Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.8. 2020
LÍFSSTÍLL
Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS
HJÓLALÁSAR
FRÁ TRELOCK
Sjáðu úrvalið og veldu lásinn
sem hentar þér á www.lykillausnir.is
Það er ys og þys á kaffihúsinuSkool Beans í Vík í Mýrdal.Þetta óvenjulega kaffihús er í
gömlum gulum amerískum skóla-
strætisvagni og er engu líkt. Eigand-
inn, hin breska Holly Keyser, tekur
vel á móti gestum og gangandi og
kaffiilmurinn liggur í loftinu. Skilti
við dyr varar við lágri lofthæð og
minnir um leið fólk á að spritta sig. Í
einu horni logar glatt í arni og er
stemmningin notaleg. Kötturinn
Jeffrey þvær sér hátt og lágt og yljar
sér við hitann frá eldinum.
Keypti bilaðan strætisvagn
Holly býr til kaffi og beyglu handa
blaðamanni sem spyr hvað í ósköp-
unum hún sé að gera á hjara ver-
aldar að búa til kaffi. Holly segist
hafa verið lögregluþjónn í heima-
landi sínu í áratug áður en hún flutti
til Ástralíu, en þar lærði hún til kaffi-
barþjóns. Ævintýralöngun dró hana
svo til Íslands.
„Í Ástralíu uppgötvaði ég gildi
þess að gefa fólki gott kaffi. En ég
vildi komast aðeins nær Englandi
þannig að ég flutti til Íslands fyrir
þremur árum. Hér var mér boðin
vinna sem jöklaleiðsögumaður. Ég
var í leit að ævintýri,“ segir Holly
sem bjó þá á Kirkjubæjarklaustri og
vann í Skaftafelli.
„Ég uppgötvaði svo Vík fyrir til-
viljun þegar ég stoppaði hér á leið
minni frá Reykjavík til Kirkjubæj-
arklausturs og sá að hér var svo
margt í gangi. Ég kann svo vel að
meta andrúmsloftið í Vík þannig að
ég keypti mér hús hér. Reyndar var
það í sömu viku og ég keypti strætis-
vagninn,“ segir hún.
„Ég sá þennan bilaða strætó og
keypti hann á hundraðþúsundkall og
gerði við hann. Það eru nú tvö ár síð-
an en þetta verkefni hefur tekið
þennan tíma. Ég gerði sjálf upp
strætóinn með góðri hjálp frá vinum
hér,“ segir hún og segir samfélagið á
Vík engu líkt.
Þrátt fyrir kórónuveirufaraldur
ákvað Holly að opna kaffihúsið Skool
Beans nú í byrjun ágúst.
„Sólarhring eftir að nýjar Covid-
Holly opnaði nýlega kaffihúsið Skool
Beans en undirbúningur hefur stað-
ið yfir í tvö ár. Hún og kisan Jeffrey
taka vel á móti gestum og gangandi.
Kaffihúsið er í gömlum
amerískum strætó og er
hann staðsettur við golf-
völlinn og tjaldstæðið í Vík.
„Ég vil að allir labbi
hér út brosandi“
Jeffrey er gestrisinn hefðarköttur sem vekur lukku hjá gestunum.
Skool Beans er glænýtt
kaffihús í Vík í Mýrdal.
Í gömlum amerískum skóla-
vagni er gott að drekka
eðalkaffi, te og súkkulaðiskot.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is