Morgunblaðið - 27.08.2020, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 27.08.2020, Qupperneq 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 Fyrst og síðast munum við minnast Evu sem elskulegrar tengdadóttur, eiginkonu og móður. Þá var samband hennar við foreldra sína og systur ein- stakt. Það er nú ómetanlegur styrkur fyrir Gunnlaug, Þor- geir Viðar og Þrúði Júlíu að njóta nærveru þeirra og stuðn- ings. Slík fjölskyldubönd eru ekki sjálfsögð en hér eru þau sterk og gefandi og bera fjöl- skyldu Evu fagurt vitni. Við biðjum nú góðan Guð að styrkja Gunnlaug, Þorgeir Við- ar og Þrúði Júlíu, foreldra Evu og systur og þeirra fjölskyldur og okkur öll sem þótti svo vænt um Evu. Megi ljós minninganna um Evu nú vísa okkur fram á veginn. Þorgeir og Guðrún Erla. Fallega og yndislega mág- konan mín, Eva Björg Skúla- dóttir, er fallin frá í blóma lífs- ins. Það er margt sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til baka. Sú stund er ég kom inn í hennar dásamlegu og sam- heldnu fjölskyldu. Er ég kynnt- ist eiginkonu minni Hófý, syst- ur Evu. Minnisstæðar eru allar ferðirnar sem Eva kom á Dal- vík frá Akureyri til að djamma, snjóaveturinn 1995. Mikið lagði hún á sig til að komast úteftir, oft með miklu brasi. Einnig allar sumarbústaða- ferðirnar og svona mætti lengi telja um það sem við höfum brallað saman. Eftir að Eva kynntist Gulla sínum, og þau eignuðust Þorgeir Viðar og Þrúði Júlíu, höfum við átt margar góðar stundir saman. Ekki síst í sannkölluðum sælu- reit fjölskyldunnar yfir í heiði. Þar sem stórfjölskyldan dvelur mikið saman. Eva var einstök manneskja, hjartahlý, róleg og yfirveguð. Við fráfall Evu er stórt skarð höggvið í fjölskyldu Skúla og Nunnu, það vita þeir sem hana þekkja. Eva átti marga góða vini, sem er dýrmætt, ekki síst innan LC þar sem hún var fljótt kom- in á hæsta pall, var landsforseti 2018-2019. Sem sýndi hve klár hún var, og einnig mikill leið- togi. Það var aðdáunarvert að fylgjast með því allt frá því að hún veiktist, hvernig hún tókst á við verkefnið. Það var ekki annað hægt en að dást að styrk hennar og jákvæðni. Það er alltaf sárt að missa góða vini og aldrei finnst manni það tímabært. En vegir guðs eru órannsk- anlegir. Evu Bjargar Skúladóttur verður svo sannarlega saknað. Gulli, Þorgeir Viðar og Þrúð- ur Júlía. Megi guð góður gefa ykkur allan þann styrk sem hugsast getur til að takast á við þá miklu sorg sem framundan er. Ég sendi fjölskyldu og vinum Evu mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Evu Bjargar Skúladóttur. Tryggvi Kristjánsson. Hafðu þökk fyrir öll þín spor. Það besta, sem fellur öðrum í arf, Er endurminning um göfugt starf. (Davíð Stefánsson) Það er þyngra en tárum taki að hripa niður þessar fátæklegu línur, nokkur minningarorð um hana Evu Björgu. Eva frænka mín var bara 44 ára gömul þegar hennar stóra hlutverki meðal okkar var lokið, ung falleg ofurkona. Ég passaði þessa skottu og systur hennar þegar þær voru litlar, árin liðu, við vorum alltaf frænkur, systkinabörn, þótt samverustundir tengdust aðal- lega fjölskylduviðburðum. Þeg- ar foreldrar lifa börn sín finnst mér óréttlæti heimsins hvað mest. Ég fylgdist alltaf með Evu, ég vissi að henni voru ekki út- hlutuð auðveld verkefni til að kljást við. Erfið liðagigt sem lít- il stelpa, lyfjagjafir og aðrar meðferðir auðvelduðu ekki barni, unglingi og ungri konu lífið, en Eva tæklaði þau eins og henni einni var lagið með styrk- leika