Morgunblaðið - 27.08.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mér fannst engin skynsemi í öðru
en að setja sjálfur upp hljóðver.
Með þeim hætti get ég átt ráðstöf-
unarrétt yfir upptökunum í framtíð-
inni og jafnframt tryggt ásættanleg
gæði í lestrinum,“ segir Jónas Sig-
urgeirsson, bókaútgefandi hjá
Bókafélaginu.
Mikið líf er nú að færast í útgáfu
hljóðbóka á Íslandi. Sífellt fleiri
bækur eru hljóðritaðar samfara
auknum vinsældum þessa útgáfu-
forms og hafa margir útgefendur
ákveðið að sjá sjálfir um fram-
leiðslu hljóðbókanna í stað þess að
fela öðrum verkið. Áfram má þó bú-
ast við því að hljóðbækur komi út
einhverju síðar en prentuð útgáfa
þeirra.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá nýtur streymisveitan
Storytel sífellt vaxandi vinsælda.
Margir útgefendur hafa til þessa
framselt hljóðbókaréttinn til Story-
tel og þar með falið fyrirtækinu
gerð hljóðbóka. Það þýðir að Story-
tel á réttinn að upptökunni, sem
hugnast ekki öllum. Með því að sjá
sjálfir um framleiðsluna hafa þeir
yfirráðarétt yfir verkinu, geta til að
mynda selt það bæði á Storytel og
annars staðar kjósi þeir svo. Jónas
kom sér upp hljóðveri fyrr á árinu
og er hann með hljóðmann á sínum
snærum sem sér til þess að vandað
er til verka. „Hlustun á hlaðvörp og
hljóðbækur eykst hér á landi í
hverjum mánuði og óhætt að tala
um hljóðbyltingu. Það er augljóst
að hljóðbókum mun fjölga í framtíð-
inni enda eru enn stórir höfundar
sem aldrei hafa verið gefnir út á
hljóðbók,“ segir hann.
Pétur Már Ólafsson, útgefandi
hjá Bjarti/Veröld, segir í samtali við
Morgunblaðið að útgáfa hans hafi
fram til þessa selt frá sér hljóð-
bókarétt á bókum. Hér eftir verði
breyting á og muni forlagið gefa
hljóðbækur út sjálft og selja til
endursöluaðila. „Við ætlum að taka
sjálf stærri hluta af kökunni,“ segir
Pétur Már og endurspeglar þar af-
stöðu margra útgefanda sem Morg-
unblaðið hefur rætt við.
„Mér sýnist að ef fram fer sem
horfir muni hljóðbókaútgáfa aukast
til muna á næstunni,“ segir Gísli
Helgason, eigandi Hljóðbók.is sem
hefur um árabil gefið út hljóð-
bækur. Gísli kveðst fagna aukinni
útgáfu og segir jafnframt að
athyglisvert sé að margir höfundar
hafi sýnt því áhuga á að gefa bækur
sínar sjálfir út á hljóðbók.
„Stefnan er að reyna að auka
verulega við hljóðbókaútgáfu For-
lagsins enda hefur eftirspurn marg-
faldast á aðeins örfáum misserum.
Forlagið kom sér upp hljóðveri fyr-
ir tveimur árum sem hefur verið í
fullri notkun og við erum að undir-
búa að reisa annað hljóðver. Þannig
tvöföldum við upptökugetu okkar,“
segir Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins. Félagið
hefur boðið hljóðbækur sínar til
sölu í eigin hljóðbókaappi en jafn-
framt í áskrift hjá Storytel.
Hljóðbókahljóðver spretta víða upp
Aukin útgáfa samfara vinsældum hljóðbóka Útgefendur framleiða bækurnar sjálfir í stað þess að
fela Storytel verkið Taka þar með stærri hluta af kökunni „Hljóðbylting“ orðið á örfáum misserum
Morgunblaðið/Ómar
Upptaka Vinsældir hljóðbóka aukast hratt og hljóðverum fjölgar.
544 5151tímapantanir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir
ríkisstjórnarinnar ALLIR VINNA sem felur í sér
endurgreiðslu á VSK af vinnulið einkabifreiða
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Snarpur jarðskjálfti varð klukkan
stundarfjórðung yfir fjögur síðdegis
í gær og átti upptök sín 3,2 kílómetra
austur af Fagradalsfjalli. Skjálftinn
var 4,2 stig að stærð og fannst víða á
Suðvesturlandi.
Um stundarfjórðungi fyrir tvö í
gær varð annar jarðskjálfti af stærð-
inni 3,7 á Reykjanesi.
Sá átti upptök sín 2,9 kílómetra
austur af Fagradalsfjalli. Skjálftinn
varð á 7,2 kílómetra dýpi og fannst
hann víða á Suðurnesjum, höfuð-
borgarsvæðinu og Akranesi.
Yfir hundrað tilkynningar um
stærri skjálftann bárust Veðurstof-
unni en þegar blaðamaður ræddi við
náttúruvársérfræðing þar í gær
höfðu engar tilkynningar borist um
tjón, þótt hlutir hefðu skolfið í hillum
í Grindavík og brakað hefði í húsum.
