forsætisráðherra starfar. Mikill
aðskilnaður sé jafnframt á milli
deilda.
Engin áætlun er uppi ef ráðherra
smitast af veirunni, að sögn Ró-
berts. Ef ráðherra smitaðist myndi
annar ráðherra í ríkisstjórninni
gegna hans stöðu.
Smit á hóteli sem
stjórnin snæddi á
Ekki grunur um
smit hjá ráðherrum
Ekki undir eftirliti
Morgunblaðið/Eggert
Smit Ríkisstjórn Íslands snæddi á
Hótel Rangá á þriðjudagskvöld þar
sem smit hefur komið upp.
Kristrún Snorradóttir hefur miklar
áhyggjur af áhrifum flóðsins á líf-
ríkið í Hvítá, en hún hefur í um 20
ár búið á Laxeyri við Hvítá skammt
frá Hraunfossum þar sem hún rek-
ur veitingastað. Hún fór upp með
ánni á miðvikudag og sá þá tvo
dauða laxa sem hafði skolað á land.
Í gær sá hún ekki fleiri fiska, en
vargfugl hafði gert dauðu fiskunum
góð skil.
„Laxinn kemst ekki upp fyrir
Barnafoss og þar rétt fyrir neðan sá
ég dauðan fisk. Þótt maður sjái
nokkra dauða laxa á stuttum kafla
þá segir það lítið því öðru getur hafa
skolað niður ána með drullunni alla
leið niður að ósi. Svo er viðkvæmur
bleikjustofn í Hvítá sem gengur inn
í kaldavermslárnar til að hrygna.
Hann gæti hafa farið illa út úr þess-
um ósköpum,“ segir Kristrún.
Hún segir að á mánudag hafi
byrjað að vaxa í ánni og hún orðið
dekkri á lit og hálfþykk er leið á.
Hamfarirnar hafi síðan orðið um
nóttina þegar þrefaldaðist í ánni,
langt umfram það sem megi skýra
með hlýindunum undanfarið, og
hækkaði um hálfan annan metra í
ánni. Víða megi nú sjá leir og drullu
á eyrum og bökkum við ána og sömu
sögu sé að segja um malareyrar rétt
fyrir ofan Borgarfjarðarbrú, tugum
kílómetra neðar.
„Ég held að lífríkið í Hvítá geti
verið í vondum málum eftir að áin
breyttist í fljótandi steypu. Þetta
gæti verið svipað og gerðist í Anda-
kílsánni,“ segir Kristrún, en 2017
barst aur niður í Andakílsá eftir að
vatni var hleypt úr lóni Andakíls-
árvirkjunar og lagðist yfir hylji og
uppeldissvæði lax. aij@mbl.is
Ljósmynd/Kristrún Snorradóttir
Leðja Þannig var umhorfs við bakka Hvítár nálægt Hraunfossum eftir flóðið.
Miklar áhyggjur
af lífríki Hvítár
Víða leir og drulla á eyrum og bökkum