sínum, jákvæðni, ákefð og gleði. Það var svo í lok síðasta árs sem Eva fékk aukaverkefni, eins og það væri það sem hana vantaði. Hún var samt valin. Það eru nefnilega ekki allir sem ráða við erfiðu verkefnin í líf- inu, það eru þeir sterku, þeir sem kunna að leysa verkefni jafnvel þótt útkoman sé kannski eins og við viljum. Eva Björg var ein af þeim sterku, þeim útvöldu. Eva var vinsæl, vinamörg, hnyttin og dásamlega skemmti- leg ung kona, hún menntaði sig og eignaðist tvö yndisleg börn með Gulla sínum, hún elskaði lífið og samheldnu fjölskylduna sína umfram allt annað. Í faðmi stórfjölskyldunnar var hennar skjól og styrkur, faðmi sem ég veit að mun umvefja eiginmann og börn hennar um ókomin ár. Ég á engin orð til að lýsa sorg minni og samkennd með elskulegu frændfólki mínu, þeirra er missirinn mestur og sorgin sárust. Elsku þið öll, megi allar góð- ar vættir umvefja ykkur og styrkja á þessum erfiða tíma. Elsku fallega Eva, hver minning er dýrmæt perla. Hjartans þökk fyrir sam- fylgdina. Kristín Hrönn og fjölskylda. Fallin er frá yndisleg mág- kona mín, mörgum áratugum of snemma. Orð virðast einskis megn, andspænis svo stóru sári. Eva kom inn í líf mitt þegar ég var enn barn að aldri, þegar hún kynntist elsta bróður mín- um, Gunnlaugi, og þau felldu hugi saman. Ég hef líklega ver- ið sjö eða átta ára þegar við hittumst fyrst, Eva líklega rétt um þrítugt. Fyrsta minningin sem ég á um okkur tvær var í sumarbústað með foreldrum mínum, Evu og Gunnlaugi – dýrindiskvöldmatur hafði verið borinn á borð og í eftirrétt var búið að grilla banana með Mars-súkkulaði. Slíka blöndu hafði ég aldrei séð áður – og raunar hafði ég heldur aldrei smakkað grillaða banana. Ég var tortryggin á þetta enda matvönd eins og flest börn á þessum aldri en man að Eva eyddi dágóðum hluta kvöldsins í að reyna að fá mig til að smakka. Það gekk fyrir rest. Nú mun ég minnast Evu í hvert sinn sem ég borða banana með Mars-súkkulaði, í mínum huga er þetta rétturinn hennar. Síðustu árin vorum við síðan byrjaðar að leggja grunn að vinskap okkar á milli sem byggðist á jafningjagrundvelli, enda ég loksins vaxin upp úr matvendninni og komin í full- orðinna manna tölu. Eva og Gunnlaugur voru alltaf til í að gefa manni tímann sinn og rýmka til í dagskránni hjá sér til að geta hist. Þeim fannst ekkert tiltökumál að keyra jafnvel landið þvert og endi- langt með engum fyrirvara til að gera sér glaðan dag með manni í höfuðborginni og það þótti mér afskaplega vænt um. Síðustu misseri dvaldi ég nokkra mánuði á Akureyri vegna náms og starfa á Sjúkra- húsinu á Akureyri og þá þróuð- um við Eva áfram vinskap okk- ar og dyr hennar og Gunnlaugs stóðu mér ávallt opnar. Minn- ingar af pizzakvöldum og pönnukökukaffi eru nú enn dýr- mætari en áður. Í sumar lögðum við grunn að plönum um kaffitíma saman í íbúðinni sem við Haukur erum nýflutt inn í. Við hlökkuðum báðar til og biðum þess að hún yrði aðeins hressari. Aldrei varð af þeim kaffibolla, því mið- ur. Ekki grunaði mig heldur að kaffitíminn sem við áttum sam- an á Akureyri í sumar, Eva og Gunnlaugur ásamt krökkunum, ég og Haukur minn, ætti eftir að vera kveðjustundin okkar. Það er furðulegt og eiginlega ómögulegt að hugsa til þess að keyra norður næsta sumar og finna Evu ekki með hundinn Lottu í fanginu í eldhúsinu á Hólatúninu. Söknuðurinn er sár en ljós minninganna lýsir okkur áfram og við sem eftir lifum munum leggja okkur fram um að lifa líf- inu