Morgunblaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020 ✝ Helgi Stein-grímsson fædd- ist í Reykjavík 13. júní 1943. Hann andaðist á Líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 15. ágúst 2020. For- eldrar Helga voru Steingrímur Páls- son, stöðvarstjóri í Brú í Hrútafirði, f. 29. maí 1918, d. 10. mars 1981, og Lára Helgadóttir, símritari og loftskeytamaður í Brú í Hrútafirði, f. 3. janúar 1924, d. 17. ágúst 1979. Helgi bjó sín fyrstu ár í Reykjavík ásamt því að vera reglulega bæði á Ísa- firði og í Ófeigsfirði á Ströndum. Hann flutti sem barn að Brú í Hrútafirði þar sem foreldrar hans voru póst- og símstöðvar- hjón frá árinu 1950 til 1976. Helgi gekk í Reykjaskóla í Hrútafirði og lauk landsprófi ár- ið 1961. Helgi var í sambúð með Bertu Þórarinsdóttur snyrtifræðingi og áttu þau saman Steingrím tölvu- fræðing, f. 3. ágúst 1964. Stein- grímur var fyrst í sambúð með Guðrúnu Helgu Jónsdóttur læknaritara og eiga þau saman Hrannar Helga. Berthu Þór- björgu og Björn Þóri eignaðist hann síðar með Ásu Fönn Frið- með Jóni Halldóri Jónssyni húsa- smið. Fyrir átti Inga Lára soninn Sæþór Helga. Yngri dóttir þeirra er Karlotta, uppeldis- og mennt- unarfræðingur, f. 20 janúar 1988, gift Gunnlaugi Ragnari Reynis- syni rafvirkjameistara og eiga þau saman Andreu Lilju. Helgi vann fjölmörg störf og kom víða við. Sem unglingur starfaði hann hjá Sauðfjárvörn- um ríkisins og seinna hjá Pósti og síma. Eftir það starfaði Helgi hjá Skýrsluvélum ríkisins frá 1962 til 1966, fór þaðan til Loftleiða og vann þar sem fulltrúi innkaupa- stjóra á árunum 1966 til 1973. Helgi kom að stofnun plötuút- gáfufyrirtækisins Demants hf. í janúar 1975 ásamt Ingibergi Þor- kelssyni og Jóni Ólafssyni. Hann starfaði sem sölustjóri Pennans frá 1980 til 1983 og vann eftir það til 1986 hjá Eyjólfi Axelssyni hjá Axis. Þá átti Helgi ásamt Daníel Árnasyni Húseignir og skip, sem hann rak í nokkur ár. Helgi var ritstjóri landkynning- arbókarinnar Gests 1993-1995. Þegar Helgi var unglingur í Brú í Hrútafirði stofnaði hann Brúartríóið, svo Erni og að lok- um hljómsveitina Hauka. Helgi kom einnig að pólitík og var virkur í Sjálfstæðisflokknum. Hann var einnig formaður Sjálf- stæðisfélagsins í Bakka- og Stekkjahverfi til nokkurra ára. Í ljósi aðstæðna gilda fjölda- takmarkanir og því fer útförin fram í kyrrþey en henni verður streymt á internetinu í dag, 21. ágúst 2020, klukkan 11. Slóðin er https://youtu.be/Spi26JD5moc. bjarnardóttur íþróttakennara. Helgi gekk síðar í hjónaband með Dagbjörtu Sig- urbergsdóttur, fyrrverandi fjár- málastjóra BBA legal lögmanns- stofu, og átti með henni þrjú börn. Elst þeirra er Harpa sjúkraþjálf- ari, f. 16. júlí 1966, gift Rúrik Vatnarssyni lögfræðingi og eiga þau saman fjögur börn, Andra Vatnar, Sigurberg, Lilju og Dag- björtu. Annað barn þeirra hjóna er Heimir, flugstjóri hjá Ice- landair, f. 21. ágúst 1970, giftur Guðnýju Hrönn Úlfarsdóttur snyrtifræðingi og eiga þau sam- an börnin Perlu og Alexander Nóa. Fyrir átti Guðný dótturina Söru Laufdal. Þriðja barn þeirra hjóna er Haukur, viðskiptafræð- ingur