Morgunblaðið - 27.08.2020, Page 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020
60 ára Stefanía ólst
upp á Ytri-
Neslöndum í Mý-
vatnssveit en býr í
Tjarnarholti. Hún er
framkvæmdastjóri
Fuglasafns Sigurgeirs
og er einnig bóndi á
Ytri-Neslöndum.
Maki: Jóhann Ingvarsson, f. 1951, fv.
vélamaður og sjómaður.
Systkini: Álfdís Sigurveig, Aðalbjörg,
Axel Jónas, Sigríður, Stefán, d. 1980,
og Sigurgeir, d. 1999.
Foreldrar: Stefán Axelsson, f. 1923,
d. 2010, og Ingibjörg Kristín Sigur-
geirsdóttir, f. 1930, d. 2017, bændur á
Ytri-Neslöndum.
Stefanía Halldóra
Stefánsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hægðu ferðina aðeins, maki þinn
gæti skipt um vinnu á næstu tveimur ár-
um. Raðaðu verkefnum eftir forgangsröð
því þá verður eftirleikurinn auðveldari.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er svo gott að gefa af sér að þú
veist ekki hversu mikið þú gefur. Hafðu
þetta stöðugt í huga og gerðu það sem í
þínu valdi stendur til að draumar þínir geti
ræst.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Í dag er upplagt að sinna við-
gerðum á heimilinu, hvort sem um er að
ræða stór verkefni eða smá.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að viða að þér miklum
fróðleik til þess að geta hagað máli þínu
svo að áheyrendur þínir snúist á sveif með
þér. Lestu í það.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er óþarfi fyrir þig að vera með
nefið ofan í hvers manns koppi. Einhver ný
manneskja kemur inn í líf þitt með mikinn
lærdóm.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sígandi lukka er best svo þú skalt
bara halda þínu striki og klára hvert mál
eins og það kemur fyrir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert fullur af eldmóði og krafti og
getur haft mikil áhrif á fólkið í kringum þig
ef þú vilt það við hafa.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er að mörgu að hyggja
bæði í einkalífi og starfi. Með réttu verk-
lagi kemstu hjá mistökum og klárar þig af
þessu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér verður hrósað mikið fyrir
árangur þinn í starfi og átt það svo fylli-
lega skilið. Farðu eftir ráðleggingum vina.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú verður ekki lengur undan því
komist að hrinda í framkvæmd áætlun
sem hefur verið í startholunum. Einhver
vill láta á sér bera með öllum tiltækum
ráðum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Orka þín eykst á næstu vikum.
Gefðu þér tíma til að leika við börnin, leika
uppáhaldsíþróttina þína og spjalla við vini
þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú stefnir í að þú hittir fyrir þá sem
eru sama sinnis og þú og reiðubúnir til
þess að vinna málstað ykkar brautargengi.
Sýndu þeim tillitssemi sem trufla þig.
sjóði námsgagna, www.islend-
ingasogur.is, og gerði síðar
endursagnir fyrir Menntamála-
stofnun og fyrir breskt skólakerfi að
beiðni Oxford University Press.
Árið 2002 var viðburðaríkt, Bryn-
hildur gaf út tvær fyrstu bækurnar
sínar, Njálu og Lúsastríðið. Hún
dvaldi í Stokkhólmi við að klára
handritin en leit upp frá tölvunni og
fór í afdrifaríkt útskriftarboð. Þar
kynntist hún manni, Þóroddi
Bjarnasyni, sem hún hefur nú verið
gift í 14 ár og á þrjú börn með. Þór-
oddur var þá með stöðu við Háskól-
ann í Albany í New York og þar var
hún meira og minna næstu misserin.
„Það gafst ágætis næði til rit-
starfa í Ameríku, ég skrifaði sam-
tímis MA-ritgerð um miðalda-
bókmenntir og spennusögu handa
börnum, þetta fór fjarska vel sam-
an, reyndar læddist Grettir Ás-
mundarson inn í bókina í auka-
hlutverki. Bókin hét Leyndardómur
ljónsins og fékk íslensku barna-
bókaverðlaunin 2004. Í henni tefli ég
saman krökkum frá Reykjavík og
Akureyri sem er skemmtilegt svona
eftir á að hyggja, því ég hafði ekki
hugmynd um að Akureyri yrði
ing stökk á hugmyndina og kom
mér í samband við Margréti Lax-
ness myndlistarmann. Njála kom út
endursögð og myndskreytt 2002 og
seldist strax vel. Egla kom 2004 og
Laxdæla 2006.“ Brynhildur fékk
norrænu barnabókaverðlaunin 2007
fyrir þessar bækur. Hún bætti við
barnvænum vef um Íslendinga-
sögurnar með styrk frá Þróunar-
B
rynhildur Þórarins-
dóttir fæddist í
Reykjavík 27. ágúst
1970. Fyrstu árin bjó
hún við Hávallagötu,
hafði Landakotstúnið sem leiksvæði
og hóf skólagönguna í Melaskóla.
En foreldrarnir fóru að byggja eins
og önnur hver hjón á áttunda ára-
tugnum og 1979 flutti fjölskyldan í
Ljárskóga. Þar var mikið líf og fjör
enda Seljahverfið morandi af krökk-
um.
Brynhildur fór í Ölduselsskóla og
síðan í Menntaskólann í Reykjavík.
Eftir stúdentspróf flutti hún til
Þýskalands og glímdi við gasleiðslur
í arkitektúrnámi en áttaði sig á því
að áhuginn lægi frekar á sviði bók-
mennta. Hún sneri heim og fór í ís-
lensku í HÍ og lauk BA prófi 1995.
