Morgunblaðið - 21.08.2020, Side 28

Morgunblaðið - 21.08.2020, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Níu leirlistakonur hafa myndað félagasamtök þar sem áherslan er lögð á kynningu frumstæðra leir- brennsluaðferða. Þær kalla sig Brennuvarga, Þórdís Sigfúsdóttir, Steinunn Aldís Helgadóttir, Ólöf Sæmundsdóttir, Katrín V. Karls- dóttir, Ingibjörg Klemenz, Hrönn Waltersdóttir, Hólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir, Guðbjörg Björns- dóttir og Hafdís Brands. Þær halda nú sýningu í Gallerí Grásteini, Skóla- vörðustíg 4. Samstarf þeirra hófst árið 2017 þegar Anders Freholm, sænskur leirlistamaður og kennari, hélt vinnusmiðju hér á landi þar sem byggður var rakúofn, auk þess sem aðrar frumstæðar brennsluaðferðir voru prófaðar. „Rakúbrennsla er aðferð sem kemur frá Japan, frá 16. öld og hafði tengsl við teathafnir þar og innri íhugun,“ segir Steinunn Aldís, ein Brennuvarga. „Leirvinnslan snýst um einfaldleikann, að vinna með grunnformin; móður jörð, leirinn og vatn til að leirinn sé mótanlegur, loft til að þurrka hann og loks eld til að brenna hann.“ Þannig vinna leir- listamenn með frumefnin fjögur: jörð, vatn, loft og eld. Útkoman er óútreiknanleg „Við erum allar svolítið klikkaðar, ótrúlega miklar náttúrutýpur, segir Steinunn og hlær. „Maður sleppir tökunum og verður hluti af nátt- úrunni. Þetta er andleg athöfn.“ Þær móta verkin, brenna þau í rakúofni við 800-900 gráður og nota síðan alls konar aðferðir til þess að ná fram litum og áferð. Auk þess sem þær vinna við rakúofninn hafa þær einnig stundað aðrar fornar brennsluaðferðir, grindarbrennslu, holubrennslu og tunnubrennslu. Tilraunamennska, með ólíkar að- ferðir og hráefni sem einkennir forn- ar brennsluaðferðir, er höfð í háveg- um. Þær nýta ýmsar gjafir náttúrunnar til þess að ná fram ólík- um litum og munstrum. Steinunn nefnir sem dæmi hrosshár, kúa- mykju, kaffikorg, bananahýði, kopar og önnur kemísk efni. Útkoman er óútreiknanleg. „Hér er engu stýrt. Það koma fram mjög skemmtileg litaspil þar sem við ráðum engu.“ Steinunn segir það stórkostlegt að fylgjast með mununum verða til. „Við verðum líka að vera viðbúnar því að verkin springi og allt verði ónýtt.“ Brennuvargar eru sérstaklega áhugasamir um að fræða almenning um leirlist. „Grunnur þessa félags- skapar er að kynna leirlist á Íslandi fyrir almenningi og sérstaklega þessar aðferðir, að brenna við opinn eld, sem við köllum frumstæðar brennsluaðferðir,“ segir Steinunn. Meðan á vinnusmiðjunni árið 2017 stóð var tekin upp heimildarmynd, Frá mótun til muna, sem er hluti af sýningunni og lýsir byggingu rakú- ofnsins og öðrum brennsluaðferðum. Í framhaldinu bauð Inga Jónsdóttir, þáverandi safnstjóri í Listasafni Árnesinga, þátttakendum í smiðj- unni að halda sýningu og frumsýna myndina. Þær voru síðan hvattar til að halda sýninguna á fleiri stöðum og úr varð farandsýningin Frá mótun til muna, sem sett hefur verið upp í Stykkis- hólmi, Kópavogi, Dalabyggð, Höfn og Húsavík. Fylgjast með ferlinu Brennuvargar hafa haldið brennslugjörninga þar sem lista- mennirnir sýna og kynna mismun- andi brennsluaðferðir. „Við mætum með verkin og brennum á staðnum og seljum. Ágóðinn rennur svo í félagssjóðinn.“ Þannig geta áhuga- samir fest kaup á verkum sem þeir hafa fylgst með í ferlinu. „Það er allt- af gaman að leyfa fólki að fylgjast með og þetta er mikil „action“,“ segir Steinunn. Heimsfaraldurinn hefur sett strik í reikning Brennuvarga eins og ann- arra listamanna og því hefur ekki orðið úr öllum þeim gjörningum sem skipulagðir hafa verið í ár. Þeim tókst þó að halda gjörning í Stykkis- hólmi í lok júlí. Hver staður fyrir sig veitir þeim innblástur við sköpunina. Í Stykkis- hólmi fór Skeljahátíð fram á sama tíma og brennslugjörningurinn var haldinn, svo verkin sem unnin voru þá tengjast skeljum á einn eða annan hátt. „Við tengjum verkin við bæjar- félögin og einkenni sem þar eru, en við erum auðvitað allar með mismun- andi túlkun á því.“ Það er ýmislegt fram undan hjá hópnum. Félagið Handverk og hug- vit undir Hamri, sem þrjár þeirra til- heyra, hefur gert samning við Hveragerðisbæ um að koma upp var- anlegu brennslurými í Hveragarð- inum. Stefnan er að halda þar nám- skeið fyrir börn, eldri borgara og almenning. „Það er mjög dýrmætt að fá þennan samning,“ segir Steinunn. Auk þess ætla Brennuvargar að halda sýningu á Nýp á Skarðsströnd næsta sumar. „Þar ætlum við að vinna með tilraunir með efni sem eru til á staðnum og það verður mjög spennandi að fara inn í það ferli.“ Steinunn segir mikla kosti felast í því að starfa saman á þennan hátt. „Þótt það hafi ekki allir þekkt alla þegar við byrjuðum þá erum við orðnar mjög nánar í dag. Við hlökk- um virkilega til að halda áfram með þetta, það eru óendanlegir mögu- leikar, okkur þykir öllum mjög vænt um þetta meginmarkmið, að kynna leirlist í samfélaginu.“ Sýningin stendur út ágústmánuð og munu listakonurnar standa vakt- ina í galleríinu um helgar, á morgun, laugardag, milli kl. 14 og 18. Morgunblaðið/Atli Rúnar Halldórsson Brennuvargar „Þótt það hafi ekki allir þekkt alla þegar við byrjuðum þá er- um við orðnar mjög nánar í dag,“ segir Steinunn um hópinn. Leirlist Sýningin Frá mótun til muna er opin í Gallerí Grásteini út ágúst. Þar eru kynntar fornar brennsluaðferðir og afrakstur þeirra. Leirbrennslan er andleg athöfn  Níu leirlistakonur, sem kalla sig Brennuvarga, brenna leir yfir opnum eldi  Kynna almenningi fornar brennsluaðferðir með brennslugjörningum  Sýning í Gallerí Grásteini Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Pólska skáldkonan Olga Tokarczuk, sem hlaut Bók- menntaverðlaun Nóbels 2018, hefur fengið yfir 70 lista- menn til að skrifa undir opið bréf til Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambands- ins (ESB), þar sem meðferð pólskra yfirvalda á hinsegin fólki er harðlega gagnrýnd og ESB hvatt til aðgerða. Meðal þeirra sem skrifað hafa undir eru Paul Auster, Margaret Atwood, Isabelle Huppert og Pedro Almo- dóvar. Þetta kemur fram í frétt Sænska útvarpsins. Til- efni bréfsins er sú ákvörðun borgaryfirvalda víðs vegar um Pólland að innleiða „hinseginlaus svæði“. Stjórnvöld landsins með Andrzej Duda, nýendurkjörinn forseta, í fararbroddi hafa stutt aðför borgaryfirvalda að hinsegin fólki í landinu. Gagnrýna aðför að hinsegin fólki Olga Tokarczuk Söngvaskáldið Svavar Knútur og tónlistarkonan Kristjana Stefáns- dóttir komu fram á tvennum tón- leikum á sumartónleikaröð Nor- ræna hússins í vikunni. Vegna fjarlægðartakmarkana voru aðeins 20 sæti í boði á hvorum tónleikum. Um áratugur er síðan Svavar Knútur og Kristjana sendu frá sér plötuna Glæður og hafa þau reglu- lega síðan haldið tónleika saman víðs vegar um landið við góðar við- tökur. Morgunblaðið/Eggert Dúett Svavar Knútur með gítarinn og Kristjana Stefánsdóttir við flygilinn fluttu eigin tónsmíðar í bland við annað. Fámennt en góðmennt Gleði Gestir fögnuðu tónlistarfólkinu innilega í Norræna húsinu. Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is Einnig til í svörtu Stærðir 40-45 32.990 kr. Herraskór NÝTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.