og verkefnastjóri, giftur Tanya Helgason og eiga þau saman börnin Nicole, Maxime og Jason. Fyrir átti Haukur soninn Dag. Seinni eiginkona Helga er Guðbjörg Alda Jónsdóttir, fyrr- verandi fulltrúi hjá embætti RSK, og áttu þau saman tvær dætur: Ingu Láru félagsráð- gjafa, f. 11. apríl 1981, í sambúð Elsku fallegasti og besti pabbi í heimi. Með þessum hætti ávarpaði ég þig pabbi og þú varst það sannarlega. Það er svo skrýtið að skrifa til þín orð þar sem að- stæður núna eru enn svo óraun- verulegar fyrir mér og við svo innilega höfum átt hvort annað og þú hefur verið svo stór hluti af mér að ég þarf svolítið að læra að lifa upp á nýtt. Ég elska þig svo heitt, sótti svo mikið í þig og leit svo mikið upp til þín, þú tókst mér alltaf fagnandi og ég fékk nánast skammir þegar ég spurði þig hvort ég mætti koma til þín því þú sagðir alltaf að þitt heimili væri mitt heimili. Ég er svo þakklát fyrir öll þau gildi sem þú komst að hjá mér og öllu sem við deildum. Við áttum svo margt sameiginlegt og gátum setið í margar stundir hverju sinni og vorum í raun sjaldan í stuði til að kveðjast og sjást síð- ar. Elsku pabbi, ég er svo þakklát fyrir gildin sem þú komst að hjá mér og ég hélt í heiðri, að vera heiðarleg, leggja allt mitt af mörkum, vera sjálfri mér sam- kvæm og stela ekki, að stela þýddi að vera þjófur fyrir lífstíð. Nú legg ég ekki dóm á aðra, það get ég ekki, en þau gildi sem þú komst að hjá mér gerðu að verk- um að ég hef farið með þau út í lífið og náði ekki hér áður að festast á þeirri ógæfubraut sem ég var komin á. Gildin þín hafa verið veganesti mitt í lífi og starfi og með þau hef ég náð langt. Ég átti alltaf að hugsa vel um mig, rækta mig og „hárið er höfuðprýði konunnar“ og það skal vera alltaf vel hirt og fal- legt. Það var svo dásamlegt að eiga tíma með þér, þegar ég sagði þér frá því sem ég hlakkaði til eða gekk vel þá varstu margfalt ánægðari en ég fyrir mína hönd sem gerði gleði mína miklu sterkari. Ég fann fyrir svo miklu stolti frá þér til mín og ég tala nú ekki um til sonar míns, hans „litla þíns“ sem þú tókst þátt í að ala upp og tók fyrstu skrefin hjá þér. Það sem hann litli þinn hef- ur dýrkað þig elsku pabbi, og elskar þig, endurspeglar svo hver þú ert og hvað þú ert fyrir okkur. Hann Nonni okkar líka, hann lærði strax að elska þig og virða og þið áttuð einstakt sam- band. Þú ert svo stórfenglegur og stókostlegur, stórmenni, það er enginn sem kemur nálægt því að líkjast þér á nokkurn hátt. Ég naut þess svo að hlusta á þig tala um tímann í Brú í Hrútafirði, Láru ömmu, Brúartríóið, Erni og Haukana þína og öll ævintýri ykkar Villa Vill saman. Það var svo stórkostlegt hvað þú kunnir Íslendingasögurnar vel og við deildum áhuga okkar á þeim, pólitík (Sjálfstæðisfl.) og líka svo mörgu öðru sögulegu, tala nú ekki um seinni heimsstyrjöldina pabbi, þar var áhugi okkar svo brennandi og ég er svo stolt af því hvað við deildum saman ást okkar á náttúrunni og hvað við skynjuðum hana nánast eins. Ég er svo langt frá því að vera hætt að deila þessu öllu með þér, við verðum saman öllum stundum. Pabbi, við