Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Blaðsíða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.8. 2020
Ég kveikti á hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í vikunni. Það væri svosem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að sjálf poppprins-essan (hvað eru mörg pé í því?) Britney Spears var til umfjöllunar.
Fréttin var greinilega vel á veg komin; hermt af afrekum hennar í popp-
heimum og að hún hefði fyrir giska löngu byrjað að hegða sér undarlega.
Við hjónin litum hvort á annað og vorum greinilega á sömu blaðsíðunni:
Hún er dáin! Hvaða önnur skýring gat verið á því að Britney Spears væri
til umfjöllunar í hádegisfréttum útvarps?
Nú heyrir hvorugt okkar til fjölmennum aðdáendahópi Britneyjar – ég
þekki bara eitt lag með henni, það heitir Úps – en það er alltaf sorglegt
þegar fólk deyr, ekki síst langt fyrir aldur fram en Britney var ekki orðin
fertug. „Hún átti um margt erfiða
ævi, vonandi fær hún nú frið,“ sagði
ég til að segja eitthvað; eins og
maður gerir á stundum sem þess-
um. Síðan drúptum við hjónin höfði
í virðingarskyni við prinsessuna.
En hvað var a’tarna? Skyndilega
hresstist fréttakonan í útvarpinu og
tvær grímur runnu á okkur hjónin.
Britney var hreint ekki dáin, heldur
hefur hún aðeins óskað eftir því við
dómara í Los Angeles að faðir
hennar, Jamie, fái ekki að taka aft-
ur við hlutverki forráðamanns
hennar. Okkur var vitaskuld létt en héldum eilítið ringluð aftur út í daginn
eftir þessa undarlegu uppákomu. Britney ríkari.
Um kvöldið sátum við að snæðingi á sveitasetri okkar, ásamt yngsta syni
okkar og sonardóttur, með kvöldfréttir sjónvarps í bakgrunninum. Byrjar
þá ekki Bogi Ágústsson, af öllum mönnum, að tala um Britney. Hann sagði
það ekki upphátt en ég las úr augunum á syni mínum að hann var ekki í
nokkrum vafa um að Britney væri öll. Hvaða önnur skýring gæti verið á því
að Bogi Ágústsson væri að tala um hana í kvöldfréttum sjónvarps? Ég flýtti
mér að leiðrétta þetta, Britney væri enn í fullu fjöri, og syni mínum létti
strax. Hann heyrir ekki heldur til fjölmennum hópi aðdáenda Britneyjar en
finnst alltaf sorglegt þegar fólk deyr, ekki síst langt fyrir aldur fram.
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem manneskja „deyr“ á minni
vakt. Ekki er langt síðan ég rakst óvænt á minningargreinar um kunningja
elsta sonar míns í Morgunblaðinu; mann á aldur við Britney. Brá nokkuð en
hámaði að vonum í mig minningargreinarnar. Í hádeginu hittumst við feðg-
arnir svo í bumbuboltanum og hafði ég að sjálfsögðu orð á því hvað þetta
væri sorglegt og vottaði syni mínum samúð. „Ha?“ hváði drengurinn. „Þetta
er sama nafnið en kunningi minn er sprelllifandi. Þetta hlýtur að vera kunn-
ingi einhvers annars?“ Aftur létti mér. Fátt jafnast á við upprisur mann-
anna!
Nei, ekki Britney!
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Hvaða önnur skýringgat verið á því aðBritney Spears væri tilumfjöllunar í hádegis-
fréttum útvarps?
Guðrún Tryggvadóttir
Bara mjög vel. Maður verður bara
að lifa með kórónuveirunni, það er
bara þannig.
SPURNING
DAGSINS
Hvernig
leggst
haustið í
þig?
Ingvar Ómarsson
Ágætlega. Það er ekki jafn slæmt og
ég hélt það yrði.
Linda Benjamínsdóttir
Bara ágætlega.
Þorsteinn Kolbeinsson
Bara mjög vel. Maður verður að
vera jákvæður.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Hvað ertu að gera á Íslandi?
Ég bý í Cleveland í Ohio en ákvað að búa í haust hjá
íslensku fjölskyldunni minni vegna þess að kórónuveiru-
faraldurinn er svo slæmur í Bandaríkjunum. Ég kom hingað
fyrsta júní í sumarfrí með mömmu, pabba og systur minni en
ákvað svo að verða eftir þegar þau fóru heim. Lífið er betra
hér núna og meira frelsi. Hér er hægt að eiga venjulegt líf.
Hvernig var vorið hjá ykkur?
Í mars var skólanum lokað og við þurftum að fara í fjarnám.
Það var bara einn tími á netinu á dag en mest var bara heima-
nám. Svona var þetta í þrjá mánuði.
Hvernig var það?
Mér fannst það mjög leiðinlegt. Venjulega hittir maður mikið
vinkonur sínar í frímínútum og stundum eftir skóla, en í vor
hitti ég engan og var mjög innilokuð.
Máttir þú hitta vini þína á kvöldin?
Nei, við máttum ekkert hittast nema að virða tveggja metra
regluna og við máttum bara hittast utandyra. Enginn bauð nein-
um inn til sín. Reglurnar úti eru miklu strangari en á Íslandi.
Þú þurftir að fara í sóttkví við komuna í júní,
hvernig var það?
Það var allt í lagi því ég hafði systur mína sem ég hafði ekki séð
lengi. Við skemmtum okkur vel saman.
Hvað ætlar þú að gera hér í haust?
Þegar ég er ekki í fjarnámi í mínum skóla ætla ég að fara í tíma í
Kvennó. Ég er mjög spennt að prófa íslenskan skóla. Vonandi
eignast ég vinkonur þar.
Morgunblaðið/Ásdís
LÓA SCHRIEFER SITUR FYRIR SVÖRUM
Venjulegt líf
á Íslandi
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Menntaskólaneminn Lóa Schriefer, frá Ohio, ákvað að stunda nám
sitt hérlendis í gegnum tölvu, auk þess að sækja tíma í Kvennó.
Hún er íslensk í aðra ættina.
t í næsta
óteki
Kem augnlokin þ.e. á lokuð augun.
ugnlinsum.
Fæs
Ap
ur sem hentugur úði en honum er spreyjað yfir
Úðann má nota með farða og a
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is