Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.8. 2020 LESBÓK Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Fjarðarkaup, Melabúðin, Frú Lauga, Matarbúr Kaju Akranesi ÁLAG „Eftir því sem tíminn líður átta ég mig betur á því undir hvílíku álagi ég var. Ég gerði mér ekki al- mennilega grein fyrir því á þessum tíma að öðru leyti en því að mér leið óþægilega. Núna, 25 árum síðar, skil ég að ég var undir ómanneskjulegu álagi,“ segir skoska söngkonan Shirley Manson í samtali við breska blaðið The Independent en þess er minnst þessa dagana að ald- arfjórðungur er liðinn frá útgáfu fyrstu breiðskífu hinn- ar vinsælu rokksveitar Garbage. Hún segir styrk sveit- arinnar hafa legið í því að hún var fersk og tókst að flétta ólíkar stefnur saman. „Við hljómuðum allt öðru- vísi en aðrir á þessum tíma,“ segir Manson en í viðtalinu kemur fram að hún hafi undrast hversu margir höfðu trú á henni. „Sjálf leit ég alls ekki á mig sem söngkonu.“ Ómanneskjulegt álag Shirley Manson í Laugardalshöll 1999. Morgunblaðið/Kristinn ÁHYGGJUR Steve „Lips“ Kudlow, söngvari hins goðsagnakennda málmbands Anvil, er ekki sérstaklega bjartsýnn fyrir hönd tón- leikahalds í bráð og lengd, ef marka má orð hans í hlaðvarpsþættinum Between Awe- some and Disaster. „Heimurinn er á hvolfi. Maður getur sig hvergi hrært án þess að hafa áhyggjur. Staðan er á marga lund mjög flók- in. Sjáum hvað setur en að mínu mati eru tón- list og tónleikar það seinasta sem snýr aftur, ef það gerist þá yfirleitt,“ sagði hann og bætti við að öðru máli gegndi um íþróttir en tónlist. „Fólki þykir íþróttir mikilvægari en tónlist. Guð má vita hvers vegna en þannig er það.“ Ekki bjartsýnn á tónleikahald Lips karlinn hefur oftast verið bjartsýnni en nú. AFP Hlaupagikkurinn Tom Cruise. Hleypur einn HLAUP Fáir, ef nokkur leikari, hafa tekið oftar á rás í kvikmynd- um sínum en bandaríski hjarta- knúsarinn Tom Cruise; óhætt er líklega að fullyrða að hann sé ókrýndur konungur spretthlaup- anna á hvíta tjaldinu. Stuart Her- itage, blaðamaður The Guardian, leggur út af þessu í nýlegri grein og vekur athygli á því að erfitt sé að dæma um spretthörku Cruise enda hlaupi hann iðulega einn. Hann hljóp einn í Vanilla Sky, einn í Minority Report og einn í Mission: Impossible-myndunum. Í War of the Worlds reyndu menn að hlaupa með Cruise en voru þurrkaðir út af geimverum. „Getur verið að Cruise líti svona vel út vegna þess að það hleypur aldrei nokkur maður með honum?“ spyr hann. Það er nú það. Ég veit ekki undir hvaða blætieða heilkenni það fellur en éghafði lúmskt gaman af því að rifja upp áhugaverðar aukapersónur úr ástsælustu sápuóperu síðustu aldar, Dallas, á þessum vettvangi um liðna helgi. Alltaf gaman að halda til haga upplýsingum sem skipta nákvæmlega engu máli. Úr því að umsjónarmaður Sunnudags- blaðsins er grunlaus og afslappaður í sumarleyfi þá misnota ég bara kinnroðalaust aðstöðu mína og held hér áfram á sömu braut. Látum Dallas að vísu liggja milli hluta í þessari umferð en horfum til alls- kyns annarra eftirminnilegra sjón- varpsþátta og aukapersóna sem þar komu við sögu og auðguðu líf okkar með tilvist sinni og uppátækjum. Hvað segið þið um að byrja á Twin Peaks, þrjátíu ára gömlu snar- undarlegu morðdrama eftir David Lynch, þar sem okkar maður, Sig- urjón Sighvatsson, kom að málum bak við tjöldin? Eins og þið munið hverfðist sá ágæti þáttur um Lauru nokkra Pal- mer; eða öllu heldur morðið á henni. Laura sjálf kom á hinn bóginn sama sem ekkert við sögu og fékk aldrei tækifæri til að gera grein fyrir ferð- um sínum og gjörðum undir það síð- asta sem rannsókn leiddi í ljós að voru í besta falli dularfullar. Þess vegna hljótum við að vera í fullum rétti þegar við skilgreinum hana sem aukapersónu. Hver myrti ann- ars Lauru Palmer? Twin Peaks þynntist svo út er á leið að maður var löngu búinn að tapa þræðinum. Og kalla ég þó ekki allt ömmu mína þegar kemur að sjónvarspglápi. Réttnefndur höfðingi Jerry „Hands“ Espenson, úr hinu spéræna lagadrama Boston Legal hlýtur að komast á listann hjá okk- ur. Ykkur að segja er hann ein af mínum uppáhaldspersónum, auka og aðal, í sjónvarpssögunni. Jerry karlinn var á alls konar rófi og ómögulegur í mannlegum sam- skiptum en með hjarta úr gulli. Hann bjó með uppblásinni brúðu sem hann fór gjarnan með í sunnu- dagsbíltúr. Einu sinni komu þau skötuhjúin í lúgusjoppu og af- greiðslumaðurinn spurði í fáfræði sinni, þegar hann sá þá uppblásnu í framsætinu, hvort til stæði að gera „do-do“ á eftir. Fauk þá heldur bet- ur í okkar mann enda voru ástir þessa sómapars að sjálfsögðu plat- ónskar. Nema hvað? Réttnefndur höfðingi, Jerry Espenson. Edie Britt úr Aðþrengdum eiginkonum. Auka á gleði okkar Hafið þið haldið að ég væri búinn að ryðja úr mér öllum þeim aukapersónum úr sjónvarpsþáttum sem mér koma í hug skuluð þið hugsa ykkur um tvisvar. Við erum sumsé að henda okkur í annan umgang og nú komum við víðar við en seinast. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Marty Castillo úr Miami Vice. Harry Klein. Ekki fannst mynd af honum án Derricks.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.