Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 24

Ægir - 2019, Blaðsíða 24
24 Sjálfvirkni mun taka yfir í íslenskri fiskvinnslu innan 20 ára og hefur reyndar þegar hafið innreið sína í vinnsluna í verulegum mæli. Tækni- væðingunni eru litlar skorður settar en henni er ætlað að draga úr fram- leiðslukostnaði og auka samkeppnis- hæfni á alþjóðavísu. Þetta mun leiða af sér mun minni mannaflaþörf og mun því störfum í landvinnslu óhjá- kvæmilega fækka. Svipaða sögu er að segja af fiskveiðum. Tækninni þar fleygir fram, fiskilestar eru þegar orðnar mannlausar og enginn ís- mokstur lengur. En lengra verður haldið og hugsanlega verður hægt að senda fiskiskipin mannlaus út eða hreinlega „reka hann í réttir eins og sauðfé“. Í fiskeldinu sjá menn fyrir sér úthafs- eldisstöðvar sem sökkt er í sjó með sjálf- virka fæðustýringu og að rafrænt eftirlit verði úr landi. Jafnvel ræða sumir um að hefðbundnum veiðum verði hætt og fiski smalað saman með ýmsum aðferðum eins og loftbólublæstri eins og hvalir nota til að þétta fiskitorfur. Þessar hugleiðingar komu fram á Sjávarútvegsráðstefnunni sem haldin var í Hörpu nýlega. Þar lýstu Jón Kjart- an Jónsson framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja, Alfreð Tulinius stjórnarfor- maður skipahönnunarfyrirtækisins Nautic og Sigurður Ólason framkvæmda- stjóri Marel Fish, framtíðarsýn sinni í þessum efnum undir yfirskriftinni „Hvar stendur íslenskur sjávarútvegur eftir 20 ár?“ Að kaupa fisk í matinn með „appi“ „Störfin og framleiðslan hafa breyst mik- ið á undanförnum 20 árum og spurning- in er hvar við ætlum að vera eftir 20 ár,“ sagði Jón Kjartan. Hann sagði að þróa þyrfti fiskeldi áfram, huga að breyting- um á skipastólnum með hliðsjón af orku- notkun og tæknivæða fiskvinnsluna. Í framtíðinni verði mikilvægast hvernig eigi að nálgast neytendur. „Við munum þurfa að stytta virðiskeðjuna og nálgast neytendur meira með beinum hætti. Það verða ekki sömu aðferðir og í dag, upp- lýsingar þurfa að vera aðgengilegri raf- rænt um vörurnar okkar í versluninni eða á netinu í einhvers konar inn- kaupa„appi“ í símanum.“ Hann benti á að aukið framboð á sjávarmeti í heiminum komi fyrst og ■ Mikill áhugi var á málstofunni um framtíð sjávarútvegs á Íslandi, líkt og almennt á umfjöllunarefnum Sjávarútvegsráð- stefnunnar 2019. Sjávarútvegur á Íslandi eftir 20 ár

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.