Morgunblaðið - 21.08.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 21.08.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Rússneski stjórnarandstöðuleiðtog- inn Alexei Navalní var í gær fluttur á sjúkrahús í borginni Omsk í Síberíu. Navalní var í flugvél á leiðinni til Moskvu þegar hann féll óvænt í dá. Flugmenn vélarinnar öryggislentu henni við fyrsta tækifæri þegar til- fellið kom upp, en Kíra Yarmish, talskona Navalnís, sagði að grunur væri uppi um að eitrað hefði verið fyrir honum. „Læknarnir eru ekki bara að gera allt sem í þeirra valdi stendur, þeir eru nú að reyna að bjarga lífi hans,“ sagði Anatolí Kalínísjenkó, aðstoðar- yfirlæknir á sjúkrahúsinu í Omsk. Navalní var settur í öndunarvél í gær og ástand hans rannsakað gaumgæfilega. Kalínísjenkó sagði að ekki lægi fyrir hvað amaði að Na- valní og að ekki væri hægt að full- yrða sem stendur að hann hefði orðið fyrir eitrun. Yarmysh var hins vegar á annarri skoðun. Hún sagði á twitter-síðu sinni að aðstandendur Navalnís teldu að honum hefði verið byrlað eitur í tebollanum sem hann drakk úr í gærmorgun. Þá sagði hún við fjölmiðla að hún væri viss um að eitr- unin hefði verið vísvitandi. Ríkisfjölmiðillinn TASS vísaði hins vegar í heimildarmann innan rússnesku lögreglunnar sem sagði ekki hægt að útiloka að Navalní hefði sjálfur innbyrt eitthvað, og sjón- varpsstöðin REN, sem þykir höll undir stjórnvöld, hafði eftir heimild- armönnum sínum að Navalní hefði verið drukkinn. Yarmysh vísaði þeirri frásögn hins vegar á bug og sagði ekkert hafa bent til þess að nokkuð amaði að Navalní fyrr en hann féll í dá. Baráttumaður gegn spillingu Navalní er 44 ára, og hefur verið í fararbroddi þeirra sem gagnrýnt hafa stjórnarhætti Vladimírs Pútín Rússlandsforseta síðustu ár. Navalní hefur hins vegar orðið fyrir aðkasti vegna afstöðu sinnar, og varð hann m.a. fyrir áverkum á auga árið 2017 þegar grænu bleki var kastað í andlit hans. Þá hefur hann mátt dúsa nokkrum sinnum í fangelsi fyrir þátttöku sína í mótmælum gegn stjórnvöldum. Hélt Navalní því fram í ágúst í fyrra að eitrað hefði verið fyrir sér á meðan hann var í haldi lögreglunnar, eftir að útbrot mynduðust í andliti hans. Þá þykir málið minna á mál Alex- anders Litvínenkó, sem lést af völd- um eitrunar í Lundúnum árið 2006, sem og Skrípal-málið 2018. AFP Á mótmælum Navalní hefur verið iðinn við að skipuleggja mótmæli. Navalní á gjörgæslu  Grunur leikur á að eitrað hafi verið fyrir Alexei Navalní, einum helsta gagnrýn- anda Pútíns Rússlandsforseta  Féll í dá á flugleiðinni frá Síberíu til Moskvu Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi til- kynntu í gær að þau hygðust hefja sakamálarannsókn á hendur „valdaránstilraun“ stjórnarand- stöðunnar. Alexander Konyuk, rík- issaksóknari landsins, sagði að stofnun sérstaks samhæfingarráðs stjórnarandstæðinga fyrr í vikunni bryti í bága við stjórnarskrá lands- ins. Þá yrði einnig að rannsaka til- raunir til þess að „grafa undan þjóðaröryggi“ Hvíta-Rússlands. Emmanuel Macron Frakklands- forseti lýsti því yfir í gær að Evr- ópusambandið væri reiðubúið til þess að miðla málum á milli stjórn- ar og stjórnarandstöðu ásamt öðr- um, þar með talið Rússum, og finna þannig leiðir til þess að binda frið- saman endi á mótmælin, sem skekið hafa landið síðustu vikur. HVÍTA-RÚSSLAND AFP Mótmæli Órói ríkir í Hvíta-Rússlandi. Hefja rannsókn á mótmælunum Steve Bannon, fyrrverandi ráð- gjafi Donalds Trump Banda- ríkjaforseta, var handtekinn í gær ásamt þremur öðrum vegna gruns um að fjór- menningarnir hefðu stundað fjárdrátt og um- boðssvik. Ásakanirnar tengjast fjáröfl- unarverkefni sem átti að aðstoða Bandaríkjastjórn við að reisa múr