Morgunblaðið - 27.08.2020, Qupperneq 28
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Áform breskra stjórnvaldaum byggingu kjarn-orkuvers við Sizewell íSuffolk-sýslu á austur-
strönd Englands hafa vakið spurn-
ingar um kjarnorku sem orkugjafa
og stöðu þeirra mála í okkar heims-
hluta. Stofnun Kjarnorkubandalags
Evrópu árið 1957 lagði grunninn að
notkun kjarnorku í álfunni. Kjarn-
orka er notuð í mörgum aðild-
arríkjum Evrópusambandsins
(ESB) og hefur framkvæmdastjórn-
in strangt eftirlit með notkun henn-
ar á grundvelli kjarnorku-
bandalagssáttmálans (e. Euratom
Treaty). Hverju ríki er þó frjálst að
ákveða hvort það noti kjarnorku.
Um 28 prósent raforku innan
ESB kemur frá kjarnorkuverum
samkvæmt tölum frá 2018. Dregið
hefur úr notkun hennar um nær
fimmtung á síðasta áratug. Af 27
núverandi aðildarríkjum ESB eru
13 með kjarnorkuver, Belgía, Búlg-
aría, Tékkland, Þýskaland, Spánn,
Frakkland, Ungverjaland, Holland,
Rúmenía, Slóvenía, Slóvakía, Finn-
land og Svíþjóð. Samtals munu um
109 kjarnaofnar vera í notkun í
þessum löndum. Hlutur Frakklands
er stærstur; þar er framleiddur um
helmingur allrar kjarnorku í álf-
unni. Ný kjarnorkuver eru í bygg-
ingu í þremur ESB-löndum, Finn-
landi, Frakklandi og Slóvakíu.
Tvö ESB-ríki til viðbótar, Dan-
mörk og Ítalía, notast einnig við
kjarnorku sem orkugjafa en hún
kemur utanlands frá. Ítalir ráku
kjarnorkuver fram til 1990 en
hættu því eftir að kjósendur höfn-
uðu áframhaldandi rekstri þeirra í
þjóðaratkvæðagreiðslu 1987. Verið
er að byggja kjarnorkuver í þremur
Evrópulöndum utan ESB, Rúss-
landi, Hvíta-Rússlandi og Tyrk-
landi.
Kjarnorkuver eru í 30 ríkjum
heims en aðeins í fjórum þeirra,
Frakklandi, Slóvakíu, Úkraínu og
Ungverjalandi, er hún megin-
orkugjafinn. Bandaríkin framleiða
mest af kjarnorku eða um 30 pró-
sent allrar kjarnorku í heiminum.
Þar eru um hundrað kjarnaofnar í
30 sambandsríkjum. Þeir framleiða
um fimmtung allrar raforku í land-
inu. Kínverjar hafa lagt áherslu á
byggingu kjarnorkuvera og hafa
staðið fyrir miklum framkvæmdum
á síðustu árum. Einnig er mikill
uppgangur á þessu sviði á Indlandi,
í Rússlandi og Suður-Kóreu.
Kjarnorkuverum fylgir áhætta
Kjarnorkuframleiðslu fylgir afar
lítil losun gróðurhúsalofttegunda og
hún er því mun vistvænni en raf-
magn sem framleitt er með bruna
jarðefnaeldsneytis. Í kjarn-
orkuverum er keðjuverkandi
kjarnaklofnun notuð til að framleiða
gufu sem síðan er látin knýja
hverfla sem búa til rafmagn. Kjarn-
orkuverum fylgir hins vegar áhætta
vegna mögulegrar geislamengunar.
Ef kjarnorkuver bila þá geta afurð-
ir kjarnaklofnunar borist út í um-
hverfið og þeir sem komast í tæri
við þær verða fyrir geislun. Sum að-
ildarríki ESB telja ókosti kjarnork-
unnar vega þyngra en kostina og
eru því andsnúin nýtingu hennar.