deildum svo bæði kostum okkar og brestum og gátum gert svo mikið grín að okkur og skapgerð okkar og ég þarf verulega á því að halda að deila því með þér áfram en á annan hátt. Við einfaldlega töl- uðum sama tungumál. Þín dóttir, Inga Lára (Láfa). Pabbi var ótrúlega skemmti- legur og litríkur karakter. Stundirnar sem við hlógum sam- an eru óteljandi og fram á síð- asta dag gat hann alltaf séð húmorinn í hlutunum. Pabbi var mjög hjartahlýr og átti auðvelt með að sýna hlýju og væntum- þykju. Ég er mjög þakklát fyrir allar þær stundir sem við áttum saman, sérstaklega í Skálafelli á skíðasvæði KR þar sem pabbi vann um tíma og ég fékk að eyða heilu helgunum með honum. Ég á líka skemmtilegar minningar frá hljómsveitaræfingum og úti- skemmtunum sem hljómsveitin var með úti á landi. Pabbi kenndi mér að lesa áður en ég hóf skólagöngu og við nut- um þess að lesa bækur og ræða um bækur. Íslendingasögurnar og sakamálasögur voru í algjöru uppáhaldi. Sameiginlegur áhugi okkar á dýrum, náttúrunni, úti- vist, skíðum, kayak og golfi hef- ur tengt okkur órjúfanlegum böndum. Það er erfitt að hugsa til þess að eiga ekki fleiri stundir með pabba en á sama tíma fyllist ég miklu þakklæti fyrir þann tíma sem við höfum átt saman. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Harpa Helgadóttir. Elsku hjartans pabbi. Núna ertu farinn frá okkur og nýr raunveruleiki hefur tekið við. Ég þekki tilveruna ekki án þín og ég get ekki lýst því hvað ég sakna þín mikið. Með ljósmæðurnar á hliðarlínunni tókst þú á móti mér í heiminn svo við höfum verið tengd frá því ég tók minn fyrsta andardrátt og þar til þú tókst þinn síðasta. Þegar ég lít yfir far- inn veg þá get ég ekki annað en brosað í gegnum tárin því minn- ingarnar með þér eru óteljandi. Þú varst svo mikill vinur, skemmtilegur, fyndinn og traust- ur. Þú varst besti sögumaður sem ég veit um, þú varst fullur af ástríðu og varst svo fyndinn. Smitandi hlátur þinn gat fyllt stærstu rýmin og þú varst hrók- ur alls fagnaðar. Þegar ég hugsa um að ég fái ekki lengur að sjá þig, faðma þig, hlæja með þér og njóta nærveru þinnar á hverjum degi finn ég fyrir svo miklum tómleika. Ég man eftir tímabili þegar ég var lítil þar sem setn- ingin „It‘s only rock and roll but I like it“ var svar þitt við nánast öllu og auðvitað smelltir þú fingr- um í takt við orðin, glottir og settir upp sólgleraugun. Þú varst stuðpinni, skemmtikraftur og fá- ránlega mikill töffari. Ég er svo ótrúlega stolt af þér, pabbi. Þú kenndir mér þrautseigju, kapp- semi og að gefast aldrei upp á draumunum mínum, það var al- veg sama hvað mér datt í hug að gera næst, þú hvattir mig áfram í að eltast við drauma mína. Veik- indi þín komu okkur öllum í opna skjöldu. Við fengum strax að vita að krabbameinið væri ólæknandi og ég mun aldrei gleyma hversu ákveðinn þú varst í að berjast, þú hefur aldrei viljað láta neinn leggja þér lífsreglurnar og þú ætlaðir svo sannarlega ekki að byrja þarna. Þú vildir lifa. Fyrir það er ég svo þakklát því barátta þín varð til þess að við fengum að njóta nærveru þinnar aðeins lengur. Tímarnir