Morgunblaðið - 27.08.2020, Page 52

Morgunblaðið - 27.08.2020, Page 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Þessi plata er óður til samstarfs. Við flæðum inn í hvert annað og mót- um hvert annað. Ég væri ekki það sem ég er án fólksins í kringum mig. Allir þeir sem ég vinn með á plötunni hafa verið í lífi mínu í um 20 ár og hafa haft stór áhrif á sköpun mína,“ segir Gyða Valtýsdóttir, sellóleikari og tónskáld, um nýja plötu sína, Epi- cycle II, sem kemur út á morgun, föstudaginn 28. ágúst. Hún hefur að geyma verk eftir átta íslensk sam- tímatónskáld í flutningi Gyðu. Íslensku tónskáldin sem eiga verk á plötunni eru Ólöf Arnalds, Daníel Bjarnason, Úlfur Hansson, Jónsi, María Huld Markan Sigfúsdóttir, Kjartan Sveinsson, Skúli Sverrisson og Anna Thorvaldsdóttir. Árið 2017 gaf Gyða út plötuna Epicycle og af titlinum að dæma má geta sér þess til að Epicycle II sé framhaldsverk á einhvern hátt. „Á báðum Epicycle-plötunum er ég í hlutverki flytjanda,“ segir hún. Fyrsta Epicycle-platan spannaði 2000 ár af skrifaðri tónlist sem Gyða gefur sér mikið listrænt frelsi til að túlka. Báðar plöturnar flæða áreynslulaust á milli tónlistargreina og skapa veröld út af fyrir sig. Þráður sem syndir í gegn „Þar sem öll tónskáldin á fyrstu plötunni voru löngu farin fékk ég öllu að ráða en nú vel ég sprelllifandi íslenskt tónlistarfólk,“ segir Gyða. Tónskáldin fengu sjálf að ráða í hve miklu samstarfi þau væru við Gyðu. „Anna Þorvaldsdóttir skrifaði til dæmis fyrir mig verk og Ólöf Arn- alds lét mig hafa lag og texta sem ég síðan útsetti. Við Kjartan Sveinsson og Úlfur Hansson sömdum verkin saman en Jónsi byrjaði á því að taka mig upp selló og rödd og ég spann og vann svo verkið út frá því. Það var því allur gangur á því hvernig sam- starfinu var háttað.“ Tónskáldin átta sem Gyða fékk til liðs við sig eru jafn ólík og þau eru mörg en hún telur þó að á plötunni myndist ákveðinn samhljómur. „Ég hef aldrei skilið þessa þörf á flokkun í tónlist. Fyrir mér er einhver þráð- ur sem syndir í gegnum hluti sem hefur ekkert með flokkun að gera. Þetta er mín leið að sýna fram á það,“ segir hún. „En svo er líka fullt af innri tengingum á milli tónlistar- fólksins á plötunni. Maður er aldrei eins með ólíku fólki. Það togar eitt- hvað úr manni sem maður nær ekki til sjálfur. Mér finnst það rosalega áhugavert og spennandi og eitthvert frelsi við að leyfa því að koma upp.“ Með því að flytja verk samtíma- tónskálda er Gyða ekki einráð um plötuna en hún segist kunna vel við það. „Ég er í meira þjónustuhlut- verki,“ segir hún. „Þrátt fyrir að ég beri fulla ábyrgð á ferlinu þá fengu allir að ráða hvað þeir vildu gera, svo ég hef minni stjórn á útkomunni. Að því leyti vissi ég ekkert hvernig plata þetta yrði en fannst ég samt bera ábyrgðina að kynna hvern tón- listarmann fyrir sig og gera það vel og líka sjá til þess að platan sjálf væri heilsteypt og sterk.“ Ákvað að sleppa tökunum Á síðustu plötu Gyðu, Evolution (2018), flutti hún eigin verk. Að gefa út eigin tónlist er, sem von er, ann- ars konar reynsla en að flytja verk annarra. „Þegar maður er að búa til sína eigin plötu þá er maður alltaf að spyrja sig: „Hvað vil ég segja?“ og á það til að fara í einhverja sjálfsmyndarkrísu. Það er svo rosa- lega persónulegt og ég átti satt að segja erfitt með það til að byrja með. Það var kannski þess vegna sem ég byrjaði á að gefa út fyrstu Epicycle-plötuna þar sem ég er flytjandi,“ segir Gyða. „Evolution fékk að hluta til það nafn vegna þess að ég ákvað að sleppa tökunum og vera ekkert að reyna að gera plötu sem væri ein- hvern veginn sneiðmynd af mér, heldur kannski bara einn fingur. Þetta er bara lítill kafli og ég vissi að ég þyrfti að segja hann fyrst.