Þannig hefur Þýskaland markað þá
stefnu að hætta að nota kjarnorku
og stefnir að því að loka öllum
kjarnorkuverum sínum. Í landinu
voru 17 kjarnaofnar en slökkt hefur
verið á 8 þeirra. Stefnt er að því að
öllum verunum hafi verið lokað í
árslok 2022. Í staðinn leggja Þjóð-
verjar áherslu á aukna notkun sól-
ar- og vindorku. Enn er þó notast
mikið við kol til orkuframleiðslu í
landinu og eru Þjóðverjar stærstu
notendur kola í því skyni í heim-
inum.
Þegar kjarnorkuver komu fyrst
til sögunnar á sjötta áratug síðustu
aldar ríkti nokkur bjartsýni á fram-
tíð þeirra sem lausnar á orkuvanda
heimsins. Yfirleitt var rætt um þau
í jákvæðum tón. Það breyttist með
kjarnorkuslysunum í Three Mile
Island 1979, Chernobyl 1986 og Fu-
kushima 2011. Almenningsálitið
varð víða andsnúið kjarnorkunni og
tvær grímur runnu á stjórnvöld og
stjórnmálamenn um heim allan. En
þessar stöðvar voru allar komnar til
ára sinna og síðan hafa kröfur til
kjarnorkuvera og öryggisráðstaf-
anir við rekstur þeirra aukist stór-
lega. Enn hafa menn þó áhyggjur af
afleiðingum hugsanlegrar hryðju-
verkaárásar á kjarnorkuver auk
áhrifa náttúruhamfara, og enn eru
efasemdir um ágæti kjarnorkunnar
mjög áberandi í opinberum um-
ræðum. Þá er vaxandi umræða um
kjarnorkuúrgang sem er óhjá-
kvæmilegur fylgifiskur starfsem-
innar. Ekki er langt síðan skýrt var
frá því að Finnar byggju sig undir
að geyma geislavirkan úrgang úr
kjarnorkuverum sínum í djúpum
neðanjarðargöngum á lítilli grænni
eyju. Var talið að hægt yrði að
geyma hann þar í allt að 100.000 ár.
Svipaðar leiðir hafa verið farnar í
öðrum löndum en margir hafa þó
áhyggjur af geislavirkum lekum frá
þessum urðunarstöðum.
Kjarnorkuver í bygg-
ingu í 7 Evrópuríkjum
Kjarnorkuver starfrækt eða í byggingu í Evrópu
Kjarnorkuver starfrækt eða í byggingu
í löndum ESB í febrúar 2020
ESB-ríki án kjarnorkuvera
Lönd utan ESB þar sem kjarnorkuver
eru starfrækt eða eru í byggingu
Lönd utan ESB án kjarnorkuvera
H
e
im
ild
: W
o
rl
d
N
u
c
le
a
r
A
ss
o
c
ia
ti
o
n
ÍSLAND
ÍRLAND
BRETLAND
PO
RT
ÚG
AL
PO
RT
ÚG
AL
DANMÖRK
TÉKKLAND
AUSURRÍKI
HVÍTARÚSSLAND
SV
ÍÞ
JÓ
Ð
PÓLLAND
FRAKKLAND
RÚMENÍA
GRIKKLAND
NOREGUR
ÍTALÍA
ÞÝSKALAND ÚKRAÍNA
FINNLAND
SVISS
SPÁNN
TYRKLAND
RÚSSLAND
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Greint var fráþví í gær aðrík-
isstjórnin hefði
samþykkt að rétt-
ur til tekjutengdra
atvinnuleysisbóta
lengdist úr þremur
mánuðum í sex mánuði og að
hlutabótaleiðin yrði framlengd
um tvo mánuði. Þá verði
greiðslur vegna einstaklinga
sem sæta þurfa sóttkví fram-
lengdar til loka næsta árs.
Þessar aðgerðir endurspegla
þann erfiða efnahagsveruleika
sem Ísland, líkt og flest önnur
ríki, glímir nú við vegna
kórónuveirufaraldursins.
Ákvörðun Seðlabankans í
gær um að halda vöxtum í 1%
endurspeglar einnig þennan
veruleika og í riti bankans,
Peningamálum, sem kom út
samhliða ákvörðuninni, má lesa
um þessa alvarlegu stöðu. Þar
kemur fram að landsfram-
leiðslan á öðrum fjórðungi árs-
ins hafi dregist saman um 13%
á milli ára, sem sé mesti sam-
dráttur frá upphafi mælinga.
