Morgunblaðið - 27.08.2020, Side 49

Morgunblaðið - 27.08.2020, Side 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe í aðalhlutverki. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Tröll 2 (ísl. tal) * Hvolpasveitin (ísl. tal) * My Spy * The Postcard Killings * The Secret : Dare to dream FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna.★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ The Guardian The Times The Telegraph geta komið undan þessu fargi á sterkari og áhrifaríkari hátt.“ Hún segir alla gallerista hafa far- ið gegnum sömu sveiflur áhyggna og svartsýni eftir að markaðurinn fór á hliðina. „Hér í Danmörku hef- ur höggið til að mynda verið afar þungt, ég hef lesið skýrslu sem stað- hæfir að sala á myndlist hafi dregist saman um 90 prósent fyrstu mánuði veirunnar. Galleristar lögðust þá í dvala og reyndu að draga úr högg- inu sem rekstrinum var greitt. Þá voru allir að hugsa um bestu lausn- irnar sem mögulegar voru fyrir listamennina sem þeir vinna með, hvað væri hægt að gera. Þetta hefur líka verið eins konar endurræsing fyrir alla. Nú í vikunni vorum við með samtal í beinni á Instagram-- reikningi okkar með tveimur þekkt- um norrænum galleristum, og þeir sögðu að nú væri tími til að losa sig við slæma siði. Til að mynda yrði ekki hægt að ferðast jafn frjálslega og áður, en samt vissum við að öll þessi ferðalög væru ekki ákjósanleg. Þau væru slæm fyrir umhverfið og mögulega ekki nauðsynleg fyrir við- skiptin með listaverk heldur. Og nú finnst mér í kringum CHART vera ákveðin spenna fyrir því að prófa nýjar leiðir, að hugsa vel um hvað sé best og réttast.“ Hjortenberg finnst sérstaklega áhugavert að sjá þá leið sem ís- lensku galleríin hafa valið að fara. „Þau koma saman sem kollegar, sýna saman, og það er sterkur vitnisburður um það hvernig megi finna nýjar leiðir. Saman skapa þau litla CHART-sýningu í Reykjavík og geta þannig eflaust náð til fleiri gesta en ef þau sýndu hvert fyrir sig. Skyndilega eru nýjar leiðir að koma í ljós til að kynna starfsemina og mér finnst það sem íslensku gall- eríin gera vera hluti af áhugaverðri lausn og skref fram á við. Í samstöð- unni hljóta allir að verða sterkari en ella.“ Samtakamátturinn mikill Rannsóknir hafa sýnt að þrátt fyrir tal undangenginna ára um al- varlegan kynjakalla á sýningum gallería og listakaupstefna, þar sem verk mun fleiri karla eru sýnd, gengur illa að ná jafnrétti á því sviði. Hjortenberg segir að stjórn CHART hafi því ákveðið að sýna að- eins verk kvenna að þessu sinni, á öllum viðburðum. „CHART er ekki starfrækt til að skila hagnaði heldur er meginmark- miðið að hafa góð áhrif á og styðja við listalífið og myndlistarsenuna á Norðurlöndum. Stjórninni fannst mikilvægt að taka á ójafnvæginu milli kynjanna á markaðinum. Eng- inn einn aðili getur leyst vandann heldur þarf að finna nýjar leiðir til samstarfs þvert á listheiminn til að hafa áhrif, nýja meðvitund um ójafnvægið sem þarf að laga. Við er- um öll hluti af vandanum en getum líka verið hluti af lausninni og það að biðja galleríin að sýna bara verk kvenna var okkar leið til að taka á þessu. Það er mikill máttur sem felst í því að taka höndum saman með ákvörðun sem þessari en CHART er svo vel lukkað sem raun ber vitni vegna samstöðunnar og samtaka- máttar allra norrænu galleríanna sem vinna með okkur. Það er eitt af því sem gerir CHART svo sér- stakt,“ segir Hjortenberg. Myndheimar Sigríður L. Gunnarsdóttir, galleristi í Hverfisgalleríi, kynnti verk eftir myndlistarmennina Steingrím Eyfjörð og Loja Höskuldsson á CHART-listakaupstefnunni í Charlottenborg í Kaupmannahöfn í fyrra. „Við sýnum núna saman hér á ein- um stað því það er auðveldara að skapa stemningu á þennan hátt,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, eigandi gallerísins BERG Contem- porary á Klapp- arstíg 16, en ís- lensku galleríin þrjú, BERG, i8 gallerí og Hverfisgallerí, sem á síðustu ár- um hafa tekið þátt í norrænu listakaupstefn- unni CHART í Charlottenborg í Kaupmannahöfn, sýna saman í húsnæði hennar nú um helgina. Eins og fram hefur komið verður fyrirkomulag CHART með gjörbreyttum hætti í ár vegna veirufaraldursins en und- ir heitinu „De-centred“, eða „Af- miðjað“, setja gallerín 28 sem hefðu annars sett upp sýningar í Kaupmannahöfn, sýningarnar upp í galleríunum í höfuðborgum Norð- urlandanna um helgina. Þá eru að- eins sýnd verk eftir kvenkyns lista- menn í þeim öllum. BERG Contemporary sýnir verk eftir Steinu Vasulka og Huldu Stef- ánsdóttur en bók með verkum Huldu kemur þá einnig út; i8 gall- erí sýnir verk eftir Margréti H. Blöndal, Örnu Óttarsdóttur og B. Ingrid Olson; og Hverfisgallerí sýnir verk eftir Hildi Bjarnadóttur, Hörpu Árnadóttur og Guðnýju Rósu Ingimarsdóttur. „Það er að hluta til sama fólkið sem kemur á sýningar og opnanir hjá okkur í galleríunum og okkur fannst að það myndi vera skemmtilegt fyrir gestina að koma á einn stað, og svo er líka gaman fyrir okkur í gall- eríunum þremur að vinna að þessu saman,“ segir Ingibjörg. „Við skiptum sölunum nákvæmlega í þrjá hluta og hvert gallerí hefur einn þeirra að sýna í.“ Áhugaverður og sterkur hópur Ingibjörg segir að alla jafna ríki heilbrigð samkeppni milli þessara þriggja gallería, sem vinni eftir ólíkum áherslum. „Að hluta er hópur viðskiptavin- anna hinn sami en einnig hefur hvert gallerí sína viðskiptavini, vegna ólíkra áherslna og lista- manna sem unnið er með. En það er líka mikil samvinna. Þgar ég opnaði galleríð fann ég bara fyrir samkennd og velvilja frá þeim gall- eríium sem voru hér fyrir. Við er- um sterkari saman og viljum öll styrkja myndlistarsenuna; því stærri og fjölbreyttari sem íslenska myndlistarsenenan er, þeim mun sterkari getum við verið.“ Sýningar galleríanna í BERG Contemporary verða opnar á laug- ardag og sunnudag. „Þessar ólíku konur sem gall- eríin þrjú sýna verk eftir eru mjög sterkur og áhugaverður hópur,“ segir Ingibjörg. Skapa stemningu með samstöðu  Verk átta kvenna á sýningum íslensku galleríanna í BERG Contemporary Steina Vasulka Hulda Stefánsdóttir Margrét H. Blöndal Ingibjörg Jónsdóttir Arna Óttarsdóttir B. Ingrid Olson Hildur Bjarnadóttir Harpa Árnadóttir Guðný Rósa Ingimarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.