Mikil jarðskjálftavirkni hefur ver-
ið við Fagradalsfjall undanfarinn
mánuð, en öflug jarðskjálftahrina
hófst þar 19. júlí. Ríflega 5.000
skjálftar hafa síðan mælst á svæðinu.
Verið mikið skjálftaár
Í tilkynningu frá Veðurstofunni er
þessi virkni sögð líklega af völdum
spennubreytinga vegna endurtek-
inna kvikuinnskota á Reykjanes-
skaga sem hófust í lok janúar á þessu
ári.
„Þetta hefur verið mikið skjálfta-
ár,“ sagði Fannar Jónasson, bæjar-
stjóri Grindavíkurbæjar, í samtali
við blaðamann eftir stærri skjálft-
ann. Hann fannst vel í Grindavík,
þótt Grindvíkingar hafi fundið fyrir
öflugri skjálftum á árinu.
Spurður hvort Grindvíkingar séu
orðnir öllu vanir jánkar Fannar því
en segir að stórir skjálftar sem þessi
venjist ekki. ragnhildur@mbl.is
Stór skjálfti á Reykjanesi
Bæjarstjóri segir að stórir skjálftar venjist ekki 4,2 stig
Lo
ft
m
yn
di
r e
hf
.
Jarðskjálfti við
Fagradalsfjall
Fagradalsfjall
Grindavík
Kefl avík
Njarðvík
Vogar
Hafnir
Sandgerði
Garður
4,2
Skjálfti að
stærð 4,2 kl.
16.15 í gær
Viðgerðir standa nú yfir á Þórshamri, listaverki Ás-
mundar Sveinssonar. Verkið er frá 1962 og er í eigu
Listasafns Reykjavíkur en það hefur verið í láni síðan
2007 hjá Listasafni Reykjanesbæjar. Verkið er ansi
veðurbarið að sögn Sveins Markússonar málmsmiðs, en
hann var fenginn til þess „lappa upp á“ verk Ásmundar
eins og hann segir sjálfur. „Það er orðið ryðgað á
nokkrum stöðum en er samt í merkilega góðu standi
miðað við aldur. Verkið er frá 1962 en svo er rekavið-
urinn í verkinu líklega eldri. Í raun veit enginn hvað
hann er gamall.“ Sveinn segir að bera þurfi olíu á við-
inn svo hann varðveitist betur.
Sigurður Traustason hjá Listasafni Reykjavíkur seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að ekki liggi fyrir hvar og
hvenær verkið verður sýnt næst. Þó séu allar líkur á að
verkið verði til sýnis í Reykjavík að lokinni viðgerð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Myndlist Sveinn Markússon, hér til vinstri, sýnir Viktori Smára Sæmundssyni skemmdir á Þórshamri.
Veðurbarið verk Ásmundar lagað
„Ákveðnum hlutum var svarað en
ekki öllum. Það þarf að skoða þetta
betur.“ Þetta sagði Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar,
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi um fund formanna stjórnar-
andstöðuflokkanna og nefndarmanna
í fjárlaganefnd, sem haldinn var í
Hörpu í gær.
Rætt var frumvarp til fjáraukalaga
þar sem heimild er lögð til handa ráð-
herra að veita Icelandair ríkisábyrgð
á lánum vegna tekjufalls fyrirtækis-
ins vegna faraldursins.
„Það er náttúrulega ágætt að fá
ýmsar upplýsingar um þetta stóra og
mikla mál. Eins og ég hef sagt er
ríkisábyrgð ekki sjálfgefin. Þess
vegna erum við að fjalla um þetta
gríðarlega mikilvæga fyrirtæki,“ seg-
ir Þorgerður. Fundurinn hafi verið
fyrsta tækifæri stjórnarandstöðunn-
ar til að fara yfir þetta mál, þótt málið
hafi verið í vinnslu síðan í apríl. Hún
segir að enn vanti frekari svör við
ýmsum spurningum, svo sem hvaða
sviðsmyndir blasi við ríkinu.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, segir að ljóst
sé að aðkomu ríkisins sé þörf til að
tryggja afkomu Icelandair. „Þetta er
mjög mikilvægt félag fyrir íslenskt
efnahagslíf. Það virðist þurfa þessa
aðkomu til þess að aðrir fjárfestar fá-
ist til þess að leggja inn hlutafé,“ segir
Sigmundur.
Hann telur að svörin sem fengust á
fundinum hafi verið prýðileg. „Samt
er ýmislegt sem ekki er hægt að svara
í þessu. Það er heilmikil óvissa um
hvernig þetta fer.“
Frumvarpið verður rætt á svoköll-
uðum þingstubbi sem hefst í dag.
petur@mbl.is
Ýmsum spurning-
um enn ósvarað
Fundað um ríkisábyrgð Icelandair
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Harpa Fundarhöld um ríkisábyrgð
Icelandair fóru fram í Hörpu í gær.