Morgunblaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Toyota Land Cruiser 1/2018 33” breyttur með snorkel. Loftdæla - krómgrind ofl. Sjálfskiptur. Ek. 76 þ. km. Ný yfirfarinn og þjónustaður. Verð: 8.890 þús. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíði, útskurður, tálgun, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11:30 – 13. Kaffisala kl. 14:45 – 15:30. Allir velkomnir í Félagsstarfið sími: 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og spjall kl. 8:50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9:00-16:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Við vinnum áfram eftir samfélagssáttmálanum, þvo og spritta hendur, virða 2 metra regluna. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790 Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 08:30-16:00. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 13:45 -15:15. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Gönguferð kl. 13:30. Korpúlfar Gönguhópar kl. 10:00 gengið frá Borgum, ganga við allra hæfi og gleðileg samvera. Hláturjóga með Þórdísi kl. 14:00 í Borgum, hvetjum alla til að mæta. Minnum á tveggja metra regluna og reglulegan handþvott og sprittun. Verið hjartanlega velkomin. Samfélagshúsið Vitatorgi Hefjum daginn á hláturnámskeiði í setustofu, kl. 9:30, og hlæjum okkur inn í helgina. Þá hittumst við í handavinnustofu í föstudagsspjalli, kl. 10-11. Eftir hádegi, kl. 13, hefst svo seinasta hópþjálfunin með hreyfiteyminu sem hefur verið hjá ok- kur í sumar. Vöfflukaffi hefst kl. 14:30. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Nk. mánudag kl. 9.00 hefjum við námskeiðin í leir og gleri í samráði við leiðbeinendur. Einnig byjum við með Jóga í salnum á Skólabraut kl. 11.00 og handavinnu í salnum á Skólabraut kl. 13.00. Allir velkomnir. Í öllum okkar dagskrárliðum leggjum við áherslu á 2ja metra regluna, handþvott og sprittun. ✝ GeorgínaBjörg fæddist í Reykjavík 5. sept- ember 1979. Hún lést á heimili sínu 2. mars 2020. Foreldrar henn- ar eru Katrín Gísla- dóttir Sedlacek og Jón Guðmundur Jó- hannsson. Georgína kynntist árið 1998 Guðleifi W. Guðmundssyni og eignuðust þau saman tvær dætur, Töru Angelicu, f. 2000, og Katrínu Emblu, f. 2005. Leiðir þeirra skildi árið 2006. Georgína fór í sam- band á ný þegar hún kynntist Daníel Frey og saman eiga þau Patrik Hrafn, f. árið 2009. Útförin fer fram frá Selfosskirkju í dag, 21. ágúst 2020, kl. 14 en vegna að- stæðna í samfélag- inu verða einungis þeir nánustu, en hægt er að fylgjast með athöfn á heimasíðu Selfosskirkju, www.selfoss- kirkja.is. Elsku mamma mín. Hér að hinstu leiðarlokum ljúf og fögur minning skín. Elskulega amma góða um hin mörgu gæði þín. Allt frá fyrstu æskudögum áttum skjól í faðmi þér. Hjörtun ungu ástúð vafðir okkur gjöf sú dýrmæt er. Hvar sem okkar leiðir liggja lýsa göfug áhrif þín. Eins og geisli á okkar brautum amma góð, þótt hverfir sýn. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibj. Sig.) Elsku mamma, takk fyrir allt. Þín dóttir Embla. Ég kveð þig mamma, en sé um svið að sólskin bjart þar er, sem opnar hlið að fögrum frið, og farsæld handa þér. Því lífs er stríði lokið nú, en leiðina þú gekkst í trú á allt sem gott og göfugt er og glæðir sálarhag. Það ljós sem ávallt lýsti þér, það lýsir mér í dag. Ég kveð þig, mamma, en mildur blær um minninganna lönd, um túnin nær og tinda fjær, mig tengir mjúkri hönd, sem litla stúlku leiddi um veg, sú litla stúlka; það var ég, og höndin; það var höndin þín, svo hlý og ljúf og blíð. Ég kveð þig, elsku mamma mín, en man þig alla tíð. (Rúnar Kristjánsson) Dvel ég í draumahöll og dagana lofa. Litlar mýs um löndin öll liggja nú og sofa. Sígur ró á djúp og dal, dýr til hvílu ganga. Einnig sofna skolli skal með skottið undir vanga. (Kristján frá Djúpalæk) Þín dóttir Tara. Elsku Gína. Mig langar að þakka fyrir all- ar þær stundir sem við áttum saman í gegnum árin. Minning- ar sem ég geymi og fylgja mér alla ævi. Þú vafðir mig svolítið inn í teppi þegar við kynntumst 1998, þá hafði ég nýverið misst pabba og þú gafst mikið af þér til mín og veittir mér von og gleði, það er eitthvað sem mun geymast í mínu hjarta og vil ég þakka þér fyrir að hafa verið til staðar. Við eignuðumst tvær yndislegar stelpur, Tara kom í heiminn í ágúst árið 2000 og Embla í febrúar árið 2005. Elsku Gína, lífið er ekki mal- bikað alla leið og þú fékkst stundum að kynnast því en allt- af var stutt í brosið sem bræddi marga. Eftir regnið kemur sól, eftir sorg kemur gleði. Nú ertu komin í hlýjan faðm þar sem engar áhyggjur eru né sársauki og ef ég þekki þig rétt ertu geislandi af gleði með þitt fagra bros. Gína mín, takk fyrir allt og megi ljósið fagra veita þér yl og birtu. Guðleifur W. Guðmundsson. Hver minning dýrmæt perla að liðn- um degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Mig langar aðeins að bæta við. Þú hafðir svo margt fallegt að gefa, endalaust áttir þú fallegar hugsanir og ráð fyrir aðra. Þú hafðir svo hreint og fagurt hjarta, baktal var ekki til í þinni orðabók. Þú fórst með hreina sál í þína hinstu för, þú varst listakona af guðsnáð. Elsku hjartans Gína mín, nú hvílir þú í landi ljóss og friðar, engillinn minn. Yndislegu börnum þínum votta ég mína innilegustu sam- úð, móður, föður, afa, ömmu og öllum öðrum aðstandendum og ástvinum. Þið eigið öll mína samúð. Kossar og knús, dúllan mín. Þín Ingibjörg (Inga). Georgína Björg Sörensen ✝ Þorbjörn Ár-mann Friðriks- son fæddist á Siglu- firði þann 5. ágúst 1941. Hann lést á Landspítalanum 5. ágúst 2020. Foreldrar hans voru Friðrik Sveins- son lögregluþjónn, f. 31.7. 1901, d. 18.5. 1951, og Jóna Þor- björnsdóttir hús- móðir, f. 1.11. 1919, d. 15.6. 1950. Systir hans er Guðrún Friðriks- dóttir, f. 1.12. 1938. Hálfsystkini hans voru Gunnhildur Friðriks- dóttir, f. 19.12. 1927, d. 14. 11. 2013, Svanhildur Friðriksdóttir, f. 11.1. 1933, d. 12.2. 2019, Gísli Friðriksson, f. 25.5. 1938, d. 23.7. 1987. Þorbjörn kvæntist fyrri konu sinni árið 1964, Þóru Steingríms- dóttur, f. 24.4. 1943, d. 22.2. 2017. Sonur þeirra er Stein- grímur, f. 10.3.1964, fyrrverandi maki: Véný Xu, f. 19.8. 1968, börn þeirra: 1) Þorbjörn, f. 10.4. 1990, maki: Ásta Jakobsdóttir, f. frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1961. Þá hóf hann nám við Kennaraháskólann, og fékk að námi loknu stöðu skólastjóra við Barnaskóla Suðureyrar við Súg- andafjörð. Árið 1969 fór hann í nám í raunvísindum við Kaup- mannahafnarháskóla. Í fram- haldi af því gerðist hann efna- fræðikennari við Menntaskólann við Tjörnina, síðar Mennta- skólann við Sund og loks Fjöl- brautaskólann við Ármúla. Um aldamótin sneri hann sér að rekstri eigin fyrirtækis, sem hann sinnti til