Þá segir að horfur fyrir seinni
hluta ársins hafi versnað miðað
við spá bankans í maí enda hafi
faraldurinn víða færst í
aukana.
Gert er ráð fyrir að lands-
framleiðslan á
árinu í heild drag-
ist saman um rúm
7%, sem er heldur
minni samdráttur
en spáð var í maí. Í
Peningamálum
segir að atvinnu-
leysi hafi ekki aukist eins mikið
og óttast hafi verið í maí og er
hlutabótaleiðinni þakkað það,
auk minnkandi atvinnuþátt-
töku og fjölgun hlutastarfa. Því
er þó spáð að fram undan sé
vaxandi atvinnuleysi og að það
nái hámarki í um 10% undir lok
ársins. Þessi spá er verulegt
áhyggjuefni en kemur ekki á
óvart því að útlit er fyrir all-
nokkrar uppsagnir um næstu
mánaðamót og hætt við að
haustið verði mörgum erfitt,
fólki jafnt sem fyrirtækjum.
Þær aðgerðir sem stjórnvöld
hafa kynnt eru skiljanlegar í
ljósi ástandsins og verða von-
andi til þess að draga úr erfið-
leikunum. Þær eru þó aðeins
skammtímaaðgerðir, til þess
ætlaðar að brúa erfiðan tíma.
Um leið er brýnt að hugað sé
að því að skapa atvinnulífinu
hagstæðari skilyrði til lengri
tíma svo það geti sem fyrst haf-
ið uppbyggingu með verð-
mætasköpun, vexti og fjölgun
starfa.
Ríkisstjórnin hefur
kynnt ráðstafanir
sem binda verður
vonir við að létti
mörgum róðurinn}
Aðgerðir á
erfiðum tímum
Deila Grikkjaog Tyrkja um
náttúruauðlindir
undan ströndum
Kýpur harðnar
enn. Báðar þjóðir
hafa nú hafið flotaæfingar á
austurhluta Miðjarðarhafs,
svo til á sama tíma og á sama
stað. Slíkt býður hættunni
heim, en herskip þjóðanna
tveggja lentu í árekstri í þar-
síðustu viku, sem varð ekki
til þess að róa taugar neins.
Recep Tayyip Erdogan
Tyrklandsforseti hefur heitið
því að hann muni ekki gefa
einn þumlung eftir af kröfum
Tyrkja á hafsvæðinu um-
hverfis Kýpur, jafnvel þótt
Evrópusambandið hafi gefið
til kynna að það muni standa
með aðildarþjóðum sínum,
Grikklandi og Kýpur, gegn
ásælni Tyrkja.
Staðan er að sönnu graf-
alvarleg, og hafa grískir þing-
menn jafnvel gefið til kynna,
að styrjöld við Tyrki verði
ekki umflúin, láti þeir ekki af
tilraunum sínum til þess að
leggja undir sig auðlindir
sem með réttu tilheyri öðr-
um. Það flækir stöðuna að
Tyrkland er eitt af 15 ríkjum
sem viðurkennir
ekki hafréttar-
sáttmála Samein-
uðu þjóðanna, né
heldur alþjóða-
dómstólinn í
Haag, en hvort tveggja væri
hægt að nýta til þess að leysa
deiluna friðsamlega.
Þýsk stjórnvöld hafa því
séð sig tilneydd að reyna að
stíga inn í og forða frekari
árekstrum á milli Grikkja og
Tyrkja. Þýski utanríkisráð-
herrann Heiko Maas hefur
því síðustu daga flogið á milli
höfuðborganna að fordæmi
Kissingers gamla og reynt að
ýta á eftir viðræðum milli
ríkjanna. Tyrkir hafa sagt að
þeir gætu fellt sig við þýska
milligöngu, sé það tryggt að
engin skilyrði fylgi, en Grikk-
ir hafa verið ófúsir til þess að
ræða við Tyrki nema þeir láti
þegar í stað af rannsóknum
sínum á orkuauðlindum í
austurhluta Miðjarðarhafs.
