Ægir - 2019, Blaðsíða 19
19
Hafrannsóknastofnun leggur til að
loðnuveiðar verði ekki leyfðar á ver-
tíðinni í vetur. Þetta er niðurstaða
haustleiðangurs Íslands og Noregs á
hafsvæðinu milli Íslands og Græn-
lands og norðan Íslands. Heildarmagn
loðnu mældist 795 þúsund tonn og þar
af var metin stærð veiðistofns vertíð-
arinnar 2019/2020 einungis um 186
þúsund tonn. Það nægir ekki til að
veiðar séu ráðlegar.
Stórt svæði kannað
Bergmálsmælingar á stærð loðnustofns-
ins vorgu gerðar á rannsóknaskipinu
Árna Friðrikssyni og norska uppsjávar-
skipinu Erosi dagana 9. september – 21.
október. Rannsóknasvæðið náði frá
landgrunninu við Austur-Grænland frá
um 75°00’N og suðvestur með land-
grunnskanti Grænlands suður fyrir 64°N,
en auk þess til Grænlandssunds, Íslands-
hafs, hafsvæðisins vestan Jan Mayen
auk Norðurmiða.
Loðna fannst víða á rannsóknasvæð-
inu. Ungloðna, sem myndar hrygningar-
og veiðistofninn á vertíðinni 2020/2021,
var vestast og sunnan til á svæðinu en
eldri loðna var mest áberandi norðar á
landgrunni Grænlands, austan við Sco-
resbysund. Lítið fannst af fullorðinni
loðnu innan íslenskrar lögsögu og var
útbreiðsla loðnunnar vestlæg, líkt og
verið hefur undanfarin ár. Þó var minna
um loðnu norðanvert á rannsóknasvæð-
inu en verið hefur undanfarin ár og ekk-
ert fannst norðan við 71°30.
Talsvert af ungloðnu
Heildarmagn loðnu mældist 795 þúsund
tonn og þar af var metin stærð veiði-
stofns vertíðarinnar 2019/2020 einungis
um 186 þúsund tonn. Töluvert var hins-
vegar um ungloðnu og mældust tæplega
83 milljarðar eða 608 þúsund tonn af
ókynþroska loðnu en samkvæmt afla-
reglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt
verði með upphafsaflamarki fiskveiði-
ársins 2020/2021. Gögn um niðurstöður
ungloðnumælinganna verða lögð fyrir
Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) sem
mun veita ráð um upphafsaflamark ver-
tíðarinnar 2020/2021 þann 29. nóvember.
150.000 tonn verði til hrygningar
Gildandi aflaregla byggir á því að skilja
eftir 150 þúsund tonn til hrygningar í
mars 2020 með 95% líkum. Tekur afla-
reglan tillit til óvissumats útreikning-
anna, vaxtar og náttúrulegrar dánartölu
loðnu, auk afrán þorsks, ýsu og ufsa á
loðnu. Í samræmi við aflaregluna ráð-
leggur Hafrannsóknastofnun að ekki
verði leyfðar loðnuveiðar á vertíðinni
2019/2020.
Hafrannsóknastofnun mun að vanda
mæla veiðistofn loðnu í janúar/febrúar
2020 og endurskoða ráðgjöfina í ljósi
þeirra mælinga, gefi niðurstöður mæl-
inganna tilefni til.
Hafrannsóknastofnun
Loðnuveiðar ekki að
óbreyttu í vetur
■ Loðna var mæld á stóru svæði fyrir vestan og norðan Ísland. Hér má sjá
útbreiðslu hennar í haustmælingunum.