fóru þó að þyngjast og krabbameinið tók alltaf meira og meira yfir líkama þinn. Við fengum meiri tíma sam- an en þú greiddir fyrir það með heilsu þinni og líðan, elsku besti pabbi, og ég er svo þakklát fyrir þennan tíma þótt það hafi verið svo vont að horfa á þig í þessari stöðu. Þegar þú veiktist þá lofaði ég þér því að ég myndi standa með þér, virða þínar ákvarðanir og vera með þér til enda. Þú tókst í höndina á mér, brostir og sagðir „I know“. Eftir þessa ör- lagaríku stund, laugardagsmorg- uninn 15. ágúst á Líknardeild- inni, þá kyssti ég þig, faðmaði þig og næst settist ég á stól og það var svo skrítið, ég sat þarna að- eins frá rúminu þínu en akkúrat á þeirri stundu fann ég fullkom- lega fyrir nærveru þinni. Ég trúi því að þú hafir verið hjá mér og faðmað mig til baka. Ég sé þig í afkomendum þínum og ég er svo þakklát fyrir það. Ég sé þig í dóttur minni, systkinum og frændsystkinum, þannig lifir þú áfram. Eins sárt og það var að kveðja þig þá veit ég að þú ert á góðum stað, hraustur, glaður og ég er alveg pottþétt á því að þú sért kominn með gítar í fangið og sért að koma fólkinu í stuð. Takk elsku pabbi fyrir að gefa mér líf, fyrir góðu stundirnar og takk fyrir að hafa verið pabbi minn. Þú lifir áfram í hjarta okkar allra. Ég elska þig. Karlotta Helgadóttir. Sæll afi. Ég sakna þín svo mikið elsku afi og vildi að þú værir ennþá hjá mér en í stað þess þá sjáumst við á öðrum stað seinna. Ég elska þig svo mikið afi minn og þykir svo vænt um þig og hugsa stöðugt til þín og ég hef alltaf gert það. Ég er svo ánægður að þú sást mig taka fyrstu skrefin og enginn annar. Ég er svo þakklátur fyrir að þú varst eins og þú varst. Þú varst yndislegur, frábær, traust- ur og fyndinn. Það var svo gaman að hlusta á þig segja frá sjálfum þér afi minn, allar sögurnar um þig og allt þitt líf, eins og þegar þú varst að veiða, sögurnar þegar þú stofnaðir Haukana og allt sem þið gerðuð saman, Loftleiðaat- burðirnir og fleira. Við hlustuð- um á tónlist og sýndum hvor öðrum fullt af lögum. Ég hugsa alltaf til þín þegar ég hlusta á lagið „I see fire“ því að þér þótti það svo flott þegar ég sýndi þér það. Ég á eftir að fara um Laug- arnestangann og hugsa til þín elsku afi minn, þar vorum við alltaf saman og áttum þar mjög góðar stundir þegar þú varst að passa mig. Eins og þegar við tókum spýtur eða tré, festum fjöður í og settum út á sjó og svo reyndi ég að kasta steinum í hana. Það var eitt af svo mörgu sem við gerðum á Laugar- nestanga. Við áttum mjög gott og sérstakt samband elsku afi minn og því verður aldrei gleymt. Þín verður alltaf saknað. Þitt afabarn, „Litli þinn“ Sæþór Helgi. Við Helgi kynntumst í byrjun áttunda áratugarins í gegnum sameiginlegan vin. Ég var þá kornungur, nýbyrjaður í há- skólanámi, en hann fjölskyldu- maður sem vann á Loftleiðum á daginn og spilaði með hljóm- sveitinni Haukum á kvöldin. Leiðir okkar Helga hafa síðan legið mikið saman. Við ásamt fleiri félögum höfum hist reglu- lega og átt saman góðar stundir. Helgi starfaði með mér við fasteignasölu um tíma. Hann var kappsamur og duglegur