Og þar liggur hundurinn
grafinn, því báðir aðilar telja
sig í rétti á sama tíma og
þjóðarstolt beggja ríkja hefur
verið sett að veði. Í slíkum
aðstæðum þarf ekki mikið til
að illa fari.
Hvernig á að ná
sáttum þegar hvor-
ugur vill gefa eftir?}
Heræfingar auka spennuna
N
ú hefur önnur aðgerðaáætlun um
framkvæmd heilbrigðisstefnu
verið lögð fram á Alþingi. Áætl-
unin gildir fyrir árin 2021-2025
og á sér stoð í þingsályktun um
heilbrigðisstefnu til ársins 2030 en samkvæmt
heilbrigðisstefnu skal uppfærð aðgerðaáætlun
til fimm ára lögð fyrir þingið ár hvert. Áætlunin
er tengd við fjárlagavinnu Alþingis á hverjum
tíma og tekur mið af helstu áskorunum og
áhersluverkefnum í heilbrigðismálum. Um
fjórðungur fjárheimilda ríkissjóðs rennur til
heilbrigðismála svo mikilvægt er að forgangs-
raða fjármunum til málaflokksins þannig að
þjónustan verði sem öflugust fyrir okkur öll.
Í aðgerðaáætluninni eru sett fram þau
meginmarkmið að kaup á heilbrigðisþjónustu
tryggi að fjármunum sé varið til þeirrar þjón-
ustu sem mest er þörf fyrir á hverjum tíma, að nýtt þjón-
ustutengt fjármögnunarkerfi verði tekið í notkun fyrir op-
inber sjúkrahús og sambærilega einkarekna þjónustu, að
nauðsynlegar kröfur séu gerðar um aðgengi, gæði og ör-
yggi sjúklinga og að notendur heilbrigðisþjónustu hafi gott
aðgengi að upplýsingum til að taka upplýstar ákvarðanir
um val á heilbrigðisþjónustu. Að lokum eru tilgreind meg-
inverkefni til að ná þeim markmiðunum sem lýst er í áætl-
uninni.
Aðgerðaáætlunin hefur verið send stjórnendum stofn-
ana sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið og starfsáætl-
anir stofnana fyrir árið 2021-2022 ættu að endurspegla
hana. Einnig hefur starfsáætlun heilbrigðis-
ráðuneytisins fyrir árið 2020 verið birt. Mark-
visst starf heilbrigðisstofnana landsins og far-
sæl innleiðing embættis landlæknis á
gæðaáætlun í heilbrigðisþjónustu er lykillinn
að árangursríkri innleiðingu þessarar fimm
ára aðgerðaáætlunar.
Í samræmi við fyrri aðgerðaáætlun heil-
brigðisstefnu, fyrir árin 2019 –2023, og mark-
mið heilbrigðisstefnu hefur á síðustu misserum
verið unnið að því að skýra ákveðna grunn-
þætti innan heilbrigðiskerfisins. Þegar hafa
verið gerðar breytingar á löggjöf um heilbrigð-
isþjónustu í þessu skyni og hún samræmd heil-
brigðisstefnu þannig að löggjöfin er nú skýrari
og afdráttarlausari um hlutverk heilbrigðis-
stofnana og þeirra sem veita heilbrigðisþjón-
ustu. Efnt var til heilbrigðisþings í fyrra þar
sem hófst undirbúningur að gerð þingsályktunartillögu
um þau siðferðilegu gildi sem hafa skuli að leiðarljósi við
forgangsröðun í íslenskri heilbrigðisþjónustu og var þings-
ályktunin samþykkt á Alþingi í júní síðastliðnum. Stefnt er
að því að boða einnig til heilbrigðisþings síðar á þessu ári.
Nú hafa ný áhersluverkefni og markmið í heilbrigð-
ismálum verið skilgreind í hinni nýju aðgerðaáætlun og
þar með tökum við fleiri mikilvæg skref í því stóra verk-
efni að koma heilbrigðisstefnu til ársins 2030 til fram-
kvæmda.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Aðgerðaáætlun til fimm ára
Höfundur er heilbrigðisráðherra
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen