Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 25

Ægir - 2019, Blaðsíða 25
25 fremst úr fiskeldi, sem aukist hratt ár frá ári. Í því stóra samhengi séu íslenskir framleiðendur algjörir dvergar og sem dæmi sé spáð um 5 milljóna tonna fram- leiðslu í laxeldi í Noregi árið 2050 en hér sé miðað við 170 þúsund tonna fram- leiðslu að hámarki á sama tímapunkti. Aukningin byggist á meiri tækni, kyn- bótum og sölustarfi. Nú séu til dæmis 80 ný eldisleyfi í burðarliðnum í Noregi og verið að fjárfesta fyrir háar upphæðir í þessum mikla fyrirhugaða vexti. Verið sé að þróa úthafseldisstöðvar í líkingu við borpalla. Hér á landi sé búið að mynda fiskeldisstefnu sem byggist á áhættumati Hafrannsóknastofnunar. „Vonandi náum við tökum á þessari grein vegna þess að það er einmitt atvinnugrein eins og fisk- eldið, sem getur vaxið með okkur og skapað aukna velferð.“ Verðum að þora að fjárfesta í því sem við trúum á „Í fiskveiðunum ætlum við að auka gæði með því að flytja lifandi fisk að landi og höfum keypt skip til þess. Við ætlum að dæla fiskinum úr dragnótinni eða troll- inu um borð og og flytja hann lifandi í vinnsluna. Við trúum því að þetta sé framtíðin og þetta er að koma. Nú erum við að byggja frá grunni það sem verður fremsta hátækni fiskvinnsluhús í heimi. Við verðum að þora að fjárfesta í sýn- inni sem við trúum á,“ sagði Jón Kjartan. Tvær leiðir, önnur ófær Sigurður Ólason, framkvæmdastjóri Marel Fish, ræddi þær áskoranir og tæki- færi sem framundan eru í framleiðslu matvæla tengdum tækniframförum og sjálfbærnisjónarmiðum. Hann nefndi tvær leiðir til að svara spurningunni um hvar við munum standa eftir 20 ár. Önn- ur sé að ákveða að slást í för með öðrum og taka á leiðinni margar góðar ákvarð- anir en vandinn sé að ekki sé ljóst hvert förinni sé heitið. Hún geti endað bæði bæði vel og illa. „Ég segi því; við þurfum að ákveða hvar við ætlum að vera. Þetta er alfarið undir okkur komið. Það þarf heildræna nálgun allra hagsmunaaðila til þess að fara úr stöðunni sem við erum í í dag, sem er í rauninni mjög góð. En ef við ætlum að stíga skrefinu lengra þarf sam- stillt átak,“ sagði Sigurður. Hann sagði að hjá Marel hafi verið tekin ákvörðun fyrir mörgum árum um að fyrirtækið verði leiðandi í matvæla- framleiðslu í heiminum. Það hafi tekist með margra aðstoð. „Við sjáum fyrir okkur heim þar sem gæðamatvæli eru framleidd á sjálfbæran og hagkvæman hátt. Við vitum að árið 2050 verða 10 milljarðar manna á jörðinni. Það þarf að fæða allt þetta fólk.“ Róbótar verða algengari Hann sagði að auka þurfi vöruþróun í framleiðslu sjávarafurða og það hafi gengið vel. Nú séum við komin inn í fjórðu iðnbyltinguna. Róbótavæðingin hafi farið af stað í þriðju iðnbyltingunni í stórum atvinnugreinum en matvæla- framleiðslan hafi þar í raun verið skilin eftir. Þar liggi tækifærin í dag. Verið sé að fara inn í framtíð þar sem gagnaöflun og úrvinnsla þeirra verði sjálfvirk. Til verði heildarvinnslulausnir þar sem gervigreind verði notuð í sjálfvirkar ákvarðanir um vinnslustýringu og ró- bótar sjái um störfin. „Það sem rekur okkur áfram að hluta til í þessu er skortur á vinnuafli. Við þurfum að fullvinna afurðirnar nær auðlindinni þannig að við séum ekki að flytja utan lítið eða óunninn fisk. Við þurfum að vinna afurðirnar meira og þar kemur róbótinn til sögunnar,“ segir Sigurður og bætir við að með þessari þróun fækki störfum í vinnslu sjávaraf- urða. Við það verði menn einfaldlega að horfast í augu. Fólk muni missa vinnuna við fiskvinnslu en önnur tækifæri muni hins vegar skapast. ■ Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja hf. ■ Sigurður Ólason, framkvæmdastjóri Marel Fish. Sjávarútvegsráðstefnan 2019

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.