Morgunblaðið - 21.08.2020, Síða 27
Morgunblaðið/Eggert
Jafntefli Grétar Snær Gunnarsson og Erlingur Agnarsson í skallaeinvígi í Grafarvoginum í gærkvöldi.
FÓTBOLTINN
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Enn bíða Fjölnismenn eftir fyrsta
sigri sumarsins á Íslandsmótinu í
knattspyrnu en þeir urðu að sætta sig
við jafntefli þegar Víkingar úr
Reykjavík komu í heimsókn á Extra-
völlinn í Grafarvoginum í gærkvöldi.
Liðin skildu jöfn, 1:1, en um tíma
stefndi allt í að mark Hallvarðar Ósk-
ars Sigurðarsonar myndi duga
heimamönnum til að hreppa sín
fyrstu þrjú stig. Hann kom Fjölni yfir
í fyrri hálfleik með þrumuskoti en það
voru gestirnir sem byrjuðu af meiri
krafti.
Smellurinn vakti Fjölnismenn
„Gestirnir úr Fossvoginum virtust
líklegri til að byrja með, snöggir og
liprir gegn stæðilegum varnar-
mönnum Fjölnis,“ sagði Stefán Stef-
ánsson meðal annars í lýsingu sinni á
mbl.is. Það var svo stangarskot
þeirra Víkinga sem vakti heimamenn
til lífs. „Á 9. mínútu munaði litlu að
vel útfærð aukaspyrna Víkinga skil-
aði marki þegar Viktor Örlygur
Andrason tók aukaspyrnu við víta-
teigshornið, skaut rétt út fyrir
varnarvegg heimamanna en boltinn
small í stönginni. Sá smellur vakti
Fjölnismenn sem fóru að sækja meira
og ná betri tökum á sínum leik.“
Gestirnir dóu þó ekki ráðalausir og
kreistu fram jöfnunarmark undir lok
leiks, Adam Ægir Pálsson, nýkominn
frá Keflavík, skoraði það af stuttu
færi. Það dugði Víkingum til að gera
sitt fimmta jafntefli í sumar, þeir sitja
í 7. sæti með 14 stig eftir 11 leiki.
Fjölnismenn eru mikið fyrir jafnteflin
sömuleiðis, þetta var þeirra fjórða og
þeir bíða enn eftir fyrsta sigrinum,
sitja á botni deildarinnar með fjögur
stig, fjórum frá öruggu sæti. Þess má
geta að þessi lið mættust í Fossvog-
inum í fyrstu umferðinni og skildu lið-
in auðvitað jöfn þá líka með sömu
markatölu.
Stórveldaslagurinn seinastur
Þrettánda umferðin heldur áfram í
kvöld er Grótta fær Breiðablik í
heimsókn og Fylkir tekur á móti
Stjörnunni. Á morgun fer fram KA-
ÍA og FH-HK og lýkur svo umferð-
inni á stórleik Íslandsmeistara KR og
toppliðs Vals á miðvikudaginn, 26.
ágúst, en KR-ingar eru í sóttkví.
Enn eitt jafntefli liðanna
Fjölnismenn voru hársbreidd frá sínum fyrsta sigri á Íslandsmótinu í sum-
ar Víkingar hafa gert fimm jafntefli í ellefu leikjum og eru langt frá toppnum
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020
Knattspyrnumaðurinn Sveinn Aron
Guðjohnsen og samherjar hans hjá
Spezia á Ítalíu eru komnir upp í
efstu deild þar í landi eftir umspil
við Frosinone sem endaði í gær-
kvöldi. Sveinn Aron og félagar
unnu fyrri leikinn á útivelli, 1:0, og
töpuðu heimaleiknum í gær með
sama mun.
Það þýðir að Spezia fer upp um
deild vegna þess að liðið var ofar í
B-deildinni á leiktíðinni. Spezia
endaði í 3. sæti með 61 stig en Fros-
inone í 8. sæti með 54 stig. Sveinn
Aron kom ekki við sögu í leiknum.
