Ægir - 2019, Page 27
27
Alfreð Tulinius, stjórnarformaður Nautic ehf.
ritform.is
Riform ehf.
Síðumúla 23 // 108 Reykjavík
Glerárgötu 24 // 600 Akureyri
ritform@ritform.is
Fjölbreytt útgáfa
Á vegum Ritforms eru gefin út
kynningarblöð þar sem fjallað er með
faglegum hætti um íslenskt
atvinnulíf.
Í útgáfuflóru Ritforms er að finna
blaðið Sóknarfæri sem dreift er til
allra fyrirtækja í landinu. Þar er
fjallað um sjávarútveg, verklegar
framkvæmdir og orkumál. Einnig
gefur Ritform út tímaritið Ægi í
áskrift og Cool Atlantic,
kynningarrit á ensku um íslenskan
sjávarútveg.
Hönnun og umbrot
Ritform tekur að sér hönnun
af ýmsu tagi:
Blaðaumbrot
Ársskýrslur
Auglýsingar
Markpóstur
Bæklingar
Nafnspjöld
Við sjáum um öll samskipti
við prentsmiðjur og finnum
ávallt hagkvæmustu
prentunina.
Útgáfa fyrir atvinnulífið
kaupapoka á eftir sér og vona að innkom-
an sé góð og af þeirri tegund sem við vilj-
um. Erum við kannski föst í kassanum?
Getum við mögulega horft til tækni sem
höfrungar og hvalir nota til veiða á fiski?
Tækni sem felst einfaldlega í loftbólu-
hring sem umkringir fiskinn, því meira
að segja hvalurinn veit að hann fer ekki
þar í gegn. Er mögulegt að við sjáum að
uppsjávarveiðar hætti að vera með þeim
hætti að við drögum flottroll heldur smöl-
um fiskinum saman á einhvern stað þar
sem við getum annaðhvort slegið um
hann hring með hefðbundnum nótabún-
aði eða dælt honum strax um borð? Má
sjá fyrir sér að við getum notað neðan-
sjávardróna í svona loftbólusmölun? Er
möguleiki að við förum jafnvel að hús-
dýravæða fiskinn í sjónum? Smölum eftir
þörfum, drögum í dilka eins og við smöl-
um fé að hausti. Getum við mögulega
lokkað fiskinn með hljóðmerkjum á einn
stað þar sem við viljum fá hann og getum
síðan notfært okkur og nýtt? Er hægt að
tæla hann með því að tilkynna ætisveislu
á ákveðnum stað og síðan tekið til okkar
starfa? Við megum ekki gleyma því að
horfa út fyrir borðstokkinn og horfa á
hvort aðferðin sem við notum nú sé sú
besta,“ sagði Alfreð.
■ Eitt af þeim skipum sem Nautic ehf. hefur hannað á allra síðustu árum. Form þessara skipa er talsvert frábrugðið því sem
menn hafa átt að venjast í skipahönnun um langt skeið.