á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, en til þess söfnuðust meira en 25 milljónir Bandaríkjadala. Alríkissaksóknarar í Manhattan segja hins vegar að Bannon og fé- lagar hans hafi dregið að sér mikl- ar fjárhæðir og notað þær til að fjármagna einkaneyslu sína, en í lýsingu fjáröflunarinnar sagði að allt söfnunarféð ætti að renna óskipt til múrsins. BANDARÍKIN Bannon ákærður fyrir fjársvik Steve Bannon Hans Kluge, yfirmaður Evrópu- deildar Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar WHO, sagði í gær að ríki Evrópu ættu að geta ráðið við farald- urinn án þess að grípa aftur til þeirra hörðu aðgerða sem sáust í vor. Sagði Kluge að heilbrigðisyfirvöld í ríkj- unum væru nú betur að sér um eðli veirunnar og um leið betur undirbúin til þess að takast á við hana en þau voru þegar fyrsta bylgjan skall á. Ummæli Kluge féllu á sama tíma og áhyggjur ráðamanna í Evrópu eru að aukast, en fjöldi nýrra smita hefur aukist nokkuð síðustu daga í bæði Frakklandi og Þýskalandi. Ákváðu þýsk stjórnvöld í gær að skylda ferðalanga sem kæmu frá Króatíu til þess að fara í sóttkví, en talið er að uppgang kórónuveirunnar nú megi að miklu leyti rekja til Þjóðverja sem héldu utan í sumarfrí, en eru nú á leiðinni heim. Þróunin er öllu betri í Afríku, en John Nkengasong, yfirmaður heil- brigðisstofnunar Afríkusambandsins, sagðist vera vongóður um fram- haldið, þar sem kúrfa faraldursins væri nú á niðurleið í flestum ríkjum álfunnar. Um fjórðungur án einkenna Tæplega 22,5 milljónir manns hafa nú smitast af kórónuveirunni sam- kvæmt talningu Johns Hopkins- háskólans og um 790.000 manns hafa dáið af völdum hennar frá því farald- urinn hófst. Talningin nær einungis til stað- festra smita, en indverskir vís- indamenn greindu í gær frá því að rannsóknir þeirra bentu til þess að allt að fjórðungur þeirra 20 milljóna manna sem búa í höfuðborginni Delhí hefðu smitast af veirunni án þess að sýna þess nokkur einkenni. Í Bandaríkjunum hafa nú rúmlega 5,5 milljónir manns smitast og um 173.500 manns dáið af völdum henn- ar. Bandarísk stjórnvöld greindu frá því í gær að um 1,1 milljón manns hefði bæst við á atvinnuleysisskrá í síðustu viku, og var það óvænt aukn- ing miðað við vikurnar þar á undan. Evrópa ráði við faraldurinn án lokana  Áhyggjur aukast vegna nýrrar bylgju í Þýskalandi og Frakklandi AFP Skimun Þessi kona var skimuð fyrir kórónuveirunni á Spáni í vikunni. 590762 SsangYong Tivoli dlx ‘18, sjálfskiptur, ekinn 59 þ. km. Verð: 2.990.000 kr. 446184 SsangYong Tivoli DLX ‘17, sjálfskiptur, ekinn 88 þús. km. Verð: 1.990.000 kr. 446340 VW Tiguan ‘14, beinskiptur, ekinn 154 þ. km. Verð: 1.590.000 kr. SsangYong Korandodlx ‘18, sjálfskiptur, ekinn 55 þús. km. Verð: 3.590.000 kr. 550152 445859 Opel Mokka X ‘18, sjálfskiptur, ekinn62þús. km. Verð: 3.690.000 kr. 446362 Toyota Land Cruiser ‘18, sjálfskiptur, ekinn 15 þús. km. Verð: 12.900.000 kr. 590868 SsangYong Korando hlx ‘15, sjálfskiptur, ekinn 60 þús.km. Verð: 2.490.000 kr. 446314 Suzuki Vitara gl+ ‘19, sjálfskiptur, ekinn 62 þús. km. Verð: 2.990.000 kr. SsangYongRextondlx ‘19, sjálfskiptur, ekinn45 þús. km. Verð: 5.190.000 kr. 590704 550092 Lexus Nx300h Hybrid ‘18, sjálfskiptur, ekinn 31þús.km. Verð: 7.290.000 kr. Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Opnunartímar: Virka daga 12-17 Meira úrval á notadir.benni.is Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 * Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. Ísland vill sjá þig í sumar á jeppa Nú stendur íslenska ferðasumarið í hámarki - komdu og skoðaðu gott úrval af notuðum bílum hjá Bílabúð Benna og kynnstu Íslandi betur í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.