Brynhildur starfaði með Röskvu á
háskólaárunum, sat í Stúdentaráði
og háskólaráði og var framkvæmda-
stjóri Stúdentaráðs. „Það var af-
skaplega fjörlegt tímabil, miklir eld-
hugar í félaginu sem gjarnan þurftu
að ræða málin langt fram á nætur.“
Brynhildur gerðist blaðamaður
og síðar ritstjóri Vinnunnar, tíma-
rits Alþýðusambands Íslands og bjó
þá í Þingholtunum. „Árin hjá ASÍ
voru mjög lærdómsrík og skemmti-
leg, ég ferðaðist t.d. um landið og
tók viðtöl við fólk á alls konar vinnu-
stöðum. Ég man enn eftir lyktinni í
skinnaiðnaðinum og sláturhúsinu.“
Á sama tíma tók hún viðtöl fyrir
Helgarpóstinn og sinnti annarri
lausamennsku, ritstýrði t.d. 19. júní
eitt árið.
Frá ASÍ lá leiðin til Bylgjunnar
þar sem Brynhildur var einn af um-
sjónarmönnum Þjóðbrautarinnar.
Eftir þrjú ár í útvarpi var hugurinn
farinn að leita aftur í íslenskuna.
Brynhildur gerðist leiðbeinandi í
grunnskóla og kenndi m.a. íslensku
en bauðst þá að taka við Tímariti
Máls og menningar. Hún fór jafn-
framt í meistaranám í íslenskum
bókmenntum og sökkti sér ofan í
miðaldirnar.
„Ég fór að fikta við Íslendinga-
sögurnar, bókstaflega, langaði að
blása í þær lífi með því að endur-
segja þær fyrir börn. Mál og menn-
næsti áfangastaður.“ Brynhildur og
Þóroddur fluttu til Akureyrar
haustið 2004 og búa þar enn, þrem-
ur börnum ríkari.
Brynhildur bætti við sig kennslu-
réttindum og kennir nú bókmenntir
og ritlist við kennaradeild HA. Hún
heldur jafnframt utan um starf
Barnabókaseturs en það sinnir
lestrarhvatningu með ýmsum hætti.
Brynhildur stundar ritstörf sam-
hliða kennslunni og hefur verið
bæjarlistamaður Akureyrar. Bækur
hennar eru orðnar átján, sú nýjasta,
Dularfulla símahvarfið, kom út í vor
en tvær komu út fyrir síðustu jól,
Ungfrú fótbolti, og Fábrot, örleikrit
fyrir örfáa leikara.
Áhugamál Brynhildar hafa lítið
breyst síðan í æsku þegar fótbolti
og skíði heilluðu og lesið var hvenær
sem tækifæri gafst. „Ég spilaði
götubolta með hinu stórkostlega liði
Fótboltafélagi flinkra krakka í Ljár-
skógum og síðar FRAM en í dag
stend ég á hliðarlínunni þegar
yngstu börnin spila með KA. Fjöl-
skyldan er mikið á skíðum og það er
stórkostlegt að hafa Hlíðarfjall i í
fimm mínútna fjarlægð. Ég verð
líka að nefna ferðalög af því að við
getum ekki farið neitt núna. Við höf-
um ferðast talsvert með krakkana
og tvisvar dvalið heilt misseri er-
lendis, þau eru býsna reynd eftir
skólagöngu í Newcastle og Cork.
Fimmtugsafmælinu átti að fagna
með ferðalagi, við fórum öll til Taí-
lands þegar eiginmaðurinn varð
fimmtugur. Ferðalagið mitt býður
betri tíma. Margfalt fimmtugs-
afmæli saumaklúbbsins hefur hins
vegar verið fært frá Miðjarðarhaf-
inu til Siglufjarðar.“
Fjölskylda
Eiginmaður Brynhildar er Þór-
oddur Bjarnason, f. 8.11. 1965, pró-
fessor við Háskólann á Akureyri.
Foreldrar hans: Hjónin Bjarni
Hannesson læknir, f. 21.2. 1938, d.
2.4. 2013, og Þorbjörg Þórodds-
dóttir kennari, f. 23.8. 1938, búsett í
Garðabæ.
Börn Brynhildar og Þórodds eru
Þorbjörg Þóroddsdóttir, f. 24.2.
2005, nemi við MA; Þórarinn Þór-
Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og dósent við Háskólann á Akureyri – 50 ára
Fjölskyldan Berja- og sveppatínsla í Krossanesborgum núna í ágúst.
Fór að fikta í Íslendingasögunum
Rithöfundurinn Brynhildur áritar
bók sína, Ungfrú fótbolti.
40 ára Vigdís
fæddist á Blöndu-
ósi og ólst þar upp
en býr á Skaga-
strönd. Hún er leið-
beinandi í Höfða-
skóla og er í
kennaranámi við
Háskóla Íslands.
Maki: Þröstur Árnason, f. 1975, sjó-
maður á Drangey hjá Fisk Seafood.
Börn: Auðunn Árni, f. 2001, Hekla
Guðrún, f. 2003, Ellert Atli, f. 2009,
og Gunndís Katla, f. 2012.
Foreldrar: Hekla Birgisdóttir, f. 1963,
vinnur á Heilbrigðisstofnuninni á
Blönduósi, og Þorgeir Guðmundsson,
f. 1960, skipstjóri á Verði hjá Gjögri.
Vigdís Elva
Þorgeirsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Emilía Bríet
Davíðsdóttir fæddist 26.
september 2019 kl. 12.56 í
Reykjavík. Hún vó slétt
4.000 g, eða 16 merkur,
og var 53 cm á hæð. For-
eldrar hennar eru Davíð
Aðalsteinsson og Hafdís
Svala Einarsdóttir.
Nýr borgari