Morgunblaðið - 27.08.2020, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 27.08.2020, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30 Gott úrval af gæðakjöti Úrvals hamborgarar með brauði Sósur, krydd og marineringar „Þjóðin á eftir að elska þennan“ Þær stórfréttir bárust á dögunum að von væri á fjórum nýjum konfektmolum frá sælgætisframleiðandanum Nóa Síríusi. Eins og vænta mátti voru viðbrögðin við þessum fregnum mikil og tróndi fréttin á toppnum yfir mest lesnu fréttir dagsins á mbl.is. Molarnir eru fjórir talsins og hver öðrum ólíkari. Molarnir koma í stað ann- arra mola og segja má að við þessa breyt- ingu þéttist konfektlína Nóa Síríus til muna. Molarnir eru afskaplega afgerandi og það er nákvæmlega ekkert leiðinlegt eða óspennandi við þá. Fjórar stjörnur sem vert er að taka eftir. Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Við fengum fimm álitsgjafa okkur til aðstoðar enda marg- slungin vísindi að smakka mat. Álitsgjafarnir voru Stefán Einar Stefánsson, ritstjóri ViðskiptaMoggans, Guðlaug Sigurðardóttir, framleiðslustjóri Morgunblaðsins, Steinþór Guðbjartsson, blaða- maður á Morgunblaðinu, Elín Arnórsdóttir, grafískur hönnuður, og Kristín Sif Björgvinsdóttir, dagskrárgerðarkona á K100. Molinn kemur úr uppskriftabók eins verkstjórans sem blandaði iðullega saman kókos og marsípani í konfektmola fyrir starfsmenn til hátíðabrigða um jólin. Molinn hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá starfsfólki og nú fær þjóðin loks að njóta með. „Þetta er klassískur Nóa Síríus-moli útlitslega. Mar- sípan/kókosfyllingin er hins vegar algjört meist- araverk, létt en mjúk og þétt og í góðu jafnvægi við súkkulaðið. Kókos- bragðið kemur fyrst fram en síðan tekur við fínlegt marsínpanbragð. Fyrir minn smekk var þetta langbesti molinn af þessum fjórum. Hann er mjög „elegant“ og hentar við öll tækifæri. „Kókosblandaða marsípanið er léttara en hefðbundnir marsípanmolar.“ „Marípanmolinn tekinn á næsta level. Kókosinn blandaður við marsípanið gerir hann líflegri og mann langar í meira.“ „Hættulega góður moli. Virkilega góð blanda.“ „Krembrauð með kókos og marsípani. Blanda sem ég hef ekki látið mér detta í hug áður en er skemmtileg. Elska marsípan en þetta er sannarlega léttara og ekki eins „olíu- kennd“ áferð eins og oft verður af hreinni marsípanfyllingu.“ „Ægilega góður. Marsípanið verður miklu betra með kókos- inu. Miklu betri en venjulegur marsípanmoli. Léttur í maga.“ „Marsípanið kemur fyrst sterkt fram og svo tekur kókos- bragðið við. Fullkomin blanda.“ Kókosmarsípanmolinn Skuggalega fagur moli með tilkomumiklum hrafni á. Molinn er svar Nóa Síríus við ákalli þjóðar- innar en lengi hefur verið beðið eftir lakkrísmola. „Í mola sem skartar hrafni á steini og krákusporum á hliðum hlýtur að vera lakkrís- fylling, sem var raunin. Sæt saltlakkrís- fyllingin höfðar til margra enda hefur lakkrís verið geysivinsæll hin síðari misseri.“ „Háklassa moli.“ „Vel balanseraður og stingur vel á tungubroddinn.“ „Mjúk lakkrísfylling sem er bæði sölt og sæt. Virkilega gott jafnvægi. Liturinn á fyllingunni kom á óvart.“ „Besti lakkrísmoli sem ég hef smakkað. Salt- ur og góður, rjómakenndur og mjúkur í munni.“ „Lakkrís og súkkulaði klikkar aldrei. Hóflegt salt í bland við lakkrísinn. Bitinn er í sætara lagi, jafnvel væminn en það kemur ekki að sök. Dálítil vonbrigði að fyllingin væri ekki svört eins og krummi en kannski er gert ráð fyrir að fólk borði molann í einum bita. Lagið á molanum er mjög skemmtilegt og er á pari við stuðlabergsmyndanirnar á Ís- landsmolanum sem alltaf kæta augað.“ „Þjóðin á eftir að elska þennan.“ Hrafnamolinn Molinn inniheldur gamla uppskrift að rjómatrufflu frá því að verksmiðjan var á Barónsstíg, sem fannst við undirbúning 100 ára afmælissýningar Nóa Síríus fyrr á árinu og var ákveðið að setja í konfektmola. „Mild rjómakaramellufyllingin er fínleg og nýtur sín vel með ljósu súkkulaðinu. Molinn státar af merki Nóa Sírus á toppnum en á hliðunum eru fínlegar blómarist- ur. Í eftirbragðinu leynist grunur um líkjör eða romm.“ „Góður konfektmoli sem passar við öll tækifæri. Skemmtilegt auka- bragð sem gerir gæfumuninn.“ „Vandaður og lágstemmdur moli. Á vel við með flestu. Trufflan passlega mjúk og dásamleg.“ „Skemmtileg og tilgerðarlaus rjómatruffla. Ekki of sæt og jafnvægið í bragðinu gott. Undarlega léttur romm-undirkeimur sem hvílir vel í eftirbragðinu.“ „Virkilega góður rjómasúkkulaði- moli með smá rommbragði. Það er allavega einhver spennandi tónn sem gefur gott eftirbragð.“ „Þetta er moli fyrir alla. Hann er mjúkur og notalegur. Virki- lega góður kaffibollamoli. Smá nostalgía í honum en útfærslan alveg til fyrirmyndar.“ Nóa Síríus-molinn Fagurlega skreyttur með klassísku laufabrauðsmynstri. Fyllingin varð óvart til þegar ungur starfsmaður blandaði tveimur fyllingum saman fyrir algjöra tilviljun. Úr varð þessi gómsæta fylling sem vakti mikla lukku innanhúss og búið er að spara fyrir rétta tilefnið. „Bragðið spilar virkilega vel saman. Sætt og gott eftir- bragð.“ „Virkilega góður moli. Karamellan er fljótandi með mildu kókos- og jafnvel vanillubragði.“ „Skemmtileg útfærsla á laufabrauðsmynstri prýðir molann. Það eitt og sér ger- ir hann spennandi. Fyllingin margslungin, keimur af kókos og vanillu. Bragðið er flókið en tónar vel saman. Fyllingin er dísæt en bragðlítið súkkulaðið tónar sætubragðið aðeins niður. Þennan mola þarf að borða í heilu lagi því fyllingin lekur út sé bitið í hann.“ „Léttur og góður karamellumoli. Karamellan hvorki of þung né of sæt. Dálítill „cool kid on the block“ fílíngur.“ „Guði sé lof fyrir þennan Viggó viðutan sem ruglaði bragð- tegundunum.“ „Fallegur moli og munstrið klassískt og jafnvel dálítið gam- aldags. Kókoskaramellan er skemmtileg nýjung. Karamellan kemur sterk inn fyrst og kókosinn er jafnvel dálítið feiminn. Kemur þó betur í ljós í millibragðinu. Karamellan alls ekki brennd eða þung. Létt og skemmtileg blanda.“ Laufabrauðsmolinn Vantar þig pípara? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.