Morgunblaðið - 27.08.2020, Page 1
„Tilfinningin að hafa tekist þetta er ólýsanleg,“ segir Sævar
Helgason á Akureyri. Þau Sævar og Sara Dögg Pétursdóttir
eiginkona hans klifu Hraundranga í Öxnadal undir forystu
Jökuls Bergmanns fjallaleiðsögumanns sl. þriðjudag. Alls tók
þau um sex klukkutíma að komast úr Hörgárdal á toppinn.
Fyrst var gengið upp í um 1.000 metra hæð um brekkur og
skriður, en svo lagt í snarbratt hamrastál. „25. ágúst 2020
verður einn af stóru dögunum í lífi okkar,“ segir Sævar.
Hraundrangi er 1.075 m hár og blasir við þegar ekið er um
Hringveginn í Öxnadal. Tindurinn var lengi talinn ókleifur en
var sigraður 5. ágúst 1956. Síðan þá hafa margir farið á fjallið
og Jökull Bergmann á að baki 30 ferðir frá 1993. sbs@mbl.is
Ljósmynd/Jökull Bergmann.
Ólýsanleg tilfinning
á Hraundranga
F I M M T U D A G U R 2 7. Á G Ú S T 2 0 2 0
Stofnað 1913 201. tölublað 108. árgangur
119
kr/stk
Kókómjólk
¼ lítri
HP
atkökur
499
kr/stk
SS Lifrarkæfa
180 grG
O
TT
V
ER
Ð
a
lla
d
a
g
a
159
kr/pk
LJÓSIN ÚR
INDÓNESÍSKUM
FISKIGILDRUM MANNESKJAN KRAFTAVERK
ÖLL VERKIN Á
CHART ERU
EFTIR KONUR
OPNAR LÍFSFÆRNISKÓLA 20 LISTAKAUPSTEFNA 48-49HEIMILISLÍF 32
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landssamtök sauðfjárbænda (LS)
áætla að fækkað hafi um liðlega 16
þúsund fjár á síðasta ári. Það leiðir
til þess, að óbreyttri frjósemi og
meðalþunga lamba, að slátrað verð-
ur um 19 þúsund lömbum færra í
sláturtíðinni sem nú er að hefjast. Er
ljóst að framleiðslan minnkar enn
eitt árið, nú um 300 tonn. Sumir spá
frekari fækkun fjár í haust.
Ef lömb koma óvenjulega væn af
fjalli getur það dregið úr samdrætti.
Sömuleiðis ef ásetningur minnkar í
haust. Unnsteinn Snorri Snorrason,
framkvæmdastjóri LS, reiknar með
300 tonna samdrætti í dilkakjöti og
framleiðslan fari niður í um 8.000
tonn. Svo lítil hefur framleiðslan
ekki verið í hálfa öld.
Þótt sláturtíð sé að hefjast hafa
sláturleyfishafar ekki gefið út
verðskrár og bændur vita því ekki
hvað þeir fá fyrir innleggið.
Unnsteinn telur að ef ekki verður
verulegur viðsnúningur megi búast
við áframhaldandi samdrætti.
Sláturleyfishafar merkja fækkun
fjár út frá sláturpöntunum frá bænd-
um. „Sauðfjárbændur eru orðnir
langþreyttir á tekjuleysi og lágu af-
urðaverði. Fyrirsjáanlegt er að það
verður samdráttur í haust og spurn-
ing með framhaldið,“ segir Ágúst
Andrésson, forstöðumaður hjá KS.
19.000 lömbum færra
Áframhaldandi samdráttur í framleiðslu á lambakjöti
Færra fé nú í landinu en verið hefur í um hálfa öld
MEnn samdráttur »6
Gamli yfirlæknisbústaðurinn á Víf-
ilsstöðum liggur undir skemmdum.
Hann var reistur veturinn 1919 til
1920 eftir teikningum Guðjóns Sam-
úelssonar, sem þá hafði nýlokið námi
í húsagerðarlist í Danmörku.
„Mér ofbýður sú hörmung sem
þar blasir við þegar litið er til þessa
góða húss sem Guðjón Samúelsson
teiknaði af snilld sinni. Það er að
grotna niður. [...] Það var sagt að Ís-
lendingar hefðu stundum étið eitt-
hvað af skinnhandritum sínum. Það
er hægt að fyrirgefa þeim það – þeir
voru hungraðir. En þeir menn sem
höndla um læknabústaðinn eru ekki
svangir og því er skömm þeirra enn
Liggur undir skemmdum
Eitt elsta verk Guðjóns Samúelssonar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bústaður Guðjón teiknaði húsið.
meiri fyrir sinnuleysið,“ sagði
Hrafnkell Helgason, síðasti yfir-
læknir Vífilsstaða, á hundrað ára af-
mæli þeirra árið 2010. »18