Sveinn Aron
upp í efstu deild
Morgunblaðið/Eggert
A-deild Sveinn Aron og félagar
leika í efstu deild í vetur.
Ítalska knattspyrnuliðið Inter von-
ast til að vinna sinn fyrsta bikar í
níu ár er liðið mætir Sevilla frá
Spáni í úrslitaleik Evrópudeild-
arinnar í Köln í Þýskalandi í kvöld.
Sevilla hefur unnið keppnina
fimm sinnum áður, þar af þrisvar í
röð frá 2014 til 2016. Inter hefur
þrisvar unnið keppnina en þó ekki
síðan 1998 en liðið hóf þetta tímabil
í Meistaradeildinni, komst ekki upp
úr riðli sínum. Inter burstaði
Shakhtar Donetsk frá Úkraínu í
undanúrslitum, 5:0, en Sevilla vann
enska liðið Manchester United 2:1.
Úrslitaleikurinn
í Köln í kvöld
AFP
Úrslit Romelu Lukaku hefur verið
drjúgur fyrir Inter í Þýskalandi.
Tiger Woods byrjaði vel þegar The
Northern Trust-mótið hófst í Boston í
gær en um leið hófst úrslitakeppnin á
PGA-mótaröðinni í golfi, FedEx Cup.
Tiger lék á 68 höggum og var á þrem-
ur höggum undir pari vallarins. Tiger
var í 30. sæti ásamt fleirum þegar
blaðið fór í prentun. Efstu menn
höfðu leikið á 64 höggum. Eins og
komið hefur fram á síðustu árum eru
geysilega há peningaverðlaun í boði
fyrir sigurvegarann í úrslitakeppninni
eða 10 milljónir dollara.
Enski markvörðurinn Dean Hend-
erson er búinn að kveðja Sheffield
United eftir tveggja ára lánsdvöl þar
og er nú nálægt því að skrifa undir
nýjan samning hjá Manchester Unit-
ed, þar sem hann hefur verið á mála
síðan 2011 eða þegar hann var 14 ára
gamall. Henderson varði mark Shef-
field í B-deildinni og hjálpaði liðinu að
komast upp í efstu deild. Hann var
svo stórgóður með liðinu í úrvalsdeild
á síðustu leiktíð en hann er 23 ára
gamall. Sky Sports segir frá því að
hann ætli að skrifa undir nýjan lang-
tímasamning í Manchester og berjast
við Spánverjann David de Gea um
markvarðarstöðu liðsins.
Hollenski knattspyrnumaðurinn
Xavier Mbuyamba er genginn til liðs
við enska félagið Chelsea en hann
kemur á frjálsri sölu eftir að samn-
ingur hans hjá spænska stórliðinu
Barcelona rann út í sumar. Mbuyamba
er átján ára gamall og uppalinn hjá
Maastricht í heimalandinu en hann
gekk til liðs við akademíu Barcelona á
síðasta ári þar sem hann spilaði með
U19 ára liðinu. Hann hefur skrifað
undir þriggja ára samning í Lund-
únum.
Leikmaður Southampton í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu greindist
með kórónuveiruna eftir að hann
sneri aftur til Englands úr sumarfríi.
Staðarmiðillinn Daily Echo segir frá
þessu.
Leikmenn félagsins hafa verið að snúa
aftur til æfinga en undirbúnings-
tímabil liðsins hófst í vikunni. Einn
leikmaður, sem hefur ekki verið nafn-
greindur, er hins vegar á leiðinni í ein-
angrun í tvær vikur eftir að hafa smit-
ast í fríi erlendis og getur því ekki
tekið þátt á æfingum. Þá þarf að
senda alla aðra leikmenn og þjálfara
Southampton í skimun til að ganga úr
skugga um fleiri séu ekki smitaðir.
