Morgunblaðið - 27.08.2020, Side 47

Morgunblaðið - 27.08.2020, Side 47
Ljósmynd/Þórir Tryggvason Einbeitt Markvörðurinn Cecilía Rán tekur ekki augun af boltanum. fulltrúa í liðinu en það eru Elín Metta og Hlín sem hafa verið at- kvæðamiklar eins og í fyrra. Þá á Fylkir tvo leikmenn í liðinu en Fylkiskonum hefur gengið vel að verja markið í flestum leikjum. Sést það í einkunnagjöfinni en Cecilía Rán tryggir sér markmannsstöðuna í liðinu af öryggi. Hefur hún fengið níu M eða fjögur fleiri en næstu markverðir. Fyrirliði Fylkis, Berg- lind Rós, er einnig í liðinu en þær hafa hvor um sig verið tvívegis í liði umferðarinnar í blaðinu. Cecilía myndi ef til vill hafa nóg að gera væri þessu liði teflt fram þar sem Morgunblaðið blæs til sóknar og stillir upp í 4-3-3. Bak- verðir andstæðinganna yrðu ekki sérlega öfundsverðir að þurfa að líta eftir þeim Sveindísi og Sevcovu en fá svo einnig Hlín og Öglu Mar- íu á sig á fullu gasi. Lið Þróttar hefur vafalítið komið einhverjum á óvart með sinni frammistöðu en nýliðarnir eru fyrir ofan fallsæti. Laura Hughes hefur uppskorið virðingu þeirra sem um leikina fjalla og er með 9 M á þess- um tímapunkti. Blikar fyrirferðarmiklir Morgunblaðið/Eggert Gleði Sveindís lengst til vinstri, Alexandra (16) og Agla María (7) eru í liði fyrri hluta mótsins.  Topplið Breiðabliks á fjóra fulltrúa í úrvalsliði fyrri hluta Íslandsmótsins  Frammistaðan endurspeglast í M-gjöfinni  Sveindís og Agla María efstar 3-4-3 Lið fyrri umferðar hjá Morgunblaðinu Pepsi Max-deild kvenna 2020 Cecilía Rán Rúnarsdóttir Fylki Agla María Albertsdóttir Breiðabliki Sveindís Jane Jónsdóttir Breiðabliki Laura Hughes ÞróttiHlín Eiríksdóttir Val Alexandra Jóhannsdóttir Breiðabliki Elín Metta Jensen Val Berglind Rós Ágústsdóttir Fylki Arna Sif Ásgrímsdóttir Þór/KA Olga Sevcova ÍBV Kristín Dís Árnadóttir Breiðabliki Fjöldi sem leikmaður fékk í mánuðinum 5 Varamenn: Sandra Sigurðardóttir, Val Guðný Árnadóttir, Val Barbára Sól Gísladóttir , Selfossi Þórdís Elva Ágústsdóttir, Fylki Clara Sigurðardóttir, Selfossi Karólína Lea Vilhjálmsd., Breiðabliki Berglind Björg Þorvaldsd. , Breiðabliki 5 7 7 7 7 6 6 9 7 6 7 8 12 8 9 11 89 UPPGJÖR Kristján Jónsson kris@mbl.is Morgunblaðið birtir í dag úrvalslið fyrri umferðar í efstu deild kvenna, Pepsí Max-deildinni, á Íslands- mótinu í knattspyrnu. Valið er byggt á einkunnagjöf blaðsins en sem kunnugt er fjalla Morg- unblaðið og mbl.is um alla leiki í efstu deild karla og kvenna. Ekki þarf að taka sérstaklega fram hér að mótshaldið hefur verið með óvenjulegum hætti. Það þekkja sparkunnendur vel og hefur dag- skráin riðlast mest hjá kvennaliði KR. Breiðablik fór á kostum í fyrri hluta mótsins og vann alla leiki sína. Í toppslagnum gegn Val vann Breiðablik 4:0 og þau úrslit eru töluvert önnur en í leikjum liðanna í fyrra þegar báðum lauk með jafn- tefli. Þá sáust einnig úrslit hjá Breiðabliki eins og 7:0 og 6:0 í fyrri hluta mótsins. Ekki þarf því að koma á óvart að Breiðablik eigi nokkra fulltrúa en fjórir Blikar eru í liðinu og tvær til viðbótar á meðal varamanna. Sveindís Jane hefur fengið flest M til þessa eða tólf talsins og þrí- vegis hefur hún fengið MM fyrir frammistöðu sína. Hún hefur auk þess fjórum sinnum verið í liði um- ferðarinnar. Agla María er rétt á eftir henni með ellefu M en hún, Alexandra og Berglind Björg hafa þrívegis verið í liði umferðarinnar. Íslandsmeistararnir í Val eiga tvo ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson tryggði hol- lenska liðinu AZ Alkmaar sæti í 3. umferð Meistaradeild- arinnar í gær þegar liðið vann Viktoria Plzen frá Tékklandi 3:1 eftir framlengdan leik í Hollandi. Albert kom inn á sem vara- maður á 64. mínútu. Lét hann mjög til sín taka og skoraði bæði mörk AZ í framlenging- unni. Á 8. mínútu framlengingarinnar og 28. mín- útu. Dýrmæt mörk hjá Alberti enda eru miklir fjárhagslegir hagsumnir í húfi fyrir félögin í Meistaradeildinni. kris@mbl.is Tryggði AZ sigur Albert Guðmundsson Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, úr GR, hefur leik á LET-Evrópu- mótaröðinni í golfi á laugar- daginn kemur en mótið fer fram á Berounve-vellinum í Tékklandi. Ólafía er með tak- markaðan keppnisrétt á Evr- ópumótaröðinni á þessu keppnistímabili og því átti hún ekki von á því að komast inn á mótið. Þá vonast hún einnig til þess að komast inn á mót í Sviss dagana 10.