Morgunblaðið - 27.08.2020, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 27.08.2020, Qupperneq 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 www.danco.is Heildsöludreifing vPappír vBorðar vPokar vBönd vPakkaskraut vKort vSkreytingarefni vTeyjur vSellófan Ný vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is Fyrirtæki og verslanir Heildarlausnir í umbúðum Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Fyrir sjö árum stofnuðu eigendur nokkurra danskra gallería sérstaka norræna listakaupstefnu sem hefur verið haldin í lok ágúst í sölum hinn- ar sögufrægu stofnunar Charlotten- borg og Konunglega myndlistar- akademísins við Nýhöfnina í Kaup- mannahöfn. Öll helstu myndlistar- gallerí Norðurlanda hafa tekið þátt og á síðustu árum einnig virt hönn- unargallerí og er boðið upp á fjöl- breytilegar sýningar og allrahanda uppákomur; fyrirlestra, sýningar á verkum efnilegra norrænna lista- manna, gjörninga og tónleika. Þessi myndlistarhátíð hefur notið sívax- andi vinsælda og á síðasta ári heim- sóttu til að mynda 28 þúsund gestir sýninguna á þremur dögum og með- al gesta voru fulltrúar fjölmiðla víða að og nær eitt hundrað alþjóðlegra safna og stofnana, sem komnir voru að fylgjast með því helsta í nor- rænni myndsköpun. Ákveðið hafði verið að takast á við umtalaðan kynjahalla í sýningum gallería á list- kaupstefnum með því að galleríin 28 sem ætluðu að taka þátt í ár myndu aðeins sýna verk eftir konur. En svo skall kórónuveirufaraldurinn á. Öll- um listakaupstefnum heims var af- lýst, nema þessari einu – CHART verður haldin um helgina en með nýju og gjörbreyttu sniði. Galleríin setja undir heitinu „De-centered“ eða „Af-miðjað“ upp sýningar á heimavöllum sínum í Kaupmanna- höfn, Helsinki, Ósló, Stokkhólmi og hér í Reykjavík. En aðeins hér sýna þau saman. Sýningar BERG Con- temporary, i8 gallerís og Hverfis- gallerís verða í húsakynnum BERG á Klapparstíg 16. Og sýnd verða verk eftir átta myndlistarkonur. Dramatískar ákvarðanir Nanna Hjortenberg, fram- kvæmdastjóri CHART, segir stjórn- endur hafa tekið tvær stórar ákvarðanir varðandi CHART í ár. „Þá fyrri áður en kórónuveiran mætti á svæðið og það var að sýna einungis kvenkyns listamenn í ár, sem viðleitni til að sýna hvernig listakaupstefnur geti tekið virkari þátt í að glíma við þær áskoranir innan myndlistarheimsins sem eng- inn einn getur leyst. Seinni ákvörðunina tókum við um miðjan aprílmánuð þegar við áttuð- um okkur á því að vegna fjöldatak- markana sem höfðu verið settar á gætum við ekki stefnt öllum þessum gestum og þátttakendum saman í Kaupmannahöfn. Við gátum aflýst CHART í ár, eins og gert var við aðrar listakaupstefnur sem fyrir- hugaðar voru, en okkur fannst það ekki gefa okkur neitt frekara öryggi um að geta síðan haldið CHART eins og ekkert hefði gerst. Við hug- leiddum vel hvað við gætum gert til að taka þátt í að endurræsa mynd- listarsenuna og starfsemi gall- eríanna á Norðurlöndum, sem á þeirri stundu voru alveg lokuð. Út frá því tókum við tvær mikilvægar ákvarðanir. Önnur var að við vildum hafa framkvæmdina eins áþreifan- lega og raunverulega og unnt væri. Úti um allt var þegar verið að setja upp alls kyns vefgallerí og sýningar og við sáum að þeir möguleikar væru vel nýttir. En að upplifa listina á staðnum, að hafa verkin raunveru- lega fyrir framan sig er bara allt önnur upplifun. Við ákváðum því að hafa sýningar en án einnar miðju; í stað þess að galleríin sýni hér í Charlottenborg þá sýna þau flest í sínum eigin rýmum og salarkynnum og þannig getum við boðið söfnurum og listunnendum að mæta og sjá sýningarnar og styðja um leið myndlistarlífið. Önnur áskorun var hvernig við gætum tengt þátttakendur og gesti. Við fórum í að setja upp vel undir- búna netfundi milli galleríanna og alþjóðlegra sýningarstjóra og safn- ara. Slíkir fundir geta verið gagn- legir í samtali um listaverk, og með þessum hætti má mynda sambönd sem koma listamönnum, sköpun þeirra og kynningu á verkunum til góða.“ Þá gefur CHART úr myndarlega bók sem verður hægt að nálgast á sýningarstöðunum. Í henni eru verk eftir alla listamenn sem taka þátt og greinar um og viðtöl við marga þeirra. Listmarkaðurinn fór á hliðina Undanfarnir mánuðir hafa í skugga veirunnar verið myndlistar- galleríum afar erfiðir. Fréttir segja gallerí víða hafa lagt upp laupana. Eru öll norrænu galleríin sem höfðu ætlað að taka þátt ennþá með í hópnum? „Já, þau vildu öll taka þátt,“ svar- ar Hjortenberg. „Galleristum þótti áhugavert hvernig við ákváðum að fara aðra leið en allar aðrar listakaupstefnur í ár, þar sem við leggjum áherslu á að gestir nái að upplifa verkin í raun og veru. Þetta er spennandi tilraun. Ef við notum ekki þetta ástand til að prófa eitt- hvað nýtt, hvernig er þá hægt að vita hvort það virki? Við þurfum að nota þessa tíma til að læra til að Sýna eingöngu verk eftir konur  Norræna listakaupstefnan CHART haldin með nýju sniði um helgina  Sýnt í fimm höfuðborgum Norðurlanda  Íslensku galleríin þrjú sýna saman  „Þetta er spennandi tilraun“ Morgunblaðið/Einar Falur Stjórnandinn Nanna Hjortenberg, stjórnandi CHART, ræddi við fjölmiðla- menn víða að við opnun CHART í Kaupmannahöfn fyrir tveimur árum. Meistaraprent Fjöldi gesta skoðaði sýningu gallerísins BERG Contemporary á merkilegum grafíkverkum eftir Dieter Roth á CHART-listakaupstefnunni fyrir tveimur árum. Fjölbreytileg Á sýningu i8 gallerís á listakaupstefnunni CHART fyrir tveimur árum skoðuðu gestir meðal annars verk eftir myndlistarmennina Ólaf Elíasson og Kristján Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.