æviloka. Þorbjörn vildi ætíð hafa eitt- hvað við að vera, las helst nokkra tíma á dag, og sat löngum stund- um á vinnustofu sinni við smíðar. Hann var málgefinn og vildi ræða jafnt um dægurmál sem um helstu áhugasvið sín, sögu og tækni, auk þess sem hann var fljótur að snúa hlutunum upp í gamanmál. Þorbjörn fór ekki varhluta af mótlæti í sínu lífi. Daginn sem hann fór í sveit, 9 ára gamall, fékk hann að vita að hann væri orðinn munaðarlaus. En æsku- vinir hans á Siglufirði reyndust honum vel, og átti hann margar góðar bernskuminningar. Útför Þorbjarnar fer fram frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn í dag, 21. ágúst 2020, klukkan 14. 26.3. 1991, barn: Alda Sóley, f. 15.11. 2017, 2) Loftur, f. 11.9. 1996. Núver- andi maki: Ru- myana Björg Ivans- dóttir, f. 27.9. 1966, börn: 1) Pavel, f. 16.11. 1988, 2) Sve- toslav, f. 27.2. 1990, 3) Þóra Zhenda, f. 21.12. 2010, 4) Ár- mann Manol, f. 20.10. 2012. Þorbjörn kvæntist síðari konu sinni árið 1977, Ragnhildi Þor- geirsdóttur, f. 23.3. 1957. Synir þeirra eru: 1) Þorgeir, f. 18.3. 1979, maki: Guðmunda Harpa Erlu Júlíusdóttir, f. 12.2. 1973, börn: 1) Jóhanna Steinunn, f. 20.9. 1993, maki: Birnir Jarl, börn: Óðinn Helgi f. 19.8. 2016, Hrafnhildur Freyja, f. 9.7. 2020, 2) Björn Bjarki, f. 9.9. 1995, 3) Júlíus Arnar, f. 7.5. 2001, 4) Hrafnkell Emil, f. 26.3. 2007, og 2) Höskuldur, f. 11.3. 1982. Þorbjörn gekk í grunnskóla á Siglufirði og lauk stúdentsprófi Veturinn 2004 til 2005 kynntist ég Þorbirni tengdaföður mínum. Ég hafði þó vitað af honum mun lengur en þá sem föður Hösk- uldar, æskuvinar bróður míns. Þorbjörn var við fyrstu kynni opinn persónuleiki og mikill sögumaður, hann hafði yndi af því að segja sögur og sagði mér endalausar sögur af Þorgeiri, eiginmanni mínum, sumar oftar en einu sinni en hann var afar samkvæmur sjálfum sér og voru sögurnar alltaf óbreyttar, engin smáatriði undanskilin eða breytt. Þorbjörn kom mér fyrir sjónir sem mjög gáfaður maður, eiginlega alvitur. Hann var magnaður vísindamaður, kenn- ari, pabbi, tengdapabbi og afi. Hann hafði sterkar skoðanir og leyfði manni að vita þær, hann skildi ekkert undan og kenndi mér margt. Ég gleymi seint kvöldi einu líklega á árinu 2008 þegar hringt var á dyrabjöllunni hjá okkur og sagt í dyrasímann „gott kvöld, er nokkuð hægt að fá lánaðan kött hér?“ þarna var Þorbjörn komin í leit að músa- bana, við létum af hendi kisann okkar, hann Krúselíus, það sem gerðist svo næst var það að kisi eignaðist heimili að Vörðu og fékk annað nafn, Grákollur mú- saskelfir, þar sem hann stóð sína plikt með sóma. Þorbjörn sagði að svona grimmur músa- bani gæti ekki heitið svona krúttlegu nafni. Þegar við komum í sveitina að Vörðu þá drógust börnin að honum eins og býflugur að blómum, hann var spennandi, sýndi þeim hitt og þetta sem þau sáu hvergi annars staðar og hafði endalausa þolinmæði fyrir spurningum þeirra um allt í heiminum. Þorbjörn hafði þá skoðun að réttast væri að læra með því að upplifa, hann tók það stundum fulllangt að mínu mati með því til dæmis að leyfa Hrafnkeli að „keyra“, prufa allskyns verkfæri og gefa honum rafmagnsborvél í 3 ára afmælisgjöf, hann hafði þó alltaf varkárnina í fyrirrúmi og enginn hlaut skaða af. Mig langar að kveðja magn- aðan mann með þessum orðum: Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði : Sofðu rótt, þeim