Morgunblaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
LEIKFÖNG
fyrir allan aldur
KERTI
úr hreinu bývaxi
bambus.is
Ný og
endurbætt
netverslun
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Alþingi kemur saman í næstu viku, í
stubbinn svonefnda, en hann stendur
frá 27. ágúst til 4. september. Gera
má ráð fyrir að úr því náist 3-4 þing-
dagar og 2-3 nefndadagar, svo þing-
heimur verður að fara vel með tím-
ann. Það var enda skýrt í
þinglokasamningum frá í vor, að efnið
yrði takmarkað, í raun aðeins tvö mál
á dagskrá – endurskoðun fjármála-
stefnunnar og hlutdeildarlán – og al-
menn sátt um það.
Fyrirferðarmeira dagskrármál-
anna er endurskoðun fjármálastefn-
unnar, sem heimsfaraldurinn hefur
sett úr öllum skorðum. Bjarni Bene-
diktsson fjármálaráðherra hefur nú
þegar kynnt grófar áherslur í þeim
efnum, en mun kynna nánari út-
færslu á henni, sem síðan mun hafa
áhrif á fjármálaáætlun ríkisins og
fjárlagafrumvarp, sem lagt verður
fyrir þingið í haust.
Almennt er ekki talið að sú stefnu-
breyting mæti verulegri andstöðu,
þótt vafalaust verði ýmis sjónarmið
til einstakra þátta hennar kynnt.
Margir búast þó við að Viðreisn
muni leggja til að veiðigjöld verði
hækkuð á þeirri forsendu að þannig
megi lækka fyrirsjáanlegan halla á
ríkissjóði. Fáum dylst þó hvað býr að
baki og gantaðist einn þingmaður
með það í samtali við Morgunblaðið,
að sennilega myndi Viðreisn leggja til
að þau yrðu ámóta og gerðist í Nami-
bíu.
Jafnframt verður tekið fyrir frum-
varp Ásmundar Einars Daðasonar,
félags- og barnamálaráðherra, um ný
hlutdeildarlán, sem hafa það að
markmiði að auðvelda tekju- og
eignalitlu fólki að eignast sína fyrstu
íbúð. Það hefur verið til meðferðar
hjá velferðarnefnd þingsins, en drög
að breytingum á því komu þaðan í
upphafi vikunnar. Þingmenn úr bæði
stjórnarliði og stjórnarandstöðu telja
þær flestar til bóta, en þó er vitað að í
þingflokki sjálfstæðismanna eru
nokkrir, sem finna frumvarpinu allt
til foráttu. Hvort þeir muni leggjast
þvert gegn því þegar á hólminn er
komið er svo annað mál, hlutdeildar-
lánin voru hluti af lífskjarasamning-
unum.
Nýrra mála vænst á dagskrá
Dagskrá þingfunda stubbsins er
skipulögð í kringum þessi tvö mál.
Þó var í þinglokasamningnum einn-
ig kveðið á um að á dagskrá mætti
taka brýn mál tengd kórónuveir-
unni ef þurfa þætti, sem gefur bæði
stjórn og stjórnarandstöðu ýmis
tækifæri.
Þannig er ekki útilokað að fyrir
verði tekin ríkisábyrgð vegna Ice-
landair, framlenging á hlutabótaleið
eða annað slíkt, sem ekki er talið
mega bíða fram á haust.
Oddný G. Harðardóttir, þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar,
segir að við blasi að þingsins og rík-
isstjórnarinnar bíði ýmis brýn úr-
lausnarefni, sem þoli enga bið. „Ég
ætla rétt að vona að ríkisstjórnin
leggi fram frumvarp um myndarlega
hækkun atvinnuleysisbóta og fram-
lengingu launatengda tímabilsins.“
Hún segir ekki hægt að bíða með það
fram til hausts. „Það ganga þegar
22.000 manns atvinnulaus í árangurs-
lausri atvinnuleit, því það er ekkert
að hafa. Þessum efnahagsvanda
heimilanna þarf að mæta núna strax.“
Meðal stjórnarliða er því ekki tekið
ólíklega að til einhverra slíkra ráða
verði tekið. „Meginmarkmið stefnu
ríkisstjórnarinnar er að ríkissjóður
verði látinn taka höggið í bili,“ sagði
einn þeirra og bætti við að nú þegar
uppsagnarfrestur væri að líða hjá
mörgum færi ástandið að bíta og við
því yrði að bregðast.
Það vakti athygli þegar Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins boðaði
aukin ríkisútgjöld og hallarekstur, en
þingflokkurinn stendur þétt að baki
honum. „Þingflokkurinn féllst auðvit-
að ekki á hallann með glöðu geði, en
við erum raunsæ og vitum að það er
engra góðra kosta völ,“ segir Birgir
Ármannsson, þingflokksformaður
sjálfstæðismanna. „Það sem fyrir
okkur vakir er að draga úr áfallinu og
þar kemur sér vel að við erum í stöðu
til þess.“
Aðrir þingmenn benda á að þar sé
ríkisstjórnin í þrengri stöðu en ella
þar sem nú sígi á seinni hluta kjör-
tímabilsins, en gengið verður til kosn-
inga haustið 2021.
Á vappinu í kringum þinghúsið
mátti hitta einn og einn, sem taldi að
stjórnarandstaðan ætti að gera sér
mat úr nýlegum vandræðum Þórdís-
ar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur
á félagsmiðlum. Reyndir stjórnar-
andstöðuþingmenn eyða slíku tali.
„Það er óheppilegt, jafnvel skamm-
arlegt, að ráðherrar gangi ekki á und-
an með góðu fordæmi, en það er ekki
stóra vandamálið, sem þingið þarf að
taka á.“
Ný þingmál gætu komið á stubbinn
Endurskoðun fjármálastefnu og hlutdeildarlán efst á dagskrá stubbsins í þinginu í næstu viku
Stjórnarandstaðan kallar eftir hækkun atvinnuleysisbóta og framlengingu tekjutengingar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Endurskoðun fjármálastefnu í ljósi kórónuveirunnar er helsta málið á dagskrá þingsins í næstu viku.