Neymar, sóknarmanni franska
knattspyrnufélagsins PSG, verður
ekki refsað af UEFA fyrir að skipta á
treyju við Marcel Halstenberg, leik-
mann RB Leipzig, eftir undanúrslita-
leik liðanna í Meistaradeildinni í Lissa-
bon í Portúgal í vikunni. UEFA hafði
gefið út þau tilmæli til leikmanna að
bannað væri að skiptast á treyjum
vegna kórónuveirufaraldursins en er-
lendir fjölmiðlar fjölluðu mikið um at-
vikið og töldu að Neymar yrði úr-
skurðaður í eins leiks bann eða þyrfti
að fara í 12 daga sóttkví.
UEFA mun hins vegar ekki
aðhafast neitt frekar í
málinu og fær Neymar
því að spila úrslita-
leikinn gegn Bay-
ern München á
sunnudaginn kem-
ur. PSG hefur
aldrei unnið
keppnina en Bay-
ern München hef-
ur fimm sinnum
fagnað sigri, síðast
árið 2013.
Eitt
ogannað
FJÖLNIR – VÍKINGUR R. 1:1
1:0 Hallvarður Óskar Sigurðarson 33.
1:1 Adam Ægir Pálsson 86.
M
Arnór Breki Ásþórsson (Fjölni)
Hallvarður Óskar Sigurðarson (Fjölni)
Hans Viktor Guðmundsson (Fjölni)
Ingibergur Kort Sigurðsson (Fjölni)
Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölni)
Peter Zachan (Fjölni)
Viktor Andri Hafþórsson (Fjölni)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
Ingvar Jónsson (Víkingi)
Júlíus Magnason (Víkingi)
Kristall Máni Ingason (Víkingi)
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi)
Viktor Örlygur Andrason (Víkingi)
Rautt spjald: Ekkert.
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 8.
Áhorfendur: Engir leyfðir.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og greinar um leikina – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.
Þátttaka karlaliðs KR í Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu dregur dilk á
eftir sér. Þeir sem fóru í leikinn í
Glasgow eru í sóttkví og fyrir vikið
hefur stórleik KR og Vals verið frest-
að. Þessi lið hafa unnið Íslandsmótið
síðustu þrjú ár og áttu að mætast á
morgun en í gær var tilkynnt að
leiknum hefði verið frestað enda ekki
annað í stöðunni eftir að í ljós kom að
KR-ingar þyrftu að fara í sóttkví.
Seinni skimun KR-inga verður vænt-
anlega á mánudag.
KR-ingar voru á vissan hátt sein-
heppnir. Ný regla heilbrigðisráðu-
neytisins um tvöfalda skimum tók
gildi á miðnætti 18. ágúst en KR-
ingar skiluðu sér til landsins um hálf-
tíma eftir miðnætti. Eins og Rúnar
Kristinsson, þjálfari liðsins, benti á í
hlaðvarpsþættinum Mín skoðun í
gær, þá er ekki hlaupið að því að
breyta leiktímum í Meistaradeild
Evrópu. KR-ingar náðu einfaldlega
ekki heim í tæka tíð vegna tímasetn-
ingar leiksins.
„Það var ekki búið að staðfesta
neitt áður en við fórum út en við viss-
um það, frá og með miðnætti í gær
[fyrradag], að við værum á leið í
sóttkví. Þegar við vissum að þessar
dagsetningar myndu standast var of
seint að breyta leiktíma leiksins þar
sem Celtic var búið að selja sjón-
varpsréttinn. Þú breytir ekki leik-
tímum í Meistaradeild Evrópu með
sólahringsfyrirvara, svo einfalt er
það. Við vorum 36 mínútum of seinir
og þannig er það bara. Við reyndum
að sjálfsögðu að drífa okkur heim um
leið og leikurinn kláraðist en það
tókst því miður ekki,“ sagði Rúnar
meðal annars í þættinum.
sport@mbl.is
Ljósmynd/@CelticFC
Glasgow Kennie Chopart glímir við Scott Brown í leiknum gegn Celtic.
Glasgow-förin dregur dilk á eftir sér