svefni enginn ræni þig. (Steinn Steinarr) Góða ferð, minn kæri, þangað sem förinni er nú heitið. Þín tengdadóttir, Harpa. Okkur systrum finnst báðum eins og við höfum alist upp með Þorbirni. Að hann hafi verið með okkur frá blautu barns- beini. Og það er raunar ekki fjarri lagi. Þorbjörn var tvítugur þegar þau Þóra, elsta systir okkar, fóru að draga sig saman. Hún var 18 ára. Við yngri syst- ur vorum 9 og 14 ára. Þorbjörn bjó þá á stúdentagörðum í ná- munda við heimili okkar og það leið ekki á löngu þar til hann var fluttur inn á Oddagötu 4. Hann varð fljótlega eins og sonur á heimilinu, og bróðir okkar, kær- leiksríkur og umhyggjusamur. En hann var líka svo skemmti- legur og skapandi. Stöðugt að grúska, leita, skapa, skoða. Og hann veitti okkur, af örlæti, hlutdeild í því sem hann fékkst við hverju sinni. Félagar okkar kölluðu hann Edison. Hann var uppfinningamaður. Við systur nutum örlætis hans ekki á sama hátt vegna aldursmunar. Sigrún fékk frá honum gersemar úr pappa og tvinnakeflum, skuggamyndavél- ar og hraðskreiða skriðdreka. Á unglingsárum vakti hann svo með henni áhuga á iðrum jarðar í gönguferðum um fjöll og firn- indi. Laufey var nær Þorbirni í aldri og þau urðu góðir félagar, fóru saman á skíði, í útreiðar- túra og gönguferðir, eins og góð systkin. Þeim Þóru fæddist yndislegur drengur meðan þau bjuggu enn á heimili okkar og við urðum strax hugfangnar af litla frænda sem kom eins og ljós inn á heimilið. Þóra systir hafði allt frá unglingsárum átt við erfiðan geðsjúkdóm að stríða, en fullur elsku var Þorbjörn staðráðinn í að lækna hana. Hann stundaði nám í læknisfræði, og báðar munum við eftir læknanemanum sem mótaði úr leir nákvæmar eftirlíkingar af hryggjarliðum og öðrum beinum mannslíkamans. Yfirborðsþekking eða utanbók- arlærdómur átti ekki við Þor- björn, hann þurfti að átta sig á afstöðu hlutanna og kanna grunninn. Vegna erfiðra aðstæðna þurfti Þorbjörn fljótt að gefa lækna- námið upp á bátinn. Hann fór í kennaraskólann og tók við skólastjórastöðu á Suðureyri við Súgandafjörð ári síðar. Frumleg og skörp hugsun varð honum ekki ævinlega til framdráttar í kennaranáminu frekar en ann- ars staðar, eins og þegar hann fékk falleinkunn fyrir lokarit- gerðina. Faðir okkar hafði lesið ritgerðina og fannst hún einfald- lega brilliant. Útkoman var því kærð. Málið endaði í ráðuneyti menntamála, þar sem einkunn- inni var breytt úr falli í 10. Eng- in meðalmennska þar. Eftir dvölina á Suðureyri fór Þorbjörn til Danmerkur til frekara náms í efnafræði. Að því loknu kenndi hann í menntaskóla og stundaði jafn- framt fræði og grúsk af mörgu tagi. Hann vann meðal annars merkar rannsóknir á rauða- blæstri á Íslandi og kynnti nið- urstöðurnar á ráðstefnu erlend- is. Í könnunarferðum um landið var Steini, sonur þeirra Þóru, oftast með í ferð, en þeir feðgar voru ævinlega miklir og góðir félagar. Eftir skilnað þeirra Þóru varð lítil breyting á sam- bandi okkar við Þorbjörn. Hann var áfram góður vinur, studdi okkur með ráðum og dáð, og var elskaður af fjöl- skyldunni allri. Við sendum sonum Þorbjarn- ar innilegar samúðarkveðjur, þeim Steina frænda, Þorgeiri og Höskuldi, og fjölskyldum þeirra. Laufey og Sigrún Steingrímsdætur. Þorbjörn Ármann Friðriksson  Fleiri minningargreinar um Þorbjörn Ármann Frið- riksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.