sölu- maður, en var ekki mjög hrifinn af tilsögn. „I’ll do it my way“ var tilsvarið ef maður benti á eitt- hvað sem mætti betur fara. Helgi á sinn kafla í Rokksögu Íslands. Hann stofnaði hljóm- sveitina Hauka sem Dr. Gunni kallar í bók sinni „Guðfeður gleðibandanna“. Það má segja að Haukarnir hafi lagt línuna fyrir sveitaballaböndin sem á eftir komu. Helgi stofnaði ásamt Jóni Ólafssyni og Ingibergi Þorkels- syni útgáfufyrirtækið Demant, sem á stuttum líftíma afrekaði það meðal annars að gefa út „Millilendingu“ Megasar. Helgi starfaði mest við sölu- og markaðsmál síðari hluta starfsævinnar. Hann gat verið hrjúfur á yfirborðinu en undir því leyndist viðkvæm sál. Hann var stálheiðarlegur og ætlaðist til sama heiðarleika af öðrum og gat mislíkað verulega ef á það skorti. Margar eftirminnilegar sögur hefur maður heyrt frá Helga, meðal annars frá því þegar hann og Vilhjálmur heitinn Vilhjálms- son voru saman í sumarfríi í Evrópu og fengu að troða upp í pásu hjá öðrum skemmtikröft- um, og þegar hann fékk „rhytma blues“-hljómplötur frá amerísk- um laxveiðimönnum sem komu við í Hrútafirðinum á æskuárum hans. Sagðist hann hafa spilað þessa tegund tónlistar áður en Rolling Stones og fleiri kynntu heiminum hana. Þegar ég og félagar mínir í hljómsveitinni Los Angeles gerðum okkar fyrstu plötu um aldamótin voru jákvæðni og hrósyrði Helga mikils virði, vegna þess að hann var það hreinn og beinn að maður vissi að það kæmi frá hjartanu. Síðast þegar við Helgi hitt- umst rifjaði hann upp tímann um 1970 þegar mest var að gera í hans lífi. Þegar Haukarnir spiluðu langt fram á morgun á ólöglegum næturklúbbum eftir að hafa spilað á venjulegu balli og síðan mættur kl. 9 í skrifstofu Loftleiða. Hann brosti þegar hann talaði um þennan tíma og fann maður að hann minntist hans með stolti og gleði, þó svo að þetta hafi tekið sinn toll. Ég votta afkomendum Helga og öllu hans venslafólki mína dýpstu samúð og bið Guð að blessa minningu Helga Stein- grímssonar. Viðar Böðvarsson. Genginn er til náða í hinsta sinn góður og traustur vinur minn, Helgi Steingrímsson. Meðal helstu kosta Helga var náttúrubarnið. Hann ólst upp á Brú í Hrútafirði þar sem var tengistöð langlínusamtala. Faðir hans Steingrímur var símstöðv- arstjóri á Brú. Móðir hans Lára var afar listræn og vinsæl kona og ól Helga og bróður hans Þóri, sem síðar varð leikari og lög- regluþjónn í Reykjavík. Helgi undi hag sínum best úti í nátt- úrunni, en Hrútafjarðará liggur nánast um hlaðið á Brú í djúpu gili. Um fermingaraldur fékk Helgi þann starfa að ganga með sauðfjárvarnargirðingunni er lá um miðja Holtavörðuheiði og ganga betur frá festingum, vopnaður hamri og vírnöglum. Einnig var með í för eins skots 22 kalíbera riffillinn hans, ef vera skyldi að tófur yrðu á vegi hans. En Helgi var góð skytta og skaut rjúpur í jólamatinn. Það má segja að Helgi hafi dottið í lukkupottinn við að kynnast hin- um þekkta general Stewart, sem leigði Hrútafjarðará í áraraðir. Stewart kom oft við á Brú og vingaðist við Helga. Kenndi hon- um að nota ífæru við laxveiðar og gaf honum síðar