-12. september en golf.is greinir frá þessu. Mótahald á Evrópumótaröðinni hefur að mestu legið niðri á þessu keppnistímabili. Keppir í Tékklandi Ólafía Þórunn Kristinsdóttir  Goðsögnin Usain Bolt hefur greinst með kórónuveiruna. Bolt hélt upp á 34 ára afmæli sitt í heimalandi sínu Ja- maíku um síðustu helgi og fór í sjálf- skipaða sóttkví til varúðar eftir að hafa farið í sýnatöku á laugardag. „COVID-prófið var jákvætt en Usain sýnir engin einkenni,“ sagði umboðs- maður Bolts, Ricky Simms, í yfirlýs- ingu eftir því sem fram kemur á BBC. Bolt, sem lauk ferlinum árið 2017, vann til átta gullverðlauna á Ólympíu- leikunum og 11 heimsmeistaratitla á mögnuðum ferli sínum. Hann á heims- metið í 100 og 200 metra hlaupi.  Starfsmaður hjá þýska handbolta- félaginu Melsungen hefur greinst með kórónuveiruna en landsliðsþjálfarinn Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfar liðið. Línumaðurinn Arnar Freyr Arn- arsson leikur með liðinu og gekk í rað- ir Melsungen í sumar. Framundan er Evrópuleikur hjá liðinu gegn Bjerr- ingbro-Silkeborg eftir þrjá daga.  Jamie Vardy hefur framlengt samn- ing sinn við enska knattspyrnufélagið Leicester. Fyrri samningur Vardys átti að renna út sumarið 2022 en í staðinn rennur hann út sumarið 2023. Vardy er orðinn 33 ára gamall sem þýðir að hann verður 36 ára þegar samningur hans rennur út.  James Rodríguez, miðjumaður knattspyrnuliðs Real Madrid á Spáni, er að ganga til liðs við Everton í ensku úrvalsdeildinni en það er Sky Sports sem greinir frá þessu. Rodríguez hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði Real Madrid frá því Zined- ine Zidane tók fyrst við stjórnartaum- unum hjá félaginu árið 2016. Rodrígu- ez var hins vegar fastamaður í liðinu þegar Carlo Ancelotti, núverandi stjóri Everton, stýrði Real Madrid frá 2013 til 2015.  Körfuknattleiksdeild Hauka hefur samið við Alyesha Lovett og mun hún leika með liðinu á komandi leiktíð. Lo- vett er 27 ára og lék síðast í Ástralíu. Þá hefur hún leikið á Spáni og Eng- landi. Útskrifaðist hún úr Cincinnati- háskólanum í Ohio árið 2016.  Spænski knattspyrnumaðurinn Iz- aro Abella er genginn til liðs við Leikni frá Fáskrúðsfirði á nýjan leik en hann kemur frá Þór á Akureyri. Abella þekk- ir vel til á Fáskrúðsfirði en hann lék með Leiknismönnum á síðustu leiktíð og var valinn besti leikmaður liðsins 2019 þegar það vann 2. deildina.  Thiago Silva, fyrirliði Frakklands- meistara PSG í knattspyrnu, er að ganga til liðs við Chelsea en það er Sky Sport sem greinir frá þessu. Silva mun gangast undir læknisskoðun hjá enska félaginu í dag en hann er orðinn 35 ára gamall. Silva kemur til Chelsea á frjálsri sölu en samningur hans við PSG rann út á dögunum. PSG gerði tilraun til þess að fá brasilíska varnarmanninn til að fram- lengja en sú tilraun bar ekki til- ætlaðan árangur. Eitt ogannað Körfuknattleiksmaðurinn Sig- urður Gunnar Þorsteinsson hefur stefnt fyrrverandi félagi sínu ÍR vegna vangoldinna launa sem nema um tveimur milljónum króna eftir því sem fram kemur hjá RÚV. Sigurður gerði tveggja ára samning við ÍR fyrir síðasta tímabil eftir stutta dvöl í Frakklandi hjá BC Orchies. Sigurður sleit hins vegar krossband strax í fyrsta leik og lék ekki meira með liðinu á tímabilinu. Var samningi Sigurðar við ÍR rift eftir síðustu leiktíð og samdi hann við Hött á Egilsstöðum. Stefnir ÍR-ingum Sigurður Gunnar Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.