Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 21

Ægir - 2019, Blaðsíða 21
21 boðsaðili fyrir, rafmagnsknúin spil eru frá Seaonics, brúarkerfi frá SeaQ, dóttur- fyrirtæki Vard og tæki í brú að stórum hluta af gerðinni Furuno. 90 metrum styttra skip en það síðasta! „Við fengum svo sem ekki mikil veður á okkur á heimleiðinni, svolítinn hliðar- vind sem skipið stóð mjög vel af sér. Mér líst því afskaplega vel á skipið. Mín til- finning er sú að skipið velti ekki mikið, enda mjög breitt miðað við lengd en svo er að sjá hvernig það verður í miklum mótvindi,“ segir Hjörtur sem hefur und- anfarin ár stýrt mun stærri togskipum hjá fyrirtækjum Samherja erlendis, bæði togaranum Kristina og var nú síðast á verksmiðjuskipinu Heineste. „Það skip er 120 metra langt þannig að ég er að fara yfir á skip sem er 90 metrum styttra! Og fækka um 90 menn í áhöfn þannig að þetta er mikil breyting fyrir mig,“ bætir Hjörtur við og hlær. „En það er enginn vafi að öll aðstaða í Harðbak er eins og best verður á kosið, hvort heldur eru vinnusvæðin á rúm- góðu millidekki, togdekki eða í íbúðum. Þessi mikla breidd skilar sér á mörgum sviðum,” segir Hjörtur en áætlað er að skipið haldi í fyrstu veiðiferð fljótlega á nýju ári. ■ Fyrsti Harðbakurinn kom nýsmíðaður til Akureyrar árið 1950. Nýja skipið er það þriðja sem ber þetta nafn. ■ Heimkomu nýja togarans fagnað. Frá vinstri: Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, Friðrik Karlsson, yfirvélstjóri, Hjörtur Valsson, skipstjóri, Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, eiginkona hans og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja. ■ Hjörtur Valsson, skipstjóri, í brúnni ásamt eiginkonu sinni, Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.