Morgunblaðið - 27.08.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 27.08.2020, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 - síðan 1986 - Skútuvogi 6 104 Reykjavík Sími: 568 67 55 alfaborg.is Síðumúli 35 (gengið inn að aftanverðu) - 108 Reykjavík - S. 568 3920 Opið 12.30-18.00 ÞÚ FIN N U R A LLT FYR IR Á H U G A M Á LIN H JÁ O K K U R pingpong.is pingpong.is ping ng.is pingpong.is ÞÚ FINNU ALLT FYRIR ÁHUGAM ÁLIN HJÁ O KKUR KÖRFUBOLTASPJÖLD po 20% afsláttur Oddur Þórðarson odduth@mbl.is Fimmfalt fleiri hafa farið í gegnum farsóttarhúsin á Rauðarárstíg og á Akureyri í yfirstandandi bylgju kór- ónuveirufaraldursins miðað við fyrri bylgju. Um 250 hafa nú dvalið bæði í einangrun og í sóttkví í farsóttar- húsum það sem af er seinni bylgju en aðeins um 50 manns dvöldu þar í fyrstu bylgjunni. Aðsókn í farsóttar- húsið er enn að aukast. Þetta segir Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjón- armaður farsóttarhúsanna, í samtali við Morgunblaðið. „Það hefur verið mun meira að gera í seinni bylgjunni en í þeirri fyrri. Nú koma hingað erlendir ferðamenn sem greinast jákvæðir á landamærum og svo eitthvað af Ís- lendingum sem ekki geta verið heima hjá sér í sóttkví og einangrun. Svo tökum við alla hælisleitendur sem koma hingað til lands í sóttkví. Þetta er aðskilið í Reykjavík, sóttkví í öðru húsinu og einangrun í hinu, en á Akureyri er þetta blandað. Eins og staðan er núna þá eru 18 í sóttkví og 18 í einangrun í Reykjavík og einn í einangrun á Akureyri.“ Vísa fólki ekki frá Gylfi segir ekki koma til greina að vísa fólki frá ef of mikið er að gera. Það verði einfaldlega að þjónusta þá sem leiti til farsóttarhúsanna. Starfsmenn Rauða krossins skipta með sér vöktum og vinna myrkr- anna á milli við að þjónusta gesti far- sóttarhúsanna. „Við erum fá og það er lítið sofið. Það voru hérna 55 í einu þegar mest lét og þá var auðvit- að gríðarlegt álag. Við fjölgum auð- vitað bara starfsólki ef þörf krefur. Það kemur bara ekkert annað til greina.“ Gylfi segir jafnframt að þrátt fyrir gríðarlega fjölgun gesta í húsinu séu sjálfboðaliðarnir færri. „Við erum átta starfsmenn hérna núna og erum með fjóra sjálf- boðaliða en þeir voru 40 í fyrri bylgj- unni. Sjálfboðaliðum hefur því fækk- að tífalt á sama tíma og fjöldi gesta fimmfaldaðist.“ Félagslegi þátturinn mikilvægur Þótt starfsmenn farsóttarhúsanna hlúi að veikum einstaklingum í ein- angrun í samvinnu við COVID- göngudeild Landspítala, þá sé ekki síður mikilvægt að hlúa að fé- lagslegum og andlegum þörfum gestanna. Dvölin í farsóttarhúsinu getur verið erfið þar sem fólki er al- farið bannað að fara út úr her- bergjum sínum meðan á dvöl stend- ur. Til eru dæmi þess að fólk hafi verið í um sex vikur í einangrun í sóttvarnahúsinu. „Við reynum bara að spjalla við fólk og vera létt í bragði. Þetta er skiljanlega gríðarlega erfitt fyrir fólk og við gerum allt sem við getum til þess að stytta því stundirnar,“ segir Gylfi. Hann segir jafnframt að andi meðal starfsfólks sé góður. „Enn sem komið er hefur hvorki starfsmaður né sjálfboðaliði smitast þannig að það er augljóslega merki um hversu vel er staðið að sótt- vörnum hérna. Andinn er góður og þá verða vinnubrögðin fagmannleg.“ Fjöldi í farsóttarhúsum fimmfaldast  Mikið álag á starfsmönnum  Ný einangrunar- hæð tekin í notkun Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sóttvarnir Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður Farsóttarhúsa, er bjartsýnn þótt álagið sé mikið. Alls dvelja nú 37 í sóttkví og einangrun í farsóttarhúsum. Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Umsjónarlæknir COVID-göngu- deildar landspítalans, Ragnar Freyr Ingvarsson, segir að vel hafi gengið undanfarið að hlúa að sjúklingum á deildinni. Aðeins hafi fjórir sjúklingar verið lagðir inn það sem af er seinni bylgju og enginn látist. Mikinn lærdóm hafi verið hægt að draga af fyrri bylgjunni sem nýttist í seinni bylgju, en ógætilegt væri að full- yrða að það stuðli að lægri dán- artíðni. Sex ný smit greindust hér á landi á þriðjudag og þrjú til við- bótar við landamæri. Einn er á sjúkrahúsi. Þegar hæst bar, 2. apríl, voru 44 samtímis á sjúkra- húsi vegna kórónuveirusmits. Degi áður, 1. apríl, voru flestir á gjörgæslu samtímis eða 14 manns. Um 115 manns hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús hér á landi frá upphafi faraldursins Dánartíðni almennt lág „Það hefur gengið bara ágæt- lega,“ segir Ragnar Freyr við blaðamann Morgunblaðsins þegar hann var spurður hvernig gengið hefði síðustu daga. „Það hafa ein- ungis fjórir þurft innlögn hjá okk- ur og bæði hefur gengið vel að hlúa að þeim líkt og þeim sem ekki þurftu innlögn en voru samt veikir.“ Ragnar segir að heilt yfir hafi tekist vel til á Íslandi að glíma við kórónuveiruna. „Dánartíðni hér á landi hefur verið lág miðað við annars staðar og við höfum náð að vernda sjúkrahúsin og gjör- gæsluna fyrir því að allt fyllist af sjúklingum.“ Vekur athygli erlendis Fjallað var um það í grein í Jo- urnal of Internal Medicine í júní hvernig íslenskt heilbrigðiskerfi tókst á við áskoranir tengdar kór- ónuveirunni. Ragnar Freyr kom að skrifum greinarinnar ásamt öðrum íslenskum læknum og sérfræðing- um og segir Ragnar að tímaritið sé virt meðal lækna og sérfræðinga í heilbrigðisgeiranum. Hann segir varasamt að fullyrða um að lægri dánartíðni á heims- vísu skýrist af því að heilbrigðis- starfsfólk sé orðið betra í að með- höndla smitaða sjúklinga. „Alla jafna er yngra fólk minna veikt, já, og yngra fólk smitast nú í meira mæli. Það þýðir samt ekkert endi- lega að færni heilbrigðisfólks skipti þar marktækum sköpum. Við erum vissulega orðin færari í að glíma við þessa veiru og vitum meira um hana en svo hefur dán- artíðni almennt bara verið lág á Íslandi. Bæði í fyrri bylgju og þeirri seinni.“ Verklagi ekki verið breytt Ragnar segir að þrátt fyrir að sjúklingar á COVID-göngudeild landspítalans hafi verið yngri í seinni bylgjunni miðað við þá fyrri þá hafi verklagi ekkert verið breytt. „Við erum í raun að með- höndla sjúklinga með sama hætti og áður og reynum áfram að sníða meðhöndlun sjúklinga að hverjum sjúklingi eins og hægt er. Það höf- um við alltaf gert og munum gera áfram.“ Heilt yfir gengið vel hér á landi frá upphafi  Margt hægt að læra frá fyrri bylgju  Einn á sjúkrahúsi Innanlands Landamæraskimun: Virk smit Með mótefni Beðið eftir mótefnamælingu Kórónuveirusmit á Íslandi Fjöldi jákvæðra sýna frá 15. júní til 25. ágúst 990 einstaklingar eru í sóttkví 2.082 staðfest smit 115 er með virkt smit Heimild: covid.is 19,6 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa júní júlí ágúst 205.935 sýni hafa verið tekin Þar af í landamæraskimun 119.216 sýni 20 15 10 5 0 Nýgengi smita innanlands: ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.