Morgunblaðið - 27.08.2020, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Boris Johnson, forsætisráðherra Bret-
lands, og Jens Stoltenberg, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbandalags-
ins, bættust í gær í hóp annarra
leiðtoga á Vesturlöndum, sem kallað
hafa eftir rannsókn á máli Alexeis Na-
valní, eins helsta leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar í Rússlandi, sem liggur enn
á sjúkrahúsi í Berlín eftir að hann féll í
dá í síðustu viku.
Rússnesk stjórnvöld segja að ekki
hafi verið staðfest hver orsök meina
Navalnís sé, en læknar við þýska Cha-
rite-spítalann í Berlín segja að eitrað
hafi verið fyrir honum, en ekki er vitað
nákvæmlega með hvaða efni. Sagði
Stoltenberg í gær að engin ástæða
væri til að draga þær niðurstöður í efa.
„Það sem þarf nú er gagnsæ rann-
sókn til að komast að því hvað gerðist
og til að tryggja að þeir sem beri
ábyrgðina svari til saka,“ sagði Stol-
tenberg í gær.
Boris Johnson tók í sama streng.
„Við þurfum gagnsæja heildarrann-
sókn á hvað gerðist. Þeir seku verða að
bera ábyrgð og Bretland mun taka
þátt í kalli alþjóðasamfélagsins til að
tryggja að réttlætið nái fram að
ganga,“ sagði Johnson.
Yfirlýsing Johnsons mun líklega
ekki verða til að bæta samskipti Bret-
lands og Rússlands, en þau hafa verið
stirð frá árásinni á fyrrverandi gagn-
njósnarann Sergei Skrípal og dóttur
hans í Salisbury árið 2018, en Bretar
hafa sakað rússnesk stjórnvöld um að
hafa staðið að henni.
Nota sama lyf við meðferðina
Stjórnvöld í Rússlandi hafa hafnað
niðurstöðum þýsku læknanna og sagt
þær ótímabærar, en þeir segjast hafa
fundið leifar af efnum, sem hafa meðal
annars verið nýtt í framleiðslu efna-
vopna, lyfja og skordýraeiturs.
Læknarnir munu hafa gefið Navalní
móteitrið atrópín, en það er sama efni
og læknar í Bretlandi notuðu til að
bjarga lífi Skrípal-feðginanna fyrir
tveimur árum.
Þrýsta á Rússa um rannsókn
Stoltenberg segir enga ástæðu til að efast um niðurstöðu lækna í máli Navalnís
AFP
Navalní Jens Stoltenberg ræðir við
fjölmiðla um Navalní-málið í gær.
Íbúar í Texas og Louisiana-ríki sem búa á mögu-
legum flóðasvæðum negldu fyrir glugga og
bjuggu sig undir brottför frá heimilum sínum, þar
minnst 25 manns dáið vegna bylsins. Vindhraði
fellibylsins mældist um 150 km/klst. og vöruðu
veðurfræðingar við að hann myndi aukast.
sem gert var ráð fyrir að fellibylurinn Laura
myndi ganga á land. Fellibylurinn hefur nú þegar
valdið miklum usla á Karabíska hafinu og hafa
AFP
Búa sig undir að fellibylurinn Laura gangi á land
Melania Trump,
forsetafrú
Bandaríkjanna,
vakti nokkra at-
hygli með ræðu
sinni á lands-
fundi Repúblik-
anaflokksins í
fyrrinótt. Sló hún
þar annan tón en
eiginmaður
hennar, Donald
Trump Bandaríkjaforseti, hefur
gert til þessa í kosningabaráttunni.
Beindi Melania meðal annars
orðum sínum að þeim sem misst
hafa ástvini sína í kórónuveiru-
faraldrinum og rifjaði upp sína eig-
in sögu sem innflytjandi í Banda-
ríkjunum. Hvatti hún þá einnig
bandarísku þjóðina til þess að
reyna að yfirstíga þau vandamál
sem komið hefðu upp á í sam-
skiptum ólíkra kynþátta vestanhafs
í sumar. „Við getum lært svo mikið
hvert af öðru,“ sagði Melania m.a.
Gerður góður rómur
að ræðu Melaniu
Melania
Trump
BANDARÍKIN
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is
Recep Tayyip
Erdogan Tyrk-
landsforseti hét
því í gær að
Tyrkir myndu
ekki láta undan
þrýstingi um að
þeir hættu við að
kanna nátt-
úruauðlindir í
hafinu undan
ströndum Kýpur,
þrátt fyrir að Evrópusambandið
hafi krafist þess.
Grikkir, Kýpverjar, Frakkar og
Ítalir hófu í gær sameiginlega flota-
æfingu á austurhluta Miðjarðar-
hafs, degi eftir að tyrkneski flotinn
ákvað einnig að halda heræfingu á
sömu slóðum.
Þýsk stjórnvöld hafa boðist til
þess að miðla málum í deilu Grikkja
og Tyrkja og hafa stjórnvöld í Ank-
ara sagt að þau gætu fellt sig við
það, ef tryggt sé að viðræðurnar
verði „sanngjarnar“ gagnvart
Tyrklandi og án skilyrða.
TYRKLAND
Tyrkir munu ekki
„gefa neitt eftir“
Recep Tayyip
Erdogan
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðirALVÖRU
VERKFÆRI
145
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
vfs.is