einhendu- flugustöng. Allt þetta hefur verið Helga mikil upplifun. Fjölskyld- an fluttist suður yfir fjöll til höf- uðborgarinnar, en faðir Helga tók sæti á Alþingi. Helgi var í músíkinni og spilaði á Hótel Sögu um helgar með þeim bræðrum Gunnari og Guðmundi Ingólfssonum. Síðar yngdi hann upp og stofnaði Haukana ásamt Engilbert Jensen, Svenna Guð- jóns og Gulla heitnum Melsted. Helgi hóf störf hjá innkaupa- deild Loftleiða og var fljótt kom- inn í yfirmannastöðu. Hann gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og var hverfisstjóri í Breiðholti. Ég var tíður gestur á heimili Helga og Öldu og dætrum þeirra Ingu Láru og Karlottu. Þær kölluðu mig Stefán frænda, en ég átti til að segja þeim skemmtilegar sög- ur og herma eftir fuglum. Síð- asta veiðiferð Helga var ásamt mér í Eystri-Rangá í 2 daga fyr- ir fjórum árum. Hann sat við ána straummiklu einbeittur og með mikinn sælusvip. Kæri vinur, Helgi. Megi hinn hæsti höfuð- smiður himins og jarðar lýsa þér leiðina til austursins eilífa. Stefán Á. Magnússon. Vinur minn Helgi Steingríms- son er fallinn frá eftir erfið veik- indi, sem hann tókst á við með hetjuskap og æðruleysi. Leiðir okkar Helga lágu saman norður í Brú í Hrútafirði þegar við vor- um smá pollar. Foreldrar okkar störfuðu við símstöðina Brú til margra ára. Ég á eldri systur og Helgi yngri bróður, svo það var oft glatt á hjalla hjá okkur krökkunum og margs að minn- ast frá þessum árum. Við Helgi tengdumst sterkum böndum í gegnum tónlist. Þegar ég nálg- aðist fermingaraldur var ég far- inn að spila á harmóniku og Helgi, sem var þremur árum eldri en ég, orðinn ágætur gít- arleikari. Helgi átti hugmyndina að því að stofna fyrstu hljóm- sveitina sem ég tók þátt í ásamt Þóri, bróður Helga, og nefndist það band Brúartríóið. Eftir að við fluttumst frá Brú til Reykja- víkur hélt okkar góða samstarf áfram og stofnaði Helgi hljóm- sveitina Erni og var sú hljóm- sveit vinsæl og spiluðum við á helstu veitingastöðum í Reykja- vík og víða á landsbyggðinni. Eftir þessi góðu ár með Helga skildi leiðir og hann stofnaði hina vinsælu hljómsveit Hauka sem starfaði í mörg ár. Vinátta okkar Helga var sönn og gagn- kvæm. Við héldum alltaf sam- bandi og fylgdumst hver með öðrum og síðustu árin voru mér afar kær, því þá hittumst við reglulega. Ég heimsótti vin minn á Laugarnesveginn og síðan á Austurbrún og þar var mikið skrafað og gamlir tímar og minningar rifjað upp. Ég heim- Helgi Steingrímsson Ástkær dóttir okkar, móðir, systir og barnabarn, GEORGINA BJÖRG SÖRENSEN, Flétturima 30, Reykjavík, lést 2. mars á heimili sínu. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 21. ágúst klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir útförina, en streymt verður beint frá vefsíðunni Selfosskirkja.is. Þökkum auðsýnda samúð. Jón G. Jóhannsson Þórdís R. Hansen Katrín Gísladóttir Sveinbjörn Guðjohnsen Tara A.W. Guðleifsdóttir Katrín E.W. Guðleifsdóttir Patrik H. Daníelsson Björg Þ. Sörensen Gísli Sigurðsson Ingibjörg H.W. Guðmundsd. og systkini hinnar látnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.