“ Gyða stendur í fyrsta sinn sjálf að baki útgáfunni. „Það er rosalega mikil vinna sem hefur ekkert með það að gera að vera tónlistarmaður,“ segir hún og hlær. Hún hefur einnig framleitt tvö tónlistarmyndbönd sem fylgja plöt- unni. Annað þeirra er við verk Daní- els Bjarnasonar, „Air to Breath“. „Verkið hans Daníels er það eina sem hefur verið gefið út áður en ég vissi strax að ég vildi hafa það á plöt- unni því ég elska það verk. Ég finn svo mikinn samruna við verkið þegar ég flyt það. Hugmyndin að mynd- bandinu var að undirstrika þetta samband milli flytjenda og höf- undar. Þannig að ég fékk Daníel til þess að vera með í myndbandinu þar sem ég er að spila verkið fyrir hann,“ segir Gyða. „Það er einnig dýpri þráður en tónskáld og flytjandi þar sem við vorum par í 6 ár. En svo fannst mér þetta smá „banal“ hug- mynd svo ég hafði samband við Ragnar Kjartansson sem ég hef unnið mikið með. Hann er snillingur í að skapa gull úr „banal“ hugmynd- um svo ég fékk hann til þess að leik- stýra myndbandinu.“ Gyða gaf út annað myndband við verk sem hún samdi ásamt Jónsa, „Evol Lamina“. „Það var svona sóttkvíarmyndband. Ég var í þrjá mánuði í einangrun í New York og ákvað þá að gera tónlistarmyndband heima í stofu.“ Sannkallað sóttkvíarmyndband Gyða býr og starfar í Reykjavík og New York. Hún hefur verið á stöðugu flakki síðustu ár og segir þessa veru í Brooklyn hafa verið lengstu dvöl sína á sama stað í níu ár. Það hafi því verið upplifun út af fyrir sig. Þrátt fyrir að myndbandið við verk Jónsa væri sannkallað sóttkví- armyndband vildi Gyða ekki vera á náttfötunum, þótt það væri viðeig- andi. „Ég sá föt eftir kínverskan fatahönnuð, Rui Zhou, á Instagram og ég hugsaði strax: „Já, ég vil vera í þessu.“ Svo ég hafði samband við hana. Hún var í sóttkví í Kína en það vildi svo til að búningurinn var hjá vinkonu hennar í korters göngu- fjarlægð frá húsinu mínu í Brooklyn. Svo ég setti bara á mig grímuna og fór út fyrir hússins dyr í fyrsta sinn í sex vikur.“ Aðstæður til plötuútgáfu eru óvenjulegar enda ekki auðsótt að halda tónleika til að kynna útgáfuna um þessar mundir. „Það eru tón- leikar, í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, á varamannabekknum að bíða eftir því að leikurinn byrji. Þeir verða að öllu óbreyttu 23. september í Norðurljósum Hörpu. Við erum bara að bíða og vona en eins og er þá er hugmyndin að hleypa fáum inn í salinn svo fólk geti haldið tveggja metra reglunni og ef til vill spilum við oftar.“ Gyða hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs í nóvember í fyrra. „Það er mikil viðurkenning og ég þurfti orkulega að stíga inn í hana. Verðlaunin gáfu mér ákveðið frelsi, til að einbeita mér að eigin sköpun og til dæmis að gefa út plötuna sjálf. Svo hefði ég örugglega skipulagt tónleikaferðalag ef aðstæður væru aðrar, en í stað þess hef ég verið svo- lítið undir feldi, en kannski eru flest- ir það líka.“ Gyða er byrjuð að vinna að næstu plötu með eigin tónsmíðum. „Mér finnst ég ekki geta sokkið almenni- lega inn í sköpun hennar fyrr en þessi er komin út, þá skapast meira pláss.“ Platan Epicycle II verður fáanleg, bæði á geisladisk og vínyl, í helstu tónlistarverslunum auk þess sem hún verður aðgengileg á streymis- veitum frá og með morgundeginum. Þess má geta að miðasala hefst í næstu viku á tónleika Gyðu og er takmarkaður fjöldi miða í boði. Morgunblaðið/Eggert Sellóleikari „Þar sem öll tónskáldin á fyrstu plötunni voru löngu farin fékk ég öllu að ráða en nú vel ég sprelllifandi íslenskt tónlistarfólk,“ segir Gyða. Epicycle II er óður til samstarfs  Gyða Valtýsdóttir gefur út plötuna Epicycle II  Vann með átta íslenskum samtímatónskáldum  Finnur fyrir frelsi í hlutverki flytjanda  Vonast til að halda útgáfutónleika 23. september Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.