eins og Eva kenndi okkur – í gleði og kærleika. Guðrún Ingibjörg. Elsku besta og fallega Eva mín, það er svo sárt að kveðja þig, lífið er ekki alltaf sann- gjarnt, góðhjartaðri manneskju er erfitt að finna. Þú gerðir allt fyrir alla í kringum þig, meðal annars mig og ég mun svo sannarlega reyna að feta í þín fótspor. Ég hefði sennilegast ekki komist í gegnum framhalds- skóla nema að hafa þig á hlið- arlínunni. Ég mun aldrei gleyma okkar síðasta samtali þegar þú sagðir við mig hvað þú værir stolt af mér að elta draumana mína og ætla ég svo sannarlega að gera það, við ræddum líka stundirnar okkar saman í Brussel þar sem við tvær fórum á barinn á meðan hinar konurnar fóru heim, en við fengum okkur kokteila. Þú sagðir alltaf að það væri allt í lagi að gráta en samt ættum við ekki að draga sængina upp fyr- ir haus, við þurfum líka að vera sterk og halda áfram. Þorgeir Viðar og Þrúður Júlía eru svo flott og þau eru sterk á þessum erfiða tíma en ég mun gera allt sem ég get til að láta þeim líða betur, það kemur enginn í stað- inn fyrir þig, elsku besta, en við hin munum samt gera allt til að vera til staðar fyrir þau eins og þú varst alltaf til staðar fyrir okkur. Elska þig alltaf. Þín Guðrún Mist. 5 ár eru ekki langur tími en það er engu að síður tíminn sem ég og Evan mín fengum saman. Frá upphafi var eins og við hefðum þekkst alla ævi og tengdumst við strax sterkum böndum. Eva kom eins og köll- uð inn í líf mitt fyrir rúmum 5 árum. Þá var ég nýbúin að missa föður minn og Eva með sinni fallegu nærveru, einlægni og hlýju hjálpaði mér að takast á við missinn. Vinátta okkar var falleg, sterk og einlæg eins og Eva sjálf. Við vorum á margan hátt svo líkar en um leið ólíkar, við deildum sömu sýn á lífið og not- uðum frasann „ live a little“ ansi oft, sérstaklega þegar að við vorum að skipuleggja ný ævintýri og undirbúa einhverja vitleysuna sem okkur datt í hug. Eva var ævintýragjörn og stökk á öll tækifæri sem hún fékk til að prufa eitthvað nýtt, ferðast og búa til minningar og þá sérstaklega með litlu fjöl- skyldunni sinni. Þegar ég lít til baka og hugsa um allt sem við gerðum á þess- um stutta tíma, get ég ekki annað en brosað í gegnum tárin og fundið fyrir þakklæti. Þakk- læti fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Allar hláturstundirnar á „happy hour“ eða bara heima yfir kaffibollanum, göngutúrana og „roadtrip-in“ þar sem heims- málin voru leyst og síðast en ekki síst allar utanlandsferðirn- ar en mér telst að þær hafi ver- ið 11 talsins. Upp úr stendur án efa ferðin okkar til New York ásamt eiginmönnum þar sem við fögnuðum 50 árunum hans Gulla. Ferð sem skilur eftir sig dýrmætar minningar. Elsku Eva, þú kenndir mér svo margt. Hugrekki er mér of- arlega í huga sem og lífsgleðin sem einkenndi þig. Í kringum þig var alltaf gleði, fallega bros- ið þitt og nærveran var engu lík. Við áttum einnig okkar stundir þar sem við grétum saman og trúðum hvor annarri fyrir okkar dýpstu sorgum, fal- legar og einlægar stundir sem ég mun geyma áfram í hjarta mér. Það er ekki sjálfgefið að eignast svona einlæga og fal- lega vináttu, fyrir þig er ég þakklát. Elsku Gulli, Þorgeir og Þrúð- ur, Nunna, Skúli, Silla, Alla, Hófý og fjölskyldur. Missir ykkar er mikill, ég bið þess að góður Guð veiti ykkur styrk í sorginni. Elsku Eva, ég sakna þín sárt og með tárum kveð ég þig. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar þakklæti og trú. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Þín vinkona, Hildur Halldórsdóttir. Eva var stóra frænka mín, ein af mínum bestu vinkonum og fyrirmynd. Eva passaði mig mikið þegar ég var lítil en ég var fyrsta ungbarnið sem hún hélt á. Alltaf þegar ég átti af- mæli þá rifjaði hún upp þetta fyrsta skipti sem hún hélt á mér, undir súðinni í Ásveginum hjá ömmu og afa. Ást við fyrstu sýn, sagði hún alltaf, en sú til- finning var gagnkvæm. Þarna undir súðinni mynduðust órjúf- anleg bönd okkar á milli. Eva svæfði mig, lék við mig og hjálpaði mér að hætta með snuð. Ég er svo þakklát fyrir það að hafa haft hana Evu mína með mér í gegnum unglings- árin. Hún sýndi mér sem einstak- lingi einlægan áhuga, hún lét mér líða eins og ég væri merki- leg og ég fann hversu mikið hún elskaði mig. Svoleiðis ást og einlægni er erfitt að finna en ég fann hana hjá Evu. Við eyddum endalausum tíma í að tala um ferðalög og framtíðina en Eva á stóran hluta í minni ákvörðun um að fara í nám er- lendis. Ég mun alltaf þakka henni fyrir það að smita mig af þessari ævintýraþörf. Eva var ótrúlega hvetjandi, frábær hlustandi og hafði ráð við öllu. Ráðin hennar Evu hafa fylgt mér inn í fullorðinsárin og á hún stóran part í því hver ég er í dag. Eva var alltaf tengd ein- hverju fjöri, naut lífsins í botn og var dugleg að taka þátt í öllu. Hún var falleg, góð og gaf löng og hlý faðmlög. Elsku Eva. Það er sárt að þurfa að kveðja þig og ég mun sakna þín á hverjum degi. Nú segi ég við þig það sem þú sagðir alltaf við mig: „I love you to the moon and back, dúllubossinn minn.“ Sumir hverfa fljótt úr heimi hér skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar þakklæti og trú. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Elsku Gulli, Þorgeir og Þrúður, Nunna, Skúli og systur. Ykkar missir er mikill, guð veiti ykkur styrk á þessari sorgarstundu. Kristín Hólm Geirsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Evu Björg Skúladóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Elsku besta mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, AÐALHEIÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR, Lalla, lést miðvikudaginn 19. ágúst á Land- spítalanum, Hringbraut. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 1. september klukkan 15. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina en henni verður streymt á youtu.be/q46Y2cM0ej8. Guðrún Kristín Antonsdóttir Margrét Gísladóttir Haukur Halldórsson Grettir Gíslason Sigríður Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR ÁRMANNSSON, lést á Hrafnistu Nesvöllum 21. ágúst. Útför hans fer fram frá Norðfjarðarkirkju miðvikudaginn 2. september klukkan 11. Í ljósi aðstæðna verða fjöldatakmarkanir í kirkjunni. Ármann Einarsson Alfa Aradóttir Katrín Einarsdóttir Þorsteinn Einarsson Jónína Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LAUFEY GUÐRÚN LÁRUSDÓTTIR, lést föstudaginn 26. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ingunn Anna Helgadóttir Óli Harðarson Lárus Helgason Hunter Guðrún Pétursdóttir Pétur Helgason Rósa Guðjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir vináttu og hlýhug vegna andláts okkar dásamlega ÚLFARS DANÍELSSONAR, sem lést 23. júlí. Adda María Jóhannsdóttir Hildur Jónsdóttir Silja Úlfarsdóttir Sara Úlfarsdóttir Sindri Dan Vignisson Melkorka Rán Hafliðadóttir Snævar Dan Vignisson Kormákur Ari Hafliðason Þorkell Magnússon og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.