Morgunblaðið - 11.09.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020
NÝJ
UNG
!
Hlæðu, hoppaðu,
hóstaðu og hnerraðu
áhyggjulaus!
Öruggar þvaglekavörur
Extra
rakadræg
100%
Lyktarvörn
Passa
frábærlega
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Leigusamningum um íbúðarhúsnæði
á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað
mikið í sumar samanborið við sein-
asta ár. Í júlí var þinglýst 596 leigu-
samningum og í ágúst voru þeir 578
samkvæmt tölum sem Þjóðskrá Ís-
lands hefur birt yfir fjölda þinglýstra
leigusamninga. Í ágústmánuði í
fyrra var fjöldi leigusamninga 443 á
höfuðborgarsvæðinu og er aukning-
in milli ára því 30,5%.
Töluverðar breytingar urðu einnig
í öðrum landshlutum í leigu íbúðar-
húsnæðis í sumar, ýmist til hækk-
unar eða lækkunar frá því í fyrra, en
í sumum tilvikum er þó um mjög fáa
leigusamninga að ræða. „Heildar-
fjöldi samninga á landinu var 844 í
ágúst 2020 og fækkar þeim um 1,9%
frá júlí 2020 en fjölgar um 22,7% frá
ágúst 2019,“ segir í frétt Þjóðskrár.
0,7% lækkun milli mánaða
Hagdeild Húsnæðis- og mann-
virkjastofnunar birti í gær mánaðar-
skýrslu um stöðuna á húsnæðis-
markaði. Þar kemur m.a. fram að
leiguverð hefur nánast staðið í stað á
höfuðborgarsvæðinu í sumar en ef
litið er yfir eins árs tímabil hefur
leiguverðið lækkað að raungildi um
2% á milli ára. Á öðrum landsvæðum
mælast lækkanir á milli mánaðanna
júní og júlí. Mest á Austurlandi og
Vestfjörðum.
„Vísitala leiguverðs lækkaði um
0,7% á milli mánaða í júlí síðastliðn-
um ef horft er til landsins alls. Ef
horft er til einstakra landshluta
mælist þó 1,9% hækkun frá júní til
júlí á Suðurlandi og 1,6% hækkun á
Vesturlandi. Einnig mælist 0,4%
hækkun á milli mánaða á Norðaust-
urlandi,“ segir í skýrslunni.
Fram kemur að ef horft er yfir 12
mánaða tímabil þá hefur vísitala
leiguverðs hækkað um 1,6% yfir
landið allt frá í júlí í fyrra sem þýði
um 1,4% raunverðslækkun á milli
ára. Frá maí til júlí sl. hækkaði vísi-
tala leiguverðs um tæpt 31% á Aust-
urlandi miðað við sama tímabil í
fyrra. Á Vestfjörðum mælist um 7%
lækkun á sama tíma. omfr@mbl.is
Leigusamningum fer fjölgandi
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur staðið í stað í sumar og lækkað að raungildi um 2 prósent frá í
fyrra Vísitala leiguverðs hækkaði um 1,6% yfir landið frá júlí í fyrra sem þýðir 1,4% raunverðslækkun
Fjöldi leigusamninga um íbúðarhúsnæði
Þinglýstir leigusamningar eftir landshlutum
Heimild: Þjóðskrá Íslands Breyting
Ágúst 2019 Júlí 2020 Ágúst 2020
Ágúst 2019 til
ágúst 2020
Júlí til
ágúst 2020
Höfuðborgarsvæðið 443 596 578 30,5% -3,0%
Suðurnes 81 75 76 -6,2% 1,3%
Vesturland 20 28 33 65,0% 17,9%
Vestfirðir 8 8 7 -12,5% -12,5%
Norðurland 102 94 102 0,0% 8,5%
Austurland 9 20 6 -33,3% -70,0%
Suðurland 25 39 42 68,0% 7,7%
Samtals 688 860 844 22,7% -1,9%
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Kirkjuþing hófst síðdegis í gær og
mun standa fram yfir helgi. Þar sem
ekki náðist að klára framhaldsfund
kirkjuþings í fyrra, sem frestaðist í
vor vegna kórónuveirunnar, verður
að ljúka þeim fundi fyrst. Það verður
gert í dag og mun hið eiginlega
kirkjuþing ársins 2020 fara fram um
helgina.
Biskup Íslands leggur fram tillögu
á þinginu þar sem stjórnvöld eru
hvött er til endurskoða lagaumhverfi
um hælisleitendur og flóttafólk.
Pétur Markan, samskiptastjóri
þjóðkirkjunnar, segir að það sem
upp úr standi á framhaldsfundi
kirkjuþings sé líklega sameining
sókna, bæði á höfuðborgarsvæðinu
og á landsbyggðinni.
„Þetta er í raun ekkert ósvipað og
þegar sveitarfélög eru sameinuð,“
segir Pétur. „Það er einfaldlega ver-
ið að styrkja sóknir sem hægt er að
sameina og skapa öflugri einingar
innan kirkjunnar með því. Þjónusta
þeirra sókna við sín sóknarbörn mun
því bara verða betri.“
Kynna fleiri kristsgervinga
Spurður um myndbirtingu þjóð-
kirkjunnar frá því í síðustu viku af
Kristi með brjóst og andlitsfarða
segir Pétur að hann telji að margir
hafi fyrst verið slegnir vegna máls-
ins en síðan hugleitt málið og komist
að þeirri niðurstöðu að eðlilegt sé að
þjóðkirkjan fagni fjölbreytileika
mannfólks.
„Þetta er gott dæmi um hvað það
er hollt að iðka guðfræðiumræðu og
umræðu um kristsgervinga. Við
munum á næstunni kynna fleiri
Kristsgervinga þar sem til að mynda
má sjá Jesú taka til hendinni í um-
hverfismálum. Við vitum þó að ekki
eru allir sammála um að Kristur eigi
að birtast svona og við berum auðvit-
að virðingu fyrir því.“
Biskup hvetur til
endurskoðunar laga
Kirkjuþing hófst í gær Sameining sókna stendur upp úr
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kirkjuþing Agnes M. Sigurðardóttir biskup mætir hér á kirkjuþing sem hófst í gær. Henni á hægri hönd er Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings.
Krafa var lögð
fram í gær í Hér-
aðsdómi Reykja-
ness þar sem far-
ið var fram á
gjaldþrotaskipti
flugfélagsins
Play. Arnar Már
Magnússon, for-
stjóri Play, stað-
festir þetta í sam-
tali við
Morgunblaðið. Arnar segir að þetta
muni ekki hafa áhrif á rekstur fé-
lagsins og segir í tilkynningu hans til
fjölmiðla að „Play sé komið til að
vera“.
Krafan um gjaldþrotaskiptin er
lögð fram af Boga Guðmundssyni,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
sölu- og markaðssviðs Play.
Í frétt Fréttablaðsins um málið er
fullyrt að krafa Boga hljóði upp á um
30 milljónir króna vegna vangold-
inna launa og láns sem Bogi veitti fé-
laginu.
Arnar Már segir hins vegar bæði í
samtali við mbl.is og í fréttatilkynn-
ingu að öll laun til Boga hafi verið
greidd ásamt uppsagnarfresti. Að-
spurður vildi Arnar ekki tjá sig um
ástæðu þess að Boga var sagt upp.
Fer fram á
gjaldþrota-
skipti Play
Arnar Már
Magnússon
Greinir á um
vangoldin laun