Morgunblaðið - 27.08.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.08.2020, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 DAÐI Regnjakkar kr. 11.990.- GARRI Jakki/Anorakkur Barnastærðir kr. 4.990.- GARRI Pollabuxur kr. 2.750.- GÍGUR Regnbuxur Barnastærðir kr. 4.990.- GÍGUR Regnbuxur kr. 6.990.- DÖGG Regnjakkar kr. 11.990.- BRIM Regnjakkar kr. 8.990.- PONCHO Regnslá kr. 1.990.- Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Eftir að hafa elst við snjókrabba í Barentshafi í nokkur ár tók Gísli Unnsteinsson strandveiðar við Ís- land föstum tökum í sumar. Hann kom að landi með rúmlega 46 tonn á báti sínum Steinunni ÁR 34, sem gerður er út frá Þorlákshöfn, og var aflahæstur á strandveiðunum. Hann lætur vel af þessum veiðiskap og seg- ir hann skipta miklu fyrir sjávarpláss hringinn í kringum landið. Ágætisgangur í veiðunum Gísli gerir út frá Þorlákshöfn og hóf strandveiðar þaðan í byrjun maí, reri frá Vestmannaeyjum frá miðjum júní fram í miðjan júlí og lauk vertíð- inni síðan frá Höfn í Hornafirði. Hann segir að ágætisgangur hafi verið í veiðunum og náði samtals 43 róðrum áður en skellt var í lás frá og með fimmtudeginum 20. ágúst. Frá þeim tíma voru strandveiðar bann- aðar þar sem viðmiðunarafla var náð í þorski. Þá hafði Gísli náð sjö róðr- um í ágústmánuði, en ekki ellefu eins og ýmsir aðrir. Mögulegt var að ná 47 róðrum í strandveiðum sumarsins og einn náði þeim róðrafjölda, en nokkrir voru með 46 róðra. Gísli var með mestan heildarafla á vertíðinni, samtals rúm 46 tonn og þar af um 35 tonn af þorski. Nokkrir voru með meiri þorskafla. Fram hefur komið að afla- verðmæti þeirra sem mest öfluðu getur hafa verið um tólf milljónir króna. „Það er bagalegt að frá lokum strandveiðanna verður báturinn bundinn fram yfir mánaðamótin þar sem við komumst ekki út úr strand- veiðikerfinu. Þó svo að veiðum sé lokið erum við bundnir í kerfinu og megum ekkert gera fyrr en í byrjun september,“ segir Gísli. Hann stefnir á að ná sér í leigukvóta og er að auki með smá byggðakvóta. Gísli hefur síðustu ár stundað strandveiðarnar hér við land sem aukabúgrein, en aðalvinna hans síð- ustu fimm árin hefur verið að stjórna 60 metra krabbaskipi norskrar út- gerðar og hefur verið sótt eftir snjó- krabba norður í Barentshaf, en krabbinn er veiddur í gildrur. Hann segir að árangurinn á þessum veið- um hafi verið misjafn og margar út- gerðir verið í mínus eftir veiðarnar. Meiri gangur og betri árangur hafi verið við veiðar á kóngakrabba með- fram ströndum Noregs. Flest nýtt um borð nema skelin „Núna er ég kominn heim og verð á handfærunum meðan ég hef gaman af,“ segir Gísli. Steinunn ÁR er tæp- lega 40 ára gamall Mótunarbátur, en Gísli segir að aldurinn segi ekki allt því báturinn hafi verið mikið endur- nýjaður og flest sé nýtt nema plast- skelin. Báturinn er rúmlega níu metra langur og hálfur þriðji metri á breidd, keyptur frá Hafnarfirði í vet- ur. Gísli segir gott að vinna um borð og vélin sé öflug. Um borð er Gísli með fjórar hand- færarúllur og segir skipta sköpum við vinnuna að hann er með svokall- aðar öngulvindur til að draga slóð- ann. Í þeim sé gífurleg hjálp við að draga fiskinn, en frá því að Gísli byrjaði á handfærum síðasta vetur er hann alls búinn að landa um 80 tonnum. Hann segir að í Noregi séu flestir færabátar búnir öngulvindum, en hér viti hann aðeins um einn auk sín. Gísli segir að strandveiðarnar skipti miklu máli fyrir sjávarpláss um allt land. Þær skapi vinnu fyrir sjómenn, hafnir, fiskmarkaði og fisk- vinnslufólk því að þó svo að fiskurinn sé oft keyrður í burtu frá löndunar- höfn sé hann unninn í húsum annars staðar. „Svo hafa þessir bátar mikið að- dráttarafl fyrir ferðafólk. Ég get tekið Hornafjörð sem dæmi, en ná- lægt höfninni eru 8-9 veitingahús og gríðarleg ferðamennska í eðlilegu ári. Þegar um 20 strandveiðibátar koma inn síðdegis til að landa hrúg- ast ferðamenn á bryggjurnar til að fylgjast með.“ Stýrir það ekki góðri lukku? Skipsnafnið Steinunn er ekki óal- gengt í íslenska flotanum, nefna má báta með þessu nafni frá Ólafsvík, Hornafirði og Hafnarfiði, en hvert sótti Gísli nafnið á sinn bát? „Nafnið er fallegt og í mínu tilviki er það sótt til mömmu minnar, stýrir það ekki góðri lukku? Mér finnst reyndar að bátar eiga að heita í höfuðið á eða eftir góðum eldri konum.“ Bátar beri nöfn góðra eldri kvenna  Tók strandveiðar af krafti og varð aflahæstur  Öngulvindur auðvelda störfin um borð í færabátum  Lokaðir inni í kerfinu þó svo að tímabilinu sé lokið  Hafði verið á snjókrabbaveiðum við Noreg Ljósmyndir/Örn Arnarson Aflakló Gísli Unnsteinsson hyggst stunda handfæraveiðar meðan hann hefur gaman af. Steinunn ÁR Báturinn er mikið endurnýjaður og hefur reynst Gísla vel. Í ár lönduðu alls 668 strand- veiðibátar, en þeir voru 619 í fyrra. Meðalafli á bát nam tæp- lega 17,7 tonnum, sem er 1,3 tonnum meira en í fyrra. 494 bátar fengu meira en 10 tonn. Sex bátar fiskuðu meira en 40 tonn:  Steinunn ÁR 34 - 46,1 tonn í 43 róðrum.  Jónas SH 237 - 45,5 tonn í 45 róðrum.  Nökkvi ÁR 101 44,5 tonn í 44 róðrum.  Hrafnborg SH 182 - 43,8 tonn í 41 róðri.  Kolga BA 70 - 43,2 tonn í 45 róðrum.  Sigrún Hrönn ÞH 36 - 40,1 tonn í 46 róðrum. Sex fengu yfir 40 tonn FLEIRI Á STRANDVEIÐUM Morgunblaðið/RAX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.